Þjóðviljinn - 04.02.1987, Síða 2
—SPURNINGIN—
Spurning dagsins.
Ef staðgreiðslukerfi
skatta verður tekið
upp, verður þá þetta ár
skattlaust? Fólk hefur
mjög velt þessu fyrir
sér og heyrst hefur að
skólafólk hafi, eða
hugsi sér að taka sér frí
frá námi til að vinna á
hugsanlegu skatt-
leysisári og hafi mjög
fækkað í framhalds-
skólunum af þessum
sökum.
Við hittum að máli fjóra
nemendur Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og spurðum:
Ætlar þú að hætta í skólan-
um og vinna á „skattlausa“
árinu?
Halldóra Magnúsdóttir:
Ég hef enga trú að þaö verði
neitt skattlaust ár og hætti ekki í
skólanum þess vegna.
Jóhann Björnsson: v
Ég efast um að árið verði skatt-
laust. Ég á ekki von á að staða
ríkissjóðs sé það góð, en þó svo
verði læt ég námið ganga fyrir
enda orðið stutt hjá mér í stúd-
entsprófið.
Fríður Jónsdóttir:
Mér dettur ekki í hug að hætta í
skólanum, en ég hef unnið sam-
hliða honum og hugsa mér að
gera það áfram, en ég veit til
þess að nokkrir hafa hætt til að
græða vel í skattleysinu.
FRETTIR
ÁTVR
Fimm „ríki“ bíða
Engin lagastoð fyrir hugmyndumforstjóra Á TVR um að
sameina almenna verslun vínsölu
Ekki er lagaheimild fyrir því að
selja vín í sérdeildum í al-
mennum verslunum eins og for-
stjóri ÁTVR hefur haft uppi hug-
myndir um m.a. í blaðaviðtölum.
Hann telur óhagkvæmt fyrir rík-
issjóð að opna vínbúðir í fá-
mennum byggðarlögum úti á
landi og hefur bent á þetta sem
ódýrari ieið til að fjölga útsölu-
stöðum.
Þorsteinn Pálsson segir engar
breytingar fyrirhugaðar á núver-
andi sölukerfi ÁTVR. ÁTVR
rekur nú 12 vínbúðir og fyrir
liggja óskir 5 sveitarfélaga til við-
bótar um opnun vínbúða þar sem
slíkt hefur verið samþykkt í al-
mennum atkvæðagreiðslum. Þar
sem minnst er umleikis í áfengis-
verslunum starfa 3 menn og þykir
óhagkvæmt og dýrt að reka vín-
búðir í fámennum byggðarlög-
um. Forstjóri ÁTVR hefur því
leitað eftir samvinnu við forráða-
menn verslana, ekki um að þeir
taki vín til sölu í verslunum sín-
um, heldur að þeir hlaupi undir
bagga ef afgreiðslumaður í vín-
búðinni forfallast af einhverjum
ástæðum.
í sumar verður opnuð vínbúð í
Hagkaupshúsinu í Kringlunni í
Reykjavík og verður innangengt í
þessa fyrstu sjálfsafgreiðsluversl-
un ÁTVR úr stærstu matvörubúð
landsins. í svari fjármálaráðherra
kom hins vegar fram það álit for-
stjóra ÁTRV að ekki væri rétt að
leita eftir samstarfi við matvöru-
búðir um vínsölu, bæði vegna
samkeppnisaðstöðu þeirra á
stöðunum og vegna þess hve börn
og unglingar koma oft í slíkar
verslanir. Nær væri að hans mati
að leita eftir samstarfi við sér-
verslanir eins og byggingavöru-
verslanir eða veiðarfæraverslanir
í þessu skyni.
-ÁI
Loftur Guttormsson, formaður Sagnfræðingafélagsins, afhendir Lúðvík Kristjánssyni heiðursskjalið.
Sagnfrœðingafélagið
Lúðvík heiðursfélagi
Sagnfræðingafélag íslands hef- ingafélagsins. að hann sé kjörinn heiðursfélagi
ur kjörið Lúðvík Kristjánsson Á fundi í félaginu á dögunum fyrir framlag sitt til íslenskrar
heiðursfélaga sinn og er hann var Lúðvík afhent skjal sagnfræði og þó einkum rit sitt
fyrsti heiðursfélagi Sagnfræð- heiðursfélaga þar sem segir m.a. íslenska sjávarhætti.
Farmenn
Deilur
um skipa-
flutninga
Farmenn segja
skipaflutninga í
Hafnarfirði skýlaust
verkfallsbrot. Formaður
Hlífar segir að beiðni um
samúðarvinnustöðvun
yrði litin jákvæðum
augum
Nokkrar deilur hafa verið á
miili farmanna og hafnaryflr-
valda í Hafnarfirði vegna þess að
hafnarverkamenn hafa gengið í
störf háseta við tilfærslur á
skipum við höfnina þar, en engin
undanþága hafði verið veitt frá
farmönnum. Farmenn telja að
hér sé um skýlaus verkfallsbrot
að ræða.
Guðmundur Hallvarðsson for-
maður Sjómannafélagsins sagði í
samtali í gær að eftirlit með höfn-
inni í Hafnarfirði yrði nú hert.
Enn hefur ekki verið lögð inn
beiðni til Verkamannafélagsins
Hlífar um stuðning með samúð-
arvinnustöðvun en Hallgrímur
Pétursson formaður félagsins
sagði í samtali við Þjóðviljann að
slík beiðni yrði litin jákvæðum
augum.
‘K.Ól.
Herinn
Vildu ekki meira lambakjöt
Bandaríski herinn vaninn á íslenska kjúklinga og íslensk egg. Kaupa
40 tonn af nautakjöti. Auka ekki neyslu á lambakjöti
Herinn hefur keypt 10-15 tonn
af lambakjöti á undanförnum
árum og þeir höfðu ekki trú á að
hægt yrði að auka þá neyslu,
sagði Guðmundur Sigþórsson
skrifstofustjóri í landbúnaðar-
ráðuneytinu í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Gengið hefur verið frá samn-
ingi við bandaríska herinn til
næstu 12 mánaða um að hann
kaupi 40 tonn af íslensku
nautakjöti, 50 tonn af kjúk-
lingum, 4,5 tonn af svínakjöti og
45 tonn af eggjum, en samningur-
inn felur ekki í sér kaup hersins á
lambakjöti umfram venju. Petta
samkomulag er háð samþykki
bandarískra stjórnvalda.
Að sögn Guðmundar taka ís-
lenskir kjúklingar og egg að
mestu yfir markað fyrir þessar
vörur á vellinum, en nautakjöts-
salan nemur 20-25% af neyslu
starfsmanna hersins.
Samningurinn gildir til tólf
mánaða eins og fyrr segir, en að
sögn Guðmundar gera menn sér
vonir um að hægt verði að auka
söluna enn að þeim tíma liðnum.
-gg
María Svavarsdóttir:
Mér hefur dottið það í hug en
hætti við það og ætla heldur að
Ijúka skólanum sem fyrst.
2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 4. febrúar 1987