Þjóðviljinn - 18.07.1987, Qupperneq 4
LEIÐARI
Vantraust á stjómarstefnuna
Hin „nýja“ ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Fram-1
sóknar og krata nýtur samkvæmt skoðana-
könnunum lítils trausts meðal kjósenda.
í gær birti Þjóðhagsstofnun nýja áætlun um
ástand og horfur í efnahagsmálum, og eftir lest-
ur hennar er Ijóst, að það eru ekki bara venju-
legir kjósendur sem ekki treysta ríkisstjórninni.
Plagg Þjóðhagsstofnunar er nefnilega ekkert
annað en dulbúin yfirlýsing um vantraust á þá
stefnu, sem ríkisstjórnin hefur markað í efna-
hagsmálum.
Það er að vísu sérstök kúnst að lesa rit Þjóð-
hagsstofnunar. Þar er sjaldnast kveðið fast að
orði. En að þessu sinni fer ekki á milli mála að
sérfræðingar hennar eru fullir efasemda um að
stefnan gangi upp.
Samkvæmt stjórnarsáttmálanum miða fyrstu
aðgerðir ríkisstjórnarinnar að því að draga úr
þenslu í efnahagslífinu og bæta stööu ríkis-
sjóðs. Þessar aðgerðir felast í þrennu:
í fyrsta lagi að auka skattheimtu, meðal ann-
ars álagningu söluskatts á matvæli og tölvur. >
( öðru lagi með hækkun vaxta af spariskírt-
einum ríkissjóðs.
í þriðja lagi með því að takmarka verulega
erlendar lántökur.
Þetta áttu að vera hinar svokölluð fyrstu að-
gerðir, - aðgerðir, sem áttu að hafa skjót áhrif til
batnaðar. Sérfræðingar Þjóðhagsstofnunar eru
á öðru máli. Þeir segja einfaldlega orðrétt í
skýrslu sinni: „Áhrifa þessara aðgerða gætir þó
ekki fyrr en á næsta ári.“
Með öðrum orðum: Aðgerðirnar eru ekki
nógu róttækar til þess að hafa áhrif strax, eins-
og til var ætlast. Þær ráða ekki bót á þeim vanda
sem við blasir, að dómi sérfræðinga Þjóðhags-
stofnunar.
Það er líka engum efa blandið, að hagfræð-
ingar Þjóðhagsstofnunar hafa verulegar
áhyggjur af ríkisfjármálunum. í skýrslunni kem-
ur fram, að þrátt fyrir aukna skattheimtu er enn
reiknað með verulegum halla á ríkissjóði, og
upplýst, að ríkið muni þurfa að taka rúmlega
fjóra miljarða króna að láni á þessu ári.
En hvar á að taka þessa peninga? Ríkis-
stjórnin hugðist fjármagna þessa lánsþörf hér
innanlands með því annars vegar að fá almenn-
ing til að kaupa spariskírteini en hins vegar
bankana til að kaupa ríkisvíxla. Þetta hefur hins
vegar mistekist að verulegu leyti. Bankarnir
hafa ekki keypt ríkisvíxla nema tilneyddir, og
sala ríkisskuldabréfa hefur verið afar, afar
dræm.
Niðurstaðan hefur því orðið sú, að lánsfjár-
þörf ríkissjóðs hefur fyrst og fremst verið mætt
með erlendum lántökum og yfirdrætti í Seðla-
bankanum.
Með því að hækka vexti á spariskírteinum
ríkissjóðs hugðist ríkisstjórnin örva sölu á spari-j
skírteinum ríkissjóðs í nægilegum mæli til að
snúa þessari þróun við. Fæst bendir hins vegar
til að þetta muni ganga eftir. Þannig segja hinir
orðvöru sérfræðingar Þjóðhagsstofnunar í
skýrslu sinni: „Miðað við ástandið á peninga-
markaðnum um þessar mundir er ekki víst, að
sú ráðstöfun skili tilætluðum árangri.“
Með öörum oröum: hækkun vaxta af ríkis-
skuldabréfum breytir engu um það, að hallinn á
ríkissjóði verður fyrst og fremst jafnaður með
erlendum lánum og seðlaprentun. En hvoru-
tveqqja er ekkert annað en ávísun á enn frekari
þenslu.
Þar með er hins vegar ekki sagt, að hækkun
vaxta hjá ríkinu hafi engin áhrif. Að undanförnu
hafa vextir í bönkum og sparisjóðum þannig
hækkað ört, og að dómi Þjóðhagsstofnunar
stafar það af hinni væntanlegu vaxtahækkun
ríkisins. Vel auglýstar hugmyndir núverandi
fjármálaráðherra um vaxtahækkun á spariskírt-
einum hafa því einungis orðið til að auka enn á
tekjur fjármagnseigenda á kostnað lántaka.
Hinir efnuðu halda áfram að hagnast á kostnað
hinna.
Dómur sérfræðinga Þjóðhagsstofnunar er að
vísu vafinn í umbúðir varfærnislegs orðalags,
en hann er engu að síður skýr:
Efnahagsstefna hinnar nýju ríkisstjórnar
gengur ekki upp. Fyrstu aðgerðirnar skila ekki
tilætluðum árangri og geta meira að segja leitt til
aukins ójöfnuðar. Það er harla vond byrjun.
-OS
Mynd: Ari
LJOSOPIÐ
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandl: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Ámi Bergmann, Þróinn Bertelsson, össur
Skarphéðinsson.
Fróttastjórl: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson
Hrafn Jökulsson, Hjörleifur Sveinbjömsson, Ingunn Ásdísardóttir,
Kristín Ólafsdóttir, KristóferSvavarsson, Logi Beramann Eiðsson
(íþróttir), Magnús H. Gislason, MörðurÁmason, ÓlafurGíslason,
Ragnar Karisson, Sigurður Á. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vil-
borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrlta- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljósmyndarar: EinarÓlason, SigurðurMarHalldórsson.
Dtlltsteiknarar: Sævar Guðbjömsson, GarðarSigvaldason.
Framkvœmdastjórl: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrlfstofustjórl: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjórl: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Unnur Agústsdóttir, Olga Clausen, GuðmundaKrist-
insdóttir.
Símvarsla: Hanna Ólafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbrelðslu- og afgrelðslustjóri: Hörður Oddfríðarson.
Afgrelðsla: Bára Sigurðardóttir, HrefnaMaanúsdóttir.
Innhelmtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Sfðumúla 6, Reykjavfk, slmi 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verö í lausasölu: 55 kr.
Helgarblöð:60kr.
Áskrlftarverðá mónuðl: 550 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN í Laugardagur 18. júlí 1987