Þjóðviljinn - 22.03.1987, Side 3

Þjóðviljinn - 22.03.1987, Side 3
_____Tvær plötur og eitt myndband Eitthvað eru þau aumleg bókasafnsmálin í Garðabæn- um. í fundargerð stjórnar bókasafns Garðabæjar frá í febrúar kemur fram að fjár- veitingar nægja ekki til að standa undir venjulegu við- haldi, og bókakaup safnsins, sem einnig er skólasafn Garðaskóla (um 600 nem- endur), drógust á síðasta ári saman um þriðjung. Nánast átakanleg verður fundargerð- in þegar rætt er um mynd- bönd og plötur: „Safnið er þegar orðið langt á eftir öðrum bókasöfnum í myndbanda- eign og getur því alls ekki staðið undir kröfum fólks um kennsluefni á myndböndum." ...Keyptar voru 2 hljómplötur og 1 myndband með kennslu- efni á sl. ári. Þróun þessara mála er bæjarfélaginu til skammar," segir bókasafnss- tjórnin, „og hefur þegar leitt af sér að börnin verða að sækja á bókasöfn annarra sveitarfé- laga.“ Þess má geta að í Garðabæ ríkir meirihluti Sjálfstæðisflokks og er leið- togi meirihlutans Agnar Frið- riksson, betur þekktur sem fyrrverandi forstjóri Arnar- flugs, sá sem „gleymdi" 200 milljónunum um árið.B Framboðsfrestur til alþingiskosninga í Reykjavík 25. apríl 1987 rennur út föstudaginn 27. mars n.k. Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðum að Austur- stræti 16, 5. hæð (inngangur frá Pósthússtræti), föstudaginn 27. mars kl. 13.00-15.00 og kl. 23.00-24.00. Fylgja skal tilkynning um, hverjir séu umboðsmenn lista. 19. mars 1987 Yfirskjörstjórn Reykjavíkur Jón G. Tómasson Skúli Pálmason Sigurður Baldursson Hrafn Bragason Hjörtur Torfason Félagsfundur El Salvador- nefndarinnar þriðjudaginn 24. mars kl. 20.30 að Mjöln- isholti 14, 3. hæð. Helstu mál á dagskrá fundarins verða: 1. Uppgjör jólasöfnunar. 2. Nafnbreyting á nefndinni. Mið-Ameríku- nefndin?? 3. Stuðningsstarfið við Nicaragua - fjailað um ráðstefnuhugmynd. 4. Næstu verkefni nefndarinnar, fjármál o.fl. Allir sem áhuga hafa á að kynnast starfi nefndar- innar eru velkomnir á fundinn. Stjórnin Frá skólaskrifstofu Reykjavíkur Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem þurfa að flytjast milli skóla fyrir næsta vetur fer fram í Skólaskrifstofu Reykjavíkur, Tjarnargötu 12, sími 28544, þriðjudaginn 24. og miðvikudag- inn 25. mars n.k., kl. 10-15 báða dagana. Þetta gildir um þá nemendur, sem flytjast til Reykjavíkur eða úr borginni, koma úr einka- skólum eða þurfa að skipta um skóla vegna breytinga á búsetu innan borgarinnar. Það er mjög áríðandi vegna nauðsynlegrar skip- ulagningar og undirbúningsvinnu að öll börn og unglingar sem svo er ástatt um verði skráð á ofangreindum tíma. Þá nemendahópa, sem flytjast í heild milli skóla, þarf ekki að innrita. Frá grunnskólum Reykjavíkur Innritun sex ára barna (þ.e. barna sem fædd eru á árinu 1981) fer fram í skólum borgarinnar þriðjudaginn 24. og miðvikudaginn 25. mars nk., kl. 15-17 báða dagana. Það er mjög áríðandi að foreldrar láti innrita börn- in á þessum tilgreinda tíma, eigi þau að stunda forskólanám næsta vetur. Ath.: Innritun forskólabarna, sem eiga skólasókn í Ártúnsskóla, fer fram í félagsheimili Rafmagns- veitu Reykjavíkur á sama tíma. esjamenn að er„lítil“ et á her- r á gang- r-sex“ • • • .. þá endar leitin í JÁRN & SKIP - ekki bara af gömlum vana, heldur einfaldlega að þar er verð hagstætt, ótrúlegt úrval og lipur þjónusta. Skemmtileg staðreynd. KAUPFÉLAG SUÐURNESJA ^99inqQi/A v' Hreinl J. Vor'Jr V /Mril v" teppí 0n '70rur v' Parket V' MottUr V" Dúkar V' Verkfaerj ^ Sl*ávörUr V' Járn & Skip V/VÍKURBRAUT - 230 KEFLAVÍK - SÍMI 92-1505 aÖ vers|a

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.