Þjóðviljinn - 22.03.1987, Side 12

Þjóðviljinn - 22.03.1987, Side 12
markaðarins vegna væri talið, þykir mega ákveða að þeim skuli eigi refsing gerð.“ Ja svo... Ákærðu voru því dæmdir til að greiða sakarkostnað og plakötin voru gerð upptæk. í dómi Hæsta- réttar segir m.a.: „Fallast ber á það mat héraðsdóms að vegg- spjöld þessi séu ekki liður í list- rænni tjáningu. Myndir þessar eru klámfengnar." Svívirðilegur texti Tilgangurinn með því að rekja þessi mál var að gefa lesendum einhverja hugmynd um hvað er klám og hvað ekki að mati dóm- stóla. Ef til vill eru lesendur ein- hverju nær, undirrituð er það þó ekki. í viðtali við Miðil, fylgirit Pjóð- viljans, segir Ingibjörg Hafstað, ein úr hópi þeirra kvenna sem skorið hafa upp herör gegn klám- inu, að sín skilgreining á því hvað sé erótík og hvað klám sé einföld: „Erótík er samskipti fólks þar sem báðir aðilar eru með og byggjast á gagnkvæmri virðingu. Klámið hinsvegar, það höfum við þegar annar aðilinn - eða einn aðilinn ef því er að skipta - er niðurlægður. Og boðskapurinn er mjög skýr í kláminu; sá sem er stillt upp, oftast konan og börnin, er neysluvara sem er aðgengileg öllum þeim sem girnast.“ Og síðar í viðtalinu segir Ingi- björg: „Eitt finnst mér mjög merkilegt og það er það að þau blöð sem oft eru álitin í skárri kantinum, s.s. Penthouse og Playboy, og þá vegna þess að myndirnar eru ekki sérlega svæsnar miðað við það sem gengur og gerist, innihalda alveg svívirðilegan texta í bland við al- varlegt efni. Goðsögnin um nauðgun Það er oft kona í fyrstu persónu sem segir frá. Til dæmis hvernig hún upplifir nauðgunina; það er soldið kalt þegar hann stingur byssunni í klofið á henni, en svo er það æðislega gott og hún fær fullnægingu aftur og aftur. Og aftur. Oft er þetta líka í draum- formi og hvort tveggja styrkir þá goðsögn að konan vilji láta nauðga sér.“ „Við teljum okkur ekki vera að flytja inn ólögleg blöð,“ sagði Haukur Gröndal, framkvæmda- stjóri Innkaupasambands bók- sala, sem flytur inn fjölda af djörfum blöðum. Hann sagði að Innkaupasambandið hefði aldrei verið kært fyrir þennan innflutn- ing né heldur fengið kvartanir vegna hans. Hann kvaðst ekki treysta sér til að dæma um það hvað væri klám og hvað ekki en menn myndu þiggja eitthvert leiðarljós í þeim efnum. Þegar hann var inntur álits á orðum Ingibjargar um texta „saklausari Hvað er klám og hvað er ekki klám? Flett í gegnum hœstaréttardóma, djörf blöð og fleira í leit að svörum Undanfarnar vikur hefur hóp- ur kvenna, sem hefur hafið baráttu gegn klámi, vakið at- hygli fólks og nokkur umræða hefur átt sér stað um aðgerðir þeirra. Konurnar hafa farið í bókabúðir sem selja djörf blöð og sagt verslunarstjórum að þeir séu að selja ólöglegar vörur. Árangurinn er sá að ein bókabúð hefur þegar hætt sölu slíkra blaða, umræðan hefur verið opnuð og fjölmiðl- arnir hafa tekið við sér. Samkvæmt 210. grein hegning- arlaganna er bannað að birta klám á prenti, flytja inn klámrit og klámmyndir, selja slíkt, út- býta eða dreifa á annan hátt, svo og að efna til opinbers fyrirlestr- ar, eða leiks, sem er ósiðlegur á sama hátt. Ennfremur er bannað að láta af hendi við unglinga yngri en 18 ára klámrit og klámmyndir. Sá sem fundinn er sekur um ofangreint skal samkvæmt lögum sæta sektum eða varðhaldi allt að 6 mánuðum. Hvað er klám og hvað ekki? Skýrt og skorinort, ekki satt? Gallinn er hins vegar sá að hvergi er að finna neinn lagabókstaf um það hvað er klám. í orðabók Menningarsjóðs er þessa skilgreiningu á orðinu klámi að finna: „Gróft orð, klúr- yrði (einkum um kynferðismál eða kynfæri); málfar, mynd eða annað sem beinir athyglinni að kynlífí án nauðsynjar í listrænu samhengi, fræðslu eða þess hátt- ar.“ Ekki komumst við langt á þessu, eða hvað? „Það er dómstólanna að á- kveða hvað er klám og hvað ekki,“ sagði Bjarki Elíasson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, þegar hann var inntur álits á þessu. Að sögn Bjarka er hinn venjulegi gangur mála, þegar kært er brot á ofangreindum lögum, sá að lögreglan sendir málið til ríkissaksóknara, ásamt gögnum, tímaritum eða mynd- um, ef um siíkt er að ræða, og saksóknari tekur ákvörðun um hvort gefa skal út kæru.“ „Jú, það vill nú vefjast fyrir mönnum að meta þetta“ sagði Hallvarður Einvarðsson ríkis- saksóknari í samtali við Þjóðvilj- ann. „Viðhorfin taka breytingum á hverjum tíma og við verðum að eftirláta dómstólum að meta þetta.“ Að sögn Bjarka hafa þó nokk- ur mál komið til athugunar en mörg verið felld niður. Ekki eru til neinar tölur um fjölda slíkra mála. Ríkissaksóknari benti á þrjá hæstaréttardóma sem fallið hafa vegna ákæra um brot á 210. greininni á tímabilinu 1972 til 1984, en vera má að þau séu fleiri. Til þess að glöggva sig nánar á því hvað dómstólar telja klám er reynandi að grípa niður í þessi mál: Getnaðarlimur í hœttu Eitt þeirra er hið fræga Speg- ilsmál þar sem ákærði var dæmd- ur til fjársekta og tímarit voru gerð upptæk, þar eð myndefni í þeim og lesmál var talið brot á 210. greinini. Einni myndanna er lýst sem svo í dómi Hæstaréttar: „Hún sýnir konu og barn og karlmann, sem mundar sveðju að nöktum getnaðarlim sínum.“ Þessi mynd var dæmd sorafengin klámmynd. Ákærði var hins vegar sýknað- ur af ákærulið sem snerist um tvær hálfsíðumyndir. Um þennan Iið ákærunnar segir meðal annars: „Á efri myndinni er framhliðin af nöktum karlmanni. Maðurinn heldur í hægri hendi á lykkju á snæri sem liggur yfir hægri öxl, og gefur þessi staða mannsins til kynna að hann haldi á einhverju fyrir aftan bak með snærinu. Höfuð mannsins sést ekki á myndinni. Ekki sést getnaðarlim- ur mannsins, heldur aðeins kyn- hár hans, þannig að hann líkist kvenmanni að þessu leyti. Snúðu þér við góða Annar maður fullklæddur, er á myndinni með einkennishúfu (sennilega fransks lögreglu- manns). Sá síðarnefndi segir við þann nakta: „Snúðu þér við góða.“ Hin myndin er af bakhlið á nöktum karlmanni (væntanlega þeim sama) og sýnir hann aðeins frá mitti og niður á mið læri. Á milli þeirra sjást kynfæri karl- mannsins, og er snærislykkju brugðið um framenda limsins og síðan liggur snærið eftir öðrum þjóhnapp og baki mannsins svo langt sem myndin nær.“ Textinn sem myndunum fylgdi er tilgreindur í dómnum og meg- inmál hans er að hér sé sýnt hvernig karlmaður reynir að Mikið úrval er af djörfum blöðum í bókaverslunum. Innflytjendur segja þau ekki vera klámrit, en eiga þó í vissum erfiðleikum með að skilgreina „bók- menntirnar". smygla sér inn á framboðslista Samtaka um kvennalista með því að villa á sér heimildir. Ekki er kært út af textunum, aðeins myndunum. Um ákæruna segir: „Telja verður að myndin sé hluti af háðsádeilu á nýtt þjóðfélags- fyrirbæri, sérframboð kvenna, notuð til að skopast að karlmanni sem á að hafa laumast þar inn á lista undir fölsku flaggi." Með þetta í huga kemst Hæsti- réttur að þeirri niðurstöðu að „sýkna verður ákærða af þessum ákærulið, enda ekki um klám að ræða.“ Árið 1972 er kært út af dreif- ingu og útgáfu klámritsins „Kyn- blendingsstúlkan“. í dómnum segir: „I umsögn saksóknara er litið svo á að allt meginefni um- getinnar bókar einkennist svo af klámi, að útgáfa og dreifing þess háttar lesefnis falli undir ákvæði 210. gr. hegningarlaganna.“ Veggspjöldin voru klám Ákæru í málinu er hins vegar vísað frá þrátt fyrir þessa umsögn þar eð :„I ákærunni er eigi vitnað til einstaks eða einstakra kafla, blaðsíðna, málsgreina, setninga né orða í bókinni til að renna stoðum undir það, að hún sé klámrit.“ Sem sé, klám eða ekki klám, það var formgalli á ákær- unni. Þriðja málið er frá 1973, það er ákæra vegna prentunar á vegg- spjöldum (plakötum) sem seld voru í umboðssölu í versluninni Karnabæ. Mynd af slíku plakati er að finna hér í opnunni. f dómi Sakadóms Reykjavíkur er myndunum lýst þannig að þær sýni „konu og karl að ýmis konar kynferðisleik. Sumar sýna beinar samræðisstöður en aðrar líkams- stöður einhliða eða gagnkvæmrar kynertingar. Undir hverri þess- arra mynda stendur heiti eins eiginleika... Ekki verður séð að heiti þess né heldur stjörnumerk- in eigi nokkur merkingartengsl við aðalmyndina.“ Ennfremur segir Sakadómur og takið nú eftir: „Af hálfu ákærðu hefur ekki verið bent á neitt sem hér á landi hefur verið gefið út myndefnis, er gangi jafnlangt í klámkennda átt. Þykir dóminum ekki rétt að hann gangi fram fyrir skjöldu til þess að rýmka mörkin í þessum efn- um. Samkvæmt þessu þykja ákærðu hafa gerzt brotlegir gegn 210. gr., 2.mgr., almennra hegn- ingarlaga nr. 19/1940. Með tilliti til þess, að skiptar skoðanir geta verið um, hvað teljast skuli klám, og að ákærðu kunni að hafa haft nokkra ástæðu til að ætla, að gerð og dreifing fyrmefndra veggspjalda væri innan marka þess sem leyfilegt 12 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.