Þjóðviljinn - 11.08.1987, Blaðsíða 1
Lífeyrissjóðirnir
Ríkari éntálið var
Ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna a. m. k. 620 milljónum meira en áætlað var.
Heimildamenn Þjóðviljans tala um milljarð. Pétur Blöndal: Samningar við ríkið
œttu að geta gengiðfljótt fyrirsig
Margir
hreinkáHar
Við talningu á hreindýrum á
Snæfellssvæðinu svokallaða í
júlí kom í ljós að kálfahlutfall er
óvenju hátt í ár, eða 35%.
Að sögn Skarphéðins Þóris-
sonar líffræðings telst eðlilegt
kálfahlutfall um 25% og líklega
er þetta háa hlutfall í ár að þakka
mjög góðri tíð í maí en þá er burð-
artími kúnna.
Skarphéðinn sagði að alls
hefðu fundist 1266 dýr á svæðinu.
Ekki var talið þarna í fyrra en í
hittifyrra töldust á sama svæði
1060 dýr og sagði Skarphéðinn að
þessar tölur gæfu til kynna að
fjöldi fullorðinna dýra nú væri
svipaður og 1985 vegna þess hve
kálfahlutfallið er hátt í ár.
Skarphéðinn sagði að giskað
væri á að á landinu væru um 3000
dýr en sú tala væri óáreiðanleg
því ekki hefði verið talið niðri í
fjörðum síðan 1980 og það væri
eina skiptið sem fullkomin taln-
ing hefði farið fram. -ing
Ráðstöfunarfé lífevrissjóðanna
er að minnsta kosti 620 milljónum
meira en áætlað var í upphafi
þessa árs, að sögn Ingva Arnar
Kristinssonar forstöðumanns við
peningamáladeildir Seðlabank-
ans. Hann sagði að þessi áætlun
gæti þó breyst eitthvað þegar öll
kurl væru komin til grafar um
launaþróunina í landinu.
Fyrri áætlun um ráðstöfunar-
féð var gerð í byrjun árs þegar
Alþýðusambandið hafði gert
samkomulag við VSÍ. Samkvæmt
henni var áætlað að ráðstöfunar-
féð yrði 6.250 milljónir. Sam-
kvæmt áætluninni núna er búist
við að það verði 6.875 milljónir.
Ingvi Orn tók þó fram að þetta
væri mjög lausleg ályktun og ætti
eflaust eftir að breytast eitthvað
þegar búið væri að endurskoða
áætlunina með tilliti til allra þátta
einsog t.d. láunaskriðsins.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er jafnvel talið að ráðstöf-
unarféð sé um milljarði meira en
áætlað hafði verið.
Pétur Blöndal, formaður
Landssambands lífeyrissjóð-
anna, sagði það rétt að ráðstöfun-
arféð hefði aukist þó hann gæti
ekki nefnt neina upphæð þar að
lútandi. Sagði hann verðbólgu-
þáttinn hafa þar mest áhrif.
Ljóst er að eftir því sem ráð-
stöfunarféð eykst, lána lífeyris-
sjóðimir byggingarsjóðunum
meira fjármagn. 55% af 620
milljónum eru 341 milljón en af
einum milljarði 550 milljónir. Nú
standa yfir samningar milli líf-
eyrissjóðanna og ríkisvaldsins
um skuldabréfakaup og qr fyrir-
hugaður fundur á morgun.
Pétur sagði að samkvæmt
lögum ættu vextirnir að vera þeir
sömu og ríkissjóður byði á al-
mennum markaði eða 7,2% til
8%. Sagði hann að lífeyrissjóð-
irnir væm tilbúnir að skrifa undir
rammasamkomulag á þeim
grunni en auk þess er eftir að
ganga frá lánstímanum. Sagði
Pétur að hægt væri að ganga frá
samningum fljótlega þó sam-
kvæmt lögum þurfi ekki að gera
það fyrr en 1. október.
- H vað ef hækkun vaxta verður
til þess að vextir af húsnæðislán-
um hækka, kemur það ekki niður
á sjóðsfélögum?
„Þarna ertu kominn að póli-
tískri spurningu um útfærslu kerf-
isins. Okkar markmið er að gæta
hagsmuna lífeyrisþega, bæði nú-
verandi og komandi. Það má
vissulega segja að þeir sem fá
húsnæðislánin séu sjóðsfélagar,
en sjóðsfélagar eru fleiri. Við
höfum því ekki viljað blanda
okkur í það hvernig húsnæðis-
kerfið er byggt upp, að öðru leyti
en því að við höfum mótmælt
miðstýringunni sem þetta kerfi
felur í sér og tilflutningi á fjár-
magni t.d. frá landsbyggðinni til
Reykjavíkur.“
-Sáf
Steinunn Marteinsdóttir brosleit eftir vel unnið starf, en hún er að Ijúka lágmynd sinni, Qrátur og hlátur, í nýju áfengisútsölunni í Kringlunni. Með henni á
myndinni er starfsstúlka með fulla kerru af guðaveigum.
ATVR
Algleymið og
asnaeyrun
Hugmvndin var að vinna út frá
andstæðum áhrifum sem vín-
ið veldur. Þar er það gleðin og
sorgin sem skiptast á“ sagði
Steinunn Marteinsdóttir leirlistar-
maður, en hún er nú að leggja
seinustu hönd á verk sitt „Grátur
og hlátur“ í nýju áfengisútsölunni
í Kringlunni.
„Þetta er lágmynd unnin í leir.
Rúmlega fjórtán metra löng og
64 sentimetrar á hæð, og unnin í
upphleyptum fli'sum," sagði
Steinunn. „Ég var beðin að gera
tillögu að þessu verki - það voru
forráðamenn ÁTVR sem báðu
mig að hugsa málið - og þetta er
árangurinn. Hugmyndin kom
nokkuð fljótt, en úrvinnslan er
búin að vera mjög erfið.“
Að sögn Steinunnar er „Grátur
og hlátur" öðruvísi verk en hún
hefur áður unnið. „Ég hef aldrei
áður bvggt verk upp á flísum; lit-
irnir eru aðrir og íeirinn, og fyrir
bragðið voru ýmis tæknileg ljón á
veginum.“ HS
Millisvœðamótið
Til hamingju Jóhann
Jóhann Hjartarson í áskorendakeppnina eftir œsilega jafnteflisskák ísíðustu umferð. Efstur ásamt Salof
Mér líður bara vel,“ sagði Jó-
hann Hjartarson eftir
jafnteflið við Beljafskí í gær, sem
tryggði honum rétt til þátttöku í
áskorendakeppninni í Kanada í
lok janúar.
Jóhann sagði að taugarnar
hefðu verið þandar til hins ítrasta
fyrir viðureignina í gær, enda
mikið í húfi. Ovíst er enn hvernig
undirbúningi fyrir átökin í upp-
hafi næsta árs verður hagað enda
nægur tími til stefnu.
En hverju þakkar Jóhann
þennan frábæra árangur? „Ég
veit það ekki. Ég var í mjög góðri
æfingu eftir mót að undanförnu.“
Jóhann þurfti jafntefli í skák
sinni gegn Beljafskí í síðustu um-
ferð millisvæðamótsins í Szirak,
og það hafðist cftir æsispennandi
skák. Teflt var Leningrad-
afbrigðið af hollenskri vörn.
Beljafskí fórnaði peði og skákin
varc tvísýn, en Jóhann lét peðið
aftur á réttum tíma, hélt skákinni
í jafnvægi og í lokin kom upp peð-
aendatafl og steindautt jafntefli
sem jafnvel hinn sókndjarfi Belj-
afskí varð að sætta sig við.
Tap hefði þýtt viðureign um
þriðja sætið við Portisch, sem
vann Velimirovic, og Nunn sem
gerði jafntefli við Christiansen,
en þeir Nunn og Portisch verða
nú að heyja einvígi sín á milli um
þriðja sætið. Salof og Jóhann eru
jafnir í 1.-2. sæti með 12 xh vinn-
ing, farseðillinn til Kanada í
höfn, og að auki 12.500
svissneskir frankar á hvorn.
Árangurinn í Szirak er eitt
helsta afrek í íslenskri skáksögu,
og verður helst jafnað við þátt-
töku Friðriks á áskorendamóti
1958.
Keppnin í Kanada fer fram í
lok janúar á næsta ári, og eigast
þar við fjórtán skákmenn, tveir
og tveir í einvígjum. Auk hinna
þriggja frá Szirak verða þar
Short, Speelman og Sax úr milli-
svæðamóti sem þegar er lokið,
þrír úr móti sem haldið verður í
Zagreb í haust, þeir fjórir sem
lengst komust síðast (Sókólof,
Júsúpof, Vaganjan, Timman) og
einn heimamaður. Þegar sjö eru
uppistandandi bætist við sá sem
tapar næsta heimsmeistara-
einvígi, Karpof eða Kasparof, og
verður síðan tefll í einvígjum
þangaðtil einn stendur eftir.
Szirak-afrek Jóhanns þýðir
einnig að hann öðlast rétt til að
taka þátt í Heimsbikar-mótum
nýstofnaðs stórmeistarasam-
bands, og hann hefur einnig
hækkað umtalsvert í skákstigum,
enda er vinningshlutfall þeirra
Salofs á mótinu með ólíkindum,
um 74%.
Jóhann vann ntu skákir í Szir-
ak, gerði sjö jafntefli og tapaði
einni skák, fyrir Adorjan.-m/Sáf