Þjóðviljinn - 22.03.1987, Side 15

Þjóðviljinn - 22.03.1987, Side 15
Bjami P. Magnússon: Það er til munnlegt samkomulag á milli stjórnmálaflokkanna að auglýsa ekki I sjónvarpi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Það er einsog 5-6 efstu menn listanna séu bara I framboði en allir hinir séu •tuðningsmenn. röntgentæki á stjóramálamenn- ina og ég tel það gott. Sumir þeir sem gagnrýna þessa þróun og telja að allt hafi verið betra áður fyrr gleyma því að stjórnmálabar- áttan var ekki síður persónuleg fyrr á öldinni en nú, í tíð manna einsog Ólaf Thors, Einars Ol- geirssonar og Jónasar frá Hriflu. Það er mjögt eðlilegt því stjórnmál eru líka spurning um traust.“ Framboðsfundir á undanhaldi Eru hinir hefðbundnu kosn- ingafundir að hverfa, þar sem stjórnmálamennirnir mættu hver öðrum og hnakkrifust? Bjarni P. Magnússon: „Áður fyrr kom fólkið til stjórnmálaflokkanna og þessir sameiginlegu framboðsfundir voru upplyfting í fábreyttu tóm- stundalífi fólks. Þetta hefur mjög breyst. Nú verða flokkarnir að leita út til fólksins. Það er næsta víst að þeir sem sækja framboðs- fundi ákveðins stjórnmálaflokks nú eru fyrst og fremst harðir stuðningsmenn hans. Slíkir fund- ir eru því fyrst og fremst eyðsla á þeim fjármunum sem flokkarnir hafa í kosningabaráttuna. Því hefur verið gripið til þess að nota fjölmiðlana til að ná til fólksins. Menn eru farnir að gera sér grein fyrir því að peningunum er miklu betur varið í auglýsingar en fram- boðsfundi. Það er möguleiki að halda sameiginlega framboðs- fundi á minni stöðum en í Reykjavík er það hinsvegar mjög erfítt.“ Kjartan Gunnarsson telur slíka fundi mjög tilgangslausa. „Fram- bjóðendur hafa þurft að eyða alltof miklum tíma og alltof mikilli orku í slíka fundi. í þetta fara margar vikur að ferðast á milli staða til að taka þátt í rifrili. Og nú þegar framboðin eru orðin þetta mörg þurfa fundirnir að standa í hálfan sólarhring til að allir geti talað. Þetta eru því til- gangslausar uppákomur sem verða vonandi lagðar af í framtíð- inni. í kosningunum nú verða hinsvegar sameiginlegir fundir í öllum kjördæmum nema Reykja- vík og eftilvill ekki heldur í Reykjanesi.“ Frambjóðendur í návígi Ólafur Ragnar er sammála þeim Bjama P. og Kjartani um að flokksfundir þjóni ekki lengur því hlutverki að afla flokknum at- kvæða, hinsvegar séu þeir gagn- legir fyrir flokksmenn til að kynn- ast nýjum frambjóðendum, til að leggja upp kosningabaráttuna og meta hvað skuli leggja áherslu á í kosningabaráttunni. „Við héldum slíka fundi í janú- ar og febrúar og voru þeir mjög gagnlegir fyrir baráttuna. Þeir eru því gagnlegir enn en hlutverk þeirra hefur breyst. Hvað sam- eiginlega framboðsfundi varðar, þá tel ég þá mjög gagnlega, eink- um ef útvarpað og sjónvarpað er frá þeim. Á slíkum fundum þurfa frambjóðendur að reyna sig í ná- vígi við aðra frambjóðendur. Mér þætti því miður ef Sjálfstæð- isflokkur og Alþýðuflokkur ætla að setja sig upp á móti slíkum fundi hér í Reykjanesi." Ingibjörg Sólrún er sammála Ólafí Ragnari í að flokksfundirn- ir þjóni því hlutverki að þjappa flokksmönnum saman fyrir kosn- ingabaráttuna. „Það er orðin hefð hjá okkur að efna til stór- fundar á Hótel Borg í þau skipti sem við höfum boðið fram, í upp- hafi kosningabaráttunnar. Sá fundur verður haldinn nú um helgina. Tilgangurinn með þessu er kannski fyrst og fremst sá að fínna samstöðuna og hleypa í okkur baráttuhug. Hvað sjálft kosningastarfið varðar munum við gefa út eitt blað sem verður dreift um allt landið, auk þess sem mikil vinna hefur verið lögð í stefnuskrá Kvennalistans. Hún er einar 44 síður á stærð og verður prentuð í töluverðu upplagi.“ Sjónvarpið nœst Hvert verður framhaldið á bar- áttu flokkanna um hylli kjós- enda. Má búast við því að þegar nær dregur að kosningum, eða kosningum framtíðarinnar, að auglýsingatímar sjónvarpsstöðv- anna verði lagðir undir kosninga- auglýsingar? Ólafur Ragnar: „Það er í sjálfu sér enginn eðlis- munur á að nota dagblöð og út- varp einsog nú eða því að nota sjónvarp til að auglýsa menn og málefni stjórnmálaflokkanna. Vandinn er hinsvegar sá að sjón- varpið er dýrari miðill og því verður aðstaða flokkanna mis- munandi vegna ólíkrar fjár- hagsgetu þeirra. Fjárhagslegt jafnræði milli flokka er mjög mikilvægt í lýðræðisþjóðfélagi.“ Kjartan Gunnarsson er for- maður útvarpsréttarnefndar. Hann var sammála Ólafi Ragnari um að í sjálfu sér væri enginn eðl- ismunur á því að auglýsa í ljós- vakamiðlum og í blöðum. „Hins- vegar er fjallað um auglýsingar stjórnmálaflokka í almennri reglugerð um auglýsingar í út- varpi. Samkvæmt þeirri reglu- gerð mega stjórnmálaflokkarnir ekki vera með áróður í auglýsing- um né heldur skrum. Þetta er mjög almennt orðalag og hægt að túlka á mismunandi máta. Hvað auglýsingar í sjónvarpi varðar, geri ég hinsvegar ekki ráð fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn muni hafa forgöngu um slíkt stríð. Ef hinsvegar flokkarnir sem börðust hvað harðast gegn því að frjálsu útvarps- og sjón- varpsstöðvarnar gætu fjármagn- að starfsemi sína með auglýsing- um, hefðu forgöngu um slíkt til marks um innihaldsleysi orða þeirra.“ Bjarni P. Magnússon sagði að það væri til munnlegt samkomu- lag á milli stjómmálaflokkanna um að fría sjónvarpsáhorfendur við kosningaauglýsingum. Það er svo annað mál hvað ger- ist þegar fer að hitna í kolunum þegar dregur að kjördegi. Og eitthvað mun svo slagurinn kosta. Almennt búast menn við að kosningabaráttan fari á fullt strax upp úr mánaðamótum. Fram til þessa hafa þingmenn verið uppteknir við að hreinsa til eftir kjörtímabilið á Alþingi. „Slagurinn verður stuttur en snarpur og ekkert gefið eftir,“ enda mikið í húfi því sumstaðar geta þingsæti jafnvel oltið á ör- fáum atkvæðum og samkvæmt skoðanakönnunum er töluverður fjöldi kjósenda enn óákveðinn, en til þeirra er fyrst og fremst ver- ið að höfða. -Sáf Askrift hlutafjár í Útvegsbanka íslands h.f. í samræmi viö ákvæði laga nr. 7/1987 gengst ríkisstjórnin fyrir stofnun hlutafélagsbanka um Útvegsbanka íslands. Samkvæmt tillögu að samþykktum fyrir hlutafélagsbankann, sem lagt er til að heiti Útvegsbanki íslands h.f., er lág- markshlutur kr. 10.000.- en að öðru leyti skiptist hlutafé í hluti að nafnverði kr. 100.000.-, kr. 1.000.000.-, kr. 10.000.000,- og kr. 100.000.000.-. Frá og með mánudeginum 23. mars n.k. mun áskriftaskrá ásamt tillögu að samþykktum fyrir Útvegsbanka íslands h.f. liggja frammi í viðskipt- aráðuneytinu, Arnarhvoli, Reykjavík í Útvegs- banka íslands, aðalbanka, 5. hæð við Austur- stræti í Reykjavík og í útibúum Útvegsbanka ís- lands. Frestur til að skrifa sig fyrir hlutafé í Útvegsbanka íslands h.f. stendurtil kl. 16.00 mánudaginn 30. mars n.k. Hlutafé ber að greiða eigi síðar en hinn 30. apríl n.k. Stofnfundur Útvegsbanka íslands h.f. verður haldinn 7. apríl 1987 að Hótel Sögu, sal A og hefst fundurinn kl. 15.00. Skrá yfir áskrifendur hlutafjár mun liggja frammi til sýnis fyrir áskri- fendur í viðskiptaráðuneytinu í eina viku fyrir stofnfund. Viðskiptaráðuneytið, 20. mars 1987. A iS&J Forstöðumaður - fóstrur Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsireftirtaldar stöður á dagvistarheimilum bæjarins lausar til umsóknar: - Stöðu forstöðumanns á skóladagheimilinu Dalbrekku. Er laus frá 15. maí. Umsóknarfrestur ertil 30. mars. Upplýsingar veitir dagvistarfulltrúi í síma 45700. - Fóstru að skóladagheimilinu Dalbrekku. Upp- lýsingar gefur forstöðumaður í síma 41750. - Fóstru að dagvistarheimilinu Efstahjalla. Upp- lýsingar gefur forstöðumaður i síma 46150. - Fóstru að dagvistarheimilinu Grænatúni. Upp- lýsingar gefur forstöðumaður í síma 56580. - Fóstru að leikskólanum Kópahvoli. Upplýsing- ar gefur forstöðumaður í síma 40120. - Fóstru að dagvistarheimilinu Kópasteini. - Einnig óskast starfsfólk til afleysinga á sama stað. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 41565. - Fóstru að leikskólanum Fögrubrekku. Einnig óskast starfsfólk til afleysinga á sama stað. Upp- lýsingar gefur forstöðumaður í síma 42560. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu- blöðum sem liggja frammi í Félagsmálastofnun Kópavogs. Einnig veitir dagvistarfulltrúi upplýs- ingar um störfin í síma 45700. Félagsmálastofnun Kópavogs Söngfólk Söngsveitin Fílharmonía óskar eftir söngfólki í allar raddir. Verkefni: Fjalla-Eyvindur eftir Frans Mixa og 9. sinfónía Beethovens. Uppiýsingar gefa Emma í síma 688939 og Þórhallur í síma 44237. Eiginkona m(n og móðir Hildur Þuríður Bóasdóttir andaðist að morgni 20. mars Hlöðver Kristinsson Hermann Hlöðversson Sunnudagur 22. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.