Þjóðviljinn - 12.08.1987, Page 19
Og
þetta
líka...
Brasilíumaðurinn
Jose Reinaldo, sem lék meö lands-
liði Brasilíu í heimsmeistarakeppn-
inni í knattspyrnu 1978, hefur nú
gengið til liðs við 2. deildarlið Tel-
star í Hollandi. Reinaldo hætti
reyndar knattspyrnu í fyrra sökum
hnémeiðsla, en tekur nú fram
skóna að nýju og bíður eftir
atvinnuleyfi.
Spænsk lið
í 1. deild geta nú haft í liði sínu eins
marga útlendinga og hugurinn
girnist. Þó mega aðeins tveir leika
með liði í einu. Með því að fara
lítillega í kringum lögin, sem eru frá
1978 og segja að ekki megi nema
tveir útlendingar leika með hverju
liði, geta spænsku liðin haft fleiri
útlendinga. Þó verður að láta
knattspyrnusambandið vita með
48 stunda fyrirvara. Þetta kemur
sér að sjálfsögðu vel fyrir stóru lið-
in, en smáliðin sem hafa ekki ráð á
útlenskum stjörnum hafa mótmælt
á jafnréttisgrundvelli.
Mick Kennedy
sem leikur með Portsmouth var nú
fyrir stuttu dæmdur til að greiða
5.000 pund í sekt fyrir óvönduð um-
mæli í blaðagrein. Þetta er hæsta
sekt sem leikmaður hefur þurft að
greiða. Kennedy kallaði annan
leikmann „kjúkling" og átti þar við
að hann væri ragur og sagði einnig:
„Þeir segja að ég sé harðasti leik-
maðurinn í knattspyrnunni og ég er
stoltur af því.“ Forráðamenn enska
knattspyrnusambandsins telja að
greinar sem þessar hafi slæm áhrif
á leikinn og því þurfti Kennedy að
snara út sem svarar 300.000 ísl. kr.
Tveir hlauparar
þeir Ray Stewart frá Jamaika og
Mark Witherspoon frá Bandaríkj-
unum hlupu á betri tíma en gildandi
heimsmet Calvins Smith í 100
metra hlaupi. Metið er 9.93, sett
fyrir fjórum árum. Stewart hljóp á
9.89 og Witherspoon á 9.91 sek-
úndu. Vindhraði var of mikill til að
þessir tíma fengjust viðurkenndir,
eða um 4.4 metrar á sekúndu.
ÍÞRÓTTIR
Körfubolti
Sex nýir þjálfarar
í Úrvalsdeildini
Aðeins þrjú af níu liðum Úrvals-
deildarinnar verða með sömu þjálf-
ara og í fyrra. Þar af eru tveir frá
Bandaríkjunum og tvö félög eru nú
að leita að bandarískum þjálfara.
Valur Ingimundarson mun þjálfa
Njarðvíkinga. Lið þeirra hefur ekki
tekið miklum breytingum, en
Sturla Örlygsson er genginn að
nýju til liðs við sína gömlu félaga.
John West, sem þjálfaði Vals-
menn í fyrra kemur ekki aftur.
Samingar voru næstum frágengnir,
en nú fyrir skömmu fékk West til-
boð sem hann gat ekki hafnað og
því varð ekkert úr komu hans hing-
að. f stað hans kemur þjálfari sem
heitir Steve Bergman. Hann er um
þrítugt og frá sama stað og West,
Debuque, Iowa og hefur þjálfað í
sama skóla. Þá hefur Þorvaldur
Geirsson gengið til liðs við Vals-
menn, en hann lék með Fram í
fyrra.
Gunnar Þorvarðarson mun
þjálfa Keflvíkinga áfram. Þeir hafa
nú fengið Axel Nikulásson og
Magnús Guðfinnsson frá Banda-
ríkjunum og eru með sterkt lið.
Pálmar Sigurðsson mun þjálfa
Hauka. Jón Sigurðsson þjálfaði lið-
ið í fyrra, en nú tekur Pálmar við.
Það verður án efa mjög erfitt verk,
enda ekki heiglum hent að leika og
þjálfa. Haukar hafa fengið ívar
Webster að nýju frá Þór. Hann
mun án efa styrkja liðið verulega.
KR-ingar eru nú að þreifa fyrir
sér með bandarískan þjálfara.
Gunnar Gunnarsson mun ekki
þjálfa liðið, en KR-ingar ganga lík-
lega frá ráðningu þjálfara nú á
næstu dögum.
Það verða fjögur ný lið í Úrvals-
deildinni í vetur, ÍR, Grindavík,
Þór og Breiðablik. Aðeins tvö af
þessum liðum hafa ráðið þjálfara.
Einar Bollason mun halda áfram
með ÍR-liðið.
Grindvíkingar hafa ráðið banda-
rískan þjálfara, Brad Casy. Hann
kemur í stað Richard Ross sem
þjálfaði liðið í fyrra. Casy er af svip-
uðum slóðum og Ross og Bergman,
þjálfari Vals.
Breiðablik mun að öllum líkind-
um ráða þjálfari nú í vikunni og
Þórsarar eru að leita fyrir sér með
bandarískan þjálfara. ívar Webster
sem þjálfaði þá í fyrra er nú
genginn til liðs við Hauka að nýju.
Það verða 9 lið sem leika í Úr-
valsdeildinni í vetur í stað sex.
Leikin verður tvöföld umferð.
Hvert lið leikur 16 leiki í stað 20,
en alls verða leikirnir 72 í stað 60 í
fyrra.
Úrslitakeppnin verður á sínum
stað, en þangað fara fjögur efstu
liðin, líkt og undanfarin ár.
Eitt lið fellur beint í 1. deild og
næstneðsta liðið í Úrvalsdeildinni
leikur þrjá leiki gegn því næstefsta í
1. deild.
Liðin sem leika í Úrvalsdeildinni
eru: UMFN, Valur, ÍBK, KR,
Haukar, ÍR, Þór, UMFG og UBK.
Framarar eru hættir keppni í körfu-
knattleik, í bili a.m.k.
Það verða einnig níu lið sem Ieika
í 1. deild og 2. deild heyrir því sög-
unni til. Keppni verður með sama
sniði og íÚrvalsdeildinni, en engin
úrslitakeppni.
Keppni hefst í deildunum 16.
október, hálfum mánuði síðar en í
fyrra. Ástæðan fyrir því er keppnis-
ferð landsliðsins. -lbe
Pálmar Slgurðsson og Einar Bollason fagna sigri með landsliðinu. Pálmar mun þjálfa Hauka í vetur oq Einar iR-inaa Á
milli þeirra má sjá í Gunnar Þorvarðarson sem þjálfar fBK.
Knattspyrna
Ikvöld
Það er mikið að gerast í knatt-
spyrnunni í kvöld og leikið í 2., 3.
og 4. deild karla.
ÍBV og Leiftur leika í 2. deild-
innni. Leikurinn er í Vestmanna-
eyjum og hefst kl. 19.
Einn leikur er í 3. deild. ÍK og
Skallagrímur leika á Kópavogs-
velli og hefst leikurinn kl. 19.
Þá er heil umferð í úrslita-
keppni 4. deildar. Bolungarvík
og Víkverji leika í Bolungarvík,
Árvakur og Grótta á gervigrasinu
í Laugardal og Hvöt og HSÞ.c. á
Blönduósi. Allir leikirnir hefjast
kl. 19.
Handbolti
Tap gegn
S-Kóreu
íslenska landsliðið lék í gær æf-
ingaleik gegn S-Kóreu í hand-
knattleik. Leiknum lauk með
sigri heimamanna, 34-31.
Þessi leikur var aðeins æfinga-
leikur og þeir sem lítið spiluðu í
leikjum liðanna f mótinu, fengu
að spreyta sig.
íslendingarnir eru mjög
ánægðir með þessa ferð, enda var
hún fyrst og fremst hugsuð til
æfinga og til að kynnast aðbúnaði
í olympíuborginni, Seoul. ís-
lenska liðið lék m.a. í sjálfri ol-
ympíuhöllinni og leist vel á að-
stæður. -Ibe
4F -¥--¥-4F -¥-
Það er aðeins ein breyting á
Stjörnuliði Þjóðviljans eftir 13 umferð-
ir. Vilhjálmur Einarsson kemur að
nýju í liðið í stað Guðmundar Vals
Sigurðssonar.
Stjörnulið Þjóðviljans eftir 13. um-
ferðir, stjörnufjöldi í svigum:
Birkir Kristinsson ÍA (12)
Birgir Skúlason Völsungi (8)
Sævar Jónsson Val (10)
Guðni Bergsson Val (11)
Vilhjálmur Einarsson Víði (7)
Gunnar Oddsson ÍBK (11)
Andri Marteinsson KR (9)
Halldór Áskelsson Þór (11)
Pétur Ormslev Fram (15)
Pétur Pétursson KR (12)
Jón Grétar Jónsson Val (9)
Knattspyrna
Endasprettur hafinn í 2. deild
Níu lið eiga möguleika á sœti í 1. deild
Selfoss Víkingur
Þrátt fyrir að nú séu aðeins fimm
umferðir eftir af keppni í 2. deild
eiga öll liðin ncma eitt möguleika á
sæti í 1. deild.
Möguleikarnir eru mismiklir, en
þó raunhæfir hjá flestum liðum.
Leiftursmenn standa best að vígi
með 23 stig og leik til góða og Vík-
ingur, Selfoss, Þróttur eru skammt
undan.
Leiftur
Leiftur er tvímælalaust liðið sem
hefur komið mest á óvart. Þeir
komu upp úr 3. deiid og ekki var
búist við miklu af Ól-
afsfirðingunum, margir á því að
þeir myndu falla beint aftur í 3.
deild. En þeir hafa sýnt að þeir hafa
baráttuvilja og góða leikmenn og
stefna hraðbyri á sæti í 1. deild.
Þeir hafa ekki tapað leik á heima-
velli og aðeins gert eitt jafntefli, en
aðeins unnið einn leik á útivelli.
Þeir eiga leik til góða gegn ÍBV f
Vestamnnayejum.
Markahæstir:
5 Steinar Ingimundarson
4 Óskar Ingimundarson
3 Hafsteinn Jakobsson
Selfyssingar voru ekki langt frá
því að komast upp í fyrra og var því
búist við miklu af þeim í ár. Þeir
byrjuðu mjög illa, en hafa náð sér á
strik í síðustu leikjum og eru nú í 2.
sæti, eftir góða leiki að undan-
fömu.
Þeir hafa aðeins tapað einum leik
á heimavelli, ekki unnið leik á úti-
velli, en gert fjögur jafntefli á
völlum andstæðinganna.
Markahæstir:
7 Jón Gunnar Bergs
5 Heimir Bergsson
4 Lúövík Tómasson
3 Páll Guömundsson, Jón Birgir Kristins-
son
Þróttur
Þróttarar hefa verið á frekar
jöfnum hraða. Byrjuðu vel og hald-
ið sér meðal toppliða. Þá vantar
aðeins meiri stöðugleika til að geta
verið öruggir með sæti í 1. deild.
Markahæstir:
6 Siguröur Hallvarðsson
5 Sigfús Kárason
3 Daði Haröarson, Theodór Jóhannsson,
Atli Helgason, Kristján Svavarsson
Það stefndi allt í öruggan sigur
Víkinga í deildini eftir fyrstu um-
ferð. Þeir byrjuðu af mikíum krafti
og töpuðu aðeins einum af fyrstu
átta leikjum mótsins og höfðu yfir-
burði í deildinni. En svo hættu hjól-
in að snúast og þeir töpuðu fjórum
leikjum í röð. Þeir sigruðu KS í síð-
asta leik og virðast vera komnir í
gang að nýju. Júrí Sedov hefur haft
góð áhrif að liðið og leikmenn virð-
ast hafa þann metnað sem þarf til
að ná í 1. deild.
Markahæstir:
10 Trausti Ómarsson
3 Atli Einarsson
ÍR
ÍR-ingar hafa komið mikið á
óvart. Þeir unnu aðeins tvo af
fyrstu sjö leikjum sínum,en þá
komust þeir á skrið. Heimir Karls-
son hefur verið iðinn við kolann og
er greinilega stór hluti af liðinu.
Markahæstir:
12 Heimir Karlsson
4 Páll Rafnsson, Bragi Bjömsson
ÍBV
Það er ekki gott að henda reiður
á Vestmannaeyingunum. Þeir leika
á köflum mjög vel, en þess á milli
detta þeir niður. Lið þeirra er ungt
og fékk slæma útreið í 1. deildinni í
fyrra. Leikmenn liðsins hafa fengið
góða reynslu þar og verða án efa
með efstu liðum í deildinni.
Þeir eiga einn leik til góða, gegn
Leiftri í kvöld.
Markahæstir:
6 Tómas Ingi Tómasson
5 Bergur Ágústsson
4 Elias Friðriksson
Einherjí
Vopnfirðingarnir byrjuðu ágæt-
lega og töpuðu ekki leik fyrr en í 5.
umferð. Þeir hafa haldið sínu striki
og eru til alls líklegir.
Þeir hafa náð mjög góðum árang-
ri á heimavelli, fimm sigrar í sex
leikjum og eitt jafntefli. Þeir hafa
hinsvegar ekki enn sigrað á útivelli.
Markahæstir:
5 Kristján Davlðsson
3 Viðar Sigurjónsson, Guðmundur Helga-
son
Breiðablik
Blikamir hafa valdið verulegum
vonbrigðum. Þrátt fyrirgóðan hóp,
tókst þeim aðeins að vinna fjóra
leiki í fyrri umferðinni. Þeir hafa
svo tapað þremur af fjórum
leikjum síðari umferðarinnar.
Þorsteinn Friðþjófsson hefur nú
tekið við liðinu af Jóni Hermanns-
syni. Liðið á þó ekki mikla mögu-
leika á sæti í 1. deild.
Markahæstir:
4 Jón Þórir Jónsson
3 Ingvaldur Gústafsson, Magnús
Magnússon, Ólafur Bjömsson
KS
Siglfirðingar hafa oft verið
„spútniklið" í 2. deild. Þeim hefur
þó ekki tekist mjög vel upp. Þrátt
fyrir góða leikmenn hafa þeir ekki
náð þeim stigum sem þeir þurfa til
að halda sér í toppslagnum.
Liðið er nú í fallsæti, en á án efa
eftir að ná stigum í siðustu leikjun-
um.
Markahæstir:
7 Hafþór Kolbeinsson
3 Björn Ingimarsson, Jónas Björnsson
ÍBÍ
ísfirðingar verða líklega að sætta
sig við að falla. Það er a.m.k. ótrú-
legt að þeim takist að halda sér
uppi. Þeir eru aleinir á botninum,
en stigatalan gefur kannski ekki
rétta mynd af getu þeirra.
Markahæstir:
3 Ólafur Petersen, Guömundur Jóhanns-
son _ibc
Mlðvikudagur 12. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19