Þjóðviljinn - 22.09.1987, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 22.09.1987, Blaðsíða 5
Lilja Þórlsdóttir og Rúrik Haraldsson. Lilja Þórisdóttir, Rúrik Haraldsson og Sigurveig Jónsdóttir. Flosi Ólafsson, Jón Gunnarsson, Gunnar Eyjólfsson, Árni Tryggvason, Benedikt Árnason, Rúrik Haraldsson, Jóhann Sigurðarson. Þjóðleikhúsið Rómúlus mikli skírskotun til heimsveldahruna Rómúlus mikli, eftir Friedrich Durrenmatt, erfyrsta verkefni leikárs Þjóðleikhússins og var frumsýntsl. laugardag. Durren- matt kallar þetta verk „ósagnf- ræðilegan gamanleik". Fyrir- myndin er síðustu dagar Róma- veldis, en höfundurinn fer afar frjálslega með sagnfræðilega réttar staðreyndir til að miðla skilaboðum til nútímans og þar af leiðandi er óþarft með öllu að veravel aðsérf mannkynssögunni til að njóta leiksins tilfullnustu. Rómúlus leiksins hefur verið keisari ftvo áratugi, en nú er fall ríkisins yfir- vofandi og öllum til hinnar mestu armæðu hefst keisarinn ekkert að til að koma I veg fyrir að heimurinn kollsteypist. Samherj- um hans óar við hugleysi hans en þegar allt kemur til alls er Rómú- lus eftil vill hugaðri en þeirallirtil saman. Hann hefur nefnilega megnustu andstyggð á vald- beitingu og hvers kyns ofbeldi sem hún leiðir af sér. Óvinirnir nálgast, samherjarnirflýja fof- boði, en Rómúlus er maður hug- sjónanna, maðursemásér draum. Það er styrkur hans. I leikslok er komið að því að hug- sjón hans verði að veruleika, en hvernig í veröldinni getur hún ræst á þessum Ifka upplausnart- ímum? Rúrik leikur Rómúlus Gísli Halldórsson er leikstjóri að Rúmúlus mikla, leikmynd og búningar eru eftir Gunnar Bjarnason og Páll Ragnarsson hannar lýsingu. Rúrik Haralds- son fer með titilhlutverkið, Rómúlus, síðasta keisara Róma- veldis, Sigurveig Jónsdóttir leikur Júlíu keisarafrú og Lilja Þórisdóttir leikur keisaradóttur- ina, en afdrif ríkisins eru undir því komin hverjum hún kvænist- það er að minnsta kosti mat æðstu ráðgjafa ríkisins. Með stór hlutverk fara Gunnar Eyjólfsson, Jóhann Sigurðarson, Sigurður Skúlason, Flosi Ólafsson, Karl Ágúst Úlfsson, Baldvin Hall- dórsson, Árni Tryggvason, Þór- hallurSigurðsson, Magnús Ólafs- son, Benedikt Árnason og Arnar Jónsson, sem leikur hlutverk Ódóvakars fyrirliða Germana, sem eru mesta ógnunin við ríkið, það er allavega mat æðstu ráð- gjafa keisarans. Vakti fyrst athygli Rómúlus mikli er það leikrit Dúrrenmatts sem vakti fyrst at- hygli á honum utan heimalands- ins. í þessu verki fann hann fyrst sinn sjálfstæða stíl, hina sérstæðu blöndu gamans, beiskrar ádeilu og djúprar alvöru, sem hann varð frægur fyrir og við þekkjum af leikritum á borð við Sú gamla kemur í heimsókn, Eðlisfræðing- ana og Loftsteininn, sem öll hafa verið leikin hér á landi. í verkum Dúrrenmatts er það jafnan svo að vettvangur atburðanna endur- speglar heim allan og ástand mála í þeim kallast á við eitthvert það ástand sem allir hafa skynjað og jafnvel íhugað án þess að komast að niðurstöðu. -ekj Flosi Ölafsson og Jóhann Siguröarson i hlutverkum sínum. Mynd: Sig. Þrlöjudagur 22. september 1987 jÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.