Þjóðviljinn - 28.06.1987, Síða 9

Þjóðviljinn - 28.06.1987, Síða 9
Ómissandi upplýsingar Sólin er að verða rafmagnslaus! Á árunum 1980-'85 minnkaði orkustreymi sól- arinnar um ein 0,02%. Að sögn sér- fræðinga er nokkur von um að það birti aftur... Loksins er búið að finna upp hálsband handa hundum með Ijósi í. Það var að sjálf- sögðu Englendingur sem bjó þetta þarfaþing til, en með því sést hundur- inn greinilega í myrkri. í erlendum blöðum er tekið fram að hálsbandið eigi að taka af hvutta á daginn... Lúðvík 15. var maður feitlaginn. Þessvegna var fyrsta lyftan í veröldinni smíðuð utan- um hans konunglega skrokk svo hann ætti hægara með að komast á fund ástkvenna sinna. Þetta var í Versölum árið 1743... Stœrsti gíraffi sem mælst hefur var hinsvegar einir fimm metrar og áttatíu senti- metrar... Klósettvigtin er nýjasta nýtt úr heimi uppfinning- anna. Franskur hugvitsmaður hefur nú sótt um einkaleyfi á þessu óneitanlega ómissandi apparati sem gerir fólki kleift að vigta sig í hægðum sínum... Tannburstinn var hinsvegar fundinn upp í Kína í kringum 1400. Hinirsóðalegustu Evr- ópubúar tóku hann ekki í gagnið fyrr en 200 árum síðar... Allir til tannsaí Karíus og Baktus enn verri en álitið hefur verið. Karíus og Baktus eru hins mestu fól eins og flestir vita. Þeir eru hinsvegar enn hættulegri hermdarverkamenn en haldið hefur verið. Skemmdar tennur geta nefnilega haft hinar hræðilegustu afleiðingar fyrir mörg líffæri. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði hins mjög svo virta franska menningartímarits, Elle. Það getur verið ígerð í tönn án þess að nokkur sársauki finnist. Karíus og Baktus dæla þá helsjúkum bakteríum út í blóðrásina, sem síðan ráðast til atlögu gegn hjarta, augum og nýrum og naga innan liðamót með bestu lyst. Sumt fólk getur jafnvel fengið of- næmi fyrir þessum bakteríum, sem kemur síðan fram í gigt, húðsjúkdóm- um eða álíka trakteringum. Þannig hefur mörgum horfið ofnæmi eins og dögg fyrir sólu eftir tannviðgerð. Þá kemur og fram í greininni að skakkt bit - þ.e. þegar gómarnir ríma ekki nógu vel saman - getur orsakaö kvalir í hálsi og öxlum auk hroðalegra mígrenkasta. Semsagt: Það borgar sig, - eftir allt saman, - að fara til tannsa, alveg eins og Jens litli. Og þá verður öllum Karíusum og Baktusum kálað! -hj UM FRELSIÐ Rómantísku skáldin á nítj- ándu öld ortu mikið um tvennt: um landið og frelsið. Hvort tveggja var þá í takt við tím- ann, miðbik síðustu aldar þegarfrelsisstraumar og ný þjóðernisvitund fór um löndin í kjölfarfrönsku byltinganna. Það er ekkert undarlegt, að Ijóð þessara skálda, ekki hvað síst Jónasar Hallgríms- sonar, hafi orðið svo lífseig sem raun ber vitni. Allttil þessa dags. Því að enn er það landið og frelsið, sem um- ræðansnýstum. Á þessum þjóðhátíðardegi skulum við hugleiða það hug- tak sem í margra vitund er eitt það mikilvægasta í vestræn- um menningararfi: frelsið. Hugtakið frelsi getur haft ýms- ar merkingar. Margir taka sér þetta orð í munn og telja sig jafnvel reiðubúna að leggja mikið í sölurnar því til verndar ef með þarf. En hvað er frelsi? Hvernig skildu forfeður lýðveldisins þetta hugtak, hvernig er það skilið og útfært í dag og hvernig ber okkur sem kristnum mönnum að skilja þetta grundvallarhugtak þjóðfé- lags okkar? Jónas Hallgrímsson og aðrir Fjölnismenn skildu frelsishug- takið á þann hátt sem það mótað- ist í frönsku byltingunum 1789 og 1830 en þá var slagorðið ekki að- eins frelsi, heldur „frelsi, jafnrétti og bræðralag". Nú sóttu forfeður íslenska lýð- veldisins einnig til annarra upp- spretta; þeir þekktu forna nor- ræna lýðræðishefð, sem þeir færðu að vísu í stílinn og fegruðu. Engu að síður höfðu viðhorf þeirra varanleg áhrif á lýðræðis- skilning þessarar þjóðar. Sá lýð- ræðisskilningur endurspeglast í frægri fornri sögu af norrænum víkingum, sem sigldu skipum sín- um upp Signufljót og komu til Parísar og eru þar spurðir af heimamönnum á árbakkanum, hver væri þeirra foringi; var svar þeirra einfalt: við erum allir jafn- ir. Vaxtarbroddur lýðrœðisins Eitt af grundvallaratriðum lýðræðisins og í margra augum sterkasta ímynd þess og tákn er frelsi til þess að stofna félög. Þetta mikilvæga einkenni lýðræð- isins á sér eldri rætur en frönsku byltingarnar, þær er að finna í umróti siðbótaraldarinnar, þeirrar sextándu og sautjándu þegar ákveðnir hópar manna, róttækir kristnir trúflokkar eins og kvekarar og fleiri gera kröfu um að fá að stofna félög og iðka sína trú án íhlutunar ríkisvalds- ins. Sums staðar tókst þeim að fá slíkt frelsi en annars staðar urðu slíkir flokkar landflótta. En með þeim kemur fram fyrsti vísir í vestrænum löndum að stofnun sjálfstæðra félaga og samtaka. Frjáls félög og samtök eru merkustu stofnanir lýðræðisins og ímynd frelsis og frjálsra þjóðfélaga í augum þeirra sem ekki njóta slíkra mannréttinda. Menn hafa leyfi til að mynda fé- lög í lýðræðisríkjum og raunar er hér um að ræða meira en leyfi, það er lýðræðisleg skylda. Hags- munafélög, klúbbar, stjórnmála- flokkar, grasrótarhreyfingar og trúfélög. Þó eru þeir til, sem í orði kveðnu segjast bera hag lýðræð- isins fyrir brjósti en halda því samt fram að fólk eigi ekkert með að skipta sér af pólitískum málum því að fólk hafi rétt til að kjósa á fjögurra ára fresti og það sé nóg. í umræðum um Atlantshafsbanda- lagið í sjónvarpinu um daginn tal- aði talsmaður bandalagsins hér á landi í augljósum niðurlægingar- tón um grasrótarhreyfingar og samtök almennings. Slík sjön- armið hljóta að vekja undrun. Því að hér heggur sá er hlífa skyldi, hér heggur fulltrúi þess bandalags, sem gagngert er stofn- að til að verja lýðræðið og hug- sjónir þess og þar með rétt og skyldu hins almenna borgara að tjá skoðun sína. Kosningar eru mikilvægar lýð- ræðinu en kosningar viðgangast víða um lönd þar sem frelsi er ekki virt. Frelsið er annað og meira. Lýðræðið snýst því ekki um kosningar á nokkurra ára fresti heldur grundvallast það á því meðal annars, að einstakling- arnir séu ábyrgir, sívakandi og virkir í mótun þjóðfélagsins. Til þess eru félög, samtök, lista- menn. Á þeim vettvangi er gjarnan vaxtarbrodd lýðræðisins að finna, þar fer hin eiginlega þjóðfélagslega umræða fram, þar reynir á hugtökin, stefnur og skoðanir. Félögum - sem eru lýðræðinu lífsnauðsyn - má samt skipta í tvennt: annars vegar eru félög eða samtök sem hafa sér- hagsmuni á sinni stefnuskrá og láta sér jafnvel fátt um almanna- heill finnast. Hin gerðin af samtökum eru þau sem hafa að markmiði al- mannaheill. Mannréttindahreyf- ingar, umhverfisverndarhreyf- ingar, friðarhreyfingar, kvenna- hreyfingin, sem eru sterkustu al- þýðuhreyfingar samtímans, hafa allar að markmiði almannaheill, þ.e.a.s. takmark sem kemur öllum til góða þegar til lengdar lætur. Hversu oft verða ekki árekstrar milli slíkra markmiða? Og hversu oft er ekki erfitt að greina á milli hinna ólíku viðhorfa og hversu oft eiga menn ekki erfitt með að sjá og skilja, að stundarhagsmun- ir eru engir hagsmunir. En til þess að berjast fyrir almannaheill og þeim hagsmunum, sem einhvers virði eru, þurfa menn að hafa yf- irsýn, innsýn, þekkingu og þó helst af öllu lífsviðhorf, sem ná út yfir þeirra hversdagslegu lífsbar- áttu. Frelsið hefur margar hliðar Svissneska skáldið Friedrich Dúrrenmatt, sem þekktur er af verkum sínum hér á landi, sagði eitt sinn: Ekkert verður mannin- um eins dýrkeypt á endanum og hið ódýra frelsi. Þar á hann við það frelsi, sem krefst í blindri sér- hagsmunahyggju alls sem unnt er að fá á stundinni. Ódýrt og ábyrgðarlaust frelsi. Ekkert er skeytt um ábyrgð, ekkert um jafnrétti og ekkert um bræðralag. Sérhagsmunir og aftur sérhags- munir. Að veiða fisk úr of smáum stofni, að reka hross á uppblásnar heiðar norðanlands eða fé á sand- orpin öræfi norðaustanlands, að styðja - beint eða óbeint - rán- yrkju á hvölum í heimshöfunum. Að láta land og vinnuafl undir hernaðarframkvæmdir. Allt byggist á skammtímasjónarmið- um, og allt stutt fordómum, þar sem þeim sem hafa almannaheill og raunverulega langtíma- hagsmuni - að ekki sé minnst á hugsjónir eða lífsviðhorf - að leiðarljósi er gjarnan úthúðað sem skýjaglópum. Er þetta þjóðfélagið sem þekkir aðeins „eina vídd“ í lífinu? Frelsið hefur margar hliðar og ótti margra við frelsið er ekki á- stæðulaus, jafnvel ótti þeirra, sem telja sig þó vera fúsa til að leggja jafnvel heimsbyggðina í rúst til að verja frelsið. Astæðan er sú að frelsið hefur neikvæðar hliðar. Það hefur í það minnsta tvær neikvæðar tilhneigingar. Sú fyrri er afskræming ofbeldismannsins Þjóðhátíðar- prédikun í Lágafellskirkju 7 7. júní 7 987 á frelsinu. Hann misnotar frelsið sem afsökun fyrir því að hrifsa til sín allt sem hann getur í krafti valds og auðs. Hann krefst þess frelsis, sem ekkert vill af jafnrétti og bræðralagi vita. Hann krefst þess frelsis sjálfum sér til handa, sem gefur honum nægjanlegt svigrúm til þess að skara eld að sinni köku á kostnað náungans og á kostnað lífríkisins. Hann býr sér til frelsishugtak, sem grundvallast á fordómum og felur í sér ofbeldi og rányrkju. Hann býr til hliðar- og stuðningshugtök við frelsishugtak sitt sem gera honum kleift að skilja eftir sig sviðna jörð og örsnautt fólk. Þeir sem þetta frelsishugtak hafa að leiðarljósi gera fre^sið oft að eins konar skurðgoði, 'þeir trúa á frelsið í einhverjum miskunnar- lausum og annarlegum skilningi. Á þennan neikvæða og hættu- lega frelsisskilning benti séra Martin Luther King samlöndum sínum í frægri ræðu. Hann sagði að þeir vildu heldur sjá flísina í auga bróðurins en bjálkann í eigin auga. Þetta sagði liann um leið og hann benti á, að svertingj- ar væru sendir í aðra heimsálfu - í mun stærra hlutfalli en hvítir borgarar - á tímum Vietnam- stríðsins til þess að leggja líf sitt í sölurnar fyrir frelsi sem þeir nutu ekki heima hjá sér í fátækrahverf- um og eymd. Frelsið hefur aðra neikvæða hlið, það er vald frjálsra samtaka, sem berjast fyrir sérhagsmunum. Slíkt vald getur orðið spillt vald eins og raunar allt vald. Margar rannsóknir á stéttarfélögum vest- anhafs og víðar hafa sýnt fram á, að félög geta orðið klíkuveldi að bráð, þar sem örfáir sterkir aðilar taka stjórnina í sínar hendur í og með vegna áhugaleysis og þar með ábyrgðarleysis margra al- mennra félagsmanna. Lífsgildi hins varanlega Sérhvert þjóðfélag, sem hefur frelsi og lýðræði í hávegum, verð- ur að reikna með togstreitu, þar sem tekist er á um tvenns konar viðhorf: annars vegar þeirra sem setja stundarhagsmuni á oddinn og hins vegar þeirra, sem setja almannaheill og varanlega hagsmuni öllu ofar. Æðstu lífsgildi okkar þjóðar hafa aldrei verið þau, að einstak- lingurinn hefði rétt til að hefja sinn rétt upp yfir rétt samfélags- ins. Við vitum nefnilega að lífs- gildi hins varanlega er það sem allt snýst um, lífsinnihald, ham- ■ngja- fegurð, gleði, umhyggja fyrirsjúkum ogfátækum, öldruð- um og börnum. Allt er það til hér vegna þess, að frelsið sem við viljum varðveita og búa við er meira en frelsi til að hrifsa til sín. Það er frelsi sem er mótað í tím- ans rás af tengihugtökunum jafnrétti og bræðralag. Hér er ekki frelsishugtak ofbeldis- mannsins heldur hins smáa, lífs- viðhorf samstöðu og samvinnu, umhyggju og alúðar. Frelsi sem var fengið með sameiginlegri bar- áttu og sem aðeins verður notið sameiginlega og varið sameigin- lega. Þannig verður frelsið öllum jafnmikilvægt, öllum eitt af lífs- skilyrðunum þar sem allir hafa sömu hagsmuna að gæta um leið og þeir standa vörð um sína sér- legu hagsmuni. Vissulega hafa ís- lendingar oftast borið gæfu til að tengja hina ólíku hagsntuni, þar sem hinn sterki hefur í reynd not- að styrk sinn og auð til góðra verka í anda hins forna lýðræðis- skilnings þjóðarinnar. Blikur sem hrannast upp við sjón- deildarhring gefa þó tilefni til að óttast, aðofbeldismanninum vaxi ásmegin. Frelsi okkar þjóðar, sem í tím- ans rás hefur þegið næringu frá ýmsum rótum vestrænnar menn- ingar, er þó í innsta eðli sínu grundvallað á kristnum lífsgild- um og lífsviðhorfum, þar sem sér- hagsmunahyggjan er víðs fjarri. Þar er þvert á móti í sífellu kallað til ábyrgðar: til ábyrgrar ráðs- mennsku í lífríkinu og til um- hyggju fyrir náunganum. Um kirkjuna, boðskap hennar og hlutverk sagði dr. Kristján Eldjárn í ræðu í kirkjunni á Tjörn í Svarfaðardal árið 1982: „... við íslendingar... ættum að lofa for- sjónina fyrir það að við skulum tilheyra hinum kristna hluta mannkynsins í þessum ekki allt of góða heimi, að við búum við hugsunarhátt, þjóðlíf og menn- ingu sem um aldir hefur mótast af kristinni trú og kristinni kirkju.“ Þetta var eindregin skoðun hins virta og farsæla forseta okkar. Án trúar og vitundar um æðri tilgang og merkingu lífs okkar og þar með frelsisins er öll barátta fyrir stundar- og sérhagsmunum stefnulaust og marklaust flan sem veitir manninum enga lífsfyllingu heldur aðeins og í mesta lagi sí- fellt meiri afþreyingu sem ærin er fyrir. Saga þjóðarinnar er mótuð af kristinni trú og lífsviðhorfi sem kemur fram í afstöðu til landsins og til þjóðarinnar og það ber okk- ur að þakka á þessum þjóðhátíð- ardegi. Land, þjóð og tunga. Um þessa þrenningu hafa skáldin okkar ort og þá býr þeim jafnan þakklæti í hug. Þakklæti af því tagi birtist í þessu ljóði Snorra Hjartarsonar: Blessað veri grasið sem grær kringum húsin bóndans og les mér ljóð hans, þrá og sigur hins þögula manns. Blessað veri grasið sem grær yfir leiðin, felur hina dánu friði og von. Blessað veri grasið sem blíðkar reiði sandsins grasið sem græðir jarðar mein. Blessað veri grasið, blessað vor landsins. Já, blessað veri allt sem við þiggjum, grasið sem enn grænkar, fiskarnir sem enn eru ómengaðir, loftið, sem enn er tært, vatnið sem ennþá er hreint. Blessað veri frelsið. Blessað veri grasið, blessað veri landið sem Guð hefur falið þessari þjóð til að annast. Amen. (Birt vegna beiðni ritstjóra). Eftirséra Gunnar Kristjánsson, Reynivöllum Sunnudagur 28. júní 1987 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.