Þjóðviljinn - 15.04.1987, Page 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjómfiuiNN
Miðvikudagur 15. aprfl 1987 88. tölublað 52. drgangur
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Sjálfstœðisflokkurinn
Ögrun við verkfallsmenn
Frambjóðendur Sjálfstœðisflokksins leiðsögumenn í skemmtiferðum. Friðrik Haraldssonformaður
Félags leiðsögumanna: Ögrunvið okkur. Verkfall hefur staðiðí3 vikur án viðrœðna
Stjórn félagsins hefur sam-
þykkt ályktun þar sem hún
lýsir yfir undrun sinni og van-
þóknun á því að landsfeðurnir
séu að auglýsa það að þeir gangi
inn í okkar störf á sama tíma og
við stöndum í kjarabaráttu og
verkfalli, sagði Friðrik Haralds-
son formaður Félags leiðsögu-
manna í samtali við Þjóðviljann,
en auglýsingar þær sem hann
vitnar í hafa birst í Morgunblað-
inu að undanförnu og eru um
skemmtiferðir Sjálfstæðisfélag-
anna. f þeim segir að frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins séu
leiðsögumenn í ferðunum.
„Við vitum að þessar ferðir
hafa tíðkast árum saman án þess
að það hafi verið leitað til okkar
og við erum ekki að fetta fingur
út í það,“ sagði Friðrik. „En við
lítum á það sem ögrun að auglýst
sé að þarna sé verið að ganga í
okkar störf.“
Verkfall leiðsögumanna hefur
staðið yfir í þrjár vikur og engir
Opið hús
í KOSNINGAMIÐSTÖÐINNI
skírdag kl. 16.00-18.00
Álfheiður Ingadottir,
blaðamaður, situr fyrir
svörum um atburði líðandi
stundar í þjóðmálum í Kosn-
ingamiðstöðinni, Hverfisgötu
105, 4. hæð.
Kvartettinn syngur af alkunnri
snilld við undirleik Ara Einars-
sonar og Birgir Bragasonar.
Sölusýning Gunnars Arnar á
veggjunum.
Kaffi og meðlæti.
Húsið opnað kl. 14.00.
ALLIR VELK0MNIR
' í Reykjavík
Munið eftir
kosningahappdrættinu
Alþýðubandalagið
í Reykjavík
fundir hafa verið haldnir síðan
það hófst.
„Við förum fram á það sama og
samþykkt var í samningum ASI
og VSÍ í desember, það er að
segja 35.000 króna laun fyrir fag-
lært fólk“ sagði Friðrik. „En það
hefur viðsemjendum okkar ekki
þótt fýsilegt að samþykkja og
talsvert vantar enn á að náist
saman.
Við erum með þessar kröfur í
endurskoðun í ljósi þeirrar þró-
unar sem hefur átt sér stað að
undanförnu og við megum ekki
vera að því að bíða eftir því að
ASÍ og VSÍ komist að niðurstöðu
um hana. Vertíðin er að hefjast
og ef við gerum ekkert til að jafna
leikinn strax þá missum við af
lestinni," sagði Friðrik.
„Ef ekki semst fljótlega eru
horfumar í ferðaþjónustu innan-
lands mjög dökkar,“ sagði And-
rés Guðmundsson leiðsögumað-
ur í samtali við Þjóðviljann. „Og
þær versna enn ef ekki fæst fagl-
ært fólk til að sinna þessum störf-
um vegna lágra launa."
-vd.
Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra afhendir Pétri Guðmundssyni, flugvallarstjóra, lyklavöldin að flugstöðinni.
Mynd Sig.
Nýja flugstöðin
Kátt í höllinni
í gœr að viðstöddu miklu fjölmenni
Vígsluhátíð
Nýja flugstöðin á Keflavíkur-
flugvelli var vígð í gær að við-
stöddu miklu fjölmenni. Áætlað
er að allt að 3000 manns hafi sótt
flugstöðina heim. Fyrsta farþeg-
aflugið var afgreitt frá stöðinni í
býtið í morgun. Framkvæmdum
við stöðina er þó ekki lokið, því
enn á eftir að ganga frá starfs-
mannaaðstöðu og skrifstofuálmu
hússins. Þrátt fyrir nokkra agnúa
á byggingunni, er engum blöðum
um að fletta að flugstöðin er hið
glæstasta hús.
Vigdís Finnbogadóttir vígði
flugstöðina og afhjúpaði af því
tilefni lágmynd af Leifi
Eiríkssyni, en stöðin er nefnd í
höfuðið á honum. Pétur Sigurg-
eirsson biskup flutti stutta bæn og
bað æðri máttarvöld um að flug-
stöðin mætti verða íslensku þjóð-
inni til heilla um ókomin ár.
Önnur stórmenni fluttu einnig
stutta tölu í tilefni dagsins, þeir
Matthías Á. Mathiesen, utan-
ríkisráðherra, nafni hans Bjarna-
son, samgönguráðherra og Sverr-
ir Haukur Gunnlaugsson, for-
maður byggingarnefndar.
All nokkra athygli vöktu þau
ummæli Sverris Hauks að sér-
staklega bæri að þakka örlæti
bandarískra stjórnvalda í garð
byggingar flugstöðvar. Má það til
sanns vegar færa. Af þeim 3.2
milljörðum ísl. kr., sem talið er
að flugstöðin muni kosta full-
gerð, borgar íslenska ríkið aðeins
0.8 milljarða á móti 2.4
milljörðum frá bandaríska her-
málaráðuneytinu. Á móti þessu
örlæti hefur íslenska ríkið skuld-
bundið sig til að láta hernum
stöðina eftir til afnota á ófriðart-
ímum. -RK
Veiðihugur
Sést í sjóbirtinginn
Nokkur veiði hafin en kuldinn gerir strik í reikninginn
k egar fer að halla undir vorið
w kemur veiðihugur í menn og
er sjóbirtingsveiði vinsæl
snemma vors. „Það er aðeins far-
ið að sjást í silungin" sagði Helga
Eysteinsdóttir á Hrauni í Ölfusi
en þar er yfirleitt mikil sjóbirt-
ingsveiði á vorin.
„Við hlýindin í byrjun apríl fór
hann að koma og það hefur veiðst
svolítið síðustu daga en hann spá-
ir nú fremur kólnandi svo maður
veit ekki hvernig veiðin verður á
næstunni. Bleikjan er ekki komin
ennþá en hún er oft mislynd að
eiga við og menn reyna oft við
hana á flugu.“
Hjá Stangveiðifélagi Reykja-
víkur fengust þær upplýsingar að
nokkuð hefði veiðst í Þorleifslæk
upp á síðkastið en væri nú
eitthvað farið að minnka vegna
kuldans.
-ing.