Þjóðviljinn - 20.08.1987, Page 2
■mSPURNÍNGINhh
Ert þú búin(n) að fara í berjamó í
sumar?
Guðrún Markúsdóttir, kennari:
Já, ég er búin. Fórum þrjú í Hestfjörð
og Mjóafjörð fyrir vestan. Við náðum
að tína mjög mikið á skömmum tíma,
mest aðalbláber og bláber. Það var
mjög mikið af berjum og ég held að
ég hafi aldrei sóð eins mikið af berjum
og í sumar.
Elín Kristmundsdóttir, skrifstofu-
mær:
Nei, en ég ætla mér að fara ein-
hverntíma í sumar. Þá fer ég væntan-
lega uppí Heiðmörk til að tína kræki-
ber, sem notuð verða til matar.
Sveinn Sigmundsson, bóndi:
Já, rétt aðeins. Ég fór til berja norður í
Eyjafirði, þar sem ég bý. Mest tíni ég
krækiber, sem síðan eru notuð út á
skyr, svo dæmi sé tekið. Það er ágæt-
is berjaspretta fyrir norðan.
Hörftur Magnússon, kraftlyftinga-
maður:
Já, ég er búinn. Fór í Heiðmörkina um
síðustu helgi og tíndi hálft kíló af
krækiberjum, sem ég notaði út á skyr.
Það var ekki annað að sjá en að berj-
asrpettan í sumar só bara ágæt.
Inga Jóhannesdóttir, verslunar-
maður:
Já, ég er búin. Ég tíndi bæði krækiber
og bláber, og það virtist vera nóg af
þeim í sumar. Ég nota berin aðallega
út á skyr og svo borðar maður þau
eftir þörfum.
FRÉTTIR
Fossvogsbraut
Mótmælin ítrekuð
Bæjarstjórn Kópavogs gerir margvíslegar athugasemdir við tillögur að
nýju aðalskipulagi Reykjavíkurborgar
Kristján Guðmundsson bæjarstjóri Kópavogs í Fossvogsdalnum: ítrekum mótmæli okkar við tillögum borgarinnar Um
stofnbraut í dalnum, hvað þá inni á okkar landi. Mynd - E. Ól.
Kópavogsbúar hafa sitthvað við
aðalskipulag Reykjavíkur-
borgar 1984 til 2004 að athuga. Á
fundi bæjarstjórnar fyrr í vik-
unni var samþykkt að gera at-
hugasemdir við skipulagið, að
sögn Kristjáns Guðmundssoanr,
bæjarstjóra, voru þær samþykkt-
ar einróma.
Fyrsti ásteytingarsteinninn er
sú margrædda Fossvogsbraut.
Bæjarstjórn Kópavogs mótmælir
því að gert sé ráð fyrir að lögð
verði stofnbraut um Fosvogsdal,
hvað þá í landi Kópavogskaup-
staðar. Bæjarstjórn vísar til fyrri
athugasemda sinna, mótmæla og
raka í þessu máli, og ennfremur
til samþykkis aðalskipulags Kóp-
avogskaupstaðar 1982 til 2003,
þar sem ákveðið er útivistarsvæði
í öllum Fossvogsdal í landi Kópa-
vogs.
Um Arnarnesveg (Ofanbyggð-
arveg) segir í samþykkt bæjar-
stjórnar: laðalskipulagi Reykja-
víkur 1984 til 2004 er lega Arn-
arnesvegar norðan í Vatnsenda-
hverfi færð ofar en áður var sam-
þykkt, og er nú sýnd á bæjar-
mörkunum Kópavogsmegin í
vesturendann en á miðjum
mörkunum í austurendann.
Þetta brýtur í bága við fyrri
uppdrætti frá skipulagsstjórn
ríkisins og þá legu sem sýnd er á
uppdrætti austursvæða Reykja-
víkur, staðfestum 5. mars 1982 og
gert er ráð fyrir í aðalskipulagi
Kópavogs 1982 til 2003.
Þá gerir bæjarstjórnin athuga-
semdir við bæjarmörk um Víðu-
velli. Sýnd eru bæjarmörk sem
fylgja farvegi Dimmu frá Græn-
ugróf að Skyggnislæk, sem er að
hluta breyttur farvegur Bugðu.
Þessu er mótmælt, þar eð mörkin
teljast liggja úr Grænugróf að
þúfu á Selási, svo sem sýnt er á
uppdrætti aðalskipulags Kópa-
vogs 1982 til 2004.
Bæjarstjórn Kópavogs óskar
þess að athugasemdir þessar
verði teknar til greina og upp-
drætti breytt í samræmi við þær.
HS
Kvikmyndun
Námskeið um gerð handrita
Guðbrandur Gíslason framkvœmdastjóri Kvikmyndasjóðs: Hand-
ritsgerð helsti veikleikinn ííslenskum myndum. Samvinna við endur-
menntunardeild Háskólans
Mörgum hefur fundist hand-
ritsgerð vera helsti veik-
leikinn í íslenskum kvikmyndum
og námskeiðið er einmitt til þess
ætlað að gefa handritshöfundum
kost á því að nema undir stjórn
manns sem kann vel til verka,
sagði Guðbrandur Gíslason,
framkvæmdastjóri Kvikmynda-
sjóðs íslands, en sjóðurinn efnir
til námskeiða í gerð kvikmynda-
handrita í samvinnu við endur-
menntunarnefnd Háskólans, og
hefjast þau um miðjan septemb-
er.
Kennt verður á tveimur nám-
skeiðum. Á byrjendanámskeiði
verða kennd undirstöðuatriði í
ritun handrita, ogmunu nemend-
ur skila riti að hálftímaþætti í lok
námskeiðsins. Kennari verður
Bandaríkjamaðurinn Martin
Daniel, og byggir námskeið hans
á námsefni sem faðir hans Fra-
ntisek Daniel, þróaði við FAMU,
tékknesku kvikmyndaakademí-
una í Prag, en þar var hann kenn-
ari áður en hann fluttist til
Bandaríkjanna.
Á framhaldsnámskeiði mun
Daniel leiðbeina höfundum sem
eru að vinna að gerð handrits
fyrir kvikmynd í fullri lengd. Há-
marksfjöldi þátttakenda á því
námskeiði er tíu.
Að sögn Guðbrands hefur
Kvikmyndasjóður mætt miklum
veivilja Háskólans, en þetta er í
fyrsta skipti sem efnt er til sam-
vinnu um slíkt námskeiðshald.
„Þetta er hluti af þeirri stefnu Há-
skólans að tengjast atvinnuveg-
unum, og kvikmyndagerð má
mætavel líta á sem einn þeirra.
Við fögnum því að Háskólinn
skuli vilja styðja við bakið á okk-
ur með þessum hætti,” sagði
Guðbrandur. HS
Hjálparstofnun kirkjunnar
Fatasöfnun fyrir flóttafólk
Neyðarkallfrá Alkirkjuráðinu vegna hörmunga sem steðja að flótta-
fólki sem flýr borgarastyrjöldina í Mósambik
Hjálparstofnun kirkjunnar hef-
ur ákveðið að efna til fata-
söfnunar dagana 27.-29. ágúst
n.k. fyrir flóttafólk sem flúið hef-
ur borgarastyrjöldina í Mósabik
og hefst nú við í flóttamannabúð-
um « S-Afríku og Malawi. Miklir
kuldar hafa verið á þessum svæð-
um að undanförnu og flóttafólkið
illa búið.
Að sögn framkvæmdastjóra
dönsku hjálparstofnunarinnar er
ástandið í Mósambik mjög alvar-
legt og talið að nær 5 miljónir af
13 miljónum íbúa landsins séu við
hungurmörkin.
íslenska hjálparstofnunin hef-
ur þegar fengið þrjá gáma fulla af
fatnaði sem Ingþór Sigurbjörns-
son hefur safnað í nafni Góð-
templarareglunnar og eins hefur
Rauði krossinn gefið 6 tonn af
fötum í þessa söfnun. Einkum er
beðið um föt fyrir konur og börn.
Ættarveldið
Ekki bræður
Sú villa slæddist inn í fróðlega
fréttaskýringu í blaðinu í gær um
ættarveldi íhaldsins að þeir
Hallgrímur Benediktsson og
Sveinn Benediktsson voru sagðir
bræður.
Þó tengslin á milli H.Ben og
Skeljungs séu óneitanlega mikil
þá er Hallgrímur ekki úr hópi
þeirra bræðra, Sveins, Péturs og
Bjarna Benediktssona. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
2 SfÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. ágúst 1987