Þjóðviljinn - 18.07.1987, Qupperneq 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þlÓÐVIUINN
Laugardagur 18. júlí 1987 154. tölublað 52. árgangur
LEON:'3'if
AÐFVNHSCLLI
SKÓLACÖNQJ
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDSHF
Flugslysið
Fór betur
en á
horfðist
Flugmaðurinn marðist
illa á baki og bringu.
Flugvélin ónýt.
Áburðarflugvélin TF-TUN í
eigu Landgræðslunnar er talin
ónýt eftir að henni hlekktist á I
flugtaki fyrir framan Þórólfsfell
fyrir innan Fljótshlíð í fyrradag.
Flugmaður vélarinnar, Pétur
Steinþórsson slapp ótrúlega vel úr
slysinu. Hann var fluttur með
þyrlu Landhelgisgæslunnar til
Reykjavfkur og lagður inn á
Borgarspítalann. Líðan Péturs er
betri en á horfðist í fyrstu. Hann
marðist á baki og bringu sam-
kvæmt upplýsingum frá Borgar-
spítalanum.
Að sögn Stefáns Sigfússonar
hjá Landgræðslunni var vélin að
fara í síðustu ferðina með áburð
inn á Einhymingsflatir á Fljóts-
hlíðarafrétti.„Páll Sveinsson er
að fara í síðustu ferðina einmitt í
þessu inn á Markarfljótsaura að
dreifa áburði í beitargirðinguna
fyrir framan Þórólfsfellið. Rann-
sókn slyssins tekur einhvern tíma
og niðurstöðu ekki að vænta að
svo stöddu,“ sagði Stefán Sigfús-
son í Gunnarsholti.
-gsv
Áburðarflugið
Eitt
áhættu-
mesta
fiugið
Stefán Sigfússon:
Reynum að klára verk-
efni sumarsins með Páli
Sveinssyni
Þetta slys undirstrikar það
að áburðarflugið er eitt
áhættusamasta flugið í heiminum
og flugmenn okkar vinna undir
miklu álagi að mjög þýðingar-
miklum störfum. Við erum að
vonum ánægðir með að Pétur
skyldi sleppa þetta vel því flugvél-
in er ónýt,“ sagði Stefán Sigfús-
son hjá Landgræðslunni.
Flugvélin TF-TUN var tryggð
en hún átti ólokið nokkrum smá-
verkefnum í áburðardreifingu
þetta sumarið. Ætlun þeirra hjá
Landgræðslunni var að sýna vél-
ina á landbúnaðarsýningunni
sem verður í Reiðhöllinni í Víði-
dal í haust.
Að sögn Stefáns þá verður
reynt að klára það áburðarflug
sem eftir er í sumar með Páli
Sveinssyni eins og aðstæður
leyfa.
-gsv
Útgerðarmenn
Verðlagsráð þingar um loðnuverð ínæstu viku. Lítill áhugifyrir
loðnuveiðum. Skipin geraþað gott á rœkju
„Það er boðaður fundur í
Verðlagsráði sjávarútvegsins um
loðnuverð á flmmtudaginn í
næstu viku. Þá verður væntan-
lega tekin ákvörðun hvort loðnu-
verð verður geflð frjálst eða ekki.
Ef ekki, þá verður verðlagsráðið
að taka ákvörðun um verð og ef
ekki næst samkomulag um það
innan ráðsins, er málinu skotið til
yfirnefndar,“ sagði Sveinn Finns-
son, starfsmaður Verðlagsráðs
við Þjóðviljann.
Svo virðist sem lítill áhugi sé
meðal útgerðarmanna að hefja
loðnuveiðar um þessar mundir. f
nýjasta tölublaði Fiskifrétta kem-
ur fram að útgerðarmenn loðnu-
skipa vilji frekar treina sér kvót-
ann og halda áfram að gera út á
rækju á meðan veiði er þokkaleg
og ágætis verð fæst fyrir hana.
Sveinn Hjartarson hjá LÍÚ
segir að á meðan loðnan sé
norður við Jan Mayen þá sé lítill
áhugi hiá mörgum að hefja
veiðar. Astæðurnar fyrir því eru
einkum þrjár: langt að fara til
veiða, menn vilja treina sér kvót-
ann og veiða upp í hann þegar
loðnan sé komin nær landi og í
þriðja lagi er gott að hafa á rækj-
unni og ástæðulaust að hætta þeir hörðustu í loðnuflotanum
þeim veiðum sem gott er upp úr færu út á miðin í byrjun næsta
að hafa. Sveinn bjóst þó við að mánaðar. - grh.
Húsafellsmót
UMSB sárreitt
Sameiginlegar yfirlýsingar Kristleifs Þorsteins-
sonarog UMSB: Villandi umfjöllun-rangar
upplýsingar
Ungmennasamband Borgafj-
arðar og Kristleifur Þor-
steinsson, ábúandi og landeigandi
Skák
Jón L. og
Kasparof
bestir
Litlar sveiflur hjá íslend-
ingunum að Margeiri
Péturssyni undan-
skildum
Samkvæmt skákstigaskrá frá
FIDE er Jón L. Árnason
fremstur íslenskra skákmeistara
um þessar mundir þótt aðeins
muni hársbreidd á honum og Jó-
hanni Hjartarsyni. Jón hefur
2555 elóstig og hefur halað inn 15
frá því síðast var reiknað. Jóhann
hefur 2550, fimm stigum meira en
sfðast.
FIDE-listinn er gefinn út tví-
vegis á ári hverju og er skákgeta
manna mæld eftir svonefndum
elókvarða þar sem mat er lagt á
frammistöðu manna í keppnum
síðustu sex mánaða og þeim gefin
stig.
I þriðja sæti af íslendingum er
svo skákskribent okkar hér á
Þjóðviljanum, Helgi Ólafsson,
með 2540 sem er tap uppá 10 stig.
Missir Helga er þó lítill miðað við
fall Margeirs Péturssonar, fjórða
sterkasta skákmanns okkar sam-
kvæmt listanum, en hann hefur
glatað hvorki meira né minna en
45 stigum á hálfu ári. Hrapað úr
2535 í 2490.
Garrí Kasparof heimsmeistari
er ótvírætt besti skákmaður
heims. Hann hefur nú 2740 stig,
fjörutíu stigum meira en næsti
maður sem er vitaskuld erki-
fjandinn Anatolí Karpof.
Sjá í Heimi síðu 11
-ks.
að Húsafelli, hafa sent frá sér yf-
irlýsingar, þar sem villandi frétt-
afrásögnum ýmissa fjölmiðla af
mótshaldi og spellvirkjum að
Húsafelli er mótmælt. En sumar-
bústaðaeigendur á staðnum hafa
rekið upp eitt ramakvein mikið,
vegna fyrirhugaðrar útisamkomu
UMSB að Húsafelli um verslun-
armannahelgina.
í yfirlýsingu Kristleifs og
UMSB, segir að sambandið hafi
ekki komið nálægt mótshaldi að
Húsafelli um hvítasunnu eða
verslunarmannahelgi undanfarin
ár og sé því með öllu ómaklegt að
núa UMSB um nasir tjóni, sem
orðið hefur á sumarbústöðum og
náttúru að Húsafelli í tengslum.
við mannsöfnuð á staðnum.
- Mannsafnaður seinni ára að
Húsafelli hefur farið fram án
nokkurrar stjórnar og síst af öllu
verið á vegum UMSB, segir í yfir-
lýsingu Kristleifs, sem ber skipu-
lagi og öryggisgæslu á verslun-
armannahelgarmótum UMSB að
Húsafelli í hvívetna góða sögu,
en síðasta útihátið um verslun-
armannahelgi á vegum sam-
bandsins var 1976.
-RK
A-ha! Bond! Svar Norðmanna við Kristjáni Jóhannssyni, rokksveitin A-ha.
hélt (gærkvöldi mikla tónleika í Laugardalshöll, og endurtekur leikinn í kvöld. I
gær brugðu Aha-arar sér á frumsýningu nýjustu Bond-myndarinnar í Bíóhöll-
inni, en þar eiga þeir titillagið, A-ha settist í sætin sín, horfði á hvíta tjaldið í fimm
mínútur þangað til lagið var búið, sögðu aha, og flýttu sér út aftur. (mynd: Ari).
Útvarp Rót
Grasrótin í loftið
Félagshyggjufólk sameinast um útvarpsrekstur. Útsendingar um áramót. Kristján
Ari Arason: Útvarp félagshyggju og talaðs máls
- Þetta verður útvarp hins tal-
aða máls, enda er vart vanþörf á í
öllu því plötusnúðaflóði sem hellt
. er yfir allan landslýð. Meiningin
er að þarna geti þau félagasamtök
fengið að útvarpa sem ekki er
ábcrandi í „frjálsu fjölmiðlun-
um“ og ríkisfjölmiðlunum. Þetta
verður útvarpsstöð grasrótarinn-
ar, sagði Kristján Ari Arason,
sem á sæti f stjórn útvarpsfélags-
ins Rótar, en aðstandendur þess
koma úr ýmsum samtökum á
vinstri kantinum.
- Að óbreyttu hefjum við út-
sendingar í upphafi nýs árs og
sendum aðallega út seinnipart
dags og á kvöidin virka daga, en
eitthvað lengur um helgar. Stöð-
in mun fyrst og fremst sinna dag-
skrárgerð um friðar- verkalýðs-,
jafnréttis-, umhverfis- og menn-
ingarmál og öðrum góðum mála-
flokkum í anda félagshyggju,
sagði Kristján Ari Arason.
Aðstandendur Rótar áætla að
stofnkostnaður útvarpsstöðvar-
innar sé um 3 milljónir króna. Á
næstunni verður opnað hlutafjár-
útboð og geta einstaklingar, sem
og félagasamtök, sem treysta sér
til að taka þátt í sameiginlegum
útvarpsrekstri á lýðræðislegan
hátt, keypt hlutabréf í grasrótar-
útvarpinu Rót.
- RK
Of langt í loðnuna