Þjóðviljinn - 20.08.1987, Page 3
nra ÖRFRÉTTIR i
Alþjóðlega
friðarhlaupinu
var formlega slitiö í New York fyrr
í þessum mánuði. Alls voru
hlaupnir rúmlega 46 þús. km.
víös vegar um heiminn og vakti
myndarlegt framlag íslendinga til
hlaupsins mikla athygli. Viö lok
hlaupsins í New York flutti Jó-
hanna Tómasdóttir ritari íslensku
fastanefndarinnar hjá Samein-
uöu þjóðunum ávarp en alls voru
10 sérlegir fulltrúar SÞ viðstaddir
athöfnina.
Slysavarnaskóli
sjómanna tekur á ný til starfa aö
loknu sumarleyfi í byrjun sept-
ember. Áríðandi er að þeir sem
vilja komast á námskeið fyrir ára-
mót hafi samband við skrifstofu
Slysavarnafélagsins sem fyrst.
21 íslenskur
námsmaður hefur hlotið náms-
styrk frá breska utanríkisráðu-
neytinu fyrir komandi námsár.
Styrkirnir nema nær 6 miljónum
íslenskra króna. Styrktarféð er
notað til að greiða niður skóla-
gjöld en erlendir námsmenn í
Bretaveldi verða að borga fyrir
skólanámið fullt kostnaðarverð,
samkvæmt lagaboði Thatchers.
Þrír nýir flokkar
spariskírteina ríkissjóðs eru nú til
sölu. Nýju bréfin bera vexti á bil-
inu 7,2%-8,5% umfram verð-
tryggingu. Um er að ræða söfn-
unarskírteini til 2ja og 4ra ára og
hefðbundin spariskírteini með 6
mánaða bindiskyldu.
Rokkkvöld
verður í skemmtistaðnum Evr-
ópu í kvöld. Hljómsveitirnar For:
ingjarnir og Exizt sjá um fjörið. í
Duus húsi leikur hljómsveitin
Gildran og hefjast þeir tónleikar
kl. 21.00.
10 þúsund kr.
tékkar og lægri sem gefnir eru út
á Iðnaðarbankann eru fulltryggð-
ir af bankanum frá og með gær-
deginum. Áður ábyrgðist bank-
inn tékka allt að 3 þús. kr.
PR-búðin í Kópavogi
hefur gert samning við fyrirtækið
Dansk storkökken indretning
sem hefur um árabil sérhæft sig í
sölu á öllum tækjabúnaði í stór-
eldhús. Annast PR-búðin þjón-
ustu og sölu fyrir danska fyrirtæk-
ið og mun í næsta mánuði opna
sýningasal þar sem tækjabúnað-
urinn verður sýndur að
Kársnesbraut 106.
Fóðrun fiska
verður umfjöllunarefni dr. H. Ge-
orges Ketola sem heldur erindi á
vegum Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins kl. 14.00 á föstu-
dag. Fundurinn verður haldinn
að Keldnaholti og er opinn öllu
áhugafólki um fiskeldi.
FRETTIR
Valur Arnþórsson sagði Jóni Sigurðssyni á fundi þeirra i gær að Sambandið væri tilbúið til að kaupa öll hlutabréf ríkisins í Útvegsbankanum. Mynd E.ÓI.
/
Utvegsbankinn
Stjómarslit í loftinu
Upplausn hjá íhaldi. Porsteinn með krossapróf: Á að slíta? Steingrímur Hermannsson: Gerir
illtverra. Búnaðarbankinninnímyndinni. Þarf lagabreytingu til að selja hann
Algjört upplausnarástand ríkir
í Sjálfstæðisflokknum eftir til-
boð Sambandsins í hlutabréf
ríkisins í Útvegsbankanum. I gær
mun Þorsteinn Pálsson hafa látið
hringja í flokksráð flokksins, sem
er æðsta stofnun hans milli lands-
funda, og lagt þá spurningu fyrir
flokksráðsmenn hvort slíta bæri
stjórnarsamstarfinu ef Alþýðu-
flokkur og Framsóknarflokkur
sameinuðust um að selja Sam-
bandinu Útvegsbankann.
Spurningin var f formi krossa-
prófs og var í fyrsta lagi spurt
hvort Sjálfstæðisflokkurinn ætti
að fallast á sölu á hlutabréfunum
til Sambandsins. Einnig var spurt
hvað Sjálfstæðisflokknum beri að
gera ef kratar og framsókn á-
,kveða að selja SIS hlutabréfin:
ekki neitt, gera sérstaka bókun
eða slíta stjórnarsamstarfinu.
Með þessu útspili hyggst Þor-
steinn sýna samráðherrum sínum
að mikið er í húfi. Jón Baldvin
svaraði því til í gær að Alþýðu-
flokkurinn léti ekki setja sér
neina afarkosti í ríkisstjórnars-
amstarfinu og Steingrímur Her-
mannsson sagði við Þjóðviljann
að svona hótun breytti engu og
gerði bara illt verra. Jafnframt
segja menn að þetta sýni ljóslega
hversu veik staða Þorsteins er
innan flokksins og kalla þetta
tossapróf Þorsteins.
Jón Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra, átti í gær fund með Vali
Arnþórssyni og í kjölfar þess átti
hann fund með Kristjáni Ragn-
arssyni, formanni LÍU, sem hef-
ur verið í forsvari fyrir tilboði
einkageirans.
Meðal þess sem rætt var á þess-
um fundum var hvort Sambandið
væri reiðubúið til að kaupa öll
hlutabréf ríkisins í bankanum og
mun því hafa verið svarað ját-
andi. Á fundi viðskiptaráð-
herra og Kristjáns Ragnarssonar
munu tryggingar fyrir eftirstöðv-
alánum 33 fyrirtækja og einstak-
linga hafa borið á góma, en
fjármálaráðuneytið hefur farið
fram á að tilboðsgjafar gerðu
grein fyrir þeim og var þeim gef-
inn frestur fram á föstudag.
Málið mun verða tekið fyrir á
ríkisstjórnarfundi á morgun en
ólíklegt þykir að það verði út-
kljáð þar, heldur verði beðið
fram yfir helgi og reynt að útkljá
það á ríkisstjórnarfundi á þriðju-
dag.
Ein af þeim hugmyndum sem
mun hafa verið uppi á borði hjá
ráðherranefndinni, sem fjallar
um sölu bréfanna, er hvort nota
eigi Búnaðarbankann til að miðla
málum. Þeirri hugmynd mun þó
hafa verið hafnað, að minnsta
kosti sem stendur, þó ekki sé ó-
líklegt að henni skjóti aftur upp,
enda telja margir sjálfstæðis-
menn það einu leiðina til að
bjarga stjórnarsamstarfinu.
Hugmyndin er þá að hér rísi
þrír voldugir bankar, einn í eigu
ríkisins, annaríeigu einkageirans
og sá þriðji í eigu Sambandsins.
Sá meinbugur er þó á þeirri hug-
mynd að til þess þarf laga-
breytingu Alþingis.
„Það væri hið mesta óráð að
fara að selja Búnaðarbankann,"
sagði Stefán Hilmarsson, banka-
stjóri Búnaðarbankans, við Þjóð-
viljann. „Ég er algerlega andvíg-
ur því þar sem ég tel að í okkar
litla þjóðfélagi þurfi öfluga ríkis-
banka. Annars hef ég ekkert
heyrt frá hinu opinbera um þetta
mál enda ekki verið venjan hjá
ráðherrum að ráðgast við okkur,
svo ég býst ekki við því að við
verðum spurðir."
„Þetta er að verða að farsa,"
sagði Kjartan P. Kjartansson,
framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Sambandsins í gær. „Búnaðar-
bankinn kemur þessu máli ekkert
við. Sala á honum hefur verið á
dagskrá lengi en það er Alþingis
að taka ákvörðun um það hvort
hann verði seldur.“
Steingrímur Hermannsson
sagðist hvorki geta samsinnt því
né mótmælt að þriggja manna
ráðherranefndin hefði rætt um að
nota Búnaðarbankann til að
miðla málurn. „Það er hinsvegar
engin heimild samkvæmt lögum
til að selja Búnaðarbankann."
Þó engin ákvörðun hafi enn
verið tekin um sölu á Búnaðar-
bankanum til að miðla málunt,
þykir liggja í augum uppi að það
sé eina leiðin til að leysa hnútinn,
því allt þykir benda til þess að
niðurstaða tossaprófsins verði sú
að meirihluti flokksráðs vilji að
stjórnarsamstarfinu verði slitið ef
SIS verði seld hlutabréfin.
- Sáf
Nýja flugstöðin
Veitingar á sitfurfati
Urgurí veitingamönnum. Halldór Júlíusson, veitingamaður Glœsi-
bœ: Tilboð Flugleiða var ekki ísamrœmi við útboðslýsingu
Umsækjendum um leigu á tilboðana í leigu á veitingaað-
veitingaaðstöðu í nýju flug- stöðunni
msækjendum um leigu á
veitingaaðstöðu í nýju flug-
stöðinni þykir freklega framhjá
sér gengið með því að Flugleiðum
var nýlega veitt veitingaaðstaðan
til leigu til rúmra þriggja ára að
undangengnu útboði, en þeir telja
að tilboð Flugleiða hafl ekki verið
í samræmi við útboðsgögn og fé-
lagið hafí fengið veitingaaðstöð-
una á silfurfati.
-Það eru ekki nein skynsamleg
rök sem mæla með því að Flug-
leiðir hrepptu hnossið. Þannig
var tilboð Flugleiða ekki hærra
en mitt tilboð, nema síður sé,
sagði HalldórJúlíusson, veitinga-
maður í Glæsibæ, en hann átti eitt
í útboðsgögnunum var tilskilið
að lágmarksleiga fyrir veitinga-
aðstöðuna á ári væru 10.6
milljónir króna. Tilboð Flugleiða
hljóðaði aftur á móti uppá 8
milljónir fyrsta árið, að viðbætt-
um 10% af veltu umfram 80
milljónir króna.
-f útboðsgögnunum var aldrei
talað um hlutdeild af veltu. Mér
þykir sárast að Flugleiðir fái
veitingaaðstöðuna út á tilboð
sem var ekki í samræmi við út-
boðsgögn, sagði Magnús Mar-
geirsson, matreiðslumeistari, en
hann var einn þeirra sem lögðu
inn tilboð.
Guðjón Guðmundsson hjá Al-
mennu verkfræðistofunni, sem sá
um gerð útboðsgagna fyrir hönd
flugvallarstjórnarinnar á Kefla-
víkurflugvelli, sagði í samtali við
blaðið að ekkert væri óeðlilegt
við að tilboði Flugleiða hefði ver-
ið tekið. -Ég býst fastlega við því
að þótt tilboðið víki að nokkru
leyti frá útboðslýsingu, hafi það
þótt hagstæðara þegar á heildina
er litið. í útboðinu var það skýrt
tekið fram að heimilt væri að taka
hvaða tilboði sem væri eða hafna
þeim öllum, sagði Guðjón Guð-
mundsson.
-rk
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir júlímánuð 1987 hafi
hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð talið frá og
með 16. september.
Fjármálaráðuneytið, 18. ágúst 1987
LOGTOK
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtunn-
ar í Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskurði,
uppkveðnum 16. þ.m., verða lögtök látin fara
fram fyrir vangreiddum opinberum gjöldum
álögðum 1987 skv. 98. gr., sbr., 109. og 110. gr.
laga nr. 75 1981.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, eignarskattur, líf-
eyristr.gjald atvr. skv. 20. gr., slysatryggingagj.
atvr. skv. 36. gr., kirkjugarðsgjald, vinnueftirlits-
gjald, sóknargjald, sjúkratryggingargjald, gjald í
framkvæmdasjóð aldraðra, útsvar, aðstöðu-
gjald, atvinnuleysistryggingagjald, inlánasjóðsgj.
og iðnaðarmálagj., sérst. skattur á skrst. og
verslunarhúsn., slysatrygging v/heimilis og sér-
stakur eignarskattur.
Ennfremur nær úrskurðurinn til hvers konar
gjaldhækkana og til skatta, sem innheimta ber
skv. norðurlandasamningi sbr. lög nr. 111/1972.
Lögtök fyrir framangreindum sköttum og gjöld-
um, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, verða látin
fram fara að 8 dögum liðnum frá birtingu þessar-
ar auglýsingar, verði þau eigi að fullu greidd
innan þess tíma.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík, 16. ágúst
1987
Fimmtudagur 20. ágúst 1987 ÞJOðVILJINN - SÍÐA 3