Þjóðviljinn - 26.07.1987, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 26.07.1987, Qupperneq 16
Echo And The Bunnymen - Echo And The Bunymen Því er ekki að neita að þessa nýjasta afkvæmis Echo And The Bunnymen hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu. Tals- verðir erfiðleikar hafa hrjáð sveitina að undanförnu og fór langur tími í vinnslu á plötunni. Útkoman er svo þessi nýja plata sem ég held að sé jafnframt ein- hver sú aðgengilegasta sem þeir hafa sent frá sér. Þeir hafa fremur litið til baka en fram á veginn og tónlistin ber þess augljós merki. Söngur Ian McCuIloch er undir greinilegum áhrifum frá Jim Morrison og reyndar er platan öll undir áhrif- um frá Doors. Allt þetta hefur þó ekki áhrif á þá staðreynd að þetta er gæðagripur. Lögin hvert öðru betra og svo sannarlega kominn tími til að Echo And The Bunn- ymen slái hressilega í gegn eins og ég vonast til að þeim takist með þessari plötu sinni. Decon Biue - Raintown Decon Blue er ein af þeim sveit- um sem hafa á undanförnum vik- um vakið athygli gagnrýnenda í Bretlandi og ástæðan er augljós þegar maður hlustar á þessa plötu þeirra. Tónlistin er í anda þess sem Prefab Sprout og Loyde Cole hafa verið að gera. Pað verður að segjast að hér er á ferðinni ein af þeim skífum sem auðvelt er að hnfast af og í alla staði um vönduð vinnubrögð að ræða. Reyndar fór söngurinn of- urlítið í mig, en það spillir ekki fyrir tónlistinni. Það kæmi mér ekki á óvart að þessi hljómsveit ætti eftir að gera það gott í náinni framtíð. Piata sem ég get án nokkurs vafa mælt með við alla þá sem heyra vilja vandað popp í anda Prefab Sprout. Centaur - Blús-djamm Það er varla hægt að segja að hljómsveitin Centaur hafi verið of áberandi í íslensku tónlistarlífi þau 5 ár sem hún hefur starfað. Það kemur manni því skemmti- lega á óvart þegar þeir taka nú upp á því að gefa út plötu sem er einstök í sinni röð á íslenskum tónlistarmarkaði. Hér er um að ræða plötu sem er uppfull af alveg bráðhressum og skemmtilegum blúslögum. Það er nokkuð víst að hér er ekki plata sem verður ein af þeim mest seldu, en hinsvegar ætti hver ein- asti áhugamaður um blús á ís- landi að verða sér úti um hana. Reyndar er það nokur galli að ekki er á plötunni neitt frum- samið lag. (En hvað er svo sem frumsamið í blúsnum?) Traustur gripur sem setur skemmtilegan svip á íslenska sumarplötuflóðið sem hefur að því er virðist aukið áhuga kaupenda og hlustenda á íslenskri tónlist og er það vel. Youssou N’dour And Super Eto- ile De Dakar - Nelson Mandela Afrisk tónlist heyrist ekki mikið hér heima og það er alltaf skemmtileg tilbreyting að heyra tónlist sem ekki er ættuð frá eng- ilsaxnesku löndunum. Að gerast dómari á slíka gripi er síðan alltaf erfiðara eins og gefur að skilja þegar samanburðurinn er ekki mikill. Youssou N’dour er ættaður frá Nígeríu og vakti fyrst á sér athygli er hann kom fram með Peter Ga- briel á plötu þess síðarnefnda. Því það eru margir aðrir en Paul Simon sem starfað hafa með afr- ískum tónlistarmönnum, þó að hann hafi kannski auglýst það meira en aðrir. Þessi gripur er þó áhugaverður fyrir þá sem vilja kynnast tónlist Afríku betur og milliliðalaust. Því hefur verið spáð undanfar- in ár að afrísk tónlist muni í auknum mæli hafa áhrif á Vestur- löndum, en hvort það reynist rétt vil ég ekki segja neitt um. Þessi plata á varla eftir að sjást á vinsældalistum, en fyrir þá sem kynnast vilja tónlist annarra landa en Bretlands og Bandaríkj- anna er þessi plata tilvalin. POPPSÍÐAN Plötudómar SIGMUNDUR HALLDÓRSSON Stones... A-ha með glœsibrag Tónleikar þeir sem haldnir voru með hljómsveitinni A-ha um síðustu helgi í Laugardalshöll- inni, sönnuðu það rækilega að hægt er að halda tónleika hér á landi þar sem fara saman góð og þekkt hljómsveit og gott skipulag. Til að gefa nokkra hugmynd um hversu vel tókst til held ég að mér sé óhætt að segja að þeir sem ekki fóru á þessa tónleika geti nú setið heima og nagað sig í handar- bökin. Tónleikarnir hófust stundvíslega klukkan 10 og næstu 2 klukkutíma var keyrt í gegnum prógram sem fékk jafnvel ís- lenska tónleikagesti til að klappa óumbeðna. Ljósadýrð og reykur jók enn á stemmninguna og á tímabili virtist allt vera að sjóða uppúr, slík var stemmningin. Það var þó eitt sem skyggði á, ófyrir- gefanleg mistök í hljóðblöndun. Það að gítar detti út og hljómsveit taki sér hlé til að laga hljóðið er allt í lagi fyrir minni háttar nöfn en slíkt er ófyrirgefanlegt hljóm- ur sem greitt hafa 1500 krónur til að sjá og heyra slíka sveit eiga heimtingu á því að svona hlutir séu í lagi. Sveitin sem skipuð er fjórum aðstoðarmönnum (trommara, ásláttarleikara, bassaleikara og hljómborðsleikara) stóð sig ann- ars með miklum ágætum og þegar hljóðið var í lagi heyrðist greini- lega að hér var á ferðinni þrautþjálfuð sveit sem greinilega á þær vinsældir sem hún hefur aflað sér skilið. Það er líka afar gleðilegt að ís- lenskum áhorfendum sé boðið upp á jafn góða sveit og ég vona að von sé á fleiri góðum sveitum á næstunni og óska ég SpliíT prom- otions alls hins besta í þeim efn- um. Þessir tónleikar voru svo sann- arlega peninganna virði og engin ástæða til annars heldur en að ætla, að allir þeir sem börðu hljómsveitina A-ha augum og eyrum séu fyllilega sammála því. Husker Du Vor í bandarísku rokki - 2. grein er rétt að vekja athygli á því að í grein minni um R.E.M. sem birtist um síðustu helgi féll niður nafn einnar breiðskífunnar, „Life Rich Pagent" og er hér með beðist velvirðingar á því. Næst í röðinni í þessari kynningu minni á athyglisverðum sveitum frá Bandaríkjunum er hljómsveit Húsker Du. Sveitin var stofnuð í mars 1979 í Minneapolis, Minn- esota af þeim Bob Mould (gítar, söngur), Grant Hart (trommur, söngur) og Greg Norton (bassi). Þeir gáfu út sína fyrstu breið- skífu út 1981, var það hljóm- leikaplata sem bar nafnið „Land Speed Record“. Það var þó ekki fyrr en 1984 sem þeir félagarnir vöktu athygli gagnrýnenda, enda höfðu tvær fyrstu skífur þeirra verið fremur hráar og einkum höfðað til pönkkjarna sem ann- ars hlustaði mest á Dead Kcnne- dys eða svipaðar sveitir. Það sem vakti athygli gagnrýnenda var tvöfalda albúm- ið „Zep Arcade" þar sem var að finna lög af slíkri gerð, allt frá Avant-garde til pönks. Allt frá 1984 hafa þeir félagar verið í miklu uppáhaldi meðal gagnrýn- enda bæði vestanhafs og austan og hafa komið frá þeim fjórar breiðskífur fram til þessa: „New Day Rising“ (1985), „Flip Your Wig“ (1985), „Candy Apple Grey“ (1986) og nú í byrjun þessa árs tvöfalda albúmið „Ware- house: Songs And Stories. í tónlist Hiisker Du er gítar- leikur Bob Mould áberandi, en hann þykir afbragðs góður og segja sumir að hann hafi samein- að það besta frá Jimi Hendrix og Pete Townsend. Það er líka gífurleg breidd í tónlist Húsker Dú, þar má heyra hráan kraft pönksins í stíl við Clash og Ramones; ljúfar melódí- ur í anda Bítlanna og hljóm sem minnir á Sonic Youth og Butthole Surfers. Textar tríósins þykja líka góðir en þeir Bob Mould og Grant Hart semja þá flesta, og má líkja þeim við svart og hvítt því Mould þykir einkar raunsær á meðan Hart sér um rómantíkina. Eins og áður sagði eru þeir fé- lagar í talsverðu uppáhaldi meðal gagnrýnenda og hefur gagnrýn- andi „Rolling Stones“ hins virta bandaríska tónlistartímarits jafnvel gengið svo langt að kalla þá mikilvægustu hljómsveit bandarísks rokks. Gagnrýnendur N.M.E. hafa auk þess valið nýj- ustu afurð sveitarinnar níundu bestu plötu sem komið hefur út það sem af er þessu ári og er allt eins líklegt að hún haldi því sæti í ársuppgjöri sama blaðs. Husker Du á ekki eftir að verða valin popphljómsveit mán- aðarins, enda er tónlist þeirra ekki beint bragð mánaðarins. Þeir eiga aftur á móti eftir að verða þeim sem nenna að leggja sig eftir tónlist þeirra, til upplífg- unar og jafnvel hjálpa þeim til að takast á við daginn í dag. Að lokum vitna ég aðeins til Bob Mould: „Góð spurning er miklu betri en lélegt svar. Ef þú veist öll svörin til hvers þá að halda áfram? Allar langanir eru horfnar, öll spenna, ástæðan til þess að lifa...“ 16 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Sunnudagur 26. júlí 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.