Þjóðviljinn - 12.08.1987, Page 12
ISAFJORÐUR
Hnífsdalur
Hákarlsverkun
lærír maður
ekki afbókum
í hjalli Óskars Friðbjarnarsonar í Hnífsdal er
verkaður stór hluti þess hákarls sem hverfur
oní landann árlega. Vinsæll viðkomustaður
gesta ísafjarðarkaupstaðar, sem býður þá
upp á hákarl og brennivín
Það er vandasamt að verka
hákarl. Ég get sagt þér að þetta
starf lærir maður ekki af
bókum. Hákarl verður annað
hvort mjög góður eða aióætur,
það er ekkert þar á milli, sagði
Óskar Friðbjarnarson í Hnífs-
dal í samtali við Þjóðviljann, en
Óskar verkar stóran hluta þess
hákarls sem hverfur oní
landann árlega, einkum á þorr-
ablótum og þess háttar hátíð-
um.
Óskar er með hjall sunnan við
Hnífsdal, vinnur þar við þriðja
mann og selur hákarl, harðfisk og
siginn fisk út um land allt.
„Ég var kennari í tuttugu ár og
hef lengi hert fisk til þess að
drýgja tekjurnar. Ég byrjaði að
kæsa hákarl fyrir sjö árum og nú
er svo komið að framleiðslan
nemur nokkrum tonnum árlega
og fer um land allt.
Sjómennirnir hér við Djúpið fá
hákarl í veiðarfæri sín af og til, en
áður en ég byrjaði með þessa
verkun var hákarlinum yfirieitt
hent. Nú kaupi ég allan þann há-
karl sem til fellur við Djúpið og
þetta gefur bara ágætlega af sér.
Það er að segja þegar verkunin
lánast. Það hendir að verkunin
mislukkast og þá er ekki um ann-
að að ræða en að fleygja þessu.
Það er eins og ég segi, annað
hvort er hákarl mjög góður eða
algerlega óætur og það þýðir ekki
að láta ónýta framleiðslu frá sér.
Það líður langur tími frá því ég
fæ hákarl í hendur og þar til ég get
selt hann aftur. Það tekur yfirleitt
um þrjá mánuði að kæsa hákarl í
kæliklefa. Þá verður að þvo hann
og láta hann síðan hanga í 5-6
mánuði til viðbótar. Þá fyrst er
hægt að gera sér hann að góðu.
lslendingar hafa borðað hákarl
um aldir, en ég held að neyslan sé
alltaf að aukast. Unga fólkið er til
að mynda vitlaust í hákarl. Sjálf-
ur er ég nýbyrjaður að borða
þetta,“ sagði Óskar.
Áður en blaðamaður Þjóðvilj-
ans heimsótti Óskar í hjallinn,
Óskar Friðbjarnarson innan um framleiðslu sem margur gestur á þorrablótum komandi vetrar á eftir að skoia niður með
brennivíni eða öðrum veigum.
var honum tjáð að ísafjarðar-
kaupstaður hefði það fyrir venju
að fara með gesti bæjarins í hjall
til Óskars og gefa þeim þar hákarl
og brennivín.
„Jú, mikið rétt, þeir koma
stundum hingað með þingmenn
og ráðherra og svoleiðis fólk.
Þeir leggja þá til brennivínið en
ég hákarlinn og þeir hafa látið
mjög vei af þessum heimsóknum.
Sjávarútvegsráðherra kom einu
sinni í hjallinn til mín og sagðist
hvergi hafa fengið betri hákarl.
Það hafa margir mektarmenn
étið hákarl og drukkið brennivín í
þessum hjalli. Og svo eru ferða-
menn nokkuð tíðir gestir hjá
mér,“ sagði Óskar.
Þjóðviljamaður var vitaskuld
Ieystur út með vænt stykki af
skyrhákarli, en þar sem hákarl er
ekki hans uppáhalds fæða fékk
hann til liðs við sig hákarlssér-
fræðing sinn til að smakka á af-
urðinni. Og sá hákarlssólgni
maður gat ekki leynt því þar sem
hann tuggði bitann að þarna var
úrvalsvara á milli tanna honum.
-gg
Vestfjarðavegir
Bundið slitlag á 45 kílómetra
Vestfirðingar fá 127 milljónir til nýframkvæmda í vegamálum í ár. Vegir með
bundnu slitlagi verða 155 kílómetrar í stað 110. Nýr kafli á
Steingrímsfjarðarheiði. Vegskáli undir Óshlíð
Óvíða skipta fjárveitingar til
vegamála eins miklu máli og á
Vestfjörðum, þar sem samgöngur
á landi eru mjög örðugar stóran
hluta ársins og fremur fátt um
vegarkafla þar sem lagt hefur ver-
ið bundið slitlag oná ójafna mal-
arvegina.
Fjárveitingar til nýfram-
kvæmda á landinu öllu nema á
þessu ári um 900 milljónum
króna, en þar af fá Vestfirðingar
127 milljónir. Á þessu ári verður
að sögn Gísla Éiríkssonar um-
dæmisverkfræðings Vegagerðar-
innar lagt bundið slitlag á samtals
45 kílómetra langan kafla og
verða þá áður en árið líður alls
155 kílómetrar lagðir bundnu slit-
lagi, en voru 110 áður.
Helstu framkvæmdir Vega-
gerðarinnar á Vestfjörðum fyrir
utan lagningu bundins slitlags eru
annars vegar lagning burðarlags á
10 kílómetra kafla á Steingríms-
fjarðarheiði og á því verki að
Ijúka fyrir veturinn. Á næsta ári
er svo stefnt að því að bundið
slitlag verði lagt á þennan kafla.
Hins vegar stendur yfir bygg-
ing vegskála undir Óshlíð, nánar
tiltekið við Hvanngjá ytri. Þessi
skáli er annar í röðinni undir Ós-
hlíðinni, en markmiðið er að
byggja tvo til viðbótar á þessu
svæði, þótt líklega verði einhver
bið á því.
-gg
Veitingar — Gisting
Ferðafólk verið velkomið til okkar.
Höfum góðan mat og kaffi ó boðstólum allan
daginn, ósamt ýmsum öðrum varningi.
Gisting í 1—2 manna herbergjum.
Góð setustofa.
Essó olíur — bensín — gas
og ýmsar smóvörur fyrir ferðamanninn og
bílinn.
Opið allan daginn — alla daga.
ESSO NESTI
TÁLKNAFIRÐI
Essonesti » 94-
s
I
\
ÐUREYRA
HREPPUR
ÝÐUR ÞIG
rELKOMINl
R
s
SUNDLAUG
ÖLL ALMENN
FERÐAMANNAÞJÓNUSTA
v