Þjóðviljinn - 30.07.1987, Síða 7
MINNING
sunnan Búðarár stofnuðum með
okkur félag er við nefndum
Drengjafélagið Val. Þeir sem að
félaginu stóðu voru á aldrinum
10-12 ára. Ekki man ég hvernig á
því stóð að við stofnuðum fé-
lagið, en sennilega áttum við ekki
samleið með drengjum sem áttu
heima norðan Búðarár. Starf-
semi félagsins voru margskonar
íþróttir og ein tombóla var haldin
á ári og andvirðið gefið til gam-
alla og fátækra hér í bæ. Auðvit-
að var Freyr valinn til forustu
ásamt fleirum og aldrei var svo
þröngt í gamla Grafarbakka að
ekki væri hægt að koma saman
þar til félagsfunda ef á lá. A ég
margar góðar minningar frá þeim
tíma.
Á þessum æskuárum Freys
þegar hann horfði upp á fátækt,
illa klædda félaga sína í vetrar-
kuldum, blauta og kalda í leik og
starfi mótuðust þjóðfélagsskoð-
anir hans og þær hugsjónir sem
hann barðist fyrir sína lífstíð,
hugsjónir athafna og samhjálpar.
Hann starfaði í félagi Ungra sós-
íalista á Húsavík og lét sig aldrei
vanta á málfundi er vörðuðu hug-
sjónir sósíalista og framtíð Húsa-
víkurbæjar. Freyr lærði múrara-
iðn og var einn af stofnendum
Varða h.f. og sá um bygginga-
framkvæmdir á vegum fyrirtækis-
ins. Hann var um tíma lögreglu-
þjónn, en síðustu árin starfaði
hann við verkstjórn hjá Fiskiðju-
samlagi Húsavíkur.
Hann kvæntist árið 1952 Guð-
rúnu Ingólfsdóttur frá Húsavík.
Eignuðust þau 5 börn, Þuríði,
Katrínu, Ingólf, Jónu Björgu og
Svein. Freyr og Guðrún voru ein-
staklega samhent. Á sama tíma
og þau tóku saman árið 1952, var
hann kosinn í Knattspyrnuráð
Völsunga og árið 1954 var hann
kosinn í aðalstjórn félagsins og
formaður félagsins var hann frá
árinu 1978. Enginn vafi er á því
að sú starfsemi í æskulýðs- og
íþróttamálum í 35 ár hefur farið
að einhverju leyti fram á heimili
þeirra hjóna, þannig að fjöl-
skyldan öll hefur tekið þátt í
þessu starfi og oft verið ónæðis-
samt á heimilinu af þeim sökum.
Freyr var kosinn í bæjarstjórn
Húsavíkur árið 1962 og var í bæ-
jarstjórn ýmist sem aðalfulltrúi
eða varamaður í tvo áratugi.
Hann var afkastamaður í öllu
sem hann tók sér fyrir hendur og í
bæjarstjórn var hann skemmti-
legur ekki síst vegna þess hvernig
hann flutti mál sitt og hversu
auðvelt hann átti með að koma
skoðunum sínum á framfæri. Þó
Freyr væri alvörumaður var hann
jafnframt gamansamur þegar það
átti við. Hann var áhugamaður
um fjölmörg mál en stór hluti
starfa hans voru helguð
æskulýðs- og íþróttamálum. Þau
markmið um aðstöðu fyrir
íþrótta- og æskufólk hér í bæ sem
Freyr barðist fyrir hafa náðst að
stórum hluta. Sá hann þar
drauma sína rætast að nokkru
leyti. Það er erfitt að sætta sig við
það, að hann skuli ekki fá að
njóta þeirrar aðstöðu sem hann
átti svo stóran þátt í að skapa,
með því að fylgjast með húsvískri
að Húsvík væri ekki það sem hún
er í dag ef ekki nyti við hugsjóna-
og framkvæmdamanna á borð við
Frey Bjarnason.
G-listamenn á Húsvík og fjöl-
skyldur þeirra, félagar og vinir
um áratugaskeið biðja þess að
blessun Guðs fylgi Hallmari Frey
Bjarnasyni um leið og við vottum
eiginkonu, börnum, föður,
bræðrum og öðrum vanda-
mönnum innilega samúð í sárum
harmi.
Kristján Ásgeirsson
Þegar ég kom til Húsavíkur
fyrr á þessu sumri hafði æskuvin-
ur minn og leikbróðir Freyr
Bjarnason verið fluttur sama
daginn helsjúkur til Akureyrar.
Hann hafði þennan sama dag
hnigið niður við vinnu sína, þrem
vikum síðar var hann látinn.
Freyr fæddist á Húsvík 21. nóv-
ember 1931. Þar ól hann aldur
sinn og þar var hans starfsvett-
vangur. í þann tíð báru hús á
Húsavík nöfn en ekki númer.
Lengst af átti Freyr heima í Graf-
arbakka og við það hús var fjöl-
skyldan kennd. Foreldrar Freys
voru Kristjana Helgadóttir Fló-
ventssonar á Húsavík og maður
hennar Bjarni Ásmundsson sjó-
maður og fiskverkandi þar. Graf-
arbakkabræður voru sjö talsins
og Freyr fjórði í röðinni.
Á þeim tíma sem við vorum að
alast upp var Húsavík gjarnan í
daglegu tali skipt í tvö hverfi.
Búðaráin rennur í gegn um bæinn
og skiptir löndum í norður og
suður. Svo sem gjarnt er með
unglingum var nokkur rígur milli
bæjarhlutanna. Grafarbakki stóð
rétt norðan árinnar, en þó var
það svo að Grafarbakkastrákar
voru alla tíð taldir tilheyra Suður-
bæingum. Þeir höfðu átt þar
heima áður og frændur þeirra
flestir bjuggu þar. Lífið á Stang-
arbakkanum, en við hann var
stór hluti af byggðinni í Suður-
bænum kenndur, einkenndist af
mikilli samheldni fólksins. Flest
voru það sjómannafjölskyldur
sem oft bjuggu við kröpp kjör.
Þar voru menn tilbúnir að að-
stoða hverjir aðra Jjegar erfið-
leika bar að garði. A Helgastöð-
um sem var á Stangarbakkanum
bjó í æsku Freys, Helgi Flóvents-
son afi hans og Jóhanna Jóhanns-
dóttir. Síðar bjuggu þar börn
þeirra. Þarna var miðstöð fjöl-
skyldunnar og leið vart sá dagur
að ekki væri komið við á Helga-
stöðum. Þar áttum við krakkarn-
ir á Stangarbakkanum jafnan at-
hvarf. Helgi var annálaður fyrir
skemmtilegheit bæði sem eftir-
herma og leikari. Hann var einn-
ig góður hagyrðingur. Leikhæfi-
leikar hans hafa í ríkum mæli
erfst til afkomendanna en Helgi
er langafi Hallmars Sigurðssonar
leikhússtjóra í Reykjavík.
Bjarni faðir Freys var mikill
veiðimaður og sjósóknari. Hann
hafði einnig all margar skepnur
svo sem títt var á þeim tíma.
Freyr var honum fylgispakur í
umhirðu um kindurnar.
Milli fjölskyldna okkar var
mikill samgangur og vinátta. Við
drengirnir á Stangarbakkanum
héldum stíft hópinn og sú vinátta
hélst til fullorðinsára. Það kom
fljótt fram í þeim félagsskap að
Freyr var til forystu fallinn. Ilann
var snemma virkur í drengjafé-
laginu sem við stofnuðum og
kölluðum Val. Krókurinn
beygðist því snemma til þess sem
verða vildi. Á þeim árum sem við
vorum að alast upp var félags-
málaáhugi mikill á Flúsavík. Ekki
síst voru verkalýðsmál ofarlega á
baugi og fjölskyldur okkar mjög
tengdar því.
Þannig var það umhverfi sem
Freyr Bjarnason var alinn upp í,
umhverfi samhjálpar og félags-
legra lausna. Það var góður skóli
fyrir þau mörgu félagsstörf sem
hann átti eftir að sinna.
Að loknu skyldunámi fór Freyr
til sjós og stundaði sjómennsku
þar til hann hóf nám í múraraiðn
1960. Sveinsprófi lauk hann 1964
og meistarabréf fékk hann 1967.
Upp frá þeim tíma var hann bygg-
ingameistari á Húsavík og var í
forsvari fyrir fjölda bygginga.
Hann stofnaði ásamt fleiri múr-
urum byggingafyrirtækið Varða
h.f. sem var verktakafyrirtæki og
starfaði til fjölda ára á Húsavík.
Freyr var jafnan verkstjóri við
byggingar þess fyrirtækis. Hin
síðari ár hafði Freyr eftirlit með
og sá um byggingar Fiskiðjusam-
lags Húsavíkur og nú síðast var
hann verkstjóri við fiskmóttöku
samlagsins. Þannig er sem í stystu
máli atvinnusaga hans. En hún
segir ekki nema fátt um störf
Freys.
Hann tók snemma mikinn þátt
í félagsstörfum á Húsavík og held
ég að á fáa sé hallað þó sagt sé að í
það eyddi hann meira af frístund-
um sínum en flestir aðrir og allt
án endurgjalds. Hann tók mikinn
þátt í starfi Leikfélags Húsavík-
ur, sem fleiri ættmenn hans og
var virkur félagi í Karlakórnum
Þrym. En æskulýðsmál höfðuðu
þó mest til hans. í stjórn íþrótta-
félagsins Völsungs var hann kjör-
inn 1952 og formaður þess féíags
frá 1979. Starf Völsungs og fram-
gangur æskulýðs- og íþróttamála
á Húsavík var honum mikið
hjartansmál. Manni fannst á
stundum eins og hann væri reiðu-
búinn að fórna hverju sem var til
þess að það starf mætti heppnast.
Á þeim tíma sem Freyr var í
stjórn þess félags er mér óhætt að
segja að enginn hafi átt jafn mik-
inn þátt í velgengni þess. Enginn
var duglegri að halda uppi barátt-
uandanum þegar illa áraði og
enginn jafn snjall að halda uppi
góðum húmor þegar mest á reið.
Það er hverju bæjarfélagi
ómetanlegt að eiga slíka eldhuga,
eldhuga sem taka hagsmuni
fjöldans fram yfir eigin hag. Þau
stórvirki sem unnin hafa verið á
Húsavík í þágu íþróttamála eru
ekki síst hans verk. Gestir þeir
sem sóttu Húsavík heim á nýaf-
stöðnu landsmóti sáu þau verk.
Þeir heimsóttu Víkina í sínu feg-
ursta skarti. Freyr gat ekki notið
þess sem hann hafði þó svo dyggi-
lega að unnið. Hann var þá orð-
inn helsjúkur. Það mun þó hafa
glatt hann mikið í þessari erfiðu
sjúkdómslegu að fá fréttir af því
hvað allt hafði gengið vel fram og
verk hans í gegnum tíðina höfðu
borið jafn tígulegan ávöxt. Æska
Húsavíkur og foreldrar fá seint
þakkað þessum manni allt það
fórnfúsa starf sem hann vann í
þágu þeirra.
Árið 1962 var Freyr kjörinn
bæjarfulltrúi á Húsavík. Hann
átti sæti í bæjarstjórn í nærfellt
tuttugu ár. Þar hlóðust á hann
ótal störf. Hann lét mjög til sín
taka í byggingamálum bæjarins
og átti sæþ í bygginganefnd frá
1962. Hanh var í forystu í íþrótt-
amálum innan bæjarstjórnar og
baráttumaður fyrir byggingu
íþróttavallar og íþróttahallar eins
og fyrr getur. Hann var í bygg-
inganefnd Félagsheimilis Húsa-
víkur og rekstrarnefnd þess.
Hann var í stjórn Hótels Húsa-
víkur frá 1978. Þannig mætti enn
halda áfram langri tölu um störf
Freys sem bæjarfulltrúa. Við síð-
ustu bæjarstjórnarkosningar gaf
hann ekki kost á sér til endur-
kjörs en átti áfram sæti í nokkrum
nefndum á vegum bæjarins. Þrátt
fyrir öll þau störf sem hér hafa
verið rakin átti Freyr sér hugðar-
efni sem veitti honum oft mikla
hvíld og ánægju í önnum dag-
anna. Hann hafði mikla náttúru
til búskapar og hafði nautn af því
að umgangast sauðfé og hesta.
Hann var alinn upp við búskap og
nú hin síðari árin átti hann nokkr-
ar kindur og hesta hefur hann
lengi átt. Hann var formaður
Fjáreigendafélags Húsavíkur,
virkur þar sem annars staðar.
Heimur rollukarlanna var honum
dýrmætur. Þar gafst tóm til af-
slöppunar og þó bústanginu
fylgdi aukið álag var í því ákveðin
fullnæging, ákveðin lífsnæring.
En hvernig var svo maðurinn
sjálfur? Skapríkur hugsjónamað-
ur, frábær húmoristi. Mikill
heimilisfaðir og fjölskyldumað-
ur. Hafði mikinn metnað fyrir sitt
bæjarfélag, og félagshyggjumað-
ur fyrst og fremst. Frásagnarlist
hans var viðbrugðið svo sem er
um fleiri afkomendur Helga Fló-
ventssonar. Stundir með þeim
frændum Frey og Sigurði
Hallmarssyni eru öllum ógleym-
anlegar sem á hlýddu. í
mannfagnaði var Freyr öllum
mönnum skemmtilegri enda oft
hans hlutskipti að stýra samkom-
um og vera veislustjóri.
En Hallmar Freyr stóð ekki
einn í sinni lífsbaráttu. Árið 1952
kvæntist hann eftirlifandi konu
sinni Guðrúnu H. Ingólfsdóttur
Helgasonar trésmíðameistara á
Húsavík og konu hans Þuríðar
Halldórsdóttur. Guðrún hefur
staðið með manni sfnum í blíðu
og stríðu og oft hefur reynt á í
harðri pólitískri baráttu og enda-
lausu félagsstarfi, stundum mis-
jafnlega metnu. Án hennar
hjálpar hefði Freyr ekki komið
því í verk sem hann gerði. Hún
var kletturinn í vonbrigðunum
þegar illa horfði um framgang
mála. Þetta var Frey ómetanlegt
enda talaði hann oft um það. Hún
á nú á bak að sjá þessum
lífsförunaut sínum langt um aldur
fram. Það er mikill missir og sár
harmur. Þau eignuðust fimm
börn sem öll eru uppkomin, Þu-
ríður fóstra búsett á Húasvík,
Katrín ritari búsett í Garðabæ,
Jóna Björg fóstra búsett á Húsa-
vík. Ingólfur íþróttakennari bú-
settur á Húsavík og Sveinn kjöt-
iðnaðarnemi búsettur á Húsavík.
Söknuður þeirra er mikill svo og
barnabarnanna sem nú fá ekki
lengur notið afa síns. Svo er einn-
ig um háaldraðan föður sem nú
sér á bak syni sínum. Á heimili
Guðrúnar og Freys var jafnan
mannmargt enda gestkvæmt.Á
hverju ári komum við hjónin
þangað í heimsókn auk þess að
vera þar tíðir gestir meðan við
bjuggum á Húsavík. Þangað var
alltaf jafn notalegt að koma og
njóta samvista við þau hjónin á
fallegu heimili þeirra á Sólvöllum
6. Það var okkur tilhlökkun í
hvert skipti sem við komum til
Húsavíkur. Þau kynni öll og ó-
rofa vináttu frá bernsku vil ég
þakka.
Húsavík á nú á bak að sjá ein-
um af sínum mætustu sonum,
manni sem ekki lét deigan síga
fyrir bættum hag staðarins. Völs-
ungar hafa misst foringja sinn en
minningin um góðan dreng verð-
ur þeim hvatning.
Rúna mín, mikill harmur er
kveðinn að þér og fjölskyldu ykk-
ar við svo skyndilegt brotthvarf
ástvinar. En minningin lifir um
góðan dreng í verkum hans og í
samvistum ykkar. Guð blessi
hann og ykkur öll.
Kári Arnórsson
Freyr Bjarnason er látinn.
Hann lést á sjúkrahúsi í Reykja-
vík 21. júlí s.l.
Hann fæddist 21. nóvember
1931 og var þvíaðeinsá56. aldur-
sári, þegar kallið kom. Það eru
ekki ýkja mörg æviár, en á þeim
árum skapaði hann mjög lifandi
sögu í huga okkar, sem þekktum
hann. Hann lét til sín taka og varð
þekktur maður fyrir störf að
félags- og æskulýðsmálum.
Hann var fæddur og uppalinn á
Húsavík og á Húsavík átti hann
heima alla sína ævi. Hann unni
sinni heimabyggð og Húsavík og
æsku hennar vann hann það sem
hann vann. Hann var knúinn til
starfa sinna af mjög heitum huga
og því var hjarta hans mikið bæði
í fögnuði og mótbyr. Hann gladd-
ist innilega, þegar Völsungum
vegnaði vel og tók nærri sér, þeg-
ar miður gekk.
Hallmar Freyr varð félagsmað-
ur í íþróttafélaginu Völsungi árið
1947 og í félaginu voru honum
snemma falin trúnaðarstörf.
Hann var kosinn í knattspyrnu-
ráð félagsiris 1952 og í aðalstjórn
í. F. Völsungs var hann kosinn á
aðalfundi 6. október 1954, og var
síðan stjórnarmaður samfellt allt
til æviloka. Hann gegndi þannig
stjórnarstörfum í félagi sínu í 35
ár og var formaður þess frá árinu
1978.
f þann tíma er Hallmar Freyr
var að alast upp á Húsavík, þá var
flest fólk á íslandi fátækt af ver-
aldarauði. Fólk á Húsavík fór
ekki varhluta af þeirri fátækt.
Samt sem áður kemur fram í ný-
legu blaðaviðtali við Frey að hon-
um var Húsavík mjög fallegur
heimur á æskuárunum. Þann fal-
lega heim vildi Freyr varðveita
með æskufólki á Húsavík og að
fiví vann hann með starfi sínu í
þróttafélaginu Völsungi næstum
alla starfsævi sína.
Hallmar Freyr Bjarnason er
horfinn af vettvangi en íþróttafé-
lagið Völsungur hefur notið
verka hans og mun enn njóta
þeirra um langa framtíð.
æsku í starfi og leik. Eitt er víst,
Fimmtudagur 30. júlí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
í. F. Völsungur
Alþýðubandalag Vesturlands
Sumarferð
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Vest-
urlandi verður farin um verslunarmanna-
helgina. Fyrirhuguð ferðaáætlun er þannig:
Laugardagur 1. ágúst: Brottför frá Skag-
anesti á Akranesi kl. 9.00 og frá Borgarnesi
kl. 10.00. Ekið norður í land og gist í Eddu-
hótelinu á Hrafnagili í tvær nætur. Sunnu-
dagur 2. ágúst: Ekið um Eyjafjörð og farið
útíHrísey. Mánudagur3. ágúst: Heimferð.
Svefnpokagisting og gisting í tveggja
manna herbergjum.
Skráningu annast: Garðar, Akranesi s.
12567, Halldór, Borgarnesi s. 71355, Skúli,
Hellissandi s. 66619, Jóhannes, Ólafsvík s.
61438, Matthildur, Grundarfirði s. 86715,
Þórunn Stykkishólmi s. 81421 og Sigur-
jóna,Búðardal s. 41175. Síðustu forvörð að
skrá sig í dag.
Stjórn kjördæmisráðs