Þjóðviljinn - 15.04.1987, Síða 12
Moskva
Schultz
ræðir við
Gorbatsjof
í gær ræddust þeir við í Kreml,
George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, og Míkael
Gorbatsjof, leiðtogi Sovétríkj-
anna. Ekki var greint frá því hvað
þeim fór á milli en fáum blandast
hugur um að afvopnunarmál hafi
verið efst á baugi.
Áður en þeir fóru afsíðis til við-
ræðnanna bar Shultz Sovétleið-
toganum boð frá húsbónda sín-
um, Ronald Reagan, þess efnis
að honum sé boðið að sækja
Bandaríkin heim á þessu ári.
Gorbatsjóf þekktist boðið með
þeim skilyrðum að heimsóknin
yrði gagngert til að undirrita
friðarsamninga. Hann nennti
ekki að ferðast milli landa í erind-
isleysu, allra síst til Bandaríkj-
anna.
-ks.
ERLENDAR FRETTIR
Indland
Saumað að Gandhi
Stjómarandstaðan krefst skýringa á brottvikningu
Singhs landvarnaráðherra
Igær sætti Rajiv Gandhi, for-
sætisráðherra Indlands, mikl-
um kárínum á indverska þinginu
vegna brotthvarfs landvarna-
ráðherrans, Vishwanath Pratap
Singh, úr ríkisstjórn landsins.
Hann kvað hafa verið knúinn til
afsagnar vegna atorku sinnar við
rannsókn vopnasöluhneykslis
sem tengist ýmsum framá-
mönnum Kongressflokksins.
t>að voru þingmenn stjórnar-
andstöðunnar sem hófu máls á
því að Gandhi þyrfti að gera
hreint fyrir sínum dyrum og
sannfæra þingheim um að Singh
hefði orðið á skyssa. Það yrði
ekki gert nema á þann veg einan
að vopnasöluhneykslið yrði
rannsakað ofan í kjölinn.
Rajiv, fyrrum „herra Hreinn", Gandhi.
Siglingar
Morðmenn hafa löngum verið
roggnir yfir glæstum kaup-
skipaflota sf num og vissulega hafa
siglingar með vörur milli landa
verið einn af undirstöðuatvinnu-
vegum landsins um langt árabil.
Hinsvegar hefur það færst
mjög í vöxt að undanförnu að
norskir skipaeigendur hlaupist
undan merkjum og láti skrá skip
sín erlendis, einkum í Líberíu og
Panama. Þeir bera því við að
kostnaður við skatt- og launa-
greiðsiur sé það mikill í heima-
Flotann heim til Noregs!
landinu að þeir standi frammi
fyrir tveim kostum og sé hvorug-
ur góður: að flýja land en lúta ella
í duftið, gjaldþrota menn.
Nú hefur hefur minnihluta-
stjórn Verkamannaflokksins
tekið ákvörðun um að stemma
stigu við þessari óheillaþróun
með ráðstöfunum sem valdið
hafa nokkrum deilum í Noregi.
Lög höfðu kveðið á um það að
tveir af hverjum þremur sjó-
mönnum í áhöfn norskra kaup-
skipa skyldu vera norskir. Sam-
kvæmt breytingunni á þetta skil-
yrði að falla brott en eftir sem
áður fá skipin að sigla undir
norskum fána.
Ennfremur á að lokka útlenda
skipaeigendur til að láta skrá skip
sín í Noregi með ívilnunum af
ýmsu tagi. Til að mynda munu
þeir losna að hluta undan því að
greiða opinber gjöld og sömu
sögu er að segja af erlendum sjó-
mönnum; þeir verða undanþegn-
ir greiðslu tekjuskatts.
Norska sjómannasambandið
hefur barist með kjafti og klóm
gegn nýmælunum og halda for-
svarsmenn þess því fram að
breytingin muni hafa í för með
sér mikið atvinnuleysi norskra
farmanna en þeir eru nú fimmtán
þúsund talsins. Ennfremur hafa
þeir af því miklar áhyggjur að
kjör þeirra norsku farmanna sem
ekki verður sagt upp versni til
muna þar sem stéttarfélagi þeirra
sé nánast gert ókleift að gæta
hagsmuna þeirra vegna hins er-
lenda og ódýra vinnuafls sem
húsbændum þeirra standi til
boða.
-ks.
Er Gandhi myndaði núverandi
stjórn árið 1985 tók Singh að sér
ríkisfjármálin. í janúar síð-
astliðnum flutti forsætisráðherr-
ann Singh úr fjármálunum yfir í
varnarmálin. Það er opinbert
leyndarmál í Nýju-Delhi að or-
sök sætaskiptanna megi rekja til
vasklegrar framgöngu Singhs í
baráttunni gegn efnuðum skatt-
svikurum og gjaldeyrisbröskur-
um.
Og nú hverfur hann úr ríkis-
stjórninni fyrir fullt og fast vegna
þess lastar síns að vilja uppræta
hneykslismál. Að þessu sinni eru
það vopnasölumútur sem leikur-
inn snýst um.
Árið 1980 keypti indverska rík-
ið umtalsvert magn vopna, meðal
annars kafbáta frá vesturþýskum
framleiðanda. Fullyrt hefur verið
að ýmsir háttsettir embættismenn
og félagar í Kongressflokknum
hafi þegið allt að tuttugu og þrjár
miljónir bandaríkjadala í mútur
frá vopnaframleiðendum sem
voru áfram um að tól sín yrðu
fyrir valinu. Singh vildi komast til
botns í þessu máli og Singh var
sparkað.
Það er altalað f Nýju-Delhi að
margir brodda Kongressflokks-
ins noti aðstöðu sína ótæpt til
að skara eld að köku sinni. Fram
að þessu var talið að Rajiv Gand-
hi hefði horn í síðu slíkra einka-
umsvifa en nú hefur hann gengið
fram fyrir skjöldu til vemdar
spilliröftum flokks síns. Goð-
sögnin um „Hrein Gandhi“ hefur
beðið mikinn hnekki.
-ks.
Afvopnun
Eins og fjallgöngumenn í reipi
APN um nýjustu tillögur Gorbatsjofs
Það eru ekki ýkjur að segja að
ræða Mikhails Gorbatsjovs, sem
hann hélt þann 10. apríl s.l. hafi
vakið einlægan áhuga fólks um
heim allan.
Tvær hugmyndir, sem komu
fram í ræðu Gorbatsjovs verð-
skulda sérlega athygli.
ífyrsta lagi: í dag eru innbyrðis
tengsl í heiminum slík, að þjóð-
irnar eru eins og fjallgöngumenn
í reipi. Þeir geta annað hvort
klifið saman upp á tindinn eða
fallið saman niður í hyldýpið.
íöðru lagi: Jafnvel „hefðbund-
in“ styrjöld hefði í för með sér
mikla eyðileggingu í Evrópu. Það
er ekki aðeins vegna þess að
hefðbundin vopn eru nú margfalt
afkastameiri en í heimsstyrjöld-
inni síðari. Einnig vegna þess að í
álfunni eru um 200 einingar í
kjarnorkuverum og þar er net
öflugra efnaverksmiðja og eyði-
Iegging þessara mannvirkja hefði
það í för með sér, að álfan yrði
óbyggileg.
Verður hafin
afvopnun?
Sovéski leiðtoginn sagði hrein-
skilnislega: Von er fyrir hendi,
það er hægt að draga úr hernað-
arhættunni. Svo að það megi
verða, verður að leita lausnar á
öllum þáttum kjarnorkuafvopn-
unar, sem allir geta sætt sig við.
Hér er brýnasta vandamálið rót-
tækur niðurskurður langdrægra
eldflauga. Sovétríkin eru tilbúin
til að taka ákveðin skref í þessu
sambandi - fækka þeim um 50%
á fimm ára tímabili, svo og til að
útrýma þeim á tíu ára tímabili.
Það yrði auðvitað að því til-
skildu, að farið yrði í einu og öllu
að samningi um bann við gagn-
eldflaugakerfum.
Ef næðist samkomulag um
meðaldraégar eldflaugar yrði það
fyrsta skrefið á leið til afvopnun-
ar og þess vegna afar mikilvægt.
Hér lýsti Gorbatsjov yfir að því
miður væru sumir stjórnmála-
menn og ríkisstjórnir að gefa
„núll-lausnina“ upp á bátinn,
sem væri þó frá þeim komin, og
reyndu að hafa alls kyns fyrirvara
hvað varðaði meðaldrægar eld-
flaugar.
A Vesturlöndum er nú mikið
rætt um skammdrægar eld -
flaugar.Hvaö Sovétríkin varðar,
eru þau tilbúin til þess að leysa
þetta vandamál líka en á þann
hátt að það komi ekki í veg fyrir
að náð verði samkomulagi um
meðaldrægar eldflaugar, sem eru
mál málanna í dag. Sovétríkin
leggja til að hafnar verði við-
ræður um fækkun og síðan eyði -
leggingu eldflauga, sem draga
500-1000 km og eru staðsettar í
Evrópu án þess að þær tengist
framgangi eða niðurstöðu við-
ræðnanna um meðaldrægar eld-
flaugar.
Síðar, þegar M. Gorbatsjov fór
aftur að rœða um meðaldrœgar
eldflaugar, lýsti hann yfir að eftir
að búið yrði að undirrita sam-
komulag íþessum efnum, mundu
Sovétríkin flytja frá Tékkóslóva-
kíu og DDR þcer eldflaugar, sem
komið var fyrir þar til þess að
vega upp á móti Pershing-2 eld-
flaugunum og stýriflaugunum í
Vestur-Evrópu og þarna mundi
framgangur viðrceðnanna um
taktískar eldflaugar ekki hafa
nein áhrif
Snúum að því e'fni, sem drepið
var á í upphafi greinarinnar, og
hefðbundnum vígbúnaði í Evr-
ópu.
Ollum er Ijóst, að hin feikilega
uppsöfnun skammdrcegra kjarn-
orkuvopna og hefðbundinna
vopna og vígvœddir herir and-
spœnis hvor öðrum, eru ekki í
samrœmi við hugmyndina um ör-
uggan heim.
Gorbatsjov leggur til að hrint
verði í framkvœmd Búdapest-
áœtlun Varsjárbandalagsland-
anna, þar sem gert var ráðfyrir að
þau mál, sem varðafækkun íherj-
um og niðurskurð hefðbundins
vígbúnaðar verði rcedd í einni
heild um leið og rœtt er um takt-
ískar eldflaugar, árásarflugher,
atómstórskotaliði og önnur takt-
ísk kjarnorkuvopn. Pað er nauð-
synlegt aðþetta verði skoðað íein-
niheild, vegnaþess að flest taktísk
kjarnorkuvopn geta borið bœði
hefðbundna odda og kjarnaodda.
Gorbatsjov telur með réttu, að
nauðsyn sé á átaki allra ríkjanna í
Evrópu svo og Bandaríkjanna og
Kanada til að koma á fœkkun í
herjum og niðurskurði vígbúnað-
ar í Evrópu. Hér vaknar spurn-
ing: Er ekki kominn tími til fyrir
alla utanríkisráðherra landanna,
sem eru aðilar að Evrópuráð-
stefnunni, til að hittast og taka
ákvörðun um að hefja yfir-
gripsmiklar viðræður í því skyni
að fækka taktískum kjarnorku-
vopnum og draga úr hefðbundn-
um vígbúnaði svo um munar? Á
slíkum viðræðum vœri m.a. hægt
að fjalla um það hvernig á að
koma í veg fyrir óvænta árás og
um að hættulegustu árásarvopnin
yrðuflutt á brott frá þvísvæði, þar
sem landsvæði hernaðarbanda -
laganna tveggja snertast.
Lokamarkmið þessara við-
rœðna gæti orðið stórfelld fækk-
un í herjum og niðurskurður víg-
búnaðar undir alþjóðlegu eftirliti
sem væri viðhaft á staðnum.
Kjarnorkuvopna-
laus svæði
Tillögur um að koma á fót
kjarnorkuvopnalausum svæðum
í ýmsum heimshlutum hafa kom-
ið frá ýmsum ríkjahópum.
Hvernig skyldu Sovétríkin líta á
þessar tillögur?
Þau styðja ávarp rfkisstjórna
DDR og Tékkóslóvakíu sem sent
var til ríkisstjórnar Þýska sam-
bandslýðveldisins, þar sem lagt
var til að komið yrði á fót kjarn-
orkuvopnalausu belti í Mið-
Evrópu. Eins og kunnugt er, var
hugmyndin um slíka ræmu mótuð
hjá Jafnaðarmannaflokki Þýska-
lands. Fyrir sitt leyti eru Sovét-
ríkin tilbúin til að flytja öll sovésk
kjarnorkuvopn frá slíku svæði.
Þau eru reiðubúin til þess að
Gorbatsjof í Prag: Þjóðir heims eru
eins og fjallgöngumenn I reipi, hrasi
einn þeirra er hætta á að allir falli
tryggja og virða kjamorkuvopna-
leysi slíks svæðis. Það er auðvitað
að því tilskildu, að engin kjarn-
orkuvopn í eigu NATO verði á
umræddu svæði.
Tillaga Póllands um að koma á
í Evrópu svæði, þar sem fækkað
hefur verið vopnum, verðskuldar
athygii og stuðning, svo og tillaga
Finniands og annarra landa í
Norður-Evrópu um kjarnorku-
vopnalaust svæði á þessum slóð-
um.
Niðurstaðan, sem dregin verð-
ur af því sem Mikhail Gorbatsjov
lagði til í Prag, verður ýkjulaust
sú, að þessar tillögur eru afar
málefnalegar og raunhæfar.
Vestrið og austrið verða að taka
fyrsta raunhæfa skrefið, sem
þjóðirnar bíða eftir með óþreyju,
en þær eru þreyttar á spennu og
vonleysi vígbúnaðarkapphlaups-
ins.
Evgení Barbukho,
yfirmaður APN á íslandi
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Ml&vlkudagur 15. aprfl 1987