Þjóðviljinn - 12.08.1987, Page 20

Þjóðviljinn - 12.08.1987, Page 20
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þJÓDVIUINN Mlðvikudagur 12. dgúst 1987 174. tölublað 52. ároangur Bretlandsmarkaður Sölumet hjá Viðey RE Fyrir292 tonnfengust 17.3 milljónir króna. Tæp279þúsund sterl- ingspund. Á einnigsölu- metið á Þýskalandsmark- aði Togarinn Viðey RE setti í gær nýtt söiumet í ísfísksölu í Bret- landi. Fyrir 292 tonn, sem aðal- lega voru þorskur, fengust taep 279 þúsund sterlingspund, sem eru um 17,3 milljónir króna. Meðalverð var 58 krónur fyrir kílóið. Eldra met átti togarinn Vigri RE sem sett var í janúar í ár en þá fékk hann 277 þúsund sterl- ingspund fyrir söluna. Viðey RE á einnig sölumetið á Þýskalandsmarkaði sem sett var fyrir þremur árum. Þá voru séld 380 tonn fyrir rúma eina milljón marka. Það er Hraðfrystistöðin hf. sem gerir Viðey RE út. grh Bifreiðaeftirlitið Aðal- skoðun á ný Bifreiðaeftirlitsmenn í Reykjavík komnir úrfríi að skoða bíla á ný Aðalskoðun bifreiða á höfuð- borgarsvæðinu hófst að nýju hjá Bifreiðaeftirlitinu í Reykjavík í fyrradag eftir að aðalskoðun hafði legið niðri í rúmlega mán- uð. Að sögn Hauks Ingibergssonar á enn eftir að skoða talsvert marga bíla með R-númer undir 50,000, enda þótt skoðun þessara bfla hafi átt að ljúka í júlíbyrjun og mega eigendur óskoðaðra bfla eiga von á hertum aðgerðum lög- reglu á næstunni. Um næstu mánaðamót hefjast bifreiðaeftirlitsmenn svo handa við að skoða bfla sem bera R- númer yfir 50,000. ___ Mosfellsbær Eldur í kjúklinga- bstastaö Slökkvilið Reykjavíkur var kvatt að kjúklingabitastað í Mos- fellsbæ klukkan 7.15 í gærmorg- un. Þegar að var komið logaði þó nokkur eldur í húsnæðinu, en greiðlega gekk að slökkva hann. Töluverðar skemmdir urðu af völdum reyks og elds. Um eld- supptök er ekki vitað með vissu en grunur leikur á að kviknað hafi í út frá steikingartækjum. Málið er í rannsókn. grh Ferðaþjónustan Alagið dreifist betur Erlendumferðamönnumfjölgaði um tœplega 15% fyrstu sjö mánuði ársins miðað við sama tíma ífyrra. Aðeins3% aukningíjúlí. Kjartan Lárusson: Straumurinn er að jafnast Það er ekki hægt annað en að vera mjög ánægður með fjölg- un erlendra ferðamanna það sem af er árinu, enda þótt væntingar sumra varðandi júlímánuð hafí ekki ræst að fullu, sagði Kjartan Lárusson formaður Ferðamála- ráðs í samtali við Þjóðviljann í gær, en samkvæmt upplýsingum frá Útlendingaeftirlitinu fjölgaði erlendum ferðamönnum hér- lendis um tæplega 15% fyrstu sjö mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra. Hins vegar nemur aukningin í júlí í ár miðað við júlí í fyrra að- eins um 3%, sem er minna en margir höfðu gert s'ér vonir um. „Aukningin á fyrstu 5 mánuð- um ársins var alveg einstæð, sem þýðir að straumurinn er að jafn- ast á árið og það tel ég mjög já- kvætt. Varðandi júlímánuð vil ég benda á að fjölgun ferðamanna í júlí hefur verið mjög mikil frá ári til árs undanfarin þrjú ár og það er að mínu mati skiljanlegt að sá mánuður sé að mettast," sagði Kjartan í gær. Samkvæmt upplýsingum Út- lendingaeftirlitsins komu 78,042 útlendingar til landsins frá ára- mótum til júlfloka í ár, en 67,933 í fyrra. 1 júlí 1987 komu 27,657 út- lendingar til landsins, en 26,830 í júlí í fyrra. Ef litið er á þjóðerni ferða- mannanna kemur í ljós að Bandaríkjamenn voru mest áber- andi meðal þeirra sem komu til landsins í júlí, alls 6,295. Næstir komu Vestur-Þjóðverjar, alls 4,354. Raunar má rekja fjölgun ferðamanna í júlí að verulegu leyti til þess að Bandaríkjamönn- um á íslandi fjölgaði um 484 frá í júlí 1986. -gg Skyldu þeir vera að spá í að kaupa þenna bíl, þeir félagar Ingl R. Helgason, fjölmörgum, sem tryggður hefur verið hjá öðrum hvorum og er geymdur þar til forstjóri Brunabótafélags Islands til vinstri og Ólafur B. Thors forstjóri Al- annaðverðurákveðiðínýjumogvistlegumhúsakynnumTjónaskoðunarstöðv- mennra Trygginga hf.? Svo er nú ekki heldur er hér um að raeða bíl, einn af arinnar að Smiðjuvegi 1 í Kópavogi. (Mynd: Ari) Alm. tryggingar/BÍ Sameiginleg tjónaskoöun Sameiginlegstöð Almennra trygginga hf. og Brunabótafélags íslands. Þarfer fram m.a. skoðun bifreiðatjóna og mat á viðgerðarkostnaði Þetta er allt annað líf og kemur til með að gjörbreyta allri okkar þjónustu til hins betra fyrir okkar viðskiptavini, segir Ást- valdur Andrésson tjónaskoðunar- maður hjá Brunabótafélagi ís- lands. í dag tekur til starfa í fyrsta skipti á íslandi Tjónaskoðunar- stöðin sf. sem er sameiginleg stöð tveggja tryggingafélaga, Al- mennra trygginga hf. og Bruna- Alþýðubankinn r~ Beðið eftir Asmundi Magnús Geirsson: Einungis óformlegarþreifingar- engar ákvarðanir teknar Fundahöld liggja niðri eins og stendur. Það hafa aðeins farið fram óformlegar þreifíngar um samstarf við aðra banka, - Samvinnu- og Iðnaðarbanka. Þessar viðræður voru að þeirra ósk en ekki Alþýðubankans, sagði Magnús Geirsson, formað- ur Rafíðnaðarsambandsins, sem á sæti í bankaráði Alþýðubank- ans, en heimildir blaðsins herma að Alþýðubankinn hafí óskað eftir viðræðum við umrædda banka auk Landsbankans um sameiningu eða samstarf. Magnús sagði að ótrúlegt væri að framhald yrði á viðræðum fyrr en Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ og formaður bankaráðs, sneri til landsins úr sumarleyfi. - Það hafa engar ákvarðanir verið teknar. Menn hafa einungis ræðst óformlega við. - Ég á frekar von á því að hlut- hafafundur verði kallaður saman með haustinu til að ræða um framtíð Alþýðubankans. Málefni Alþýðubankans hafa mér vitan- lega ekki verið rædd sérstaklega í verkalýðshreyfingunni, sagði Magnús. -RK bótafélags Islands. Tilgangur hennar er meðal annars skoðun bifreiðatjóna og mat á viðgerð- arkostnaði. Stöðin er algjör nýj- ung hér á landi og með tilkomu hennar er stefnt að því að ná betri og hagkvæmari rekstri og tökum á þessum þáttum trygginga- starfseminnar, jafnt fyrir við- skiptavini, bflaverkstæðin og tryggingafélögin tvö sem starf- rækja hana. Tjónaskoðunarstöð- in sf. er til húsa að Smiðjuvegi 1 í Kéipavogi. Meðal nýjunga má geta þess að framvegis-verður útboð á tjóna- bflum félaganna sem tilbúnir eru til sölu á hverjum mánudegi í Tjónaskoðuríárstöðinni. For- stöðumaður stöðvarinnar er Kristján G. Tryggvason og skoðunarmenn eru Eiríkur Ól- afsson og Ástvaldur Andrésson. grh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.