Þjóðviljinn - 30.08.1987, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 30.08.1987, Blaðsíða 5
[ neðanjarðarbrautinni: og þá bilar kurteisin... undir lokin birtist sá týndi eigin- maður sem sjónvarpsstöðin hefur haft upp á og keypt til að koma og síðan sjáum við til hvernig fer. Verður mikið grátið? Verður grimmt uppgjör? Sættir? Pað eru líka japanskir sjónvarpsmenn sem hafa orðið illræmdir bæði af því að setja á svið illvirki og fyrir að sjónvarpa morði í beinni út- sendingu. f Japan varð Issel nokkur Saga- va metsöluhöfundur fyrir bókina „í þoku“. Hann var frægur fyrir það að drepa hollenska vinkonu sína í París árið 1983, geyma hana í kæliskáp og éta af henni bita á hverjum degi. Frakkar sendu morðingjann til Japan og þar var honum fljótlega sleppt úr haldi á þeirri forsendu að japanskar kon- ur þyrftu ekki að óttast þennan mann, heldur bara vestrænar. f viðtali við bókmenntatímarit segir Sagava að ekkert hafi haft meiri áhrif á hann en Grimmsævintýri. einkum sagan um Rauðhettu. Dauðinn og samkeppnin Sumir áhorfendur telja að í miðri sál Japans sé auðn og tóm. Eða dauðaþrá. Altént fremja miklu fleiri Japanir sjálfsmorð farast í umferðarslysum. . Meðal sjálfsmorðingjanna eru tiltölulega mjög margir ung- lingar. Kannski hafa þeir orðið fyrir „ijirne" - einangrun. Með öðrum orðum - ef þeir eru að einhverju leyti veikbyggðari eða veiklyndari en félagar þeirra eru þeir hafðir að háði og spotti, kannski sæta þeir grimmum of- sóknum. Kannski hengja þeir sig. Kannski fremja unglingarnir sjálfsmorð af því þeim gekk ekki nógu vel í skóla. Samkeppnin er mikil á öllum skólastigum. Þegar strákar (það er miklu sjaldnar fjárfest í menntun stúlkna) halda til inn- tökuprófs í háskólum kemur móðir þeirra gjarna með. Mæðg- inin búa á hótelum sem lögð eru undir próffólk og móðirin þjónar syninum og opnar fyrir hann hurðir til að hann venji sig á það að vera menntaður maður á upp- leið. Niðri í forsal slíks hótels eru brúður sem líta út eins og próf- dómarar - og stúdentarnir mega berja þær eins og þá lystir. Hverjir eru þeir? Ótal bækur koma út um jap- anska efnahagsundrið. Þegar bandarískur félagsfræðingur skrifaði bók um „Japan númer eitt“ seldist hún í margfalt meira upplagi í Japan en Bandaríkjun- um. Japanar sjálfir skrifa líka ótal metsölubækur um það hverjir þeir séu, og virðast aldrei ætla að komast að því. Þeim er sagt að þeir séu veikir og ósjálfstæðir og ófrumlegir sem einstaklingar, en sterkir í samstöðunni. Þeir eru hreyknir af þeim árangri sem þeir hafa náð, en um leið dauðhrædd- ir við að allt í einu komi að því að enginn vilji kaupa af þeim. Þeir hugsa líka um fortíðina og þá einatt á þann sjálfbirgingslega hátt sem kemur fram í orðum Nakasones forsætisráðherra: „Okkur Japönum hefur vegnað vel í 2000 ár, vegna þess að ekki bjuggu neinir annarlegir kyn- þættir í Japan“. Þeir sleppa því hinsvegar sem mest þeir mega að ræða um heimsstyrjöldina síðari. Að minnsta kosti ekki um hryðju- verk sem japanski herinn ber ábyrgð á. Þeir segjast ekki hafa neina sektarkennd. Stríðinu töpuðum við, en nú sigrum við heiminn með öðrum aðferðum. Þegar Japanir gáfust upp eftir kjarnorkusárásir á Hiroshima og Nagasaki, var þeim sett stjórnar- skrá sem bannar að til varnar- mála gangi meira en eitt prósent þjóðartekna. En þegar þjóðar- tekjurnar eru gífurlegar þá verð- ur þetta ekki nein smásumma. Og herinn verður tæknivæddast- ur í heimi og hver dáti í rauninni liðsforingi og hægur vandi að verða stórveldi einnig á þessu sviði.... Ab tók saman ýmsum áttum. ísafjarðarkaupstaður Laus er til umsóknar staða félagsmálastjóra hjá ísafjarðarkaupstað. Æskileg menntun félags- fræði, félagsráðgjöf eða sambærileg menntun. Nánari upplýsingar veitir undirritaður og bæjar- stjórinn á ísafirði á bæjarskrifstofunum, Austur- vegi 2, ísafirði eða í síma 94-3722. Umsóknarfrestur er til 31. ágúst n.k. Félagsmálastjórinn á ísafirði Tónlistarskóli Njarðvíkur Starf undirleikara við söngdeild er laust til um- sóknar. Um er að ræða pínóundirleik fyrir söngnemendur í 1.-7. stigi. Einnig vantar klarin- ettukennara og forskólakennara fram að ára- mótum. Nánari upplýsingarveitirskólastjóri, Har- aldur Árni Haraldsson, í símum 92-13995 eða 92-12903. Skólanefnd. Dagheimilið Völvuborg Völvufelli 7 Við Völvuborg eru lausar eftirtaldar stöður: 1. Staða fóstru á deild 6 mánaða-3 ára. 2. Staða aðstoðarmanns á deild 6 mánaða-3 ára. 3. Tvær stöður fóstra, þroskaþjálfa eða annarra með uppeldis- eða kennslufræðilega menntun til kennslu barna með sérþarfir. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 73040. Atvinna erlendis Hér er upplýsingabókin fyrir þig sem ert að leita að vinnu erlendis til lengri eða skemmri tíma. Hún inniheldur upplýsingar um störf í málm- og olíuiðnaði, við kennslu, garðvinnu, akstur, á hótelum og veitingastöð- um, au-pair, fararstjórn, ávaxtatínslu í Frakklandi og Banda- ríkjunum, tískusýninga- og Ijósmyndafyrirsætustörf og störf á búgörðum, samyrkjubúum eða skemmtiferðaskipum. Bókinni fylgja umsóknareyðublöð. Þetta er bókin fyrir þá sem hafa hug á að fá sér starf erlendis. Þú færð upplýsingar um loftslag, aðbúnað í húsnæði, vinnutíma o.fl. Þar að auki færðu heimilisföng u.þ.b. 1000 staða og atvinnumiðlana. Bókin kostar aðeins 98,- s.kr. (póstburðargjald innifalið). 10 daga skilafrestur. Skrifaðu til CENTRALHUS Box 48, 142 00 Stockholm Simi: 08 744 10 50 P.S. Við útvegum ekki vinnu! Dagheimili í Vogahverfi Dagheimilið Sunnuborg, Sólheimum 19 óskar eftir fóstrum og/eða aðstoðarfólki í eftirtaldar stöður: 100% starf á 3-6 ára deild, 100% starf á 1-3 ára deild og 50% starf á 1-3 ára deild. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 36385. Athugið - athugið Eru ekki einhverjar áhugasamar fóstrur tilbúnar að koma og taka þátt í undirbúningi að breytingu á innra starfi leikskólans Árborgar? Okkur vantar einnig nú þegar fólk með aðra uppeldismenntun eðastarfsreynslu. Ef þú hefuráhuga, komdu eða hringdu í síma 84150. Leikskólinn Árborg Hlaðbæ 17 Árbæjarhverfi. Sunnudagur 30. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.