Þjóðviljinn - 11.08.1987, Blaðsíða 3
Hlemmur-Miðborg
heitir nýi strætóinn sem frá og
með opnun Laugavegar gengur
ókeypis frá Hlemmi niðrá Lækj-
argötu, um Vonarstræti, Suður-
götu, Aðalstræti, Hafnarstræti,
upp Hverfisgötu á Hlemm. Þrír
vagnar ganga þessa leið frá 13-
19 virka daga og verða 6-7 mín-
útur á milli ferða. Á þessum tíma
fara aðrir strætóar ekki Lauga-
veginn. Vagnar númer 2, 3, 4, 5
og 15A aka þá viðstöðulaust frá
Hlemmi um Skúlagötu niðrá
Torg. SVR hvetur borgarbúa til
að nota sér ferðirnar og leggja
bílunum á jöðrum miðbæjarins.
Norrænar málnefndir
halda þing sitt um næstu helgi á
Hótel KEA á Akureyri. Aðalefni
þess verður íslensk málrækt og
eru framsögumenn Baldur Jóns-
son og Jón Hilmar Jónsson. Bú-
ist er við um 45 þátttakendum af
öllum Norðurlöndum. íslensk
málnefnd skipuleggur þingið
sem haldið er hérlendis í fimmta
sinn, en nefndin hefur sent full-
trúa til þinghalds frá stofnun sinni
1964.
Ólafur Egilsson
fór í júlílok til Lagos í Nígeríu og
afhenti þar forseta Nígeríu, Ibra-
him Babangida, trúnaðarbréf sitt
sem sendiherra í Nígeríu með að-
setur í Lundúnum.
Sérstakt pósthús
verður opnað á landbúnaðarsýn-
ingunni „Bú 87“ í Víðidal frá 14,-
23. ágúst, og póstur þaðan
stimplaður með sérstimpli. Þá
ætlar Pósturinn að setja upp
póststofu á frímerkjasýningu í
sumarleyfisbænum Riccioneá ít-
alíu um aðra helgi.
Vinnan
er komin út í sjötta sinn í ár, en
hún er tímarit ASÍ. í blaðinu er
meðal annars fjallað um spör-
fugladráp í Bandaríkjunum,
handverkfæri sem þróunaraö-
stoð, Tómstundaskólann, fisk-
vinnslunámskeiðin, Listasafn
ASÍ, póstkröfuverslun, megrun-
artöflur, verkamannabústaði í
Firðinum, ferðamenn, ógnar-
'stjórn í íran, Ölfusborgir og prent-
villur í Þjóðviljanum. Leiðari
blaðsins fjallar um stefnu nýju
ríkisstjórnarinnar og heitir „Sumt
jákvætt og annað rniður".
Fjarkennsla
er efni fyrirlestrar sem John Ma-
son, prófessor við „Opna há-
skólann" Bretlandi flytur á morg-
un í stofu 201 í Kennaraháskól-
anum við Stakkahlíð. Fyrirlestur-
inn hefst klukkan 15 og er öllum
opinn, en tilefnið er kennaranám-
skeið KHÍ og HÍ.
Hjartavernd
hefur efnt til happdrættis sem í
verður dregið 16. október, og
verða vinningar alls 20, að verð-
mæti rúmar 5 milljónir, sá hæsti
ein milljón. Miðinn kostar 200
krónur, og hvetur stjórn félagsins
allan almenning til að styrkja
þarft starf þess með því að kaupa
miöa.
FREITIR
Vogalax hlf
Frábærarheimtur
Vilhjálmur Guðmundsson: 14% heimtur ísumar. Þœr langbestuísögu
fyrirtækisins. Meðalþyngd laxins um 3 kíló
að eru tæplega 14% heimtur
hjá Vogalaxi h/f í Vogum í
sumar, sem er það langmesta hjá
okkur frá því við byrjuðum. í
fyrra heimtum við 9.6% en 1985,
árið sem fyrirtækið var stofnað,
komu til baka um 12.6%. I.axafj-
öldinn sem við fengum í sumar
var tæp 5 þúsund stykki og með-
alþyngd tæp 3 kíló, sagði Vil-
hjálmur Guðmundsson, hjá Vog-
alaxi h/f.
Að sögn Vilhjálms er þegar
búið að slátra þeim laxi sem kom-
inn er á land og nemur hann um
10 tonnum. Aðalmarkaðssvæði
Vogalax h/f er í Bandaríkjunum
og Hollandi, en prufusendingar
hafa verið sendar til Bretlands,
Frakklands og Danmerkur.
Sagði Vilhjálmur að verðið sem
fengist fyrir laxinn væri allþokka-
legt miðað við það að á þessum
tíma ársins væri mjög mikið fram-
boð af laxi á mörkuðunum, sem
stafar af því að á sama tíma kem-
ur Kyrrahafslaxinn á markaðinn.
Það gerir það að verkum að mjög
mikið framboð er á laxi sem dreg-
ur verðið niður. Aftur á móti
virðist sem ágætur markaður sé
fyrir laxinn hér á innanlands-
markaði og hafa þegar selst um 3
tonn af honum hér.
„Við höfum í hyggju að sleppa
á næsta ári hvorki meira né minna
en um 2 ntilljónum seiða og í júní
í ár slepptum við 400 þúsund
seiðum, sem er met hér á landi og
þótt víðar væri leitað. Starfsemin
hjá okkur hefur gengið mjög vel
og staðfestir fyrir okkur það sem
við höfum ætíð haldið fram, að
það sé vænlegast í þessum bransa
að byggja þessa atvinnugrein
hægt og rólega upp, í stað þess að
byggja og byggja og fjárfesta án
þess að hafa undirstöðuna á
hreinu," sagði Vilhjálmur að lok-
um.
grh
Reykjavík
300 sagn-
fræðingar
Tuttugasta þing norrænna
sagnfræðinga var sett við
hátíðlega athöfn í Háskólabíói í
gærmorgun. Forseti Islands flutti
ávarp, söngflokkurinn Hljómeyki
flutti Aldasöng eftir Jón Nordal
við texta eftir Bjarna Jónsson
skálda og Jón Heigason, og síðan
töluðu prófessorarnir Lorenz
Lerup og Gunnar Karlsson.
Þetta er í fyrsta sinn sem þingið
er haldið hérlendir, og sækja það
um 300 sagnfræðingar, flestir
norrænir, en einnig þýskir og
bandarískir. Þingið stendur yfir
fimm daga og lýkur með hófi á
föstudagskvöld.
Stefán Karlsson setti fyrsta umræðu-
fundinn á þingi norrænna sagnfræð-
inga.
Námslán í V-dúr
Nftján þúsund í sjóðinn
Um 8200 borga af V-lánum
essa dagana er Lánasjóður ís-
lenskra námsmanna að senda
þeim skuldunautum sínum rukk-
unarbréf sem fengu námslán á ár-
unum 1976 til 1982, svokölluð V-
lán. Það er sægur af fólki sem hér
um ræðir; nánar til tekið 8.219
manns.
BrobyJohansenlátinn
Áhrifamesti alþýðufræðari um myndlistá
Norðurlöndum á þessari öld
í fyrradag lést í Kaupmanna-
höfn danski rithöfundurinn
R.Broby Johansen á 87. aldurs-
ári.
Broby Johansen var einhver
afkastamesti rithöfundur sem
fjallað hefur um myndlist á Norð-
urlöndum, og má telja víst að
enginn rithöfundur hafi opnað
heim myndlistarinnar fyrir jafn
mörgum lesendum með aðgengi-
legri en jafnframt markvissri og
persónulegri framsetningu.
Bók hans „Hverdagskunst
-Verdenskunst“, sem kom út
1942 og Mál og menning gaf síðar
út í íslenskri þýðingu, markaði á
vissan hátt þáttaskil í því að gera
listasöguna aðgengilega almenn-
ingi og setja hana í samband við
okkar nánasta umhverfi. Engin
bók um listfræði hefur náð við-j
líka útbreiðslu á Norðurlöndum,
og þótt víðar væri leitað.
{ verkum sínum lagði Brobyí
áherslu á félagslegt hlutverk list-
arinnar og jafnframt hvernig hún
endurspeglaði hugmyndafræði
og lífsviðhorf síns samtíma. Þá
lagði hann jafnframt áherslu á
mikilvægi nytjalystarinnar og
tengsl hennar og svokallaðrar
æðri listar við daglegt líf og um-
hverfi mannsins.
Auk fjölmargra bóka um
myndlist og nytjalist skrifaði Bro-
by einnig ljóð, bamabækur og
kvikmyndahandrit auk þess sem
hann starfaði lengi sem blaða-
maður og fyrirlesari.
Broby Johansen var alþýðu-
fræðari í besta skilningi þess orðs,
og þýðing hans sem slíks sést best
á því að hann á sér marga lesend-
ur einnig hér á landi. -ólg.
Hér er á ferðinni árviss, föst
afborgun. Tekjutengda afborg-
unin kemur svo í kjölfarið í nóv-
ember. V-lánþegi sem hefur not-
ið aðstoðar sjóðsins í eitt ár greið-
ur nú 4.965 krónur í afborgun, en
sá sem hefur verið fjögur ár eða
lengur í lánshæfu námi borgar
19.861 krónu.
Frá árinu ’82 skipta lánin um
einkennisbókstaf og nefnast
T-lán. Föst afborgun af þeim er
greidd í rnarsmánuði, og var byrj-
að að borga af þeim í fyrra. Að
vonum em þeir sem komnir eru á
endurgreiðslustigið samkvæmt
þessum lánaflokki til muna færri
en V-lánþegarnir, enn sem kom-
ið er, eða liðlega 2.300 manns.
Hjá þessum hópi er fasta afborg-
unin 13.911 krónur á ári, ára-
fjöidi við nám skiptir ekki máli,
en tekjutengd afborgun er hærri
en hjá V-hópnum.
Svo eru það öll hin sem voru
við nám áður en verðtryggingin
var fundin upp. Að sögn Þor-
björns Guðjónssonar fram-
kvæmdastjóra LÍN komast af-
borganir af þessum lánum lægst
niður í hundraðkall eða svo, en
hæst í um það bil fjögur þúsund
krónur á ári.
HS
Sjávarútvegsráðuneyti
Hermann aðstoðar
Hermann Sveinbjörnsson hef-
ur verið ráðinn aðstoðarmaður
sjávarútvegsráðherra og hefur
störf í ráðuneytinu í næstu viku.
Hermann er 36 ára, hefur lagt
stund á líffræði, umhverfisvísindi
og auðlindahagfræði, unnið í iðn-
aðarráðuneytinu í hálft fimmta ár
og kennt við háskólann. Hann er
kvæntur Sólveigu Láru Guð-
mundsdóttur sóknarpresti á Sel-
tjarnamesi.
Fyrri aðstoðarmaður Halldórs
Ásgrímssonar, Finnur Ingólfs-
son, hefur tekið upp svipaðan
starfa í heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytinu hjá Guðmundi
Bjamasyni.
-m
Auglýsið í Þjóðviljanum