Þjóðviljinn - 22.03.1987, Blaðsíða 19
Njósnarinn
sem dó ekki
Njósnarinn Sidney Reilly var ekki skotinn til bana af Sovétmönnum
árið 1925. Það er að minnsta kosti álit breska rithöfundarins Robin
Bruce Lockhart. Hann telur að Reilly hafi gengið til liðs við KGB og
skipulagt njósnahring í Bretlandi
Munið þið eftir Reilly? Pól-
skættaða njósnaranum sem
Bretargerðu sjónvarpsþátta-
röð um. Þessum kaldrifjaða
kvennabósa, sem starfaði
fyrirtværtil þrjár leyniþjónust-
ur samtímis en var engum trúr
nema sjálfum sér. Hann var
skotinn í bakið af sovéskri
skyttu í lok tólfta þáttar.
Sidney Reilly var til í raunveru-
leikanum og er það hald manna
að hann hafi verið fyrirmyndin að
söguhetju Ian Flemming, James
Bond. Það var svo árið 1968 að
fyrrverandi blaðamaður, Robin
Bruce Lockhart, gaf út bók um
njósnarann. Það var á þessari
bók sem sjónvarpsþáttaröðin var
byggð.
Nú hefur sami Lockhart sent
frá sér nýja bók um njósnarann
þar sem hann heldur því fram að
Reilly hafi alls ekki verið drepinn
í Sovétríkjunum, heldur hafi
hann gengið á mála hjá KGB,
sovésku leyniþjónustunni, og
skipulagt njósnahring í Bret-
landi, sem þeir Kim Philby, Guy
Burgess, Donald Maclean og
Anthony Blunt störfuðu seinna
fyrir.
Helsti heimildamaður höfund-
arins er fyrrverandi leyniþjón-
ustumaðurinn Peter Wright, sá
hinn sami og átt hefur í stappi við
bresk yfirvöld fyrir dómsstólum í
Ástralíu. Þá er Lockhart sonur
Sir Robert Lockhart, sem var
óopinber sendiherra Breta í
Moskvu á tímum byltingarinnar
og lenti þar í ráðabruggi með
Styrkur til rannsókna
í kvennafræðum
Á fjárlögum fyrir yfirstandandi ár var einnar
milljónar króna fjárveiting færð til Háskóla ís-
lands til rannsókna í kvennafræðum.
Áhugahópur um íslenskar kvennarannsóknir
auglýsir hér með í umboði Háskólans eftir um-
sóknum um styrki til rannsókna í kvennafræðum,
en til kvennafræða teljast allar þær rannsóknir
sem á einhvern hátt varða konur, eru unnar á
forsendum kvenna og frá þeirra sjónarhorni.
Veittir verða launastyrkir fyrir rannsóknir í minnst
þrjá mánuði og skal hann miðast við byrjunarlaun
lektors.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi sem
svarar til meistaraprófs eða kandidatsprófs og/
eða sýnt fram á hæfni sína til rannsóknarstarfa
með öðru móti.
í umsókn skal greina ítarlega frá þeim rannsókn-
um sem sótt er um styrk til og fjáröflun til þeirra frá
öðrum. Við lok styrktímabils skal styrkþegi senda
úthlutunarnefnd framvinduskýrslu.
Umsóknarfrestur er til 1. maí n.k.
Umsóknir sendist til:
Háskóla (slands
Áhugahópur um íslenskar kvennarannsóknir,
b.t. Guðrúnar Ólafsdóttur, dósents
Raunvísindadeild
Reilly um hvemig best væri að
steypa Lenin og Trotsky af stóli.
Ætlaði Reilly að gera það með
því að láta þessa leiðtoga bylting-
arinnar ganga buxnalausa um
stræti Moskvu. Það ráðabrugg
varð þó að engu.
Lockhart telur að margt styðji
kenningu sína um að Reilly hafi
ekki verið drepinn árið 1925
heldur gengið á mála hjá KGB.
Það era engar sannanir til fyrir
því að hann hafi verið líflátinn.
Þá er til vitnisburður um að hann
hafi sést í Moskvu löngu seinna.
Vitað var að Reilly var stuðnings-
maður bolsévikka. Hvað tengsl
Reilly við njósnahringinn í Bret-
landi varðar, þá voru bæði hann
og Anthony Blundt stúdentar frá
sama skóla, Trinity skólanum í
Cambridge.
Þeir sem gagnrýna þessa kenn-
ingu segja að Peter Wright, sem
er aðalheimildamaður Lockhart,
sé haldinn kaldastríðsgrillum,
einsog margir aðrir af þeim leyni-
þjónustumönnum, sem störfuðu
eftir seinni heimsstyrjöldina.
Segja þeir að þessir menn sjái
svik og iaunráð allsstaðar og
hvergi. _Sáf
Sam Neill í hlutverki Sidney Reilley (sjónvarpsþáttunum um meistamjósnar-
ann.
KOSNÍNGAVAKA FATLAÐRA
HVER KÝS HVAÐ?
Hótel Sögu sunnudaginn 22. mars 1987
kl. 15-17.
PÓLITlK
Guð^
Spyrjum ^
•$ formenn
^ spjörum úr! §;
© <$•
o-
GRlN OG ALVARA
Svipmyndir úr lífi fatlaðra
ÚTBOÐ
Landsbanki íslands óskar eftir tilboðum í að
steypa upp og að Ijúka ytri frágangi II. áfanga
Fræðslumiðstöðvar við Álftavatn í Grímsnesi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Skipulags-
deildar bankans, Álfabakka 10, II. hæð, Reykja-
vík, gegn skilatryggingu að upphæð kr. 5.000.-.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
7. apríl kl. 11.00.
Landsbanki
íslands
FJÖLMENNUM 0G LEGGJUM BARÁTTUNNI LIÐ!
ÖRYRKJABANDALAG ÍSLANDS • LANDSSAMTÖKIN ÞROSKAHJÁLP