Þjóðviljinn - 22.03.1987, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 22.03.1987, Blaðsíða 6
VINSÆLDAKONNUN ÆSKUNNAR: Bubbi sigursœll Bubbi: Bestalagið, besta platan, besti söngvarinn og í of- análag „Popp- stjarna ársins“hjá lesendum Æskunn- ar. Bubbi Morthens og Greifarnir eru helstu átrúnaðargoð lesenda barna- og unglingablaðsins Æskunnar, samkvæmt vinsæld- akönnun sem birt var í síðasta hefti blaðsins. Ætla má að á milli fjögur og fimmhundruð ungir áhugamenn um tónlist hafi tekið þátt í þessum kosningum, sem hljóta því að gefa nokkra vís- bendingu um helstu stjörnur á himni popps og rokks um þessar mundir. Greifarnir voru kosnir hljóm- sveit ársins og skutu þar bæði Stuðmönnum og MX21 aftur fyrir sig. Bubbi og Serbinn hlutu örugga kosningu fyrir besta lag ársins, en Útihátíð Greifanna kom þar næst á eftir. Bubbi og Frelsi til sölu var kosin plata árs- ins, en Blátt blóð Greifanna varð í öðru sæti. Bubbi átti síðan Blús fyrir Rikka í þriðja sæti og Konu í því fjórða! Það var síðan Sinfóní- uhljómsveit íslands sem varð í fimmta sæti! Söngvari ársins var kjörin með miklum yfirburðum Bubbi Morthens; Felix Bergsson, Greifi, varð annar og Eiríkur Hauksson og Pálmi Gunnarsson, Bergen-stjörnur, komu næstir. Söngkona ársins var kjörin Ragn- hildur Gísladóttir, en hún fékk fleiri stig en næstu fjórar saman- lagt. Poppstjarna ársins að mati lesenda Æskunnar var Bubbi Morthens, en Ragnhildur Gísla- dóttir varð í öðru sæti og Felix Bergsson í því þriðja. -þj. DISKÓ: Plötusnúðar framtíðarinnar Óttar beshtr Nýlega fór fram úrslitakeppni um titilinn „Plötusnúður ársins 1987“ á vegum félagsmiðstöðv- anna í Reykjavík. Það voru fjórir knáir piltar sem öttu saman plötum sanum; Hilmar Árnason, Æskó Hafnarfirði; Grétar I. Gunnarsson, Þróttheimum; Kristján Ásgeirsson, Tónabæ; og Óttar Pálsson, Þróttheimum. Dómnefndin var skipuð þeim Vilhjálmi Ástráðssyni, fram- kvæmdastjóra veitingahússins Evrópu, Jóni Gústafssyni og Magnúsi Þór Sveinssyni frá skemmtistaðnum Hollywood. Óttar Pálsson bar sigurorð af keppinautum sínum og hlaut í verðlaun 4-rásar Power diskó- mixer frá Japis. Hvorki meira né minna. í fréttatilkynningu segir að þessi keppni sé fyrst og fremst hugsuð fyrir unga og upprenn- andi plötusnúða til að spreyta sig og koma sér á framfæri. Óttar mun þannig á komandi vikum spila í Hollywood, félagsmið- stöðvunum, Bylgjunni og Rás 2. -þj. íþróttir Eðvarð Þór Eðvarðsson, sundkappi úr Njarðvíkum og íþróttamaður árs- ins. Einn af tíu íþróttamönnum. Steinunn Sigurðardóttir, einn af sjö wl%UlQ rithöfundum sem fengu úthlutun á plakatinu. Metsöluhöfundar að sjálfsögðu upp til hópa. Qj-v Fe.liv Bergsson, söngvari Greifanna, ■ ^^l^l^er í hópi stjamanna sem fengu að- gang. Hann er enda gríðarlega vin- sæll hjá yngri kynslóðinni. FÍAlmiAlnrEUn Hirst, sem tilheyrir langfjöl- rjuimioiar mennasta hópnum. Þriðjungur þeirra sem era á plakötunum kemur úr fjölmiðlastétt. Hvernig á að sannfæra ungt fólk um nauðsyn smokks í nú- tímasamfélagi? Hvernig er hægt að dubba smokkinn upp þannig að hann verði ekki ein- astasjálfsagður, heldurmiklu frekar eftirsóknarverður- jafnvel lífsskoðun? Vitanlega með því að fá ná- kvæmlega 102 „þekkt andlit“ til þess að mynda sig með smokk. | Vel að merkja brosandi og vígreif „þekkt andlit". Þá flykkist unga fólkið í apótekin, sjálfsalana og bankastrætin og kaupir smokka og aftur smokka! Það var auglýsingastofan „Svona gerum við“ sem hannaði plakötin frægu, með aðstoð Val- geirs Guðjónssonar og fulltingi landlæknis. Hugmyndin kviknaði á auglýsingastofunni. Að sögn Guðjóns Hafliðasonar, teiknara, var það takmark sett að fá andlit sem „áhættuhóparnir þekkja“. - Ber að taka fram að ungt fólk er í þessu tilliti talið með áhættuhóp- um. Guðjón sagði að ekki hefði verið búin til nein formúla, að- ferðin hefði verið einföld við val- ið: Það voru skrifuð niður nöfn á „andlitum“, mörgum „andlitum" - miklu fleiri en síðar komu á veggspjöldin góðu. Síðan varfar- ið að hringja í liðið: „Langflestir, ábyggilega um 90% tóku vel í þetta,“ segir Guðjón. „Það voru fáeinir sem voru eitthvað efins og við vorum ekkert að pressa þá. Það var nóg af fólki í viðbót“. Hvar er Ingvi Hrafn? En hvaða fólk er þetta? Hvaða þjóðfélagshópar eru taldir höfða mest til ungs fólks? Og hverjir ekki? Hvemig er kynjaskipting- in? Þessum og fleiri bráðnauð- synlegum spurningum verður svarað í þessari grein. Konur eru alls 34 á móti 68 körlum. Það get- ur nær talist óeðlilegt, þar sem reikna verður með að karlar noti smokkinn meira... Nákvæmlega þriðjungur þeirra 102 sem eru í smokkatrúboðinu koma úr fjölmiðlastétt: Rit- stjórar, útvarpsstjórar, dag- skrárgerðarmenn. Frá Bylgj- unni, Rásinni, Stöðinni og RÚV. Jón Óttar er á plakatinu, en Markús Örn hinsvegar ekki. Þorgeir Ástvaldsson en ekki Ein- ar Sigurðsson. Svo eru bara tveir af ritstjórum blaðanna: Össur og Ellert. Hvar eru Styrmir, Níels Lund og Árni Gunnarsson? Páll Magnússon er þama lfka en Ingvi Hrafn ekki? Hvar er Ingvi Hrafn? Það er greinilegt að hug- myndafræðingar veggspjaldanna hafa ekki beitt kvótareglu í út- hlutun á þekktum andlitum úr stjórnmálaflokkunum: Það eru tíu pólitíkusar, þar af fjórar Kvennalistakonur. Tveir alla- ballar og tveir sjálfstæðismenn. Síðan eru einungis formenn krata og framsóknar. Steingrímur Her- mannsson er þannig eini ráðher- rann sem hugmyndafræðingarnir treystu til að hafa áhrif á ungt fólíc. Þorsteinn Pálsson illa fjarri góðu gamni, en Árni Sigfússon formaður Heimdallar bætti það að nokkru upp. Ráðherra heilbrigðismála, Ragnhildur Helgadóttir, var heldur ekki. Svo skarast þessir hópar sem þegar hafa verið nefndir: Þannig er Bryndís Schram, fjölmiðla- stjama og tilvonandi forsætisráð- herrafrú mætt ásamt Jóni Hanni- balssyni. Smokkaklíkan! 34 úr fjölmiðlabransanum og tíu pólitíkusar. Leikarar, íþrótta- menn og popparar eiga síðan um það bil tíu fulltrúa. Þegar popp- listinn er skoðaður vekur athygli að hljómsveitin Strax nýtur trausts umfram aðrar í barátt- unni. Strax er enda vinsælt band. Bergen-stjörnurnar Eiríkur Hauksson og Helga Möller era í poppliðinu, en ekki Pálmi Gunn- arsson. Felix Bergsson, söngvari Greifanna og Bubbi Morthens eru líka, enda eru þeir helstu átr- únaðargoð íslenskrar æsku um þessar mundir, eins og fram kem- ur annars staðar í þessari opnu. En rétt eins og aðrir eru popp- stjörnur viðkvæmt fólk. Þannig móðguðust auðvitað heilmargir þegar þeim var ekki boðið að vera með. í spjalli við undirritað- an lýsti poppstjarna, sem ekki vildi láta nafns getið, sárum von- brigðum sínum: „Ég er nú búinn að vera í þessum bransa í mörg ár og átt meiriháttar breik. Ég hef alltaf notið vinsælda hjá ungu fólki og raunar flestu fólki, en ég er bara ekki í „klíkunni“.“ - Hvaða klíka er það? „Það er smokkaklíkan! Með vali á þessu fólki er náttúrlega verið að velja úr á kostnað ann- arra. Mér finnst að málið hefði átt að leysa með því að hafa fleiri poppara. Þetta skapar leiðindi í bransanum. Manni er bara ýtt út í horn...“ Guðjón Hafliðason var spurð- ur hvort einhver hefði kvartað yfir því að vera ekki með. „Nei, það hefur nú mér vitan- lega enginn snúið sér til okkar, en hinsvegar er því ekki að neita að það er orðið ákveðið stöðutákn að vera með á þessum plakötum. Það eru auðvitað margir sem hefðu viljað vera með, - sérstak- lega eftir á þegar menn sjá hversu mikla athygli þetta vekur. - En menn þora nú varla að fara að kvarta opinberlega þótt þeir séu ekki með og uppljóstra þannig um nöldursemi sína“. Enginn úr ÍR! Eins og áður er getið fengu ell- efu íþróttamenn inni. Hér verður

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.