Þjóðviljinn - 22.09.1987, Page 7
Sjávarútvegssýningin ’87 Sjávarútvegssýningin ’87 Sjávarútvegssýningin ’87 Sjávarútvegssýningin ’87
H§L,, 1&***™' Jjgk yýp -. ■ i
Úrhvaðaefniskyldiþettavera?Kínverskibásinnásjávarútvegssýningunnihefurvakiðmiklaathyglioghefurþarverið margt um manninn að skoða og ígrunda hvað Kínverjar hafa á boðstólum.
Vœri ykkur sama. Það er að mörgu að hyggja þegar samningar eru gerðir um kaup á rækjukössum, og þegar menn eru í
þungum þönkum vilja þeir vera í friði.
Hún flakar vel þessi: Það er eins goft að vita nákvæmlega hvernig vélin flakar
karfann áður en maður tekur ákvörðun um kaup á henni eða ekki.
Asnalegt að þurfa að borga sig inn
Árni Sigurðsson húsasmiður og
sjómaður í frístundum: „Aðdáunar-
vert hvað sýningin er vel skipulögð og
hve mikið er sýnt af alls kyns hlutum,
tækjum og vélum fyrir sjávarútveg-
inn." (Mynd: Sig).
„Það er geysilegur áhugi á þess-
ari sýningu fyrir norðan. Bæði er
mikið talað um hana og einnig
hitt að töluverður fjöldi manna
hefur gert sér leið hingað suður,
gagngert til að skoða með eigin
augum það markverðasta sem
hér er til sýnis,” segir Árni Sig-
urðsson húsasmiður og sjómaður
þegar tækifæri gefst til að fara á
sjóinn í fríum frá húsasmíðinni.
En hvernig kemur sýningin
Árna fyrir sjónir?
„Mjög vel. Að vísu hef ég ekki
samanburð við fyrri sýninguna,
þar sem ég sá hana ekki. En ég
held að allir geti verið ánægðir
yfir því hvernig til hefur tekist
hér. Og sama sinnis eru þeir sem
ég hef hitt hér. Það ljúkaallirupp
einum munni um það hvað þetta
er vel skipulagt og hve mikið af
áhugaverðum hlutum eru á sýn-
ingunni.”
Eitthvað sérstakt öðru fremur?
„Já, því er ekki að neita. Það
eru kassaklær og kassalosarar frá
Odda hf. á Akureyri. Ég er ekki í
nokkrum vafa um það að þessir
hlutir frá Odda koma sér vel fyrir
alla vinnu í fiskmóttökunni í fisk-
vinnsluhúsunum. Þessi tæki
auðvelda alla vinnu og létta undir
með starfsfólkinu við að losa úr
fiskikössunum og við þrif á
þeim.”
Hefur þessi sýning eitthvert
gildi?
„Já, tvímælalaust. Hérna eru
samankomnir fulltrúar frá öllum
heimshornum til að skoða hvað
er á boðstólum hverju sinni og
þátttaka innlendra fyrirtækja
með framleiðsluvörur sínar er
þeim mikil auglýsing og kemur
þeim sjálfsagt mjög til góða.
Þetta er fyrst og fremst fólgið í
langtímaávinningi, sem kemur
fram seinna, þegar menn fara að
gera upp dæmið og bera saman
hinar ýmsu framleiðsluvörur. Ég
er ekki í neinum vafa um það að
við eigum eftir að hagnast á þess-
ari sýningu og það á eftir að koma
fram í auknum pöntunum víðs
vegar að á framleiðsluvörum
okkar. Enda held ég að það sann-
ist áþreifanlega hér hvað við
stöndum framarlega í smíði ýmiss
konar véla og tækja fyrir sjávar-
útveginn. Bæði fyrir vinnslu og
veiðar.”
Ertu sáttur við að þurfa að
borga aðgangseyri að sýning-
unni?
„Aðgangseyrir að svona sýn-
ingum er nú alveg kafli út af fyrir
sig. í sannleika sagt finnst mér
það asnalegt að þurfa að borga
aðgangseyri að sýningu sem þess-
ari. Hér fer fram auglýsinga- og
sölusýning og mér finnst alveg
fráleitt að fólk þurfi að borga sig
inn til að geta barið augum það
sem verið er að auglýsa til sölu.
Eftir þessu að dæma getur maður
átt von á því að þurfa að borga sig
inn í búðir til þess að geta keypt
þar einhverja vöru,” sagði Árni
Sigurðsson. grh
Þriðjudagur 22. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7