Þjóðviljinn - 08.07.1987, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 8. júlí 1987 145. tölublað 52. árgangur
Matarskatturinn
Matthías seigur á enda-
sprettinum. Þorsteinn 19.
forsœtisráðherrann í28.
ráðuneytinu
Um hádegi í dag tekur ráðu-
neyti Þorsteins Pálssonar við
stjórnartaumum á landinu, og
verður fyrsti ríkisráðsfundurinn
haldinn í ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu.
Sjálfstæðismenn gerðu útum
ráðherramál sín á klukkutíma-
Iöngum þingflokksfundi í gær, og
verða ráðherrar flokksins auk
Porsteins þeir Friðrik Sophusson
iðnaðarráðherra, Birgir ísleifur
Gunnarsson menntamálaráð-
herra og Matthías Á. Mathiesen
samgönguráðherra. Matthías er
auk formannsins eini ráðherra
flokksins úr gömlu stjórninni sem
heldur völdum sínum, og mun á
endasprettinum hafa reynst ötulli
en Ólafur G. Einarsson. sem
áður var helst nefndur til. I Sjálf-
stæðisflokknum gætir óánægju
með wáðherravalið, og kvarta
helst konur og landsbyggðar-
menn. Matthías Bjarnason og
Egill Jónsson sátu hjá þegar ráð-
herratillaga Þorsteins var sam-
þykkt í þingflokknum.
Frá Framsókn koma
Steingrímur Hermannsson utan-
ríkisráðherra, Halldór Ásgríms-
son sjávarútvegsráðherra, Jón
Helgason landbúnaðarráðherra
og Guðmundur Bjarnason
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, en úr Alþýðuflokki Jón
Baldvin Hannibalsson fjármála-
ráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra og Jón Sig-
urðsson dóms-, kirkju-,
viðaskipta- og Hagstofuráð-
herra.
Ríkisstjórnin sem við tekur í
dag er 28. ráðuneytið sem sest að
völdum í Reykjavík, og Þor-
steinn Pálsson 19. forsætisráð-
herrann síðan sá titill varð til árið
1917, og sá 25. ef taldir eru með
hinir fyrstu sex „ráðherrar ís-
lands“. Þetta er þriðja ríkisstjóm
Alþýðuflokks, Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks, hinar
sátu 1938-42 og 1947-49.
Ríkisstjórnin
Fæðingunni ekki fagnað
Efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar mœta andstöðu. Asmundur Stefánsson:
Skattar ánauðsynjar stríða gegn almennum vilja. Kristján Thorlacius: Matarskatt-
urinn kemur verst við þá lœgstlaunuðu. Iðnrekendur segja skattana auka verðbólgu
Viðbrögð almennings, samtaka
launafólks og samtaka at-
vinnurekenda benda tii að fæð-
ingu nýrrar ríkisstjórnar sé ekki
tekið með fagnaðarlátum. Mestri
andstöðu mæta fyrirhugaðar
efnahagsaðgerðir ríkisstjórnar-
innar, en samtök launafólks segja
ákveðna liði hennar rýra kjör
þeirra tekjulægstu og iðnrekend-
ur segja skattheimtuleiðir þær
sem hún hefur valið verðbóigu-
hvetjandi.
Á miðstjómarfundi ASÍ í gær
var samþykkt ályktun þar sem
það er harmað að ekki skuli í
skattheimtu stefnt að því að
knýja þá efnameiri til aukins fra-
mlags til sameiginlegra þarfa. Þá
er því mótmælt sérstaklega að ák-
veðin skuli ný skattheimta á ma-
tvöru. Slík ákvörðun gangi þvert
á stefnu verkalýðshreyfingarinn-
ar að bæta kjör þeirra tekju-
lægstu.
„Það er ljóst að við erum á móti
aukinni skattheimtu á matvöru af
sömu ástæðum og við erum á
móti virðisaukaskatti. Við teljum
það út í bláinn að breyta skatta-
kerfinu þannig að skattheimta á
brýnustu nauðsynjum verði
aukin. Við erum að vona að
menn íhugi það að þessar aðgerð-
ir stríða gegn almennum vilja
landinu og þeir láti þær því ekki
koma til framkvæmda," sagði Ás-
mundur Stefánsson forseti ASÍ
um þann lið efnahagsaðgerðanna
sem felst í 10% skattlagningu á
matvörur aðrar en kjöt, fisk,
grænmeti, ávexti og mjólk og
virðisaukaskattinn sem ríkis-
stjórnin stefnir að að koma á.
„Ég tel söluskattinn vera af
hinu illa. Hann kemur verst niður
á þeim sem lökust hafa kjörin og
samtök launafólks hljóta að vera
honum mjög andvíg,“ sagði
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB um væntanlegan söluskatt
á matvæli. „Launafólk mun ekki
sætta sig við kjararýrnun sem
verður rakin til ráðstöfunar ríkis-
valdsins. Það mun mótmæla
kröftuglega“.
Félag iðnrekenda hefur sent
frá sér harðorða ályktun þar sem
efnahagsaðgerðum ríkisstjórnar-
innar er mótmælt og telur félagið
,skattheimtuleiðirnar verðbólgu-
hvetjandi. Þá hafa fulltrúar
stjórnarandstöðunnar lýst því
yfir að þeim þyki lítið til stjórn-
arsáttmálans koma.
-K.Ól.
Sjá síðu 3 og leiðara
„Með góðærið í heimanmund'' er heiti þessarar myndar sem hinn sannspái Ámi Ingólfsson teiknaði fyrir Þjóðviljann áður en landsmenn
gengu að kjört»rðinu í april. I því tölublaði var spurt: „Ætlar þú að borga veisluna?"
Kópasker
Draugagangur
á línunni
Reimleikar í
rafmagnsgirðingum
Töluverðar símatruflanir hafa
verið í nokkurn tíma f Öxar-
firði og í sveitunum í nágrenni
Kópaskers. Er jafnvel talið að
rafmagnsgirðingar bænda í
sveitinni geti átt þar hlut að máli.
Að sögn Kristveigar Árnadótt-
ur, stöðvarstjóra á Kópaskeri,
hafa samtöl slitnað í miðju kafi og
smellir heyrst í símtólum, eins og
einhver draugagangur væri á lín-
unni. Eru símnotendur orðnir
langþreyttir, en í gær fór viðgerð-
arflokkur frá Húsavík til að reyna
að kveða niður draugana.
-grh
Tíu þúsund á meðal fjölskyldu
10% söluskattur
Aformaður söluskattur nýrrar
ríkisstjórnar á nauðþurftir,
kostar hverja meðalfjölskyldu f
landinu um 10 þúsund krónur,
aukalega á ári. Þetta þýðir að
matarreikningur heimilanna
verður að meðaltali um 278 þús-
und í stað 268 þúsund á ári. Þessi
bakreikningur ríkisstjórnarinnar
á hendur fjölskyldum mun vera
liður í aðgerðum nýju stjórnar-
herranna til að hamla gegn verð-
bólgu og jafnvægisleysi í efna-
hagsmálum.
I stjórnarsamningi ríkisstjórn-
arinnar er boðað að 10% sölu-
skattur verði settur á nauðþurftir
og matvæli. Matvörur eins og
kjöt og fiskur, mjólkurvörur og
nýtt grænmeti og ávextir verða
áfram undanþegnar söluskatti.
Á ársgrundvelli jafngildir þessi
söluskattur á matvæli um 10 þús-
und króna útgjaldaauka fyrir
hverja meðalfjölskyldu í landinu,
á ýmsar nauðþurftir. Matarreikningur meðalfjölskyldu hœkkar
Neytendur skattlagðir til að rétta af hallann á ríkissjóði
sem telur núna 3.66 einstaklinga meðaltali úr 268.623 krónum í hyggst ríkisstjórnin láta almenn-
samkvæmt upplýsingum Hag- 278.262 krónur á ári. ing greiða niður ríkissjóðshall-
stofunnar. Það þýðir að matar- Til viðbótar þessari gjaldtöku ann, með því að leggja sérstakt
reikningurheimilannahækkarað ríkissjóðs af nauðþurftum, þyngdargjald á bifreiðir lands-
um 10.000 á ári.
tnanna, sem nemur um 4 þúsund
krónum á meðal-fólksbifreið.
-RK
Ráðuneyti
Stjóm
Þorsteins
tekur við
-m