Þjóðviljinn - 22.09.1987, Blaðsíða 2
r-SPURNÍNGIN1
Hvað finnst þér um að-
gerðir hvalavina í Hval-
firðinum um helgina?
Jóna Markúsdóttir
húsmóöir:
Ég er sátt við þær, enda ber ég virð-
ingu fyrir fólki sem leggur eitthvað á
sig fyrir sinn málstað. Ég er alveg
ósammála hvalveiðunum og finnst
það ætti að leggja þær niður.
Gylfi Ingason,
matreiöslumeistari:
Fáránlegar. Það á að leyfa hvalveiðar
svo framarlega sem það kemur ekki í
Ijós að hvalurinn sé í útrýmingar-
hættu.
Valgerður Einarsdóttir,
nemi:
Mér finnst asnalegt að mótmæla á
þennan hátt. Þeir voru bara að þessu
til að komast í fjölmiðla og láta taka
eftir sér.
Ebba Gunnarsdóttir,
ritari:
Ég geri ráð fyrir að þeir hafi verið að
koma sínum málstað á framfæri og
ég virði það, enda þótt ég sé ekki
endilega sama sinnis.
Sigríður Guðmundsdóttir,
verslunarstjóri:
Ég er dálítið beggja blands í þessari
hvalveiðideilu, og finnst það þurfi að
taka tillit til þeirra hreyfinga sem beita
sérgegn hvalveiðum. Ég hef sjálf séð
í fjölmiðlum erlendis hve mikill áróður
er í gangi gegn veiðunum.
FRÉTTIR
Bókagerðarmenn
Staöiö verði við samninga
Trúnaðarmannaráð FBM: Söluskattur á nauðþurftir verði
afnuminn. Uppalendurfái mannsœmandi laun
Nú gildir að setja þá þjóðfélags-
hópa í öndvegi sem lengst af
hefur verið traðkað á. I þessu
sambandi er ábyrgð verkalýðs-
hreyfingarinnar jafnframt mikil.
Hún verður að sjá til þess með
samtakamætti sínum að börnun-
um sé búin viðunandi aðstaða og
að því fólki sem við ætlum að ann-
ast um uppeldi barna sé búin
mannsæmandi starfsaðstaða og
launakjör, segir í ályktun sem
samþykkt var á fundi í trúnað-
armannaráði Félags bókagerðar-
manna á dögunum.
Fundurinn mótmælti harðlega
þeirri ákvörðun stjórnvalda að
leggja söluskatt á nauðþurftir og
vill að hann verði afnuminn þeg-
ar. Þá krefst trúnaðarmanna-
ráðið þess að staðið verði við
gerða samninga og að laun verka-
fólks hækki um 7.5% a.m.k.
þann 1. október n.k. - Það eru
hreinar blekkingar atvinnurek-
enda að halda því fram að slík
launahækkun valdi sjálfkrafa
aukinni verðbólgu, slíkt gerist
einungis ef þeirra sjónarmið í
hagstjórnun verða ofaná hjá
stjórnvöldum, segir í ályktun
fundarins. -Ig.
Hagþenkir
Verðlaun fyrir
fræðirit
Helgi Hallgrímsson náttúrufrœðingur hlaut
100þús. kr. viðurkenningu Hagþenkis félags
höfundafrœðirita og kennslugagna
Helgi Hallgrímsson náttúru-
fræðingur hefur hlotið fyrstu
viðurkenningu til rithöfundar
sem Hagþenkir - félag höfunda
fræðirita og kennslugagna veitir.
Hún var afhent í Gistihúsinu á
Egilsstöðum sl. laugardag við at-
höfn, sem ýmsum sem tengjast
söfnum og fræðastörfum á
Austurlandi, var boðið til.
Það kom fram í greinargerð
Harðar Bergmann, formanns
Hagþenkis, að ákvörðun um að
veita 100 þúsund krónum í viður-
kenningu til fræðirithöfundar
hefði verið tekin á félagsfundi í
mars sl. og þar var stjórn félags-
ins falið að leita eftir ábendingum
um höfunda sem kæmu til greina
og taka ákvörðun um veitinguna.
Tilgangur félagsins með slíkri
viðurkenningu væri sá að vekja
athygli á því starfi sem höfundar
fræðirita og kennslugagna vinna.
Með því væri m.a. lagður grund-
völlur að því að við yrðum fær um
að ræða ný fræði og viðfangsefni
á íslensku og þróa íslenska menn-
ingu. Fé það sem veitt væri til
þessarar sérstöku viðurkenning-
ar kæmi úr styrktarsjóði Hag-
þenkis, en í hann rennur fé sem
greitt er til félagsins vegna samn-
inga sem það á aðild að um hei-
mild skóla til að ljósrita útgefin
verk að vissu marki.
Helstu rök stjórnar Hagþenkis
fyrir að veita Helga Hallgríms-
syni viðurkenningu félagsins
kvað Hörður þessi:
Helgi hefur stundað vönduð
rannsókna- og fræðastörf af
áhuga og gerhygli í meira en
aldarfjórðung. Jafnframt hefur
hann leitast við að miðla árangri
starfs síns til almennings með
óvenju fjölbreyttum hætti: semja
og gefa út bækur, ritstýra tímarit-
um og birta fjölda greina í þeim
og efla Náttúrugripasafnið á Ak-
ureyri. Einnig ber að geta þess að
Hólmavík
Góð afkoma sveitarsjóðs
Stefán Gíslason sveitarstjóri: Meðal tekjuhæstu sveitarfélaga á landinu
miðað við íbúafjölda
Iár eru tekjur sveitarsjóðsins
um 20 milljónir. Samkvæmt
álögðum gjöldum og miðað við
íbúafjölda hér erum við trúlega
með tekjuhæstu sveitarfélögum á
landinu. En íbúar hér eru um 480
og þar af um 50 manns búsettir í
sveitunum hér í kring. Miðað við
síðustu fjárhagsáætlun eru tekjur
sveitarfélagsins aðeins 0.79%
minni en áætlað var, segir Stefán
Gíslason, sveitarstjóri á Hólma-
vík.
Fyrir utan útgerð frystitogar-
ans Hólmadrangs eru gerðir út
frá Hólmavík 7 bátar af stærðinni
25-65 tonn. Þeir hafa verið á
djúprækjuveiðum í sumar úti
fyrir mynni Húnaflóa og aflað
þokkalega. En þeim veiðum er
sjálfhætt nú þegar hausta tekur
og veður fer versnandi og vegna
smæðar bátanna. Eftir að slátur-
tíð lýkur fara einhverjir á hörpu-
disksveiðar og aðrir á net eða
línu.
Að sögn Stefáns hefur atvinnu-
ástand verið mjög gott á Hólma-
vík í sumar og hefur skort fólk til
vinnu. Tilfinnanlegur skortur er á
iðnaðarmönnum til byggingar-
vinnu og hefur af þeim sökum
ekkert verið hægt að vinna við
byggingu nýs leikskóla þar.
grh
Helgi stofnaði fyrstu almanna-
samtök um náttúruvernd hér á
landi. Viðfangsefni Helga hafa
einkum tengst náttúrufræði en
eru afar víðfeðm. Þá telur stjórn
Hagþenkis einnig lofsvert hvern-
ig Helgi Hallgrímsson hefur látið
landsbyggðina njóta verka sinna
sérstaklega enda þótt þjóðin öll
hafi aðgang að þeim. Hann hefur
aldrei látið þægindi eða launavon
ráða stefnu sinni.
í lok ræðu sinnar óskaði Hörð-
ur Austfirðingum til hamingju
með að hafa endurheimt Helga til
starfa á æskuslóðum hans.
Ágúst H. Bjarnason, varafor-
maöur Hagþenkis, gerði ítarlega
grein fyrir störfum og ritverkum
Helga Hallgrímssonar á sam-
komunni. Helgi þakkaði óvænta
viðurkenningu og sagði í ræðu
sem hann flutti frá hugrenningum
sem hefðu vaknað er hann fékk
tilkynningu um hana og drap á
ýmislegt sem tengist þeim við-
fangsefnum sem hann fæst við um
þessar mundir, svepparannsókn-
ir og þjóðfræði.
Hörður Bergmann t. v. afhendir Helga Hallgrímssyni náttúrufræðingi verðlaunin
fyrir hönd Hagþenkis.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. september 1987