Þjóðviljinn - 10.09.1987, Síða 9
Lúdó og Stefán? Nei, Johnny Tri-
umph, Sigurjón, Sjón í sveiflu. (Mynd:
Sig.)
Óðmenn einbeitfir og innhverfir í blúsuðum fílingi. F.v. Jóhann G. Jóhannsson, Einar örn Benediktsson og Björk Guðmundsdóttir, ásamt öðrum sykurmolum,
Ólafur Garðarsson og Finnur Torfi Stefánsson. (Mynd: Sig.) dæla kraftmikilli og tilfinningahlaðinni tónlist út í salinn. (Mynd: Sig.).
Faðmlag fortíðar og nútíðar
- Óðmenn og Sykurmolarnir í Hollywood
Nútíðin/sagan og sagan/
nútíðin féllust í tvíræða faðma,
griðastað „týndu kynslóðar-
innar” í Hollývúdd stuttu fyrir
síðustu helgi. Framverðir
neðanjarðarheimanna þá og
nú, Óðmenn og Sykurmolarn-
ir, þreyttu þar leik sinn og vart
mátti á milli sjá hvor þessara
ólíku heima hafði betur.
„Saga” og „samtími”, hvar
svo sem landamærin liggja,
byggja á ólíkri tækni, öðru vísi
afstöðu, - andstæðurnar
gætu fætt af sér athygiisvert
afkvæmi.
Eins og við var að búast voru
gestimir í Hollývúdd af fjöl-
breyttum toga þetta fimmtudags-
kvöld. Sumir komu eflaust fyrst
og fremst til þess að hlusta á ann-
að hvort Óðmenn eða Sykurmol-
ana (og það var ekki erfitt að
greina á milli hópanna), en aðrir
til þess að hlusta á hljómsveitirn-
ar báðar. Þeir sem komu til ein-
hvers annars en að hlusta á tón-
listina komust ekki hjá því að
hrífast með í leikinn. Því miður
missti Þjóðviljinn af fyrsta dag-
skrárlið kvöldsins, Birni Thor-
oddsen og félögum. Við látum
ummæli Finns Torfa um þann
dagskrárlið duga en þau lét hann
falla þegar hann kom á sviðið
ásamt óðum mönnum: Það er
vont hlutskipti að þurfa að koma
fram á eftir Birni og félögum, en
við reynum að gera okkar besta.
Augnabliki síðar fyllti gamla,
góða Creamlagið, White room
salinn og í kjölfarið komu fleiri
slík s.s. Crossroads, I’m so glad,
Sunshine of my life (lagið sem
Óðmenn spiluðu alltaf þegar
fólkið á ballinu var í fýlu, sagði
Finnur Torfi) o.fl Creanúög frá
blómaárunum. Hvað flutninginn
snertir, voru flestirsem þekktu til
Óðmanna á þeim árum, sammála
um að hann væri nú betri en
nokkru sinni fyrr („Og græjurnar
betri,” sagði einn popparinn).
„Það er ekkert skrítið, hvað held-
urðu að þeir hafi verið að gera
annað sl. 17 ár annað en að æfa
Cream," sagði einn Sykurmola-
aðdáandinn hæðnislega og ekki
laus við fyrirlitningu þegar Þjóð-
viljinn ympraði á þessu við hana.
Þrátt fyrir að það hafi vottað fyrir
fjandsamlegri afstöðu til forver-
anna, hlustaði viðmælandinn af
athygli á Óðmenn, eins og
reyndar flestir aðrir í salnum.
Óðmenn voru nefnilega góðir og
sönnuðu með leik sínum að upp-
vakning gamalla drauga, alla
vega sumra, á fullan rétt á sér.
Fortíðin er til að læra af henni og
er auðvitað menningarleg móðir
samtíðarinnar, - sú arfleifð sem
Sykurmolarnir eru sprottnir af.
Þegar Sykurmolarnir fóru af
stað leystist þvílík orka úr læðingi
að veggirnir í Hollývúdd voru við
það að gliðna. Krafturinn varð
kannski enn meiri fyrir það að
Sykurmolarnir voru orðnir pirr-
aðir út í Óðmenn fyrir að vera of
lengi á sviðinu. „Við þurftum að
týna nokkur lög út af dagskránni.
Þessi tímaskekkja er ekki okkur
að kenna. Hún er glötuðu kyn-
sjóðinni að kenna,” sagði Einar
Öm söngvari ergilega þegar hann
kynnti síðasta lagið og leynigest-
inn Johnny Triumph, Sigur Jón,
Sjón. Hlutverk Johnny’s var að
kynna nýtt dansspor, dansspor
framtíðarinnar og við höfðum
fengið að vita að sá sem ekki lærir
það, hann er ekki með. Dansspor
framtíðarinnar reyndist tilheyra
fortíðinni jafn mikið og framtíð-
inni, dansspor rokkarans með
loftgítar, mjaðmasveiflum og fá-
dæma fallegu stökki. Sigur Jón og
Sykurmolarnir áttu salinn og
aukalag varð óhjákvæmilegt.
í viðtali í Morgunblaðinu sama
dag og tónleikarnir voru haldnir
segja Sykurmolarnir: „Okkur
þótti það (síðan) biluð hugmynd
að spila með Óðmönnum og jass-
hljómsveit Björns og það átti sinn
þátt í því að við létum til leiðast.
Það er ekkert spennandi að spila
bara fyrir fólk sem elskar mann.”
Ef einhverjir áhorfendur hafa
ekki verið létt ástfangnir af Syk-
urmolunum fyrir þessa tónleika
þá urðu þeir örugglega altént dá-
lítið skotnir í þeim á meðan á
tónleikunum stóð.
Sameiginlegt tónleikahald
þessara fulltrúa tveggja tíma gef-
ur ærin tilefni til samanburðar, en
hér verður látið nægja að benda á
eitt atriði. Óðmenn þurftu ekki á
mörgum augnagotum að halda til
að vera samstíga; það var
augljóst á svip þeirra, sérstaklega
í spunaköflum, að þremenning-
arnir sameinuðust um tónlist,
sem var innan í hverjum og ein-
um. Ljósin hefðu alveg eins getað
verið slökkt. (Einn gesturinn á
staðnum kallaði tónlistina m.a.s.
sýrutónlist). Sykurmolarnir áttu
hins vegar ýmis samskipti á með-
an þau spiluðu; maður var ekki
alltaf viss hvenær þau voru að
miðla boöum um flutninginn,
hvenær þau voru að leika sér og
hvenær samskiptin voru sett á
svið. Innhverf hugleiðslutónlist
Óðmanna andspænis úthverfri
sjótónlist Sykurmolanna, segir
þetta ekki eitthvað um muninn á
„andanum 67” og „andanum
87”?
Með blúsaðan fíling Óðmanna
í æðum og hlaðnir orku frá
kraftmikilli tónlist Sykurmol-
anna hurfu gestirnir hver í sína átt
út í nóttin.
K.Ól.
ÚTSALA
Allt að
50% afsláttur.
Teppaland
Grensásvegi 13 simi 91-83577.
Dúkaland
Grensásvegi 13 ' sími 91-83430
Hiá okkur ná gæðin I gegn.