Þjóðviljinn - 28.06.1987, Side 10

Þjóðviljinn - 28.06.1987, Side 10
PASOLINI OG DAUÐINN Hrokkinhærður piltur með glettin og glampandi augu og óheflað látbragð er gegnumgangandi persóna í mörg- um verkum Pasolini sem eins konar boðberi sannleikans, Parcifai í goðs- ögninni um Graal. Hér sjáum við skyssur eftir Pasolini af þessari per- sónu, önnur frá 1943, hin frá 1974. Þá er mynd af leikaranum Ninetto Davoli í hlutverki sínu í kvikmyndinni Uccell- acci e uccellini og að lokum mynd af morðingja Pasolini, Giuseppe Pelosi, sem gegnt hefur sama goðsögulega hlutverki í lífi Pasolini að mati Gius- eppe Zigaina. Um dauða ítalska skáldsins og kvikmyndaleikstjórans Pier Paolo Pasolini í Ijósi nýútkominnar bókar eftir Giuseppe Zigaina Þann 2. nóvember 1975, nótt- ina á milli allra heilagra messu og dags hinna dauðu sam- kvæmt kaþólskum sið, var ít- alska Ijóðskáldið og kvik- myndaleikstjórinn Pier Paolo Pasolini myrtur á knattspyrn- uleikvangi í Ostia, hinni fornu hafnarborg Rómar. Ekkert morðmál að undan- skildu morðinu á Aldo Moro hef- ur orðið ítölum tilefni til jafn mikilla eftirþanka á síðari árum, og enn eru ekki öll kurl komin til grafar í þessu dularfulla máli, þótt tilræðismaðurinn hafi reyndar fundist og játað sekt sína. Ástæðan er sú að Pasolini var og er eitt umdeildasta skáld og leikstjóri síðari tíma á Ítalíu. Hann var óvæginn í þjóðfél- agsgagnrýni sinni og afstaða hans sem gagnrýnins stuðningsmanns kommúnistaflokksins og yfirlýsts homma var af mörgum talin hneykslanleg og ganga þvert á allt velsæmi. Hann var talinn spilla æskunni og átti sér marga hatursmenn og stóð í stöðugum málaferlum við ítalska réttarkerf- ið vegna meintra velsæmisbrota á meðan hann lifði. Margir töldu morðið á Pasolini eiga sér pólitískar rætur, þar hefði þjóðfélagið endanlega tekið út hefndir sínar á þessu „en- fant terrible", og þar með var Pasolini jafnframt orðinn píslar- vottur síns boðskapar sem ein- kenndist meðal annars af djúp- stæðri andúð á öllu valdboði, kapítalisma, neysluhyggju og þeirri tilhneigingu til staðlaðs lífs- máta sem einkennir neyslusamfé- lagið. í list sinni og þjóðfél- agsgagnrýni beindi Pasolini spjó- tum sínum að nánast öllum vald- astofnunum hins borgaralega samfélags: skólunum, fjölmiðl- unum, kirkjunni, foreldravald- inu og ekki síst þeim tvískinn- ungshætti sem honum fannst ríkj- andi í kynferðismálum og hann túlkaði sem höft á frjálsri tján- ingu mannsins. Hin jákvæðu gildi fann hann fyrst og fremst í þeirri sjálfsprottnu tjáningu og því „náttúrulega“ siðgæði, sem hann fann meðal óskólagengins ungs fólks af lágstéttaruppruna, sem hafði skotið sér undan því sem stundum hefur verið kallað „áþján menningarinnar". Þótt hann væri yfirlýstur stuðnings- maður kommúnistaflokksins, þá var lífssýn hans Iangt frá því að vera mótuð af kreddubundnum marxisma: hann trúði ekki á þá sögulegu framþróun, sem margir marxistar hafa gert að trúaratr- iði, heldur leitaðist hann við að skapa með iífi sínu fordæmi að heildstæðri, sögulausri lífssýn, sem í rauninni á rætur sínar í trú- arheimi fornaldar og miðalda, enda talaði hann stundum um hina „Nýju forsögu“ sem eins konar markmið að stefna að. Margboðað morð í apríl síðastliðnum kom út á Ítalíu bók um dauða Pasolini, sem hefur nokkra sérstöðu meðal annarra bóka og ritgerða, sem skrifaðar hafa verið um ævi skáldsins. Sérstaða bókarinnar felst meðal annars í því að höfu- ndurinn er hvorki rithöfundur né kvikmyndagagnrýnandi, heldur myndlistarmaður, auk þess sem hann var náinn vinur skáldsins allt frá æskudögum þeirra í Friuli- héraði. Höfundurinn heitirGius- eppe Zigaina, og athyglisverða myndlist hans getum við meðal annars séð þessa dagana á sýning- unni Graphica Atlantica, sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Bók sína nefnir hann „Pasolini og dauðinn“ með undirfyrirsögninni „Goðsögn, gullgerðarlist og merkingarfræði hins „lýsandi tóms““ (Pasolini e la Morte - Mito alchimia e semantica del „nulla lucente“, Marsilio editori í Feneyjum, apríl 1987). Titill bókarinnar gefur til kynna efni hennar, en þar er höfundurinn að lýsa hugmyndum Pasolini um dauðann út frá skiln- ingi hans á mannfræði, djúpsálar- fræði, goðafræði og gullgerðarlist sem var meðal annars komin frá sálfræðingnum Carl Gustav Jung og trúarbragðafræðingnum Mirc- ea Eliade. Hið frumlega við bók Zigaina er hins vegar meðal annars fóigið í því að sýna fram á hvernig þess- ar hugmyndir koma fram í nokkr- um teikningum skáldsins, en Zig- aina varðfyrstur manna til þess að benda á myndlistariðkun Pasolini sem þýðingarmikinn þátt í skiln- ingi á lífsverki hans. I stuttu máli, þá kemst Zigaina að þeirri niðurstöðu eftir 10 ára rannsóknir á verkum skáldsins, handritum, teikningum og bóka- safni, að verk og lífsferill Pasolini verði ekki skilin til fulls nema út frá hinum sviplega dauða hans, og jafnframt að þessi dauði verði ekki nema að hluta til túlkaður sem hefnd samfélagsins, miklu frekar sé hann óhjákvæmileg og eðlileg niðurstaða þeirra hug- mynda sem Pasolini hafði gert sér um dauðann, auk þess sem Paso- lini hafi oftar en einu sinni verið búinn að segja fyrir um dauða sinn, stað hans og stund og það ofbeldi sem honum skyldi fylgja, áður en hann gekk í gegnum hann með voveiflegum hætti. Merkingarfrœði raunveruleikans Áður en farið er út í frekari útlistun á hugmyndum Pasolini um dauðann eða forspár hans um dauða sinn er rétt að víkja aðeins að hugmyndum hans um og ást- ríðu hans á kvikmyndalistinni sem slíkri. Pasolini var afar fjöl- hæfur listamaður, og áður en hann hóf kvikmyndagerð hafði hann skrifað ljóð, sögur, leikrit, skáldsögur og ritgerðir um fræði- leg efni, auk þess sem hann hafði stofnað sérstaka akademíu um þá mállýsku sem töluð er í Friuli og er mjög frábrugðin ítalska ríkis- málinu. Pasolini skrifaði á báðum þessum tungum, og lagði jafnan ríka áherslu á mikilvægi mállý- skunnar sem eðlilegs tjáningar- meðals til frjálsrar sköpunar gagnstætt ríkismálinu, sem væri mótað af yfirstéttinni. Auk þessa liafði hann einnig lagt stund á myndlist og tók þátt í samsýning- um listamanna á sínum yngri árum. Þessi fjölþætta reynsla Pasolini, segir Zigaina, leiddi til ástríðufullrar tilraunar skáldsins til þess að sameina öll þessi tung- umál í einu tungumáli raunveru- leikans, eða eins og hann orðaði það í deilu sinni við Umberto Eco: „Það sem við þurfum á að halda er merkingarfræði er fjallar um tungumál verknaðarins eða öllu heldur raunveruleikans í heild sinni...“ Síðan heldur hann áfram: „Þessi rannsókn á tungu- máli kvikmyndarinnar skiptir mig meira máli vegna þeirra heimspekilegu vandamála sem hún felur í sér heldur en kvik- myndin sem slík (jafnvel þó að ég líti ekki á hana sem heimspeking- ur, heldur sem óþreyjufullt skáld...). Þessi tilvitnun felur í sér að Pasolini vildi ekki gera greinarmun á tungumálinu og veruleikanum: hann gekk út frá heildstæðri hugsun, þar sem líf hans sjálfs og veruleiki var sjálft tungumálið. Merkingarfræðin á ekki að fjalla um afmörkuð eða sérhæfð tungumál eða táknmál, heldur um táknmál veruleikans í heild sinni, þar sem tjáningin er fólgin í listinni að lifa lífinu og gefa því merkingu. í framhaldi þessa segir Pasolini á einum stað: „Það er dauðinn sem framkvæm- ir hina leiftursnöru klippingu á kvikmynd lífs okkar“ og gefur hinum oft tilviljunarkenndu at- burðum lífsins hina endanlegu merkingu. Eða eins og hann segir annars staðar í sömu bók: „Líf okkar getur aðeins náð að tjá sig í gegnum dauðann“. í stuttu máli þá lætur Zigaina að því liggja að Pasolini hafi meðvitað (hugsan- Pier Paolo Pasolini. Þetta er ein af síðustu Ijósmyndunum sem teknar voru af skáldinu skömmu fyrir andlátið. lega einnig hugmyndafræðilega) verið leikstjóri að kvikmynd eigin lífs í þeirri heildstæðu túlk- un á tungumáli veruleikans sem fyrr var getið. Aðferð gullgerðar- llstarinnar Zigaina færir fyrir því sannfærandi rök í bók sinni að Pasolini hafi verið undir umtal- sverðum áhrifum frá heimspeki gullgerðarlistamanna miðalda eins og hún er túlkuð í djúpsálar- fræði Carl G. Jung og trúarbragð- akenningum Mircea Eliade. Sem kunnugt er þá töldu gullgerðarlistamenn miðalda sig kunna ráð til þess að magna upp frumefni og breyta þeim úr einu yfir í annað. Þetta var eins konar galdur eða seiður, sem átti sér 4 þrep: melanosi (bikun), leucosi (hvítun), xantosi (gulun) og iosi (roðun) sem urðu samfara því að eldur gullgerðarmannsins magn- aðist undir deiglunni. Jung segir að aðferðir gullgerðarlistarinnar eigi sér djúpsálarfræðilegar hlið- stæður, sem einnig megi finna í austurlenskum Mandala- Nepalskt mandala fyrir tantra-yoga íhugun frá því um 1800. „Heimurinnvillmigekkilengurogveit það ekki,“ hið dularfulla mandala Pasolini. myndum, sem eru abstrakt hring- laga mynstur sem endurtekin eru með tilbreytingum á 4, 6 eða 8 samhggjandi ferhyrndum reitum. Til staðfestingar á áráttu Paso- lini til gullgerðarlistarinnar rekur Zigaina magískar ritúalmyndir sem Pasolini vann á síðustu árum ævi sinnar og hafa merkilegt heimildargildi: þar er um að ræða myndaröð sem hann gerði af söngkonunni Maríu Callas, sem hann þekkti náið, og einnig „abstrakt“-mandala sem Zigaina fann í fórum Pasolini látins. Zigaina færir rök fyrir því að gerð þessara mynda hafi fyrir Pasolini verið eins konar alkem- ískur galdur eða seiður eins og hann er skýrður út hjá Jung: „Aðferð gullgerðarlistarinnar er á máli sálfræðinnar fólgin í hömlulausri mögnun. Mögnun er ávalt ráðlögð þegar um dulda eða óljósa reynslu er að ræða, þar sem hin óljósu einkenni eru mögnuð upp í sálrænu samhengi þar til þau verða skiljanleg“. Alkemía og kosmísk sköpun Mandala-myndirnar austrænu voru þannig samkvæmt Jung fornar særingar sem maðurinn hefur notað á ýmsum menningar- skeiðum til þess að leiða í ljós innsta kjarna vitundarinnar eða hins heildstæða sjálfs. Þær áttu að breyta kaos í kosmos. (Sjálfur sagði Pasolini á einum stað: „Það er því algjörlega nauðsynlegt að deyja, því á meðan við lifum skortir okkur merkingu, og tung- umál lífs okkar (sem við tjáum okkur með og hefur grundvallar- þýðingu) er ótúlkanlegt: kaos af möguleikum...“). Zigaina fullyrðir að Pasolini hafi með gerð mandalamynda sinna gert tilraun í fyllstu alvöru til að magna upp það fornhelga andrúmsloft heildstæðrar sögu- lausrar heimsmyndar, þar sem særingin varð liður í að upplifa mýtu eða goðsögn hinnar kosm- ísku sköpunar, bæði á listrænu og tilvistarlegu sviði. Uppmögnun eða særing gullgerðarlistarinnar var hliðstæða við þá stflfærslu í anda mannerismans sem ein- kenndi list Pasolini. Hún var einnig hliðstæða við klippingu kvikmyndarinnar og hún var einnig hliðstæða við dauðann sem gefur tungumáli lífsins merk- ingu. Hin goðsögulega fórn og sköpun í þessu sambandi er nauðsyn- legt að vitna til trúarbragðafræð- ingsins Micea Eliade, sem Paso- lini hafði miklar mætur á, en hann segir í bók sinni “Goðsögn og raunveruleiki“: „Goðsögnin er alltaf frásögn af sköpun...og þegar hún fjallar um sköpun heimsins, hina fullkomnu sköpun, verður hún kjörin fyrir- mynd alls annars sköpunarstarfs- ...Goðsögnin um sköpun heimsins er einnig höfð yfir á dauðastundinni, því dauðinn fel- ur í sér nýjar aðstæður sem nauðsynlegt verður að skoða í réttu ljósi til þess að hann verði skapandi. Menn geta hlotið „mis- heppnaðan" dauða rétt eins og menn geta tapað orrustu. En goðsögur um sköpun heimsins á einungis að hafa yfir á helgum stundum: yfirleitt að hausti eða vetrarlagi og aðeins að nóttu til...í okkar dagatali er sá dagur sem hefur til að bera forkristilega helgi frá fornöld dagur hinna dauðu." Eins og áður var getið var Pasolini myrtur aðfaranótt þessa dags. „Heimurinn vill mig ekki lengur...“ Af þeim mandala-myndum sem Pasolini gerði er ein sér á parti: lauslegt riss með blýanti sem líkist fallandi öldum, væng- jum eða vörum á munni er endur- tekið 4x4 sinnum. Þetta er eina myndin sem Pasolini hefur látið eftir sig og er abstrakt. Það at- hyglisverðasta við þessa mynd er þó textinn, sem skrifaður er neðst á myndina með smáu ietri: „// mondo non mi vuole piú e non lo sa“: Heimurinn vill mig ekki lengur og veit það ekki. Aldrei verður endanlega fullyrt um merkingu þessarar myndar og samband myndar og texta, en Zigaina heldur því fram að hin óljósu blýantsstrik eigi að tákna það kaos sem ríki á undan kosm- os og að sá kaldryfjaði tónn sem sé í textanum hafi tvíþættan til- gang: bæði sem boðskapur og galdrasæring, sem Pasolini hafi hugsanlega haft yfir á meðan myndin var teiknuð. í hlutverki Graals Zigaina sér fyrir sér hliðstæðu í þessari mandala-mynd Pasolini og goðsögninni um Graal: „Veiðimaður konungur, sem gætti leyndardóms Graals, var la- maður af óþekktum sjúkdómi. Enginn læknir kunni ráð við sjúk- dómnum og allt í ríki konungsins var í upplausn: hallir jafnt sem dýralíf, vötn og gróður. Dag nokkurn kom fátækur, óþekktur og ögn broslegur ridd- ari til hallarinnar og sneri sér beint til konungs með þessari spurningu: „Hvar er hinn helgi Graal?“ Og á augabragði lækn- aðist konungurinn og allur heimurinn: hvar er að finna kon- ung konunganna, hinn heilaga, miðpunkt lífsins og uppsprettu ódauðleikans? Engum nema Parcifal hafði dottið í hug að setja fram þessa grundvallarspurn- ingu, og heimurinn var á barmi glötunar vegna dulspekilegs og trúarlegs sljóleika og vegna skorts á ímyndunarafli og raun- verulegum vilja.“ Þannig segir Mircea Eliade goðsögnina um Graal, og Zigaina segir trúlega réttilega að í kjarna þessarar sögu hafi Pasolini séð líf sitt undir lokin: „Heimurinn vill mig ekki lengur og veit það ekki“. Fyrirboði um dauða Eins og áður er getið hafði Pasolini oftar en einu sinni lýst dauða sínum fyrirfram. Það gerði hann meðal annars í særingark- enndu ljóði, sem birtist í ljóða- bókinni Poesia in forma di rosa, sem kom út 1964. Ljóðið er sym- metrískt sett upp eftir miðöxli og má þannig líkja því við mandala. Þar segir meðal annars í lauslegri óbundinni þýðingu: „Hvað framtíðina varðar, þá skaltu hlusta:/ synir hans, fasistarnirj munu sigla /í áttina að heimum hinnar NýjuforsöguJ Ég mun vera þar/ eins og sá sem dreymir glötun sínal á sjávarströnd/ þar sem lífið kvikn- aránýJ Einn, eða nœstum einn, á þessari gömlu ströndl meðal rústa gamallar siðmenningar, / Ravennal Ostia eða Bombay - það skiptir ekki máli - / með Guð- um sem losa af sér grómið, gömlum vandamálum/ - eins og til dœmis stéttabaráttunni - tsem/ leysast upp.. J Eins og frelsishetja/ dáinn fyrir maí 1945,1 þannig mun ég hœgt og hægt byrja að rotna,/ í skjannabirtu þessa hafs, t gleymt skáld og þjóðfélagsþegn. “ Eins og fram kemur í þessu ljóði, þá lýsir Pasolini þarna bæði stað og staðháttum sem urðu við dauða hans, en þar að auki líkir hann dauða sínum við dauða frelsishetjunnar sem dó fyrir maí 45. Þar á hann við bróður sinn sem barðist með andspyrnu- hreyfingunni en var drepinn skömmu fyrir styrjaldarlok í inn- byrðis átökum sem áttu sér stað innan hreyfingarinnar. Dauði bróður hans hafði mótandi áhrif á Pasolini allt hans líf. Hver myrti Pasolini? Á uppreisnarárum æskunnar í lok 7. og byrjun 8. áratugarins lýsti Pasolini oft andúð sinni eða gagnrýni á þeim allsnægtabörn- um millistéttarinnar, sem þá hrópuðu hátt á götuhornum og höfðu uppi vígorð sem sótt voru til Marx eða Maos formanns. Samúð hans var meiri hjá þeim fórnarlömbum fáfræði og fátækt- ar sem höfðu flúið eymdina á Suðurítalíu og gengið í lögreg- luna og ánetjast hinum nýja fas- isma. Það eru „Synir hans, fasist- arnir,“ sem frá segir í ljóðinu, og það var einmitt einn af þeim, sem talinn er hafa orðið Pasolini að bana. Ómenntaður og óþekktur í kunningjahóp skáldsins var hann engu að síður staddur með skáld- inu á íþróttavelli við Ostia um- rædda nótt og fyrir rétti gaf hann eftirfarandi vitnisburð eftir að til hans hafði náðst: „Pelosi (játandi verknaðinn) sagði að maðurinn (Pasolini) hefði farið með sig á íþróttavöll- inn...hann sagðist hafa sagt hon- um að hœtta en hann (Pasolini) hefði hins vegar tekið upp prik eins og þau sem notuð eru til að girða garða og vildi setja hana upp í rass hans...hann (Pelosi) sagðist hafa snúið sér við þegar hann hefði fundið Pasolini koma yfirsig , sagðist hafa slegið hann í höfuðið með stöng...hann (Pe- losi) sagðist hafa séð fjöl á jörð- inni, tekið hana upp og brotið hana á höfði hans... “ Þetta er tilvitnun úr dómsgerðarbók Unglingadóm- stólsins í Róm, sem kvað upp sektardóm í málinu í apríl 1976, 5 mánuðum eftir að morðið var framið. Ekkert kom fram við réttar- höldin sem benti til þess að Pelosi þessi hefði verið útsendari vald- amikilla aðila sem vildu Pasolini feigan, en hins vegar var fram- burður sakborningsins í mörgum efnum óljós og mörg smáatriði í þessu dularfulla máli eru ennó- skýrð. Frelsið til að velja hetjudauðann í tímaritinu Nuovi argumenti frá 1970 fjallaði Pasolini um dauðann með eftirtektarverðum hætti. Þar segir meðal annars: „Aðeins hetjudauðinn felur í sér leikræna tjáningu: og aðeins hann kemur að haldi. Leikstjórarnir-píslarvottarnir eru því ávallt og af frjálsum vilja í eldlínunni stílfræðilega séð: það er að segja á mörkum þess að yfirstíga tungumálið. í ákafanum við að ganga fram af reglunum (eða heiminum sem styðst við þær), í ákafanum við að sýna sig enda þeir með því að ná fram því sem þeir sóttust eftir með offorsi: að verða særðir og drepnir með þeim vopnum sem þeir færðu óvininum í hendur..." Frá kaos til kosmos Hér hafa verið rakin örfá dæmi af fjölmörgum, sem höfundur umræddrar bókar dregur fram til þess að styðja þá kenningu sína að dauði Pasolini hafi haft goð- sögulega merkingu, og að ein- ungis með því að skilja það geti menn skilið lífsverk hans til fullnustu. Því fyrir Pasolini hafi líf hans verið hluti af lífsverkinu og hvorugt verði skilið eða öðlist fulla merkingu, nema með dauðanum sem höfundur þess hafi einn frelsi til að velja líkt og leikstjórinn við klippiborðið. Hinn skapandi dauðdagi átti samkvæmt hugmyndum hans að umbreyta lífi hans og lffsverki í goðsögn, lengra varð ekki gengið í að beita stflvopninu við að yfirs- tíga reglurnar og umbreyta kaos í kosmos. Þannig gengur enn í nút- ímanum hið æfafoma minni, sem rekja má aftur til Óðins, sem fórnaði sjálfum sér og hékk 9 nætur og 9 daga á Vingameiði stunginn eigin brandi til þess að öðlast endurnýjun lífdaga: „Veitek at ek hékk/ Vingameiði á/ nætr allar níu...Vingameiður var jú það lífsins tré, sem átti sér rætur sem enginn fékk rakið...

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.