Þjóðviljinn - 06.03.1987, Síða 9
HEIMURINN
Bandaríkin
Reagan játar mistök
Forsetinn viðurkenndi að verslun við klerkastjórnina með vopnfyrir gísla hefði verið skyssa.
Erorðinn margsaga um málið.
Lofarbótogbetrun en demókratar tortryggnir
Ronaid Reagan forseti
Bandaríkjanna ávarpaði landa
sína í fyrrinótt og játaði að
vopnasalan til íran hefði verið
til að greiða fyrir lausn banda-
rískra gísla í Líbanon og að
málið í heild hefði farið í
handaskolum og verið mistök.
Ennfremur viðurkenndi hann
að sér hefði ekki tekist að hafa
stjórn á starfsmönnum Þjóðarör-
yggisráðsins er hugsanlega hefðu
deilt vopnasölugróðanum út
meðal Contraliða sem herja á
Nicaragua og með því farið á bak
við þingið og brotið bandarísk
lög.
Reagan tók á sig alla ábyrgð á
málinu en lét engu að síður á sér
skilja að hann hefði ekki verið
með á nótunum um mörg veiga-
mikil atriði þess. Sem kunnugt er
hafnar meirihluti Bandaríkja-
manna þessum fullyrðingum og
heldur jjví fram að forsetinn fari
með ósannindi ef marka má ný-
lega skoðanakönnun.
Það er síst undrunarefni þótt
landar Reagans taki orðum hans
með fyrirvara um allt er lýtur að
vopnasöluhneykslinu. Hann hef-
ur orðið margsaga um málið, full-
yrðing hnekkt fullyrðingu og eitt
rekið sig á annars horn. Það er
ekki úr vegi að rifja upp gang
þeirra mála.
Snemma í nóvember fullyrti
tímarit í Líbanon að Bandaríkja-
menn hefðu selt klerkastjórninni
í íran vopn á laun í því augnamiði
að greiða fyrir lausn landa sinna
sem samtökin „Heilagt stríð“
héldu föngnum í Beirút.
Reagan brást ókvæða við,
stökk upp á nef sér og þverneitaði
að svo mikið sem flugufótur væri
fyrir fréttinni.
„Það er út í hött að leggja trún-
að á slíkar sögusagnir ættaðar úr
Miðausturlöndum," sagði hann í
það sinnið.
Líður og bíður og viku síðar er
hann við sama heygarðshornið.
„Þessar fullyrðingar eru upp-
spuni frá rótum“.
Hálfur mánuður líður og fréttir
hrannast upp um sölu vígtóla til
ajatollanna. Ronald Reagan
kveður sér hljóðs en nú er komið
annað hljóð í strokkinn. Hann
tjáði furðu lostnum almenningi
að fyrir átján mánuðum hefði
„Eitt rekur sig á annars horn, eins og
graðpening hendir vorn.“
stjórn sín átt frumkvæði að því að
reyna að ná bættum samskiptum
við írani. „Það var mikið áhætt-
uspil ...og ég fæ ekki séð að nein
mistök hafi verið gerð.“
Þann tuttugasta og fimmta
nóvember hélt Edwin Meese,
ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu, því fram að gróði af
vopnasölunni hefði fallið Cont-
raliðum í skaut og væri það lík-
lega brot á bandarískum lögum.
Þá sagði Reagan að „sér hefði
ekki verið að fullu greint frá öllu
viðvíkjandi þessum þætti máls-
ins.“ Éngu að síður væri málið í
heild hið besta mál.
En þann sjötta desember var
öllu lægra á honum risið og hann
sagði útfærslu stefnu sinnar í mál-
inu hafa verið klúðrað. Tuttug-
asta og sjöunda janúar viður-
kenndi hann að „alvarleg mistök
hefðu átt sér stað“ við fram-
kvæmd ákvarðana sinna. En
stefna sín hafi engu að síður verið
rétt.
Ræðan sem Ronald Reagan
hélt í fyrrinótt var svar hans við
niðurstöðum Towerskýrslunnar
svonefndu og tilraun til að ná aft-
ur einhverju af fyrri hylli alþýðu
manna í Bandaríkjunum. Enn
vendir hann sínu kvæði í kross og
viðurkennir loksins það sem allir
vissu að málið í heild var eitt
klúður frá upphafi til enda og reg-
inskyssa. Hann ítrekaði hver
upphafleg ætlun sín hefði verið
með því að bæta samskiptin við
íran en klykkti þvínæst út með
undarlegum orðum:
„Það er mín hjartans
sannfæring að sú stefna hafi verið
rétt þótt staðreyndir og sannanir
mæli því í mót“.
Bæði demókratar og repúblik-
anar hafa fagnað því að Reagan
skyldi loks viðurkenna að ír-
ansmálið hafi verið glappaskot.
Demókratar hafa hinsvegar bent
á að því fari fjarri að öll kurl séu
komin til grafar í málinu því enn
vinni tvær þingnefndir og póli-
tískt óháður rannsóknardómari
að Iausn margra ráðgátna.
Of snemmt er að spá því hvort
ræðan haggi þeirri andúð sem
margir Bandaríkjamenn hafa á
forseta sínum um þessar mundir
og ekki víst að þeir láti nægja lof-
orð um bætta hegðun. _ks.
FYRIR HÁDEGI:
Arna Gerður Heimir Valgerður
Viðhorf til menntunar hér og nú
Arna Jónsdóttir umsjónarfóstra, GerðurG. Óskarsdóttiræfingastjóri í
uppeldis- og kennslufræðum við HÍ, Heimir Pálsson framhaldsskóla-
kennari og Valgerður Eiríksdóttir grunnskólakennari undirbúa og
flytja
Til hvers
1 J er menntun? ÍÉPÍÉi
%if ff
f Þorsteinn rfjy/jí'
Vilhjálmsson
immm^ eðlisfræðingur
Menntun og
stjórnmál
Páll Skúlason
heimspekingur
EFTIR HÁDEGI:
Uppeldis- og
menntunar-
hlutverk skóla
Hugo Þórisson
sálfræðingur
Fósturmenntun
Gyða Jóhanns-
dóttir skólastjóri
Uppeldis- og
menntunar-
hlutverk dag-
vistarheimila
Margrét Pála
Ólafsdóttir fóstra
Kennara-
menntun
Sigurjón Mýrdal,
kennslustjóri KHÍ
Námsstefna:
UPPELDI og
MENNTUN
Alþýðubandalagið boðar til opinnar ráðstefnu um innihald uppeldis og
menntunar laugardaginn 14. mars.
Ráðstefnan verður haldin að Hverfisgötu 105 og hefst kl. 10 árdegis.
Áætlað er að henni Ijúki um kl. 17. w
Ráðstefnan er öllum opin og fer skráning þátttakenda fram í
síma 17500.
Þátttökugjald er kr. 300, en innifalið í því eru erindi ráðstefnunnar
fjölrituð. Léttur hádegisverður fyrir kr. 450 verður á boðstólum.
Ráðstefnustjóri: Valgerður Eiríksdóttir.
Að loknum fram-
söguerindum verða
pallborðsumræður
undir stjórn Gerðar
G. Óskarsdóttur.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Til hvers
ætlumst við
af skólanum?
Ásdís Þórhalls-
dóttir mennta-
skólanemi, Elín
Hilmarsdóttir
menntaskóla-
nemi, Hrannar B.
Arnarsson
menntaskóla-
nemi og Orri
Vésteinsson há-
skólanemi undir-
búa og flytja.
Setning
Kristín Á.
Ólafsdóttir,
varaformaður
Alþýðubandalagsins