Þjóðviljinn - 15.04.1987, Síða 2
FRETTIR
—SPURNINGIN-
Eru nýbirtar skoöanakannanir
ávitull á úrslit komandi alþing-
iskosninga?
Sigrún Björnsdóttir
dagskrárgerðarmaður:
Því miður hef ég svo til ekkert
fylgst með niðurstöðum síðustu
skoðanakannana. Það má reikna
með töluverðri sveiflu til miðju í
þessum kosningum. Ný fram-
boð, s.s. Borgaraflokksins, held
ég að dragi töluvert fylgi að sér.
Það er bæði vegna þess að
mörgum finnst að sínir gömlu
flokkar hafi ekki staðið sig sem
skyldi og það er mikið til af pólit-
ískum villingum._________
Hlldur Petersen framkvæmdastjóri
Ég held að úrslit kosninganna
verði nokkuð önnur en skoðana-
kannanir gefa til kynna. Borgar-
aflokkurinn missir fylgi yfir til
Sjálfstæðisflokksins.
Lúðvík Eggertsson
fyrn/. kaupmaður:
Nei. Úrtakið er of lítið og spurn-
ingarnar of einhliða. Annars er
venjulegast fátt um svör þegar
stórt er spurt.
Bragi Kort skrifstofumaður:
Ég veit ekki. Það eru mjög
margir óánægðir með gömlu
flokkana. Ég held að Borgara-
flokkurinn eigi eftir að spjara sig.
önnur ný framboð fá svo til ekk-
ert fylgi.
Stefán Friðgeirsson bankamaður:
Ég tel að skoðanakannanirnar
gefi nokkuð rétta vísbendingu um
úrslit kosninganna. Annars eru
þessar kannanir ekki skoðana-
bindandi fyrir mig. Ég þori ekki
neinu aó spá um úrslit kosning-
anna.
Háskólinn
Baráttustjóm mynduð
Vinstri menn og Umbótasinnar hafa myndað meirihluta ístúdentaráði
„Við leggjum fyrst og fremst
áherslu á virka baráttu í lánamál-
um og gott upplýsingastreymi til
hins almenna stúdents,“ sagði
Ómar Geirsson nýkjörinn for-
maður og framkvæmdastjóri
stúdentaráðs Háskóla íslands, en
Félag vinstri manna og Félag um-
bótasinna hafa nú myndað nýjan
meirihluta sem samanstendur af
13 vinstri mönnum og 4 umbóta-
sinnum. í minnihluta eru 13
Vökumenn.
Fulltrúar umbótasinna í stjórn-
inni eru auk Ómars, Kristján
Sigtryggsson gjaldkeri og Agúst
Ómar Ágústsson. Fyrir hönd
vinstri manna sitja í stjórn Birna
Gunnlaugsdóttir varaformaður,
Þóra Jónsdóttir, Skúli H. Skúla-
son og Theódór Guðmundsson
sem er annar framkvæmdastjóri
ráðsins og fulltrúi þess í stjórn
LÍN.
Að sögn Ómars verður lögð
áhersla á að málflutningur tals-
manna stúdentaráðs sé málefna-
legur og ábyrgur og að unnið
verði að því að efla traust al-
mennings á námsmönnum. „Við
ætlum okkur einnig stóra hluti í
samstarfi námsmannahreyfing-
anna og munum halda þar uppi
öflugri baráttu. Auk þess viljum
við hafa góð tengsl við deildafé-
lögin og munum beita okkur fyrir
virkri stefnu í málum Háskólans,
bæði gagnvart skólayfirvöldum
og ríkinu. í málefnum Félags-
stofnunar er markmiðið að bæta
ímynd hennar þannig að menn
verði varir við góða og frambæri-
lega þjónustu á viðráðanlegu
verði,“ sagði Ómar.
Vinstri menn og umbótasinnar hafa myndað nýja stjórn Stúdentaráðs Háskólans. F.v.: Ómar Geirsson formaður,
Theódór Guðmundsson LlN-fulltrúi, Þóra Jónsdóttir fulltrúi utanríkismálanefndar og fyrir framan er Birna
Gunnlaugsdóttir varaformaður. Mynd Sig.
„Það verður að ná fram tafar-
lausri leiðréttingu á framfærslu-
grunni LÍN, í dag er fullt lán að-
eins 23.420 krónur, sem er alltof
lítið,“ sagði Theódór Guðmunds-
son fulltrúi í stjórn LÍN.
„Við munum einnig beita okk-
ur fyrir því að 1. árs nemar fái
aftur fulla fyrirgreiðslu hjá sjóðn-
um og að hætt verði að íþyngja
honum með dýrum erlendum
lánum.“ -vd.
Sjónvarp
limlent efni aukið hjjá Stöð 2
Líkur á að framleiðsla innlends efnis hjá ríkissjónvarpinu dragist enn saman
vegnafjárskorts. Egill Eðvarsson: Ég tek við sumrinu og reyni að spila úrþvíeins
og hœgt er
„Ég leysi af sem dagskrárstjóri
innlends efnis og tek við 1. maí
nk. og kem ekki til að móta neina
stefnu til lengri tíma. Ég tek við
þessu eins og það verður lagt í
hendurnar á mér og reyni að spila
úr því eins og ég veit mögulega
best,“ sagði Egill Eðvarðsson,
sem leysa mun af Hrafn Gunn-
laugsson um fimm mánaða skeið.
Aðspurður um hvort nokkurt
fjárhagslegt svigrúm væri til stór-
ræða í íslenskri dagskrárgerð hjá
ríkissjónvarpinu sagði Egill:
„Sjálfsagt eru til litlir peningar til
að gera eitthvað fyrir mikla pen-
inga en spurningin er hvort er
hægt að láta þá nýtast betur en
Vesturland
Skúli vinsæll
Skúli Alexandersson alþingis-
maður hefur undanfarnar vikur
ferðast vítt og breitt um Vestur-
landskjördæmi og haldið vinnu-
staðafundi þar sem hann hefur
m.a. notað skyggnur og myndrit
til upplýsingar.
Fundir Skúla hafa mælst mjög
vel fýrir og á fundi sem hann hélt
með starfsmönnum Loftorku í
Borgarnesi í vikunni var sérstak-
lega farið fram á það við hann að
koma aftur og halda fundarhöld-
um áfram með starfsfólkinu.
Mun þetta ekki vera einsdæmi á
fundarferðalagi Skúla.
gert hefur verið hingað til. Það
get ég ekki metið fyrr en ég kemst
betur inn í stöðuna."
„Dagskrárdeildinni verður
skipt upp í tvær deildir, aðra fyrir
erlent efni, en hina fyrir innlent.
Fyrirhugað er að efla verulega
hlut innlendrar dagskrárgerðar,“
sagði Lovísa Óladóttir Starfs-
maður Stöðvar 2 við Þjóðviljann.
Þjóðviljinn ræddi við Björn
Björnsson og sagðist hann vinna
að skipulagningu íslenskrar dag-
‘‘skrárgerðar hjá Stöð 2 sem verk-
taki, eða ráðgjafi á vegum fyrir-
tækis síns og Egils Eðvarðssonar,
„Hugmyndar" og taldi hann að
það yrði þriggja til fimm mánaða
verkefni.
Sagði Björn að Egill tæki sér frí
frá „Hugmynd" þá fimm mánuði
sem hann verður dagskrárstjóri
hjá ríkissjónvarpinu og yrði verk-
efnið á Stöð 2 alfarið á hans herð-
um.
-sá.
Flugstjórn
Meint afglöp
fyrir dóm
Ríkisaksóknari hefur lagt fram
ákærur á hendur þremur flugum-
ferðarstjórum og einum flug-
stjóra hjá Flugleiðum fyrir van-
rækslu í starfi og brot á ákvæðum
loftferðarlaga. Krefst ríkissak-
sóknari að þeim verði gert að
taka út refsingu, að viðbættum
réttindamissi.
Ákærurnar byggir ríkissak-
sóknari á tveimur flugumferðar-
atvikum, er minnstu munaði að
farþegaflugvélar, með mörg
hundruð manns innanborðs,
skyllu saman í lofti.
Fyrra atvikið átti sér stað í sept-
ember 1980. Þá munaði svo til
engu að tvær farþegaþotur Flug-
leiða, með yfir 400 farþega,
skyllu saman stuttu eftir flugtak
frá Keflavíkurflugvelli. Tildrög
málsins voru þau að þoturnar
höfðu tekið sig upp af sömu
flugbraut, með stuttu millibili.
Dró sú seinni hina fyrri uppi.
Meðan þetta gerðist rifust flug-
umferðarstjórinn á flugbylgjunni
og flugstjóri aftari þotunnar.
Síðara atvikið átti sér stað yfir
Austurlandi í júní 1986, er engu
mátti muna að risaþota British
Airways og þota frá SAS rækjust
saman. Tveir flugumferðar-
stjórar á Reykjavíkurflugvelli
eru ákærðir vegna þessa tilviks.
-rk
Kjósið mig!
Kjósið fámenna festu!
Kjósið tlokk klettsins
í hafinu!
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 15. apríl 1987