Þjóðviljinn - 22.03.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 22.03.1987, Blaðsíða 2
FLOSI \iiku skammtur af fegurð í Frostaskjóli Það hefur verið haft fyrir satt að hér fyrr á öldum hafi krakkar ekki verið tekin neinum vett- lingatökum. Harðneskja og miskunnarleysi hafi verið meira en í mannúðarsamfélagi velferðar- innar í dag. Þessu til staðfestingar er stundum farið með vögguvísuna: Sofðu nú svínið þitt svartur í augum farðu í fúlan pytt fullan af draugum. Núna í vikunni barst mér svo í hendur ein- hvers konar fréttabréf frá einni af félags- miðstöðvum borgarinnar - Frostaskjóli - og þá hugsaði ég með mér: - Djöfullinn hafi það. Þetta er hálfu verra en það var. Merkar heimildir um uppeldishætti fyrri alda eru barnavísur og barnagælur. Aldrei er grimmdin slík í þessum kveðskap að gert sé upp á milli Ijótra barna og fallegra, þó þar sé svo sannarlega gerður greinarmunur á illum börnum og góðum, eins og dæmin sanna: Góðu börnin gera það guð sinn lofa og biðja læra að skrifa og lesa á blað líka nokkuð iðja lllu börnin iðka það æpa skæla hrína hitt og þetta hafast að heimta brjóta og týna. Ég held að það sé fyrst með tilkomu svokall- aðrafélagsmiðstöðva í hinu háþróaða mannúð- arsamfélagi samtímans sem miskunnarleysið verður svo algert að forstöðumönnum þykir þlýða að gera uppámilli krakkanna vegna útlits- ins.v Það læra börnin sem fyrir þeim er haft var sagt í dentíð. En satt að segja hélt ég að ung- lingastarfið í Frostaskjóli, Fellahelli, Bústöðum, Þróttheimum, Árseli og Tónabæ beindist að *.**V"V* ,'4 ;Frosta * quíái * ‘ P1L I U R OG 3 íOLKA ARSINS 1987 I flprll mun f 61 aqsml fts töö i n FrostaskJ'61 oq t.T.R. standa fyrir samkpppni meRal piltna oo stúlkna S aldrlnum 13-15 Sra. SIqurvpoarar hljöta titilinn "Piltur oq stúlka Srsins 10R7" oq vpqloq verölaun. Keppnin er I þvl fólqin aft koma fram t fjölmennl t- samhvæmi sk 1 íftnaö t og sportfatnafti sem llenson qefur til keppnlnnar. Sérstök dómnefnd metur Jafn- framt útiit oo framkomu keppenda, h.et hvort framkoma sé þvlnguft pfta ftþvlnquft oq hversu vel keppendur svara fyrir slq;_______________9_ öðru en athugun á því hverjir væru greppitrýni og hverjir ekki. Auðvitað er það í takt við tíðarandann að hafa það fyrir börnum að hápunktur lífshamingjunnar sé að fá að standa einsog nautgripur^eða ein- hvers konar gljátík uppá palli nærri berrassaður til að sýna að viðkomandi sé svosem engjn hrákasmíði skaparans, heldur bæði fallegur og vel lukkaður. Svo við kíkjum nú aðeins í fréttabréf fé- lagsmiðstöðvarinnar í Frostaskjóli, þá er þar frá því greint að íþrótta- og Tómstundaráð muni standa fyrir keppni pilta og stúlkna á aldrinum 13-15 ára. Sigurvegararnir hljóta titilinn „Piltur og stúlka ársins 1987“ og vegleg verðlaun. Keppnin er í því fólgin að koma fram í fjölmenni í samkvæmisklæðnaði og sportfatnaði sem Henson gefurtil keppninnar. Sérstök dómnefnd metur jafnframt útlit og framkomu keppenda. Endanleg úrslit verða svo á hótel Sögu sunnudaginn 26. apríl, en þar keppa til úrslita 12 piltar og 12 stúikur og auglýsa í leiðinni sundboli frá Henson, sólarferðir með Flugleiðum, snyrti- vörur frá Ives Saint Laurent, föt frá Tískuvöru- versluninni 17, veglega vöruúttekt frá Leður- horninu, sælgæti frá Nóa og Síríusi, silfur- hálsmen sérstaklega gert fyrir þessa keppni frá Halldóri gullsmið o.fl. í fylgiskjali segir svo meðal annars að kynnir kvöldsins gæti verið sigurvegarinn úr keppninni „plötusnúður ársins ’87“ og sigurvegarar í free- style dansi ættu að sýna. En umfram allt verður piltur og stúlka ársins einskonar miðpunktur kvöldsins. Megintilgangurinn með þessari uppákomu er að sporna gegn vímuefnanotkun. Satt að segja hélt ég nú í fávisku minni að fjölmiðlar þjóðarinnar sinntu fegurð kvenna, tískuhræringum, frístæl og afrekum plötusnúða af nægilegu offorsi, en auðvitað er það Ijóst, að áríðandi er að búa æskulýðinn sem sækir fél- agsmiðstöðvarnar undir að taka við auglýsing- askruminu, því það er nú einusinni svo að mun- aðarvaran verður að ganga út. Og umfram allt verða blessuð börnin að fá notið þeirrar ham- ingju, sem er samfara því að vera fallegur en ekki Ijótur. Ég trúi því nú ekki fyrr en á reynir að oddvitar unglingamálefna hér í borginni og forstöðu- menn allra félagsstofnana séu í sjöunda himni yfir þessu framtaki í Frostaskjóli, sem er svona öðrum þræði vísbending um það, að ófríð börn séu nokkurnveginn óalandi og óferjandi greppi- trýni, sem eigi lítið erindi í félagsmiðstöðvarnar annað en það að hylla þau sem hafa útlitið með sér og eru snoppufríð. Og þá vaknar sú spurning, hvort Ijót börn eigi nokkurt erindi í félagsmiðstöðvarnar, og gerir þá minna til þó þau séu einhversstaðar annars- staðar að dópa, ef bara tekst að bjarga þeim laglegu. En umfram allt þarf að koma æskublóma landsins í skilning um það að nú er ekki lenqur brýnt að: ... læra, skrifa, lesa á blað líka nokkuð iðja - Þau munu læra í félagsmiðstöðvunum að: Ef þig langar uppá toppinn er að hafa rétta kroppinn. Gullinu flýtt útaf Sverri 14. apríl n.k. verður fyrir- mönnum þjóðarinnar boðið til veglegrar veislu í tilefni vígslu flugstöðvarinnar. Má búast við að þar verði kátt á hjalla og mörg skálarræðan flutt í tilefni dagsins og byggingarnefnd og formanni hennar Sverri Hauki Gunnlaugssyni verði klappað margt lof í lófa fyrir vasklega framgöngu við smiðina. Ekki er víst að allur fjöldi þess starfsfólks, sem kemur til með að starfa í bygg- ingunni, kætist að sama skapi. Aðstöðu starfsfólks mun vera verulega ábótavant til að byrja með. Jafnframt er alls óvíst hvort fríhafnarversl- un fyrir komufarþega verði til staðar í húsinu fyrstu mánuð- ina og verður ríkiskassinn því að verulegum upphæðum á hverjum degi. Er mál margra starfsmanna að nær hefði verið að seinka reisugillinu um nokkrar vikur og vera áfram í gömlu flugstöðinni þar til sú nýja væri tilbúin. Sagt er að dagsetning vígsluhald- anna standi í tengslum við síðustu vegtyllu Sverris Hauks, en hann hefur verið skipaður sendiherra í Genf og fer af landi brott með fyrstu vorskipum. ■>. SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. mars 1987 Að hugsa um flokkinn Ummæli Steingríms Her- mannssonar í nýlegu Viku- viðtali þess efnis að þeir Jón Helgason landbúnaðarráð- herra og Alexander Stefáns- son félagsmálaráðherra hafi ekki náð til fólksins eins og Steingrímursjálfurog Halldór Ásgrímsson hafa vakið mikla athygli og ekki síður reiði meðal margra Fram- sóknarmanna úti á lands- byggðinni. Einn forystumanna Fram- sóknarþingmanna sem er kunnur hagyrðingur gat ekki orða bundist þegar hann hafði j lesið yfir viðtalið við flokksfor-1 manninn og lét eftirfarandi stöku fjúka: Stendur hann við stokkinn Steingrímur með smokkinn. Hann er að hugsa um flokkinn helvítis óþokkinn. Stórveldasamkom Það er víst að alþjóðlegt and- rúmsloft mun ríkja í hátíðarsal Flensborgarskóla í kvöld, laugardag, þegar nemendur skólans sýna þar leikritið Romanoff og Júlíu sem er gamanleikrit með dramatísku' (vafi. Ástæðan ersú að til sýning- arinnar hefur sérstaklega ver- ið boðið starfsmönnum send- iráða Bandaríkjanna og So- vétríkjanna en aðalpersónur leikritsins eru dóttir banda-i rísks sendiherra og sonur so- vésks kollega hans sem fella hnni saman. Til að tryggja að fullur friður verði með gestum hefur Ólafl Ragnari Grímssyni friðar- verðlaunahafa með meiru verið boðið á sýninguna og einnig mun Matthías A. Mathiesen utanríkisráðherra | vera viðstaddursemfulltrúi ís- lenskra stjórnvalda.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.