Þjóðviljinn - 30.07.1987, Page 6
MINNING
FLÓAMARKAÐURINN
Veiðileyfi
Veiðileyfi í Langavatni. Góð að-
staða í húsum og traustir bátar.
Einnig er hægt að fá aðstöðulaus
veiðileyfi. Nánari upplýsingar gefur
Halldór Brynjólfsson í síma 93-
7355.
Til sölu
Gömul handverkfæri fyrir tré og járn
til sölu. Seljast ódýrt. Upplýsingar í
síma 18648 eftir kl. 17.
3 kátir kettlingar
hraustir og hreinlegir, indælir og
undurfagrir óska eftir góðum
heimilum. Móabarö 30, sími 52104,
Hafnarfirði.
íbúð óskast
Hjón með eitt barn óska eftir 2-3
herbergja íbúð hvar sem er í
Reykjavík eða nágrenni. Öruggar
greiðslur. Vinsamlegast hringið í
síma 18583.
Vinir og vandamenn
verða í Þórsmörk
5.-9. ágúst. Þeir sem vilja slást í
hópinn láti vita hjá Bjarna Ólafs. í
síma681971 eðaSigrúnuogGullaí
síma 41596.
Lítil strauvél
fæst gefins. Upplýsingar í síma
13226.
Kæru kattavinir
Nú erum við að verða 6 vikna og
allir farnir að pissa í sandinn. Við
viljum vera hjá mömmu í a.m.k. 2
vikur í viðbót, því hún á eftir að
kenna okkur ýmislegt sem góðar
kisur þurfa að kunna. Ykkur sem
langar til að eignast lítinn kisustrák
er velkomið að koma og skoða okk-
ur eða fá upplýsingar um okkur í
síma 18114.
4 kisustrákar á Flókagötu
Starfsmann Þjóðviljans
vantar litla íbúð. Skilvísum
greiðslum og mjög góðri umgengni
heitið. Upplýsingar í síma 35236.
íbúð óskast
Tvær 25 ára reglusamar stúlkur
óska eftir að taka íbúð á leigu. Vin-
samlegast hringið í síma 10099 milli
kl. 5 og 7.
Sósíalískt neyðarkall
Miðaldra komma vantar nú þegar
3-4 herbergja íbúð í 6-12 mánuði.
Erum 3 í heimili (á götunni). Fækkið
ekki geirfuglunum frekar. Upplýs-
ingar í síma 72399, Sigurður.
Til sölu
3 sæta sófi á kr. 1.000, sófaborð á
kr. 500, barnarimlarúm á kr. 1.000
og kaffivél á kr. 700. Upplýsingar í
síma 621454 eftir kl. 17.
Hljómfiutningstæki
til sölu
3 ára Toshiba samstæða með
splunkunýjum leysispilara. Selst á
kr. 42.000,- Upplýsingar í síma
17287.
Til sölu
Philco þvottavél, 6 mánaða gömul.
Selst ódýrt vegna brottflutnings.
Einnig sófaborð úr furu og IKEA
eldhúsborð á mjög hagstæðu verði.
Hafðu samband við Hjördísi í síma
19842.
Til sölu
svefnbekkur með lausum púðum
og rúmfataskúffu. Mjög sanngjarnt
verð. Upplýsingar í síma 35440 eftir
kl. 14.
Til sölu
baðkar, vaskur og klósett (notað).
Einnig borðstofuborð og 4 stólar.
Upplýsingar í síma 681182.
Óskast keypt
Óska eftir að kaupa bílútvarpstæki
með segulbandi, ódýrt. Upplýsing-
ar í síma 681331 kl. 9-17 og í síma
13462 eftir kl. 18.
Til sölu
alveg nýr IKEA svefnsófi og tveir
samstæðir stólar. Selst saman eða
sitt i hvoru lagi. Upplýsingar í síma
13094 e. kl. 20.
Hefjið námið snemma
Einkatímar í ensku og þýsku. 400
kr. klst. Sími 21665 Jón.
Reiðhjól
26“ kvenreiðhjól, 3 gíra í mjög góðu
ásigkomulagi. Upplýsingar í síma
79473 eftir kl. 17.
Vel nothæft
sv./hv. sjónvarp er til sölu á kr. 2
þús. Upplýsingar í síma 13387.
Hjónarúm til sölu
frá IKEA (bæsuð fura), 6-7 ára
gamalt, með 2 náttborðum og dýn-
um. Upplýsingar í síma 20045.
Lausar stöður við námsbraut í hjúkrunar-
fræði við Háskóla íslands
Eftirtaldar stöður við námsbraut í hjúkrunarfræði við læknadeild
Háskóla íslands eru lausar til umsóknar:
1) Staða lektors í hjúkrun sjúklinga á handlækninga- og lyflækn-
ingadeildum.
2) Staða lektors (50%) í hjúkrun sjúklinga á handlækninga- og
lyflækningadeildum.
3) Staða lektors (50%) í hjúkrunarfræði með hjúkrunarstjórnun sem
aðalkennslugrein.
4) Staða dósents í sýkla- og ónæmisfræði, 37% staða til fimm ára.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og fyrri störf, skulu sendar
til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 20.
ágúst 1987.
Menntamálaráðuneytið,
27. júlí, 1987.
Útför eiginmanns míns, fööur, tengdaföður og afa
Árna Gíslasonar
Ásbúðartröð 9, Hafnarfirði
verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 31. júlí
kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Slysavarnafélag
fslands.
Ester Kláusdóttir
Ásgeir Árnason
Páll Árnason
Kristín Árnadóttir
Hólmfríður Árnadóttir
Anna Pálína Árnadóttir
og barnabörn
Sigríður Jóhannesdóttir
Bryndís Skúladóttir
Einar Sindrason
Friðrik Rúnar Guðmundsson
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Hallmar Freyr
Bjamason
múrarameistari
Fœddur 21.11. 1931 Dáinn 21.7. 1987
„Beysi er dáinn“. Andláts-
fregnir vina og þess fólks, sem við
höfum alist upp - og starfað með
valda ætíð sársauka og þessi orð
vinnufélaga míns gerðu svo. Þau
tóku eitthvað frá mér, eitthvað
sem fór og kæmi ekki aftur.
Þegar ég hafði náð áttum eftir
þessa harmafregn sá ég þó að
mikið var skilið eftir. Minning
um góðan dreng og verk hans og
störf, sem vissulega flestir hús-
víkingar þekkja og hafa notið
sjálfir eða börn þeirra. Minning
um kjarkmikinn mann, sem gekk
ódeigur til verka með óbilandi trú
á málstað sinn og hugsjónir.
Fyrstu minningar mínar um
Frey eru frá barnsaldri, um
gjörvilegan rómsterkan ungling,
sem greinilega var foringi hópsins
og sá sem á var hlustað. Þetta var
glaðsinna drengur og gaman-
samur án alls yfirlætis. Þetta voru
eðliskostir, sem fylgdu honum
ætíð við störf og í leik.
Freyr var hæfileikaríkur skap-
gerðarmaður, eins og hann átti
kyn til, en glettni og einstakur
hæfileiki til að sjá jafnan það
spaugilega hverju sinni, voru
honum þó jafnan nærtæk.
Freyr var stax á unga aldri ötull
félagsmálamaður og leiðir okkar
lágu saman í íþróttum og pólit-
ísku starfi.
Fyrst innan Völsungs í ung-
lingastarfi félagsins íþróttum og
leik. Þaðan eru margar skemmti-
legar minningar eins og um
söfnunarferðir fyrir áramóta-
brennur félagsins undir rögg-
samri stjórn hans. Máttu þá
margir gæta þess, að það sem þeir
töldu dýrmætar eigur væri ekki
dæmt og forgengilegt talið og því
snarað upp á Skálamel í brennu.
Ekki eru síður minnisverðar
margar keppnisferðir í nágranna-
bygðir og önnur héruð. Skipti þá
ekki alltaf miklu hver höfðu orð-
ið úrslit keppninnar þegar heim
var haldið, því að þegar Freyr
hafði fjallað um atburði dagsins,
með sínum sérstöku frásagnar-
hæfileikum, skildist manni að úr-
slitin höfðu í alla staði verið mjög
eðlileg hvort sem þau gengu með
eða mót, miðað við öll þau maka-
lausu sérkenni sem andstæðingar
okkar höfðu haft til að bera og
Freyr kunni manna best að lýsa.
A hinum pólitíska vettvangi
áttum við einnig samleið. Við
vorum báðir félagar í Æskulýðs-
fylkingunni, félagi ungra sósíal-
ista á Húsavík, ásamt mörgum
öðrum ungmennum, sem vildu
reyna að bæta samfélag okkar
undir merkjum sósíalisma og fé-
lagshyggju, en Freyr var lengst af
formaður þess félags. í Alþýðu-
bandalagsfélagi Húsavíkur áttum
við einnig samleið. Eins og að lík-
um lætur um mann eins og Frey,
komst hann ekki hjá því að taka á
sig margvísleg ábyrgðarstörf fyrir
flokk sinn og sveitarfélag.
í sveitarstjórnarkosningum
1962, var Freyr valinn til að skipa
þriðja sæti á lista Alþýðubanda-
lagsins, sem þá var baráttusæti.
Freyr náði kosningu með glæsi-
brag, enda naut hann óskoraðs
trausts og álits pólitískra sam-
herja sinna og fjölmargs ungs
fólks af ýmsum pólitískum toga. f
tuttugu ár sat Freyr í bæjarstjórn
Húsavíkur og gegndi jafnframt
fjölmörgum trúnaðarstörfum
öðrum á þeim vettvangi og fyrir
íþróttahreyfinguna á Húsavík.
Síðastliðin 35 ár hefur Freyr
verið einn af forystumönnum
íþróttafélagsins Völsungs og for-
maður þess frá 1978 og til ævi-
loka.
Á vettvangi æskulýðs- og
íþróttamála á Húsavík hefur
hann af ótrúlegri elju og ósér-
hlífni unnið frábært starf, sem
seint verður fullþakkað eða of-
metið. Mér er til efs, og vil þó
ekki gera lítið úr starfi fjölmargra
karla og kvenna að þessum mál-
um, að nokkur annar samtíðar-
manna okkar á Húsavík hafi lagt
fram jafn mikið og óeigingjarnt
starf að þessum málum og Freyr
Bjarnason.
Þar er nú skarð fyrir skildi, sem
hann var, og kann að reynast sem
stundum áður, að það verði
vandfyllt þegar jafn ágætur liðs-
maður er horfinn af vettvangi.
Eins og eðlilegt er, með jafn
áberandi mann og Freyr Bjarna-
son var í okkar samfélagi, þá var
hann á stundum umdeildur. Hjá
slíku verður sjaldan komist þegar
menn standa í fararbroddi og það
var ekki hálfvelgja eða lognmolla
þar sem hann fór.
Ég veit að flestir þeir, sem með
honum störfuðu að margvís-
legum verkefnum fyrr og síðar,
munu sakna hans sem eftirminni-
legs samstarfsmanns, vinar og fé-
laga.
Þungur harmur er kveðinn að
fjölskyldunni að Sólvöllum 6, og
ættingjum, enda sárt að sjá á eftir
ástvinum á besta aldri, mitt úr
önn dagsins.
Með fjölskyldu sinni var Freyr
sá möndull, sem flest snerist um.
Styrkur þeim sem á þurftu að
halda, félagi, vinur og gleðigjafi.
Þar er margs að sakna og mikils
að minnast.
Eftirlifandi eiginkonu hans,
Guðrúnu Ingólfsdóttur, börnum
þeirra og barnabörnum, sendi ég
hugheilar samúðarkveðjur mínar
og fjölskyldu minnar.
Snær Karlsson
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við framhaldsskóla:
Við fiskeldisbraut Kirkjubæjarskóla Kirkjubæjarklaustri er laus
staða kennara í efnafræði/líffræði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 10.
ágúst nk.
Menntamálaráðuneytið.
Pví skal þér, bróðir,
þessi kveðja
allshugar send
þó orðfá sé,
því skulu þér
þökkuð, bróðir
öll hin liðnu ár.
68 18 66
DJOÐVILJINN
' É8 13 33
Blaðburður er
3S2H3HEE3I
LAUS HVERFI NU ÞEGAR:
ríminn
68 63 00
Bræðratunga
Hrauntunga 2-48
Vogatunga
Háteigsvegur
Langahlíð
Flókagata
Viðjugerði
Seljugerði
Hlyngerði
Furugerði
Espigerði
Heiðargerði
Hvammsgerði
Brekkugerðl
Stóragerði
■S S
Bakkagerði
Steinagerði
Skálagerði
Stekkir
Esklhlið
Mjóahlíð
Hvassaleiti
Háaleitisbraut 68
Akurgerði
Grundargerði
Búðargerði
Sogavegur 2-70
Sogavegur101-212
Borgargerði
Rauðagerði
Austurgerði
Haföu samband við okt
Síðumúla 6
0 68 13 33
(Guðm. Böðv.)
Hallmar Freyr Bjarnason
fæddist í Hallgrímsbæ á Húsavík
21. nóvember 1931. Á Húsavík
vann hann allt sitt ævistarf að
undanteknum tveimur vertíðum
er hann sótti sjó af Suðurnesjum.
Foreldrar Freys voru Bjarni
Ásmundsson, sem lifir son sinn
og Kristjana Helgadóttir, sem
látin er fyrir nokkrum árum.
Bjarni og Kristjana eignuðust sex
syni, sem allir lifa bróður sinn, en
þeir eru Helgi, Ásmundur, Hall-
dór, Hreiðar, Pétur og Jón Ág-
úst.
Freyr ólst upp á Húsavík við
fremur kröpp kjör því oft var
þröngt í búi á alþýðuheimilum á
þeim tíma. Mótuðust á uppvaxt-
arárum þjóðfélagsskoðanir hans,
sem einkenndust af samúð með
öllum þeim sem minnimáttar eru.
Með Frey fellur frá góður
drengur. Hann var vel til forustu
fallinn og kom það snemma í ljós.
Sem dæmi um það má nefna að
við drengir á Húsavík, búsettir
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN