Þjóðviljinn - 22.09.1987, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 22.09.1987, Blaðsíða 8
Sjávarútvegssýningin ’87 Sjávarútvegssýningin ’87 Sjávarútvegssýningin ’87 Sjávarútvegssýningin ’87 Sjávarútvi !SS«S ^^%fað'aöand'' tyftf °9 v Hægt að gera góð kaup Hlynur Antonsson skipstjóri og útgerð- armaður: Afburða góð sýning „Þetta er afburða góð sýning, það fer ekkert á milli mála. En það er í sjálfu sér ekkert sérstakt sem kemur manni á óvart. Þar er enginn framleiðandi, innlendur eða erlendur, sem er með eitthvert leyninúmer, sem enginn hefur vitað um áður. Aðalmikil- vægi sýningarinnar er að hingað er hægt að koma og tala milliliða- laust við framleiðendur og um- boðsmenn þeirra um það sem maður hefur mestan áhuga á í það og það skiptið,” segir Hlynur Antonsson skipstjóri og útgerðar- maður í Stykkishólmi. Hlynur er einn fárra í dag sem eiga lögheimili í Flatey á Breiða- firði, þó svo hann geri út frá Hólminum á 6 tonna bát, Sæ BA. Aðspurður kvaðst hann vera ánægður með sumarvertíðina og bjartsýnn á komandi haust- og vetrarvertíð, svo framarlega sem gæftir yrðu góðar. Eins og gefur að skilja er áhugi Hlyns að mestu bundinn við ný- jungar tengdar smábátum og því var hann spurður hvort einhverj- ar slíkar hefðu komið fyrir hans sjónir á sýningunni. „Já, ég hafði sérstakan áhuga á hraðbátunum hérna á útisvæð- inu. Þar er að sjá nýjan drifbúnað og hálfmána yfir skrúfunni sem er hluti af stýribúnaðinum. Annars er fullt af hlutum hér inni sem maður á eftir að melta með sjálf- um sér heima í rólegheitunum. Það er svo mikið sem ber fyrir augu hér á sýningunni að maður á Hlynur Antonsson skipstjóri og út- gerðarmaður: „Á sýningunni eru ýmis kostatilboð í gangi og hægt að gera góð kaup. Ég gæti trúað að af- slátturinn nemi í sumum tilvikum tugum þúsunda, allt eftir því hvað keypt er hverju sinni.” (Mynd: Sig). í erfiðleikum með að innbyrða allt þetta magn af upplýsingum og fróðleik um hina og þessa hluti.” Hefurðu eitthvað spáð í verð- lagninguna á vélum og tækjum hér? „Já, svona lítillega. Eftir því sem ég best veit er hægt að gera góð kaup á sýningunni. Það eru alls konar kostaboð í gangi og margir veita ríflegan afslátt. Þó fer þetta mikið eftir því hvers konar vöru maður er að kaupa. Telurðu ávinning fyrir inn- lendan iðnað að taka þátt í sýn- ingu sem þessari? „Já, alveg tvímælalaust. Það er engin spurning. Menn hafa verið að tala um að sjávarú- tvegssýningin, sem haldin var fyrir þremur árum, hafi skilað miklum árangri og eflt iðnaðinn að miklum mun. Sú sýning stóð þessari langt að baki í öllum at- riðum, þannig að ég hef mikla trú á að þessi sýning eigi eftir að skila enn meiri árangri þegar tímar líða,” sagði Hlynur Antonsson skipstjóri og útgerðarmaður. grh Tæknin hjálpar Pórður Björnsson stýrimaður: Höfuðlínunemi og Plott-radar þótti mér áhugaverðast „Ég heyrði það haft eftir sjáv- arútvegsráðherra í opnunarræð- unni að öll þessi mikla tækni í fiskileitartækjum gerði ekki ann- að en að gera okkur sjómönnum gramt í geði þar sem við gætum ekki nýtt okkur alla þessa tækni vegna kvótans. Þetta er að mörgu leyti rétt, en á móti kemur að með þessum nýju tækjum er hægt að veiða það sem við megum hverju sinni á ódýrari hátt en áður og við það sparast mikið,” segir Þórður Björnsson stýrimaður á Stálvík- inni SI frá Siglufirði. Að sögn Þórðar er mikill áhugi á sýningunni á Siglufirði og fóru margir í hópferð þaðan og suður. Flestir gista hjá kunningjum og vinum, vegna þess að allt hótel- rými á höfuðborgarsvæðinu er yfirfullt. Þáereitthvaðumþað að menn keyra suður að morgni og heim aftur að kvöldi. Sjálfur ætl- aði Þórður ekki að stoppa nema í einn dag, því daginn eftir átti hann að vera mættur um borð í skipið sitt, tilbúinn til veiða. En hvað fannst honum markverðast á sýningunni? „Það var höfuðlínunemi frá Simrad. Með honum er hægt að fylgjast með opnun trollsins og hve mikið kemur inn í trollið, með aðstoð myndskjás uppi í brú. Þá vakti einnig athygli mína það sem við köllum Plott-radar. En með honum er hægt að fylgj- ast með stefnu, hraða og fjarlægð skipa í næsta nágrenni við okkur hverju sinni úti á miðunum. Þórður Björnsson stýrimaður á Stál- víkinni Sl frá Siglufirði: „Sýning sem þessi hefur ótvírætt gildi og á eftir að skila sér í framtíðinni með auknum umsvifum innlendra framleiðenda í vöruþróun og vörugæðum fyrir alla þætti sjávarútvegs.” (Mynd: Sig.) Hvað með gildi sýningar sem þessarar? „Svona sýningar hafa ótvírætt gildi og eiga mikinn rétt á sér. Það kemur sér afar vel fyrir alla aðila, jafnt í landi sem á sjó, að geta fylgst með þróuninni í vélum og tækjum og öllu öðru sem sjáv- arútveginum viðkemur. Fyrir utan það þá held ég að innlendir framleiðendur græði á því að bera sig saman við keppinauta sína á svona sýningum. Þá sjá menn það svart á hvítu hvar við stöndum í samanburði við hina og eftir að hafa gengið hérna um sýningarsvæðið í dag er ég ekki í nokkrum vafa umað við stöndum afar vel að vígi. Á mörgum svið- um erum við á undan og á öðrum sviðum getum við lært mikið. Þannig að það er sama hvernig við lítum á dæmið. Það er gróði hvert sem við lítum, bæði fyrir notendur og framleiðendur,” sagði Þórður Björnsson stýri- maður á Stálvíkinni SI, frá Sigluf- irði. grh Hvalreki á okkar fjömr Sr. Karl Matthíasson, prestur á Stað íSúg- andafirði: Tölvu- stýrða handfœrarúll- an og saltdrefingar- tœkið áhugaverðast „Ég er hingað kominn til að fylgjast með nýjungum í sjávarút- veginum. Enda veitir ekkcrt af ef maður á að vera boðlegur í minni sveit á Suðureyri við Súganda- fjörð, þar sem ég er þjónandi prestur. Ég var á dragnót með Sigurvon IS í sumar og verð vænt- anlega eitthvað með í vetur álínu, eftir því hvernig aðstæður eru hverju sinni með tiiliti til minnar atvinnu sem prestur,” sagði Karl Matthíasson sóknarprestur á Stað í Súgandafírði. Það sem einna mesta athygli vekur í sambandi við sjávarút- vegssýninguna er hinn mikli og al- menni áhugi sem á henni er, ekki bara meðal sjómanna og útvegs- manna, heldur og líka hins venju- lega borgara þessa lands. í sjálfu sér ætti það ekki að koma neinum á óvart, þar sem sjávarútvegur- inn er undirstöðuatvinnugrein landsmanna og á honum hvílir öll okkar yfírbygging í þjóðfélaginu. Blaðamanni Þjóðviljans heppnaðist eftir nokkra stund að ná tali af sr. Karli, þar sem hann var umkringdur sóknarbörnum sínum og skipsfélögum í hrókas- amræðum um það helsta sem fyrir þau hafði borið á sýning- unni. Hann var fyrst spurður að því hvað honum þætti markverð- ast af því sem hann hefði séð. „Það er tvímælalaust tölvustýrða handfærarúllan sem ég féll fyrir við fyrstu sýn. Þetta er þjóðþrifa- 8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. september 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.