Þjóðviljinn - 08.07.1987, Qupperneq 9
FRA LESENDUM
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins í þríflokkastjórninni: Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra, Friðrik Sophusson
iðnaðarráðherra, Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra, Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra. (Mynd: EÓI).
Um leið og undanþágum frá
söluskatti er fækkað verður gert
sérstakt átak til að bæta eftirlit og
innheimtu. Þetta átak er áfangi í
áætlun um að hrinda í fram-
kvæmd tillögum nefndar sem
kannaði umfang skattsvika um
úrbætur til að bæta skattaeftirlit
og framkvæmd skattalaga. Ríkis-
stjórnin telur aðgerðir gegn
skattsvikum meðal brýnustu
verkefna sinna.
Aðgerðir í peningamálum eru
margþættar:
í fyrsta lagi verða vextir af
spariskkírteinum ríkissjóðs
hækkaði um 1,5% til að greiða
fyrir sölu þeirra og draga þannig
úr lántökuþörf ríkissjóðs erlendis
og hjá Seðlabankanum.
I öðru lagi verður endur-
greiðsla söluskatts til sjávarút-
vegs lögð inn á bundna reikninga
í vörslu Verðjöfnunarsjóðs og
Fiskveiðasjóðs.
I þriðja íagi verða settar reglur
um fjármögnunarleigu, um notk-
un greiðslukorta og afborgunar-
viðskipti sem ætlað er að draga úr
þenslu.
Með þessum ráðstöfunum er
komið á betra samræmi milli
þjóðarútgjalda og þjóðartekna
og þannig sköpuð skilyrði til að
draga úr verðbólgu og viðskipta-
halla þegar til lengri tíma er litið.
Aðgerðirnar miða allar að því að
hamla gegn þenslu í efnahagslíf-
inu með því að draga úr heildar-
eftirspurn. Áætlað er að þær
haldi aftur af þjóðarútgjöldum
sem nemur 1—1,5% og dragi úr
viðskiptahalla um allt að 1% af
þjóðarframleiðslu. Aðgerðirnar í
ríkisfjármálum, einkum breyting
söluskattskerfisins, munu í upp-
hafi hafa í för með sér nokkra
hækkun framfærsluvísitölu. Þess-
ar aðgerðir ásamt ráðstöfunum í
peningamálum eru nauðsynlegar
til að draga úr verðbólgu þegar
fram í sækir svo unnt sé að halda
gengi íslensku krónunnar stöð-
ugu og að ná jafnvægi í við-
skiptum við útlönd.
Aðgerðir
til kjarajöfnunar
Ríkisstjórnin mun móta
stefnu, sem miðar að því að bæta
kjör hinna tekjulægstu og stuðla
að jafnrétti í launamálum.
Fyrsta skrefið er hækkun élli-
og örorkulífeyris, tekjutrygging-
ar og heimilisuppbótar, þannig
að þessar greiðslur ásamt
greiðslum úr lífeyrissjóðum og
öðrum tekjum verði ekki lægri en
lágmarkslaun í landinu frá 1.
september næstkomandi. Þannig
verði lágmarksframfærslueyrir
einstaklings tæpar 28 þúsund
krónur á mánuði í stað 25 þús-
unda nú. Viðbótarkostnaður rík-
issjóðs á þessu ári af þessum
sökum er áætlaður um 90
milljónir króna.
Annað skref er hækkun barna-
bótaauka á þessu ári úr rúmum 25
þúsundum króna í 30 þúsundir.
Þessi hækkun barnabótaaukans
mun fyrst og fremst renna til
barnmargra fjölskyldna með
lágar tekjur. Kostnaðarauki rík-
issjóðs af þessari hækkun er áætl-
aður um 100 millónir króna.
Ríkisstjórnin telur að almennir
kjarasamningar séu í verkahring
og á ábyrgð aðila vinnumarkað-
arins. Hún vill fyrir sitt leyti
stuðla að því, að launahækkanir í
þjóðfélaginu geti samrýmst efna-
hagslegu jafnvægi jafnframt því
sem kaupmáttur lægstu launa
batni. En til þess að slíkur árang-
ur náist er mikilvægt að fyrstu að-
gerðir í fjármálum og peninga-
málum dugi til að leggja grund-
völl að efnahagslegum stöðug-
leika til frambúðar.
YFIRLIT YFIR EFNAHAGSAÐGERÐIR UM MITT ÁR 1987
ÁÆTLANIR
Innheimta 1987 Álagt 1988
m.kr. m.kr.
Fækkun undanþága frá söluskatti:
Tölvur, 25% skattur 160 380
Farsímar, 25% skattur 20 50
Auglýsingastofur, 10% skattur, 1. sept 15 60
Lögfræðistofuro.þ.h., 10% skattur, 1. sept 35 140
Endurskoðunogbókhald, 10%skattur, l.sept 25 100
Teiknistofur, verkfræðistofur, arkitektar
o.þ.h., 10% skattur, 1. sept 70 280
Matvörur, aðrar en mjólk, kjöt, fiskur,
kartöflur, nýtt grænmeti og ferskir ávextir, 10% skattur 290 700
Mataraðföng veitingahúsa og fæðissala
mötuneyta, 10% skattur, 1. okt 60 360
675 2070
Bifreiðagjald. 4 kr./kg/ár, allt að 2.500 kg
og 10 þús. kr. á þyngri bíla- hálft gjald á þessu ári 235 610
Sérstakt kjarnfóðurgjald, 4 kr./kg 80 200
Hækkun rikisábyrgðargjalds 110
Lántökugjald af erlendum lánum 60 230
1.080 3.220
Barnabætur -100 -200
Ellllífeyrir -90 -270
Samtals fjármálaaðgerðir 890 2.750
Frestun endurgreiðslu söluskatts til sjávarútvegs 300 700
Miðvikudagur 8. júlí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Óvönduð
blaðamennska
Það er því miður algengt að
dagblöðin slái upp flennistórum
fyrirsögnum, sem eiga sér litla
stoð í þeirri frétt sem eftir fylgir.
Oftast er þetta gert til að auka
sölu blaðanna en stundum til að
reyna að styrkja málstað, sem oft
er „tilfinningum hlaðinn“. Með
þessu má oft ná nokkrum árangri
því allur þorri lesenda dagblað-
anna rennir augum yfir helstu
fyrirsagnirnar, að minnsta kosti
yfir þær sem ná yfir þrjá dálka
eða fleiri, en lesa síðan aðeins
þær fréttir sem liggja á áhugasviði
þeirra.
Lýsandi dæmi um vafasama
fyrirsögn af þessu tagi var fimm
dálka fyrirsögn í Þjóðviljanum
30. júní síðastliðinn: Orökstudd-
ar vísindaveiðar. Tilefni fyrir-
sagnarinnar var viðtal við pró-
fessor Agnar Ingólfsson (sem er
þá kallaður „virtur íslenskur vís-
indamaður“), en hann sat nýaf-
staðið þing Alþjóða hvalveiði-
ráðsins. í viðtalinu segir Agnar:
„Hin opinberu rök hafa hinsveg-
ar verið þau, að líffræðileg nauð-
syn sé á því að veiða þetta mörg
dýr til þess að rannsóknin skili
árangri. Náttúruverndarráð telur
sig hinsvegar ekki hafa fengið
viðhlítandi rökstuðning fyrir
þeirri nauðsyn." Þessi orð gefa
varla tilefni til framangreindrar
fyrirsagnar.
Mér er til efs að Þjóðviljinn sé
skárri en önnur blöð í misnotkun
fyrirsagna af þessu tagi og vafa-
lítið hefði ég látið nægja að blóta í
hljóði ef Þjóðviljinn hefði ekki
bætt gráu ofan á svart daginn
eftir. Það er málið tekið upp í
leiðara blaðsins undir fyrirsögn-
inni: Órökstuddar „vísinda-
veiðar“. Leiðarinn hefst á orðun-
um: „Umræðan um hvalveiðar
íslendinga er tilfinningum hlað-
in, og af þeim sökum er á stund-
um erfitt að átta sig á kjarna
málsins." Síðar í leiðaranum
segir „Virtur íslenskur vísinda-
maður, prófessor Agnar Ingólfs-
son, höndlar kjarna þessa máls í
viðtali við Þjóðviljann í gær.
Agnar segir: „Það hafa ekki verið
færð vísindaleg rök fyrir því að
nauðsyn sé á því að veiða þetta
marga hvali til rannsókna á hval-
astofninum." Náttúruverndarráð
hefur formlega tekið sömu af-
stöðu og prófessor Agnar. Það
telur að „vísindaveiðarnar" séu
órökstuddar."
Hér er unnið býsna frjálslega
úr fréttinni. Tilvitnun leiðarans í
orð Agnars er ekki að finna í
fréttinni, afstaða Agnars kemur
þar ekki fram, né kemur þar neitt
fram um formlega afstöðu Nátt-
úruverndarráðs. Agnar segir að-
eins að ráðið hafi ekki fengið við-
hlítandi rökstuðning fyrir veiðun-
um. Vinnubrögð af þessu tagi eru
blaðinu til skammar og eru því
miður alltof tíð.
Meðal starfsmanna blaðsins
eru traustir hvalavinir, sem hafa
verið iðnir á síðustu misserum að
skrifa gegn hvalveiðum og skrif
þeirra hafa ekki hjálpað lesend-
um blaðsins til að mynda eigin
skoðanir. Eftir öll þessi skrif
Þjóðviljans finnst mér það billegt
að spyrja eins og gert er í leiðar-
anum: „Hvar eru þeir óháðu sér-
fræðingar sem fallast á staðhæ-
fingar íslenskra stjórnvalda?
Þjóðviljinn býðst tii að ljá þeim
rúm fyrir skoðanir sínar.“ Með
síendurteknum einhliða skrifum
sfnum um hvalveiðimálið er
Þjóðviljinn ekki álitlegur vett-
vangur fyrir vitræna umræðu um
málið.
Nú vil ég skora á Þjóðviljann
að birta grein um hvalveiðarnar
sem getur hjálpað lesendum „að
átta sig á kjarna málsins". f þessu
skyni ætti blaðið að leita til
manna, sem vel þekkja til hval-
veiðanna, og fræða lesendur
frekar en að predika, gera góð
skil þeim rökum sem fram hafa
verið sett fyrir veiðunum og þeim
sem ganga gegn þeim og láta okk-
ur lesendur síðan um að draga
ályktanir. Þetta mundi vafalítið
gleðja lesendur blaðsins sem eru
langþreyttir á að fá frá blaðinu
fullmótaðar skoðanir á ýmsum
málum frekar en lýsingu á mála-
vöxtum, sem geta hjálpað þeim
til að draga eigin ályktanir.
Páll Theódórsson,
eðlisfræðingur
Um leið og Páll skulu þökkuð
skrifin verður að taka fram þetta:
Hverjum og einum er auðvitað
frjálst og sjálfsagt að finna að
fréttaflutningi og fyrirsögnum
Þjóðviljans sem annarra fjöl-
miðla, og túlkun á orðum
viðmælenda blaðsins er sjaldan
einhlít. Hinsvegar verður fullyrð-
ingum um „einhliða skrif' og
„fullmótaðar skoðanir" sem
blaðið haldi að lesendum sínum
um hvalveiðamálið ekki látið óm-
ótmælt. Þjóðviljinn hefur ein-
mitt, jafnvel í meira mæli en
önnur blöð, gert góð skil að rök-
um með og á móti í þessari deilu,
og á síðustu vikum, mánuðum og
misserum birt um þessi efni
marghliða „lýsingu á málavöxt-
um“, eins og lesendur blaðsins
geta sjálfir best borið um vitni.
Þessu mun Þjóðviljinn halda
áfram, auk þess sem blaðið ítrek-
ar að það býður sérfræðingum og
áhugamönnum rúm fyrir skoðan-
ir þeirra í þessum málum.
Ritstj.
Jarðvinna vegna
stækkunar Háskólabíós
F.h. byggingarnefndar Háskóiabíós óskast tilboö
í jarðvinnu, holreesalagnir og fleira vegna fyrir-
hugaörar viöbyggingar viö Háskólabíó viö Haga-
torg.
Helstu magntölur eru: Gröftur 14.600 m3 og hol-
ræsi, 100, 150 og 200 sm í þvermál - 350 m.
Verkið skal unnið á tímabilinu 14. ágúst til 16.
október 1987.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borg-
artúni 7, Reykjavík, gegn 3.000 kr. skilatrygg-
ingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudag-
inn 21. júlí 1987 kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartúni 7, simi 26844