Þjóðviljinn - 18.07.1987, Page 7

Þjóðviljinn - 18.07.1987, Page 7
Bókmenntir Saga á sænsku og ný bók Vigdís Grímsdóttir í stuttu spjalli um sögu hennar sem birtist í Svenska Dagbladet og um skáldsögu sem hún sendir frá sér í haust Inn á ritstjórn Þjóðviljans barst fyrir nokkrum dögum Svenska Dagbladet frá sunnudeginum 28. júní og blasti þar við stór mynd af Vig- dísi Grímsdóttur rithöfundi og undir myndinni sænsk þýðing á einni af smásögum hennar úrfyrstu bókhennarTíu myndir úr lífi þínu ásamt stórri myndskreytingu við söguna. Okkur hér á skerinu þykir alltaf svo gaman þegar einhver okkar gerir það gott í útlöndum að við slógum á þráðinn til Vig- dísar og spurðum hver tildrögin að birtingu sögunnar í Svenska Dagbladet hefði verið. Vigdís vildi nú ekki meina að þetta væri svo merkilegt að tilefni væri til blaðaviðtals en féllst þó á að tjá sig ofurlítið um málið. „Eg hef nú bara ekki hugmynd um hvernig þeir fengu nafnið mitt, ég fékk bara bréf frá þeim þar sem þeir sögðu mér að ætlun- in væri að kynna norræna höf- unda í blaðinu og buðu mér að vera með. Þetta er svona tilraunastarfsemi hjá þeim, þeir ætla að byrja á fimm höfundum, einum frá hverju Norðurland- anna og sjá svo til, og þessi saga mín er svo sú fyrsta sem birtist. Þeir buðu mér borgun fyrir söguna og ég fór líka fram á borg- un fyrir þýðandann. Þeir viidu allt borga svo ég sló bara til. Þýð- andinn er sænskur sendikennari við Háskólann hérna, Hákan Jansson. Ég valdi söguna í sam- vinnu við hann og er mjög ánægð með þýðinguna, hún er mjög góð. En valið á sögunni fór líka mikið eftir þeirri lengd sem Sví- arnir vildu fá, mér þykir ekkert vænna um þessa sögu en aðrar sem ég hef skrifað. Mér finnst þetta mikið gott framtak hjá þeim á Svenska Dag- bladet, og íslensk blöð mættu taka sér það til fyrirmyndar og kynna okkur norræna höfunda. Ég legg það til hér með. Þeir vanda sig líka við þetta Svíarnir, sögunni fylgir stór og mikil myndskreyting og nokkur kynning á höfundinum, - reyndar er íslandskortið á hvolfi en það á líklega bara að vera smart. Þeir virðast líka vilja fylgja þessu eftir, að minnsta kosti er umsjón- armaður þessa dálks í blaðinu, Carl Otto Werkelid, búinn að skrifa mér og vildi vita hvernig mér fyndist til hafa tekist og „Þaöergamanaö fá birta eftir sig sögu erlendis, því erekkiað neita," segirVigdís Grímsdóttir rithöf- undurenhúner lika aö senda frá sérsínafyrstu skáldsögu nú fyrir komandijól. (MyndE.ÓI.) svona. Þetta finnst mér gott hjá þeim. Fólk erlendis talar líka um hvað eyjabókmenntir séu merki- legar og þær virðast vera að kom- ast í tísku af einhverjum ástæð- um. Þykja öðruvísi. Þetta er áreiðanlega einhver loftslags- kenning. Annars án gríns, þá get- ur verið að eyjaskeggjar semji öðruvísi bókmenntir, þetta eru minni og lokaðri samfélög. Er ég annars ekki búin að segja nóg, það hlýtur bara að vera.“ Skóldsaga í haust Bækur París - ný Árni B. Helgason er ungur rithöfundur sem kveður sér hljóðs með tæplega 400 síðna skáldsögu Ut er komin hjá bókaútgáfunni Fjöreggi ný íslensk skáldsaga sem ber nafnið París og er eftir Árna B. Helgason. Hann gefur bókina út sjálfur þar eð bókaút- gáfan Fjöregg er hans eigið fyrir- tæki og er þetta fyrsta bók höf- undar og forlags. Skáldsagan París er rétt tæpar 400 blaðsíður að lengd og þar sem fremur óvenjulegt er að ungur höfundur kveðji sér hljóðs með svo stóru verki tók Þjóðviljinn Árna tah. Hann sagði þetta verk sitt vera samfélagssögu, sagt væri frá dag- legu lífi í bæjarsamfélagi nokkru. Sagan gerist á þremur dögum og er í þremur meginhlutum. „Hún er þrískipt“ sagði Árni, „og það skýrir kannske að nokkru leyti hversu löng hún er því að þó að hún sé samfelld, þá er miðhlutinn fluttur sem ævintýr og síðan í rauninni endursagður út frá öðr- um sjónarhornum og með öðrum og raunsæislegri formerkjum." „Nei, þetta er ekki þriller“ segir hann aðspurður, „en í aðra röndina er þetta afþreyingarsaga. Mér finnst sjálfum lítið varið í bækur sem eru ekki að einhverju leyti afþreying, - sögur verða að vera skemmtilegar annars nennir enginn að lesa þær. Enginn mundi lesa Laxness ef hann væri ekki skemmtilegur.“ Hvað veldur því að þú sest við að skrifa svona stóra bók? „Ætli það sé ekki bara ósköp venjuleg tjáningarþörf. Allir þurfa að tjá sig og finna sér sinn farveg, hvort sem þeir gera það á þennan hátt eða einhvern annan. Ég hef verið að gera ýmsa hluti í gegnum árin, sumt skrifað og annað ekki. Hvað stærðina varðar þá þykir það ekki merkilegt erlendis þó að menn skrifi svona langar skáld- sögur. Það er einhver lenska skáldsaga Ámi B. Helgason meö nýútkomna skáldsögu sína, París, sem hann er að dreifa í bókaverslanir um landið þessa dagana. hérna að sögur ungra höfunda eigi að vera stuttar. Annars hefur þessi saga gengið í gegnum ýmis þróunarstig, áður en þessi endan- lega gerð leit dagsins ljós.“ Ég spyr hann um fjárhagsdæm- ið og hvers vegna hann gefi bók- ina út sjálfur. Hann segist fjármagna útgáf- una algerlega sjálfur. „Þessar skriftir hafa verið mitt aðalstarf síðustu árin, ég flutti til Grenivík- ur og sat þar við, þar hafði ég gott næði. Svo hef ég farið á sjóinn þess á milli til að fjármagna fyrir- tækið. Það má segja að vertíðar- hýran hafi farið í þetta. Að gefa út bók kostar peninga svo ekki sé meira sagt. Svo verður bara að koma í Ijós hvort fyrirtækið stendur undir sér. Hvað útgáfuna varðar var ég búinn að fá tilboð frá útgáfufyrir- tæki, en þau þurfa æði langan fyrirvara og vildu ekki gefa bók- ina út fyrr en um jólin ‘88. Það fannst mér of langur tími að vera með söguna á herðunum núna þegar ég er loksins búinn að ljúka henni, svo ég ákvað að keyra út- gáfuna í gegn sjálfur. Núna er ég að ljúka við að dreifa henni í bókaverslanir í Reykjavík og fer svo með hana út á land í næstu viku. -ing En áður en ég missi Vigdísi úr símanum spyr ég hana hvort hún sé ekki að senda frá sér nýja bók fyrir jólin næstu. „Mig grunaði að ég yrði spurð um það“ segir Vigdís og hlær. „Ég ætlaði að reyna að komast hjá því vegna þess að ég vil ekki tala mikið um það á þessu stigi málsins. En það er reyndar rétt, það kemur út skáldsaga eftir mig hjá Svörtu á hvítu fyrir jólin.“ Aðspurð hvort hún heiti eitthvað ennþá og hvort þetta sé stór og mikil bók segist Vigdís ekki vera búin að finna endanlegt nafn á hana enn. „Þetta er löng saga en ég veit ekki hvort hún er stór og mikil. Það er búið að vera mjög gaman að skrifa svona skáldsögu, þá finnur maður van- mátt sinn og sér hvað maður á í rauninni mikið eftir, en ég er mjög ánægð með að hafa gert þetta. Og ég ætla örugglega að skrifa aðra skáldsögu án þess að ég geti sagt að ég sé á einhverri sérstakri leið í lífinu. Þessi saga er nokkuð öðruvísi en mínar fyrri bækur, tíminn vinnur með manni. Ég hef sjálf breyst og er orðin öruggari gagnvart sjálfri mér að vissu leyti. Svo er þessi saga búin að lifa lengi inni í mér“ sagði Vigdís að lokum og fullyrti jafnframt að nú væri hún örugglega búin að tala nóg og kvaddi með virktum. -ing ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.