Þjóðviljinn - 11.08.1987, Síða 10
LAND-ROVER
á leið um landið!
Söluferð með Land-Rover um landið
Sýningarstaðir hjá ESSO-söluskálum
á landsbyggðinni!
Sölumenn okkar kynna nýju Land-Rover bílana næstu vikur víða um
landið og á sýningu bændasamtakanna BÚ ’87. Nú er Land-Roverinn
gjörbreyttur: Nýtt útlit, sami undirvagn og er í Range-Rover, nýtt mæla-
borð og klæðningar. „Langi Land-Roverinn er besti akstursbíll sem ég
hef prófað“, segir Ómar Ragnarsson.
- Komið og kynnist nýju
Land-Rover 90 og 110 gerðunum.
- Þér gerið ekki betri jeppakaup.
- Eigum bíla á kynningarverði.
H
Norðurland eystra
Föstudagur 07. ágúst:
Húsavík
Mývatn
kl. 10.00-16.00
kl. 17.00 - 21.00
Laugardagur 08. ágúst:
Kópasker kl. 10.00 - 14.00
Raufarhöfn kl. 15.00 - 17.00
Þórshöfn kl. 18.00 - 23.00
Austurland
Sunnudagur 09. ágúst:
Vopnafjörður
Egilsstaðir
Mánudagur 10. ágúst:
n Reyðarfjörður
3 Eskifjörður
Djúpivogur
Suðurland
Þriðjudagur 11. ágúst:
ni Höfn
W Klaustur
kl. 10.00-13.00
kl. 15.00-23.00
kl. 10.00 - 13.00
kl. 14.00-17.00
kl. 19.00-21.00
kl. 09.00- 13.30
kl. 15.30 - 18.00
kl. 19.00-22.00
I
E&
Miðvikudagur 12. ágúst:
Hvolsvöllu kl. 09.00- 15.00
Hella kl. 16.00-22.00
Fimmtudagur 13. ágúst:
Selfoss kl. 09.00 - 16.00
Hveragerði kl. 17.00 - 20.00
Vesturland
Mánudagur 24. ágúst:
B3 Akranes
jj Borgarnes
kl. 10.00 - 14.00
kl. 15.00-22.00
Norðurland vestra
Þriðjudagur 25. ágúst:
SBorðeyri kl. 10.00 — 12.00
Hvammstangi kl. 13.00 - 16.00
Víðihlíð kl. 17.00 - 20.00
Miðvikudagur 26. ágúst:
ÍBIönduós kl. 09.00 - 13.00
Varmahlíð kl. 14.00 - 16.00
Sauðárkrókur kl. 17.00 - 22.00
14. ágúst - 23. ágúst:
Sýning í Reykjavík á BÚ ’87
Bændur og aðrir athafnamenn:
- Komið og heilsið
upp á gamlan
kunningja!
iidiucim.
MöUur sf.
Tryggvabraut 12 Akureyri
Símar 96-23515 og 96-21715
ERLENDAR FRETTIR
Líbýa/Chad
Lbýumenn
hóta hefndum
Yfirvöld í Chad kveða Líbýumenn hafa
átt upptökin að átökunum
Líbýumenn misstu á laugardag
smábæinn Aouzou í hendur
hersveita ráðamanna í Chad eftir
að hafa hersetið hann í fjórtán ár.
Þetta er enn eitt áfall líbýska hers-
ins í stríðinu við nágrannann í
suðri en stjórnir Chad og Líbýu
elda grátt silfur saman um yfir-
ráðin yfir eyðimerkurrönd við
landamæri ríkjanna. Aouzou er
héraðshöfuðborg þess svæðis.
Ráðamenn í N'Djamena, höf-
uðborg Chads, fullyrða að 437 lí-
býskir hermenn hafi fallið og 61
tekinn höndum er bærinn var tek-
inn. Sjálfir segjast þeir hafa misst
17 menn en 54 hafi særst. Enn-
fremur hafi dátar sínir eyðilagt
mörg og margvísleg hergögn Lí-
býumanna, þar á meðal 25 skrið-
dreka.
Chadmenn segjast hafa unnið
bæinn eftir að um 3000 líbýskir
hermenn hafi hafið sókn suður
frá honum í átt að þorpinu Bar-
dai. Vopnin hafi hinsvegar snúist
í höndum þeirra með þeim afleið-
ingum að þeir hrökkluðust enn
lengra í norður.
Því var haldið fram í ríkisút-
varpinu í Chad í gær að „Líbýu-
menn héldu uppi fúlmannlegum
loftárásum á Aouzou og þorp í
grennd við bæinn,“ og veigruðu
sér ekki við að beita öllum til-
tækum ráðum til að valda sem
mestum usla. Þeir hafi látið nap-
almsprengjum og eldflaugum
rigna yfir bæinn aiveg frá því þeir
voru hraktir á brott.
Frakklandsstjórn hefur ákveð-
ið að verða ekki við beiðni
Chadstjórnar um að veita her-
sveitum hennar flugvernd á svæð-
inu næst Aouzou. Mitterrand for-
seti sagði í gær að Frakkar vildu
að ríkin tvö útkljáðu landamæra-
deiluna á friðsamlegan hátt og
legðu hana í gerðardóm Alþjóða-
dómstólsins í Haag. Þeir myndu
ekki blanda sér í átökin við landa-
mærin. Frakkar kváðu hafa um
1,200 hermenn í Chad sem er
fyrrum nýlenda þeirra og gnægð
fullkomins vígbúnaðar, þar á
meðal sprengjuþotur af gerðinni
Jagúar og Mirage orrustuþotur.
Þeir blanda sér því aðeins í átök
Líbýu og Chad að þau berist
suður á bóginn.
Stjórnin í N'Djamena segir Lí-
býumenn ennfremur hafa gert
loftárásir á stærstu borgina í
norðurhluta landsins, Faya-
Largeau, og sýni það best gremju
þeirra yfir hrakförum síðustu
daga.
Sendiherra Líbýustjórnar í
París sagði í gær að hver einn og
einasti landa sinna væri reiðubú-
inn til að láta lífið í baráttunni
fyrir endurheimt Aouzou. „Yfir-
ráðaréttur okkar er 100 prósent
ótvíræður. Sérhver þegn lands
vors er albúinn að berjast og falla
fyrir málstaðinn,“ sagði Hamed
þessi El-Houberi. „Þeir sem
beita yfirgangi munu lúta í duftið
og súpa seyðið af yfirgangi sín-
um. Þetta er okkar land og
endurheimt þess er algert for-
gangsverkefni."
Houberi sagði ennfremur ljóst
að æskilegt væri að landamæra-
deilan yrði leyst með fulltingi
Einingarsamtaka Afríkuríkja en
að öðrum kosti yrðu vopnin látin
tala. -ks.
Flugmál
Rust fyrir rétt
í september
Þjóðverjinn ungi, Matthías
Rust, sem flaug í óleyfi inn í
Sovétríkin í maí og ienti á Rauða
torginu í Moskvu, á að koma fyrir
rétt snemma í september, að sögn
talsmanns vestur-þýska sendir-
áðsins í Moskvu. Sagði hann að
sovésk yfirvöld hefðu tilkynnt
sendiráðinu um þetta fyrir helgi,
en tók ekki fram nákvæmlega
hvar eða hvenær réttarhöldin
ættu að fara fram.
Rust hefur verið í haldi í
Lefortovo-fangelsi í Moskvu síð-
an hann lenti á Rauða torginu 28.
maí. Á hann yfir höfði sér allt að
tíu ára fangelsisdóm fýrir brot á
reglugerð um flug, fimm ára
fangelsisdóm fyrir „spellvirki",
og þriggja ára fangelsi fyrir að
hafa komið til Sovétríkjanna á ól-
öglegan hátt. Það að Rust skuli
vera ákærður fyrir þetta þrennt í
senn, bendir til þess að sovésk
yfirvöld líti málið alvarlegum
augum.
Talsmaðurinn sagði að sendi-
ráðið hefði beðið um leyfi til að
einhver starfsmaður þess fengi að
ræða við Rust í fangelsinu næsta
þriðjudag, en þeirri beiðni hefði
ekki enn verið svarað. e.m.j.
Kennari dœmdur
Taldi útrýmingarbúðir
naista vera uppspuna
Vestur-þýskur kennari, sem
ákærður var fyrir að segja
nemendum sínum, að frásagnir
um útrýmingarbúðir nasista
væru uppspuni, var í gær dæmd-
ur í níu mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að æsa til kynþátta-
haturs.
Það kom fram við réttarhöld í
Koblenz, að kennari þessi, Ru-
dolf Koch, hefði sagt nemendum
sínum, að Bandaríkjamenn
hefðu fundið upp sögumar um
útrýmingarbúðir í Auschwitz.
Það kom einnig fram að hann
hefði sagt að félagar úr flokki
Græningja væru lygarar og
glæpamenn, sem hann vildi
gjarnan skjóta.
Koch taldi að ákæran væri sam-
særi fjandsamlegra nemenda og
kennara gegn sér. Verið er að
rannsaka fleiri kærur á hendur
honum, en honum var leyft að
snúa aftur til vinnu sinnar ef hann
hegðaði sér vel. e.m.j.
14 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 11. ágúst 1987