Þjóðviljinn - 22.03.1987, Side 16
HúsnæÖisstofnun ríkisins
Tæknideild
Laugavegi 77. R. Sími 28500
Útboó
Ölfushreppur
Stjórn verkamannabústaöa Ölfushrepps óskar
eftir tilboðum í byggingu tveggja íbúða í parhúsi,
byggðu úr steinsteypu. Verk nr. U.05.01 úr
teikningasafni tæknideildar Húsnæðisstofnunar
ríkisins.
Brúttóflatarmál húss 195m2
Brúttórúmmál húss 675m3
Húsið verður byggt við götuna Norðurbyggð 1 a
og 1b Þorlákshöfn og skal skila fullfrágengnu,
sbr. útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á sveitarstjórnarskrif-
stofu Ölfushrepps, Selvogsbraut 2, Þorlákshöfn
og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins frá
þriðjudeginum 17. mars 1987 gegn kr. 5.000.-
skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sömu staði eigi síðar en
þriðjudaginn 7. apríl kl. 11.00 og verða þau opn-
uð viðstöddum bjóðendum.
F.h. stjórnar verkamannabústaða
Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins
Útboð Vegagerð ríkisins óskar eftir tii- boðum í verkið:
V//Æ f Norðurlandsvegur við Ljósavatn
(Lengd 4,5 km, fyllingar 94.000 rúmmetrar, burðarlag
26.000 rúmmetrar, steypt brú 8 m).
Æwmm Yerkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 1987. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Ak- ureyri og I Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 23. mars n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 13. apríl 1987. Vegamálastjóri
Sm Útboð Vegagerð ríkisins óskar eftir til- boðum í verkið: V Efnlsvlnnsla 11987 á Norðurlandl vestra (Magn 43.000 rúmmetrar) Verkl skal lokið 1. ágúst 1987. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavfk (aðalgjaldkera) frá og með 23. mars n.k. Sklla skal tllboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 6. apríl 1987.
Vegamálastjóri
Skytturnar Grímsi og Búbbi á skrafi við flensara á plani í Hvalfirði. Atriði úr kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar,
Skytturnar.
Mannúðleg mynd
um utangarðsmenn
Þegar fyrsta kvikmyndahátíðin
var haldin á íslandi snerum við
Hrafn Gunnlaugsson bökum
saman að koma þessu mikla fyrir-
tæki á fót og beittum okkar of-
forsi báðir, og máttum ráða okk-
ur hjálparmann. Ég vissi af væn-
um ungum manni úr Vogahverfi,
Friðriki Þór Friðrikssyni, sem
kom varla fermdur til mín að fá
lánaðar bækur og ræða við mig
um hátinda heimsmennta,.
bækur, myndlist og verk þeirra
Eisensteins og Dziga Vertovs á
gullöld sovézkra kvikmynda, og
annað fréttnæmt úr heimslist. Ég
segi Hrafni frá þessum manni
sem nú var orðinn fulltíða maður
og hélt með ágætum út í kvik-
myndaklúbbi æðri skólanna.
Ráðum hann, segir Hrafn og var
rokinn.
Við Hrafn vorum umburðar-
lausir ofstopamenn að færa þjóð-
inni fyrstu kvikmyndahátíðina og
sáumst ekki fyrir, Friðrik skáld
og heimspekingur og þurfti oft að
velta vöngum og vagga í álitum.
Tímaskyn hans var eins og vill þar
sem snjallar hugdettur ólmast í
höfðinu og kom ekki vel heim við
skrifstofutíma ríkisstofnana með
stimpilvöldin, svo maður tali nú
ekki um almennan háttatíma ef
slíkt á við á íslandi. Eitt sinn vor-
um við Hrafn á suðupunkti út af
þess konar tímaskekkju og vor-
um báðir á leið upp á háa c-ið. Því
æstari sem við urðum því meiri ró
færðist yfir Friðrik eins og títt er
um þá sem eiga náttúrulegan að-
gang að Taó. Og steig ölduna í
þessum krappa sjó, og pírir út í
veðrið þar til hann tekur til máls
fremur seinmæltur; og segir okk-
ur söguna af því þegar hann á
sumarhóteli rotaði heildsalann
með franskbrauði. Og mun vera
eina skiptið í veraldarsögunni
sem það hefur unnizt með slíku
vopni.
Það kom við hjartað í mér, öðr-
um ofsamanninum í storminum
forðum, þegar ég sá að hinn ber-
serkurinn, Hrafn, frá þeim
dögum í hugsjónaframkvæmd-
inni, skrifar grein af drenglyndi
og einlægni tilað vekja athygli á
því hvert afrek Friðrik hefur unn-
ið með kvikmynd sinni Skytturn-
ar. Að vísu hafði mér flogið í hug
að eggja landa mína að láta ekki
þessa skemmtilegu og vel gerðu
mynd fram hjá sér fara, en
drengilegt viðbragð Hrafns ýtti
við mér og minnti mig á það að
tíminn Iíður. Ég neytti því færis
og gerði mér ferð á miðnætursýn-
ingu í Regnboganum að sjá
myndina öðru sinni til að vera ör-
uggur um að væntumþykja glepti
mér ekki sýn. Og ég kom út í
nóttina myrka og kalda með ylinn
ThorVilhjálmsson
skrifarum
Skyttur
Friðriks Þórs
Friðrikssonar
af mannúð Friðriks og vissi að
þessi mynd markaði með sínum
hætti tímamót í okkar kvik-
myndalist.
Mannúð, sagði ég: er þetta
mjög mannúðleg mynd? Já það
þykir mér. Friðrik lýsir ráð-
villtum utangarðsmönnum sínum
af glöggskyggnri samúð, gagn-
rýni hans er alls ekki drápfús þótt
endalykt sögupersónanna sé án
miskunnar. Og þar með hefur
hann kannski líka af hyggjuviti
sínu tryggt sér að lenda ekki í
þeirri keldu eins og sumir kol-
legar hans að spóla í sama farið
með sömu persónurnar vegna
þess að áhorfendum hafi þótt þær
svo sérstæðar og skemmtilegar að
þeir heimti meira og meira, og
langteygða runu mynda eins og
títt er í Hollywood og víðar.
Þama er komin mynd þar sem
er ákveðinn höfundarpersónu-
leiki sem setur sinn svip á verkið,
sérstök viðhorf að baki sem vaka
í hverju spori rökvíst á enda þar
sem fáránlegur endirinn er sam-
kvæmur hugsun myndarinnar, þó
virðist viðskila við þann veru-
leika sem fram undir hann hefur
verið lýst svo hver Reykvíkingur,
ef ekki hver íslendingur, ætti að
geta kinkað kolli með sjálfum sér
og sagt: já, svona er þetta. Það er
gott að sjá myndina tvisvar til að
nema blæbrigðin sem styðja sýn
höfundanna, því að ekki má
gleyma því að Friðrik hafði góð-
an mann með sér að semja verk-
ið, Einar Kárason. Hér er loksins
mynd sem byggir á drjúgu og
dugandi handriti, sem er túlkað
lögmætt á kvikmyndavísu af
skáldlegu næmi og kunnáttu.
Þegar ég sá þessa mynd á frum-
sýningu hugsaði ég með sjálfum
mér: Hér er góð kvikmynd sem
ætti að geta gengið lengi og fært
aðstandendum sínum verðskuld-
aðan arð, afl til nýrra afreka.
Ég hugsa þetta enn: Þegar það
fer að kvisast hve þessi mynd er
vel við almannahæfi og segir okk-
ur hugvekjandi sögu úr okkar
eigin þjóðlífi. Loksins.
MYNDL/STA- .
OG HANDÍÐASKÓLI
ÍSLANDS
auglýsir inntöku nýrra nemenda
fyrir skóiaárið 1987-1988.
Umsónareyðublöð ásamt upplýsingum um
skólann fást hjá skrifstofu skólans Skipholti 1,
105 Reykjavík, sími 19821 frá og með miðviku-
deginum 25. mars n.k.
Skrifstofan er opin virka daga frá kl.09-12.00 og
13.00-15.00.
Umsóknarfrestur um skólavist rennur út 30. apríl
n.k.
Inntökupróf verður haldið dagana 1.-4. júní.
Áríðandi er að væntanlegir umsækjendur afli sér
nauðsynlegra gagna hið allra fyrsta.
Skolastjori
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN