Þjóðviljinn - 22.03.1987, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 22.03.1987, Blaðsíða 13
blaðanna" sagðist hann ekki hafa lesið þau. Þjóðviljinn leitaði einnig álits prófessora í félagslegri siðfræði og í guðfræði en þeir kváðust ekki hafa nein svör á reiðum höndum við því hvað teldist klám og hvað erótík, án lengri fyrirvara. Keðjur og leðurreimar Stærstu bókaverslanirnar flytja sjálfar inn djörf blöð og að sögn Ragnhildar Bender hjá Bókabúð Braga er reynt að miða við að blöðin innihaldi myndir sem eru erótískar og þá ekki samfara- myndir, þegar valið er úr fram- boðinu. „Við höfum það til dæmis fyrir reglu að rífa bæklinga úr sumum blöðum sem hafa verið mjög grófir og miðum við að blöðin innihaldi eitthvað fleira en mynd- ir,“ sagði Ragnhildur. „Þessi blöð þurfa að vera til markaðar- ins vegna. Á meðan einhver hef- ur gaman af þessum blöðum þá verðum við að vera með þau á boðstólum einsog allt annað.“ Þess má geta, vegna orða Ragnhildar um að Bókabúð Braga flytji ekki inn blöð sem að- eins innihalda myndir, að svo- kölluð „Paul Raymond-blöð“ eru meðal þeirra blaða sem fást í versluninni, en í þeim er ekki að finna eitt prentað orð, aðeins myndir af nöktu kvenfólki í hin- um ýmsustu stellingum. í Bókabúð Eymundssonar er hægt að velja úr 17 titlum djarfra blaða. í þeim er aðallega að finna myndir af nöktum konum, mis- munandi útglenntum, stundum sveipaðar keðjum og leðurr- eimum. Einstaka karlar fá að fljóta með og í einu blaðanna sem valið var af handahófi blöstu við alls slags samfaramyndir. En sem sagt, við höfum þá niðurstöðu að djörfu blöðin séu misjöfn. Það er dómstólanna að dæma hver þeirra fara yfir mörk- in og hver ekki. Þar sem engar athugasemdar hafa verið gerðar af hálfu yfirvalda við þau blöð sem nú fást í bókaverslunum hlýtur maður að álykta sem svo að það séu ekki klámblöð, heldur eitthvað annað. En hvað? „Við köllum þetta rassablöð hér í búð- inni,“ sagði Ragnhildur Bender. Aðrir kusu að svara ekki. Klám og barnanauðganir Hér hefur verið reynt að fá ein- hverja niðurstöðu um það hvað sé klám. En það er fleira sem er umdeilt og þar á meðal hvaða áhrif klám hefur á viðhorf fólks. Sumir vilja meina að við lestur klámblaða fái árásargjarnir aðil- ar útrás fyrir hvatir sínar og þær beinist því ekki gegn öðru fólki. Aðrir telja að klámblöð breyti Sunnudagur 22. mars 1987 Greinin á þessari opnu hefst með svofelldum orð- um: „Rífðu sængina afkonunni þinni og skelltu henni uppáeldhúsborð- iðogrídduhenni. Svona! Ekkert meiraröfllNúer nóg komið af því að ríða í rúminu. Nú á að ríða um allt hús svo að undirtaki íkofan- um!“ Þettaveggspjaldvar dæmt klámfengið af Hæstarétti árið 1973. TVIBUKARNIR VOCIN uoNie FJOLH/EFNI MEYjan Sporðdr EK INN VaRKÁRNI HUOREKKt HLKjVITSSEMI STEINGEITIN VATNSBER.INM MANhliiO 'arvekni Dt/GNA£JUR síautiÐ fiskarnir K R A68INN FORSJÁLNI FJÖLHÆFNl HUGKVÆMNI. Hins vegar hef ur engin kæra bor- ist saksóknara vegna þessara mynda sem danska blaðinu Ex- press, sem er flutt inn af Inn- kaupasambandi bóksala. litlu til eða frá: „Að mínu mati breyta þessi blöð ekki hugsunar- hætti fólks ein og sér. Þetta er meira mál en svo,“ sagði Erla Hallgrímsdóttir, deildarstjóri hjá bókabúð Máls og menningar, í samtali við Þjóðviljann, en sú verslun hefur hætt sölu djarfra blaða. Annað sjónarmið kemur fram hjá Ingibjörgu Hafstað: „Skýrslur rannsóknarlögreglu, bæði í Danmörku og Noregi, sýna ótvírætt samband milli kláms og barnanauðgana. Það er skýrt þannig að menn sem finna hjá sér þessa hvöt hafi bælt hana vegna þess að kynferðisleg á- reitni við börn er svo harðlega fordæmd í okkar þjóðfélögum. En með barnakláminu opnast leið; það réttlætir þessa kyn- ferðislegu tilhneigingu." í bókinni „Nýi kvennafræðar- inn“ sem gefin var út hjá Máli og menningu árið 1981 er tekin mjög eindregin afstaða til kláms: „Samkvæmt uppskrift klám- blaðanna eru konur tæki sem karlmenn eru hvattir til að nota til að fullnægja löngunum sínum, það á að taka þær, nota og fleygja þeim síðan þegar þær eru ekki lengur brúkhæfar. Flatar og froðufellandi Klámblöðin gefa karlmönnum ákveðna forskrift að því hvernig karlmenn eiga að vera og þótt grófgerð sé og öfgafull er þetta sama forskriftin og haldið er að karlmönnum frá blautu barns- beini. Þeir eiga að vera framtaks- samir, árásargjarnir, harðir, kaldir og yfirvegaðir. En þegar karlmaður lokar blaðinu sínu að kvöldi dags, þá veit hann að hann stenst ekki súpertippunum snún- ing. Textinn og myndimar auka aðeins á vanmetakennd hans því hann veit að konur mundu aldrei liggja fyrir honum í hrönnum, flatar og froðufellandi. En hvaða augum lítur hann konur fyrir bragðið? Samkvæmt forskriftinni eiga konur að þrá að gera honum til geðs, finnast gott að láta ríða sér, píska og nauðga. Og þar sem konan hans uppfyllir hvort sem er ekki kröfur klámblaðsins, verður hún þá ekki að gera sér að góðu að hann beiti karlmennsku sinni á hana? Þannig eykur klámið á vanmetakennd og einangrun karla jafnt sem kvenna, það styð- ur ríkjandi hlutverkaskiptingu kynjanna og elur á fordómum. Klámið gerir kynlífið að líkam- legri athöfn þar sem ekkert kemst að nema tippið og píkan. Ást og hlýju er kastað á dyr. Það eina sem skiptir máli er að standa sig, fara eftir forskriftinni, afneita sjálfum sér, þörfum sínum og þrám; sjálfsvirðingu sinni.“ -vd ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Klámeða erótík?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.