Þjóðviljinn - 10.01.1987, Side 13
Verkfallsmenn
í Frakklandi virtust í gær hafa
klofnaö í afstöðu sinni til þess
hvort halda ætti áfram járnbraut-
arverkfalli sem hefur spillt sam-
göngum í Frakklandi í rúmar þrjár
vikur. í Rennes í Bretóníu og
Chambery í Ölpunum ákváöu
járnbrautarmenn að hefja vinnu,
en í Marseille, Toulouse og
Montpellier í Suður-Frakklandi
vildu þeir halda áfram verkfallinu.
Má vænta tíðinda um helgina.
íranir
hófu stórsókn gegn írökum á
suðurvígstöðvunum rétt við hafn-
arborgina Basra, næststærsta
borg í íran. í Teheran var í gær
tilkynnt að sóknin gengi vel og
þúsundir írakshermanna hefðu
fallið, í Damaskus sögðust her-
stjórnendur hafa hrundið árásum
írana og valdið gífurlegu mann-
falli í árásarhernum. Sannleikur-
inn er talinn liggja miðja vegu.
Sókn íranshers í átt að Basra
þykir hafa að markmiði að ein-
angra borgina, sem yrði írökum
alvarlegt áfall.
Andrei Tarkovskí
er talinn hafa verið rangindum
beittur af sovéskum skriffinnum í
grein í sovéska vikublaðinu No-
voye Vremja (Nýi Tíminn) í gær.
Sovésk kvikmyndaritskoðun er
gagnrýnd undir rós og því haldið
fram að ef Tarkovskí hefði ekki
látist hefði hann getað snúið
heim til Sovét óáreittur. Eftir
dauða kvikmyndaleikstjórans
birtust óvænt eftirmæli um hann í
Tass, hinni opinberu fréttastofu,
og í blaðagreininni segir að Tark-
ovskí hafi látist á þeim tímum að
menningarlíf í heimalandi hans
væri miklum breytingum undir-
orpið.
Sex ára
strákur fann sprengju á barna-
leikvelli í Kaupmannahöfn í gær.
Hann sótti fullorðna og þeir lög-
reglu og sprakk sprengjan ekki.
Þetta er þriðja sprengjan sem á
skömmum tíma er komið fyrir á
leiksvæðum barna í Höfn, og veit
enginn hverslags geðveiki býr að
baki. Stráksi sagðist hafa kann-
ast við gripinn úr sjónvarpinu.
Gíbraltar
er Bretum og Spánverjum sífellt
deiluefni og horfir ekki vel um ár-
angur í viðræðum í næstu viku
um framtíð höfðans. Talsmaður
breska utanríkisráðuneytisins
hefur sagt að viðræðurnar muni
ekki snúast um yfirráð yfir Gí-
braltar, sem hefur verið bresk ný-
lenda frá 1703, - og þessum yfir-
lýsingum hefur talsmaður
spænska utanríkisráðuneytisins
mótmælt harðlega. Utanríkisráð-
herrarnir Geoffrey Howe og
Fransisco Fernandes Ordonez
hittast í London á þriðjudag til við-
ræðnanna. Spánverjar hafa lengi
verið súrir útí Breta fyrir að halda
Gíbraltar, en samkomulagslíkur
hafa virst vænni síðan Spánverj-
ar opnuðu landamærin við höfð-
ann í febrúar ’85.
Forsetinn Duarte
í El Salvador á mjög í vök að verj-
ast þessar vikur. Rétt eftir að tek-
ist hafði að kveða niður sterkan
orðróm um að herinn ætlaði að
steypa honum hafa stærstu
verkalýðssamtök í landinu krafist
þess að hann segi af sér og við
taki þjóðstjórn. Duarte segist
hvergi munu hreyfa sig. í dag
ætla skæruliðar FMLN að stöðva
alla umferð á þjóðvegum í El Sal-
vador. Fyrri aögerðir þeirra af
svipuðum toga hafa valdið stjórn-
inni miklum vanda, til dæmis sex
daga umferðarstöðvun í des-
ember. Verkalýðssamtökin
UNTS segja öll kosningaloforð
Duartes svikin og hafa uppi kröf-
ur um stórtækar aðgerðir, eink-
um í efnahagsmálum.
HEIMURINN
íran! Contra
Nefið á Reagan lengist
Leyniplagg úr Hvíta húsinu gefur til kynna að Reagan hafi
verið fullljóst samhengi milli vopnasölu og Beirútgísla
Washington - Leyniskjöl sem
gerð voru opinber í gær sýna
að vopnasalan til Irans átti
meðal annars að auðvelda að
bandarískum gíslum í Líbanon
yrði sleppt úr haldi, og þykir
fáum týra nema vegna þess að
Bandaríkjaforseti hefur hing-
að til neitað slíku samhengi
hlutanna.
Eitt skjalanna var nóta frá Oli-
ver North, sem John Poindexter
flutti forsetanum munnlega í jan-
úar 1986, rétt áður en Reagan gaf
leyfi til vopnasölunnar. I erindi
Norths og Poindexters, sem báðir
voru reknir úr starfi eftir að upp
komst um samskiptin við íran,
kemur skýrt fram að vopnasöl-
unni er meðal annars ætlað að
stuðla að því að fimm gíslar í
Beirút verði látnir lausir. Að auki
er þar rætt um að vopnasalan
kunni að leiða til bættra sam-
skipta við „hægfara" öfl meðal
ráðamanna í Teheran, og tekið
fram að ísraelsmenn séu mjög
áhugasamir um vopnasöluna þar-
sem þeir óttist að íranir láti
undan síga í stríðinu við íraka
samfara auknum sovéskum áhrif-
um á svæðinu. í orðsendingunni
kemur einnig fram að af áhrifa-
mönnum við stjórnvöl í Washing-
ton séu þeir Shultz utanríkisráð-
herra og Weinberger varnar-
málaráðherra andvígir sölunni,
en Casey CIA-stjóri og Meese
dómsmálaráðherra meðmæltir.
Yfirmenn í Hvíta húsinu ráða
sjálfir hvaða leyniskjöl eru gerð
opinber, og hafa grunsemdir
vaknað hjá blaðamönnum um að
með orðsendingu Norths og fleiri
birtum leyniskjölum sé verið að
fegra myndina, þótt ekki verði
komist hjá því að gera Reagan og
nánustu samstarfsmenn uppvísa
að ósannindum um jafn augljós
viðskipti og þau sem stunduð
voru með vopn og gísla.
í leyniskjölunum frá Hvíta
húsinu í gær er hvergi getið um að
„contra“-skæruliðum í Nicaragua
sé ætlað að hagnast á viðskiptum
við íran.
Hinsvegar eru sífellt fleiri frétt-
ir sagðar af leynilegum fjárstuðn-
ingi við „contra“-liða undir stjórn
Olivers North. Los Angeles Tim-
es hefur eftir félögum Norths að
hann hafi árið '84 hælt sér af mikl-
um peningaskáp sem hann hafi
fullyrt að geymdi milljón dollara
handa skæruliðum, og fyrrver-
andi félagi í andkommúnískum
samtökum til aðstoðar „contra“-
Nefið á 40. forseta Bandaríkja Norður-Ameríku. Einsog í sögunni um Gosa?
liðum sagði í gær að á fundi í janú-
ar ’85 hafi aðstoðarmaður Norths
sagt að til skæruliða streymdu
mánaðarlega tíu þúsund dollarar
úr sjóðum Öryggisráðsins
(NSC). Á þessum tíma var í gildi
bann þingsins við opinberri að-
stoð við „contra“-heri.
Suður-Afríka
Hert á ritskoðuninni
Fréttaritari New York Times rekinn úrlandi. Sprengja í
Jóhannesarborg, ANC kennt um
Jóhannesarborg - Stjórn
Suður-Afríku hefur hert enn á
ritskoðun í landinu með sér-
stakri tilskipun seint í fyrra-
kvöld þarsem dagblöðum er
bannað að flytja fréttir eða
auglýsingar þarsem bönnuð
samtök eru sýnd í jákvæðu
Ijósi. í gær var fréttaritara
bandaríska stórblaðsins New
York Times vísað úr landi, og
er hann sjötti erlendi blaða-
maðurinn sem rekinn er frá
Suður-Afríku síðan neyðar-
lögin voru sett í júní.
Fréttaflutningur frá Suður-
Afríku verður sífellt erfiðari og
ótraustari, og má til dæmis nefna
að daglegum fréttum Reuter-
stofunnar frá Jóhannesarborg
fylgir viðvörun um að fréttin sé
skrifuð eftir reglum ritskoðunar-
innar.
Dagblöð í landinu hafa þó
hvergi nærri sest í helgan stein
sjálfritskoðunar, og kom síðasta
tilkynning frá ritskoðurum dag-
inn eftir að nokkur blöð höfðu
birt auglýsingu þar sem hvatt er
til þess að skæruliða- og þjóð-
frelsissamtökin ANC, Afríska
þjóðarráðið, verði viðurkennd á
75 ára afmæli sínu.
Ekkert hefur frést um ástæður
fyrir brottrekstri New York
Times-blaðamannsins.
í gær sprakk sprengja í stór-
markaði í Jóhannesarborg.
Sprengjan var mjög öflug en
manntjón ekkert þarsem öryggis-
vörður varð sprengjunnar var
nokkrum mínútum áður en hún
sprakk. Stjórnvöld segja ANC
ábyrg. Stórmarkaðsfyrirtækið
hefur átt í útistöðum við tíu þús-
und svarta starfsmenn í verkfalli
undanfarið.
íransklandrið
Marcos með
Manila - Dagblöð á Filipps-
eyjum halda því fram að Marc-
os fyrrverandi einræðisherra
hafi boðið Bandaríkjastjórn að
hjálpa til við að upplýsa um
vopnasöluna til íran gegn því
að ráðamenn í Washington
stuðli að því að hann fái að fara
aftur til Filippseyja.
í einu blaðanna segir að
Bandaríkjastjórn hafi hafnað
boði Marcosar, en sent þingmenn
til Manila til rannsókna.
Blöðin hafa eftir ónafn-
greindum heimildarmönnum
innan Filippseyjahers að hers-
höfðingi Marcosar, Fabius Ver,
hafi komið 24 milljón dollara
virði af vopnum til fran árin 1984
og ’85 fyrir tilstilli sendimanna frá
Washington.
Marcos er nú í útlegð á Hawaii
og neitar stjórnin í Manila honum
um heimför.
Kína-Víetnam
Kampútsea talin bítbeinið
Priggja daga átök á landamœrunum hin mannskœðustu síðan ’79
ERLENDAR
FRÉTTIR
MÖRÐUR
ÁRNASON
/REUIER
Peking/Bangkok - Bardögum á
landamærum Kína og Víetnam
virðist hafa linnt eftir mann-
skæðustu orrustur herjanna
síðan í stríðinu 1979. Vestræn-
ir athugendur telja að Kínverj-
ar hafi átt frumkvæðið og sé
tilgangurinn að þrýsta á að
stjórnin í Hanoi breyti stefnu
sinni í Kampútseu.
Víetnamska útvarpið hefur
sagt að her landsins hafi fellt um
þúsund manns af Kínverjum og
sært eða tekið til fanga um 500 í
viðbót. í Peking eru um 200 Ví-
etnamar sagðir hafa fallið í átök-
unum á mánudag, þriðjudag og
miðvikudag. Þessar tölur eru
taldar nokkuð ýktar, en athug-
endur telja þó að skærur á landa-
mærunum hafi ekki orðið
skæðari síðan í stríði ríkjanna
fyrir átta árum.
Hvorir kenna öðrum um upp-
tök átakanna, en fréttaskýrendur
hallast heldur að því að Kínverjar
hafi byrjað. Sé tiigangurinn þá að
koma hinni nýju stjórn í Hanoi til
að endurskoða stefnu sína í Kam-
pútseu þarsem víetnamskur her
styður vinveitta stjórn gegn þrí-
einum skæruliðum Rauðra
Vonir bum Bandaríkin dnar við nýtl eyðnilyf
Washington - Nýtt lyf, „riba- virin“, virðist koma að nokkru gagni í baráttunni við eyðnisjúkdóminn að sögn bandarísks iyfjafyrir- tækis sem gert hefur til- raunir með lyfið á fjórum sjúkrahúsum undanfarið ár. Lyfið var reynt á 52 sjúk- lingum sem smitast höfðu af eyðni án þess að fá sjúkdóm- inn, og varð enginn þeirra sjúkdómnum að bráð. í 56 manna samanburðarhópi sem svipað var ástatt um og fékk óvirkan skammt veiktust tíu af eyðni. Hvorki sjúklingar né læknar vissu í hvorum hópn- um sjúklingarnir voru. Þessar tilraunir virtust ekki benda til að lyfið hefði teljandi auka- verkanir. Heilbrigðisyfirvöld i Bandaríkjunum eiga eftir að athuga tilraunir lyfjafyrirtæk- isins.
Kmera, hægrimanna og Síhan-
uks-sinna.
Kínverjar hafa sagt ástandið í
Kampútseu standa í vegi fyrir
auknum samskiptum bæði við
Hanoi og Moskvu, og sovéskir
ráðamenn virðast áfram um að
finna lausn á Kampútseumálinu.
Á nýafstöðnu flokksþingi í Han-
oi, þarsem nýir menn komust til
forystu, bar minna á hnjóðsyrð-
um um Peking-stjórn en oft áður,
og í síðustu viku lýsti víetnamskir
ráðamenn eftir betri samskiptum
við Kína til að fá ráðrúm til að fást
við hrakandi efnahag, - en
sögðust einnig mundu styðja
stjórnina í Pnom Penh sem setið
hefur að völdum í átta ár.
Kínverjar neituðu strax bætt-
um samskiptum nema Víetnam-
her yrði fluttur frá Kampútseu,
og gætu átökin í vikunni verið
sprottin af því að Kínverjar vilji
sýna frammá að efnahagur í Víet-
nam verði ekki bættur meðan
Hanoi-stjórn þarf að halda uppi
fjöldaher bæði í Kampútseu og
við kínversku landamærin.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13