Þjóðviljinn - 11.09.1987, Síða 1
msm
Föstudagur 11. september 1987 200. tölublað 52. örgangur
Lögfrœðiskatturinn
Skuldarar bera kostnaðinn
Sveinn Snorrason, formaður Lögmannafélags Islands: Skatturinn kemur niður á þeim sem sístskyldi
og eru í vandrœðum fyrir
að hefur ekki verið hugsað útí
hverjir bera kostnaðinn af
þessum 10% söluskatti. Hann
kemur fyrst og fremst niður á
þeim sem síst skyldi, þeim sem
eru í vandræðum fyrir og lendir
þá oft með tvöföldum þunga á
þeim, sagði Sveinn Snorrason,
formaður Lögmannafélagsins við
Þjóðviljann í gær.
í skuldabréfum eru klásúlur
um að skuldari beri allan máls-
kostnað af innheimtu og leggst
því 10% skatturinn á hann. Að
sögn Sveins þekkist þessi skattur
hvergi annarsstaðar á Norður-
löndunum
Lögmannafélagið skrifaði fjár-
málaráðuneytinu bréf í byrjun
ágúst og fór fram á skýringar um
hvernig ætti að útfæra skattinn.
Svar hefur ekki fengist við því en
reglugerð er í smíðum.
Annað atriði varðandi þennan
skatt er það að hann er afturvirk-
ur að mati^skattayfirvalda. Sem
dæmi máriaka mann sem lenti í
vanskilum sl. vor. Dómur féll í
máli hans í maí, í júní er gert fjár-
nám í íbúð mannsins, uppboð er
auglýst í júlí. Eftir 1. september
nær maðurinn samkomulagi við
innheimtuaðilann um greiðslur.
Hann þarf þá að greiða söluskatt
af allri málsmeðferðinni, af
dómnum, fjárnáminu og upp-
boðsbeiðninni.
Lögfræðingar sem Þjóðviljinn
ræddi við efuðust mjög um að
þetta stæðist lagalega. Sveinn
sagði að enn hefði ekki reynt á
þetta en tók undir að þetta orkaði
mjög tvímælis. „Hingaðtil hefur
ekki reynt á þetta, en það er rétt,
þetta er skilningur skattayfir-
valda. Hafi skuldarinn hinsvegar
greitt inn á kröfuna upphæð sem
samsvarar málskostnaði er ekki
hægt að leggja 10% söluskattinn
ofaná, því málskostnaður greiðist
yfirleitt fyrst upp.“
Margir iögfræðingar hafa hald-
ið að sér höndunum við inn-
heimtuaðgerðir vegna þess hve
margt er óljóst um framkvæmd
skattsins. Telja þeir orka mjög
tvímælis hvemig að þessu er stað-
ið, að setja bráðabirgðalög.
„Þeim hefði verið nær að flýta sér
hægt og láta Alþingi fjalla um
þetta áður en farið var af stað.
Með þessum skatti er verið að
hengja bakara fýrir smið.
-Sáf
Lögreglan
Ónáðið ei
kanann!
Sextugur Hafnfirðingur þurfti
að dúsa í steininum aðfaranótt
fimmtudags gefið það eitt að sök
að hafa ónáðað bandaríska sendi-
ráðið með upphringingum á mið-
vikudag.
„Ég hafði smakkað vín og um
sexleytið hringdi ég í bandaríska
sendiráðið og sagði þeim til synd-
anna á minni fábrotnu ensku.
Sagði þeim þá skoðun mína að
þeir hefðu ekkert hér að gera.
Um níu leytið skrapp ég svo til
Reykjavíkur á Hótel Loftleiðir.
Þegar ég kom aftur út um hálf tólf
biðu mín þrír lögregluþjónar. Ég
spurði fyrir hvað ég væri hand-
tekinn en var þá svarað að ég
fengi að vita það á stöðinni. Það
var svo ekki fyrr en um níu á
fimmtudagsmorgun að ég fékk að
vita að sök mín var sú að ég hafði
ónáðað bandaríska sendiráðið.
Mér finnst það fjári hart að þurfa
að dúsa í steininum fyrir það eitt
að hringja í sendiráðið.“
Guðmundur Hermannson,
varðstjóri, sagði að þetta hefði
verið minni háttar mál, maðurinn
hefði hringt oftar en tíu sinnum í
sendiráðið en ekki verið með
neinar hótanir. Þrátt fyrir það
hefði lögreglan talið fulla ástæðu
til að taka manninn í yfirheyrslu
enda væri yfirleitt tekið fastar á
málum sem vörðuðu erlend
sendiráð. Sagði hann að ekki
hefði verið hægt að yfirheyra
manninn vegna ölvunar um
kvöldið og því hefði hann verið
hafður í haldi þar til morguninn
eftir. „Málið er búið af okkar
hálfu.“ -Sáf
(slensk lyfjaframleiðsla. Að sögn landlæknis eru eftirlíkingalyf seld erlendis á 'Ao til % af verði frumlyfja, en lítill verðmunur er á þessum lyfjakostnaði
hérlendis. (Mynd: E.ÓI.) Lyf
Okrað á eftirlíkingum
Aíslandi er hlutfall eftirlíkinga-
lyfja innan við 20% af mark-
aði, en lítill munur er ú verði þess-
ara lytja og frumlyfja, segir í
grein eftir Olaf Ólafsson, land-
lækni, í septemberhefti Lækna-
blaðsins.
„Segja má að öll íslensk lyfja-
framleiðsla sé framleiðsla á eftir-
líkingalyfjum,“ segir í greininni.
Þá segir að eftirlíkingalyf séu nú
seld erlendis á Vio til % af verði
frumlyfja.
Að sögn Ólafs er framleiðsla
og rannsóknir á frumlyfjum
gífurlega kostnaðarsamar, og
langt utan og ofan við fjárhags-
legt bolmagn íslenskra fyrir-
Hvalamálið
Lausn í sjónmáli
Skammtímalausn virðist vera í
sjónmáli í hvalveiðideilunni
við Bandaríkjamenn. Lausnin
felst i því að íslendingar halda
sínu striki í sumar og veiða þær
tuttugu sandreyðar sem ákveðið
hafði verið en leggi síðan
rannsóknaráætlunina fyrir vís-
indanefnd Alþjóða hvalveiðiráðs-
ins, einsog ráðið samþykkti á
fundi sínum f sumar.
Dr. Calio mun hafa komið án
nokkurra nýrra tillagna á fundinn
í Ottawa. Þegar Steingrímur Her-
mannsson mætti ekki á fundinn
mun bandarísku sendinefndinni
hafa verið mjög brugðið. Eftir að
Ingvi Ingvason, sendiherra, hafði
flutt Dr. Calio skilaboð Stein-
gríms var gert fundarhlé. Að því
loknu lögðu Bandaríkjamenn
fram áður greint sáttatilboð.
í allan gærdag var stöðugt sam-
band milli deiluaðila og er búist
við skjótri lausn á málinu.
Hjörleifur Guttormsson sagði í
gær eftir fund í utanríkismála-
nefnd, að með þessu tilboði væri
um verulega stefnubreytingu að
ræða hjá Bandaríkjamönnum og
ákveðna opnun á málinu, sem
sjálfsagt væri að skoða vandlega.
„Ég tel ekki útilokað að hægt
sé að knýja fram ákveðnar
breytingar á tillögunni og þannig
unnt að ná viðunandi samkomu-
lagi í málinu varðandi nánustu
framtíð."
-Sáf
tækja. Því er veitt einkaleyfi á
frumlyfjum í ákveðinn árafjölda,
15 til 20 ár, en eftir að einkaleyfíð
rennur út geta allir sem mega
framleiða lyf keypt efnið og fram-
leitt úr því lyf sem eftirlíkingalyf.
Við framleiðslu eftirlíkinga-
lyfja þarf einungis að prófa hrein-
leika efnanna, uppgefíð magn og
aðgengi efnanna úr þeim lyfjaf-
ormum sem um er að ræða.
„Hönnunarkostnaður er að
mestu fólginn í auglýsingum,
hönnun umbúða ásamt auglýs-
ingamennsku," segir hann.
Að sögn Guðmundar Sigþórs-
sonar formanns lyfjaverðsnefn-
dar, fjallar lyfjaverðsnefnd um
álagningu í smá- og heildsölu.
Hins vegar skráir lyfjanefnd
grunnverðið. Formaður lyfja-
nefndar er Guðbjörg Kristins-
dóttir, en til hennar náðist ekki í
gær. HS