Þjóðviljinn - 04.02.1987, Qupperneq 6
ALÞÝÐUBANDALAGHÐ
Alþýðubandalagið á Akureyri
Árshátíð
Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldin þann 6. febrúar
nk. í Alþýðuhúsinu. Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 20.30.
Ávörp, söngur, glens og grín. Heiðursgestir verða Lena og Árni Berg-
Vnann.
Skemmtinefndin.
AB Akranesi
Bæjarmálaráðsfundur
Áður auglýstur fundur í bæjarmálaráði verður haldinn fimmtudaginn 5.
febrúar í Rein kl. 20.30.
Fundarefni: Fjárhagsáætlun kaupstaðarins.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
G-lista skemmtunin
Aðgöngumiðar á G-lista skemmtunina í Festi n.k. laugardag verða seldir
í Skálanum, Strandgötu 41, í kvöld miðvikudag, frá kl. 20.00 - 22.00.
Tryggið ykkur miða í tíma. Allt að verða uppselt. Verð miða einungis 1150
kr. fyrir stórskemmtun og veislumat. Rútuferðir í Festi og heim aftur.
Stjórnin.
Miðstjórn Alþýðubandalagsins
Miðstjórnarfundur
verður haldinn 7. og 8. mars nk. í flokksmiðstöðinni Hverfisgötu 105,
Reykjavík. Fundargögn verða send út í vikunni. Efstu menn á framboðslist-
um flokksins eru sérstaklega boðaðir á fundinn.
Formaður míðstjórnar.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík
Félagsfundur
ÆFR heldur félagsfund þann 14. febrúar að Hverfisgötu 105 kl. 14.00.
Dagskrá: 1) Starfið framundan. Framlag frá vinnuhópi um baráttuna fram
að alþingiskosningum. 2) Önnur mál.
Undirbúningsnefnd.
Æskulýðsfylkingin
Skrifstofa ÆFAÐ
Skrifstofa Æskulýðsfylkingarinnar verður opin næstu vikur á milli 17-19
alla virka daga.
Liggi þér eitthvað á hjarta, þá sláðu á þráðinn í síma 17500 eða röltu við á
H-105.
Starfsmenn.
Frá vinstri: Úlrik Ólason, undirleikari, Baldur og Baldvin.
Tónlist
RANGÁRBRÆÐUR
Söngplata með 16 lögum
Söng- og tónlist hefur um
langan aldur verið í hávegum
höfð meðal Þingeyinga. Fyrrum
mátti heita að fiðluleikarar, einn
eða fleiri, væru þar í hverri sveit
og fiðian var þar einskonar hér-
aðshljóðfæri.
Þegar ég tók fyrst þátt í kóra-
móti Heklu, en svo nefnist Sam-
band norðlenskra karlakóra, - þá
var ég meðlimur í Kar’akórnum
Heimi í Skagafirði, - mættu þar
til leiks fjórir kórar úr Suður-
Þingeyjarsýslu. Þeir voru Karla-
kórinn Þrymur á Húsavík, undir
stjórn sr. Friðriks A. Friðriks-
sonar, Karlakór Reykhverfinga,
sem Sigurjón Pétursson í Heiðar-
bót stjórnaði, Karlakór Reyk-
dæla, undir stjórn Páls. H. Jóns-
sonar og Karlakór Mývetninga,
en honum stjórnaði Jónas Helga-
son á Grænavatni. Þetta var
framt að helmingur þeirra kóra,
sem mættu á þessu söngmóti, mig
minnir að þeir hafi verið níu alls.
Kannski stendur karlakór-
söngur ekki með jafnmiklum
blóma meðal Þingeyinga nú, né
stendur þar jafn víða fótum og
hann gerði á þessum árum. Sú
saga hefur víðar gerst. Enginn
þessara kóra, sem fyrr voru
nefndir, er nú lengur starfandi,
að því er ég best veit. Þó lifir enn-
þá ágætlega í gömlum glæðum.
Það sannaði sá orðstýr, sem
Karlakórinn Hreimur aflaði sér
með söngför sinni hingað suður á
sl. ári.
O nú fyrir nokkru kom út
hljómplata, sem þeir Rangár-
bræður, Baldur og Baldvin Bald-
vinssynir, hafa sungið inn á, við
undirleik Úlriks Ólafssonar, en
hann starfar bæði með Kirkjukór
Húsavíkur og Karlakórnum
Hreimi. Á plötunni eru 16 tví-
söngslög, sum vel þekkt, önnur
minna. Óll eru þau valin og sung-
in af smekkvísi og hæfa einkar vel
röddum þeirra bræðra, sem eru
bjartar og blæfagrar. Söngurinn
er hreinn og fágaður, yfir honum
er mikil gleði og birta og texta-
framburður ágætur.
í rauninni hafa þeir bræður
verið syngjandi allan sinn aldur,
sjálfsagt jöfnum höndum við dag-
leg störf og í kórum. Þar hafa þeir
fengið þá einu tilsögn og þjálfun,
sem þeir hafa notið. Góðar radd-
ir geta náð langt með tilsögn og
tækni. Svo hefði getað orðið um
þá Rangárbræður ef þeir hefðu
kosið að ganga þá braut og að-
staða að öðru leyti verið fyrir
hendi. En þá vill líka stundum
fara forgörðum að nokkru sá silf-
urtæri hljómur, sem minnir á hó
smalanna í hlíðinni og ýmsum
þykir fegurri öðrum söng.
Ég held að þeir Rangárbræður
ættu, fyrr en síðar, að efna til
annarrar hljómpiötu. -mhg
Rannsóknaráð ríkisins
auglýsir styrki til
rannsókna og tilrauna
árið 1987
Umsóknarfrestur er til 15. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu ráðsins,
Laugavegi 13, sími 21320.
Um styrkveitingar gilda m.a. eftirfarandi reglur:
Styrkfé á árinu 1987 skal einkum verja til verkefna á nýjum og álitlegum
tæknisviðum. Sérstök áhersla skal lögð á:
- fiskeldi,
-framleiðni- og gæðaaukandi tækni,
- líf- og lífefnatækni,
- nýtingu orku til nýrrar eða bættrar framleiðslu,
- undirstöðugreinar matvælatækni,
- upplýsinga- og tölvutækni.
Mat á verkefnum sem sótt er um styrk til skal byggt á:
- líklegri gagnsemi verkefnis,
- gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróun atvinnugreina,
- möguleikum á hagnýtingu á niðurstöðum hér á landi,
- hæfni rannsóknarmanna/umsækjenda,
- líkindum á árangri.
Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni sem svo háttar um að:
- samvinna stofnana eða fyrirtækja og stofnana er mikilvægur þáttur í framkvæmd
verkefnisins,
- fyrirtæki leggja umtalsverða fjármuni af mörkum,
- líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri til hagnýtingar í atvinnulífi. Þó er
einnig heimilt að styrkja verkefni sem miða að langframa uppbyggingu á færni á
tilteknum sviðum.
getrSína-
VINNINGAR!
24. LEIKVIKA - 31. JANÚAR 1987
VINNINGSRÖÐ: 122-111-1X1-112
1. VINNINGUR: 12 RÉTTIR, kr. 188.895,-
1288+ 44083(4/11) 96830(6/11) 213510(8/11)
2. VINNINGUR: 11 réttir,
3809+ 51313 98362
18802 56321 98747
40502* 57221 99471
41273 58158+ 100568
45778+ 63727* 102895
47108 63793 126101
kr. 5.397,-
126115 213128* 218001*
128985* 214543 + 219744
129864 215728 615456
209367 215742*+ 617937
211422 216401 43021
212831* 216417 * = 2/11
Kærufrestur er til mánudagsins 23. febrúar 1987, kl. 12.00
á hádegi.
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á
skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða tekn-
ar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa eða senda stofninn og fullar
upplýsingar um nafn og heimilisfang til (slenskra Getrauna fyrir loka kæru-
frests.
E:ek*lTá£rifandfí
aö geras
DJODVIUINN
Sími 681333.