Þjóðviljinn - 22.09.1987, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 22.09.1987, Blaðsíða 11
ORFRETTIR ERLENDAR FRÉTTIR Páfi er kominn heilu og höldnu heim í Rómarbæ eftir ferðalag vítt og breitt um Norður-Ameríku. I Bandaríkjunum sagði hann hjörð sinni tæpitungulaust að sálarheill hennar ylti á því aö hún færi í einu og öllu að boðum og kennisetn- ingum úr Páfagarði. Ennfremur beindi hann skeytum að auð- mönnum og kvað þá bera skyldu til að deila auðæfum sínum með fátækum og þurfandi, innanlands sem utan. Aður en páfi hélt heim lagði hann lykkju á leið sína og heimsótti indíána í norðurhér- uðum Kanada. Hugur þeirra hef- ur löngum staðið til aukinnar sjálfstjórnar á heimaslóð en stjórnvöld þráast við þar eð grun- ur leikur á að í landi frumbyggj- anna sé ýms verðmæt hráefni að finna. Páfi vakti mikla lukku er hann sagðist styðja heilshugar réttmætar kröfur indíána og bað Guö að Ijá þeim styrk og þol í baráttu sinni. „Mikil mistök og fádæma heimskuleg aðgerð." Þessum orðum Francois Mitterr- ands Frakklandsforseta er beint að þeim undirsáta hans sem létu sökkva „Regnbogavarginum", fleyi Grænfriðunga, er það lá við festar í Aucklandhöfn síðsumars árið 1985. Raktar eru garnirnar úr Mitterrand viðvíkjandi þessu hneykslismáli í viðtali sem birt var í gær í vikuritinu „Le Point." For- setinn hafði ekki grænan grun um atferli leyniþjónustu sinnar fyrr en í hámæli komst í Nýja- Sjálandi að hún stæði að baki hermdarverkinu. Einn maður fórst er skipið sökk. Dagblaðið „La Prensa" kemur út á ný í höf- uðborg Nicaragua eftir fimmtán mánaðahlé. Þaðvaríjúnímánuði árið 1986 að stjórvöld í Managua bönnuðu útkomu dagblaðs þessa og var ritstjórum þess bor- ið á brýn að þeir gengju erinda Reaganstjórnarinnar og Kontra- liða hans. En í friðaráætlun leið- toga fimm Mið-Ameríkuríkja er að finna ákvæði um rýmkun lýðrétt- inda í Nicaragua og samkvæmt henni getur hið frjálsa og óháða blað komið út óritskoðað á nýjan leik. Joshka Fischer og félagar hans í þeim armi sam- taka vesturþýskra Græningja sem kenndur hefur verið við „raunsæi" biðu enn einn ósigur- inn í innanflokksglímunni við „staðfestumenn" nú um helgina. Þá fór fram þing samtakanna í Oldenburg og sóttu það 600 full- trúar hvaðanæva úr sambands- lýðveldinu. Fischer og félagi hans Otto Schilly báru fram til- lögu um að Græningjar drægju til baka afdráttarlausa kröfu sína um úrsögn Vestur-Þýskalands úr NATO þar eð hún yrði trauðla til að stuðla að afvopnun eða bætt- um samskiptum austurs og vest- urs. Það er skemmst frá því að segja að hún var kolfelld. Indverskar friðarsveitir eiga fullt í fangi með að hemja sveitir herskárra Ta- míla á norður og austurhluta Sri Lanka en innbyrðis átök þeirra verða æ algengari. í síðustu viku jókst spennan mjög er 75 óvopn- aðir T amílar voru myrtir af frænd- um sínum og í gær tóku Indverjar 15 vopnaða menn af þeim kyn- þætti höndum og afhentu lög- reglu. Filippseyjar Herforingjum sparkað Stjórnin vísaði ígœr á bug orðrómi um að hún hygðist setja neyðarlög Corazon Aquino forseti Filipps- eyja átti í gær fund með æðstu yfírmönnum hersins og að honum loknum lýsti hún því yfír að hún „hefði lagt þeim línurnar um að- gerðir til að stemma stigu við undirróðurstarfssemi og tilræð- um við lýðveldið.“ Hún fór ekki nánar útí þá sálma en orðrómur var á kreiki í höfuðborginni Manilu um að hún hygðist lýsa yfir neyðarástandi. Talsmaður forsetans, Teodoro Benigno, vísaði því á bug og sagði stjórnina ekki þurfa að grípa til herlaga þar eð hún hefði alla þræði í hendi sér. Það var herforingi einn, Emi- liano Templo, sem kom flugu- fregninni af stað. Hann birtist snemma í gær á sjónvarpsskjám landsmanna og fullyrti að forset- inn fhugaði að setja herlög ef spenna ykist í höfuðborginni og hryðjuverk færðust í vöxt í kjölf- ar morðs á þekktum vinstrimanni á laugardaginn var. Þá var Leandro nokkur Alejandro, aðalritari Nýju þjóðfrelsisfylk- ingarinnar, veginn á götu. Vinstrimenn gengu fylktu liði um götur Manilu í gær og hróp- uðu slagorð gegn Aquino og hernum sem þeir sökuðu um að bera ábyrgð á morði Alejandros. Þeir höfðu í hótunum um að hefna hans og vinna af öllum mætti gegn forsetanum og stjórn hans. Verkalýðsforinginn Crispin Beltran er eftirlýstur af lögreglu fyrir skipulagningu ólöglegs verkfalls í síðasta mánuði. Hann kom úr felum í gær og ávarpaði fjöldafund syrgjenda Alejand- ros. Hann sagði Aquino hafa glatað allri tiltrú alþýðu manna, hún hefði sýnt það með verkum sínum að hún gengi erinda yfir- stéttarinnar og Bandaríkja- manna. „Bjóðum henni byrginn og við munum sigra,“ sagði hann að endingu. Yfirstjórn hersins gaf í gær út yfirlýsingu þess efnis að 17 her- foringjar hefðu verið reknir úr honum með skömm fyrir þátt sinn í valdaránstilrauninni í lok síðasta mánaðar. Þeirra á meðal voru þrír hershöfðingjar og höf- uðsmaðurinn Gregorio Honas- an, forsprakki uppreisnar- mannanna. Aquino sagðist hafa gefið fyrir- skipun um brottvikningu sautján- menninganna og beint þeim orð- um til æðstu manna hersins að þeir væru á varðbergi og kæfðu hverskonar uppreisnarbrölt í fæðingu. -ks. Corazon Aquino forseti kannar heiðursvörð filippeyskra dáta. „Engin þörf fyrir herlög." Sviss Gelli gaf sig fram Fjárglæframaðurinn Licio Gelli er eftirlýstur á Italíufyrir hlutdeild í sprengjutilrœði fasista í Bologna árið 1980 er 85 manns biðu bana ogþáttsinn ígjaldþroti stœrsta einkabanka þarlendis að er ekki ofsögum sagt að ít- ölsk stjórnvöld vilji hafa hendur í hári manns þess sem í gær gekk í fylgd fjögurra lög- fræðinga inní dómshöllina í Genf og gaf sig fram. Licio Gelli er frægur að endemum á Ítalíu enda tengist nafn hans mannskæðum hryðju- verkum, einhverju mesta fjárm- álahneyksli í sögu landsins og pólitískri undirróðurstarfssemi leyniklíku hægri sinnaðra stjórn- málamanna og herforingja. Það varð mikill hvellur á Ítalíu þegar lögreglan fann lista yfir fé- laga P-2 frímúrarareglunnar á heimili Gellis við húsrannsókn árið 1981. Þar voru skráð nöfn 962 manna og í hópi þeirra voru ráðherrar í ríkisstjórn landsins, yfirmenn í leyniþjónustunni og umsvifamiklir kaupsýslumenn. Gelli var höfuðpaur klíku þessar- ar en markmið hennar var að „ná hægt og hljótt öllum völdum á Ítalíu“ svo vitnað sé í niðurstöðu þingnefndar sem skipuð var til að fara ofaní saumana á umsvifum og markmiðum P-2 reglunnar. Þegar upp komst um félags- skapinn hrökklaðist ríkisstjórn kristilega demókratans Arnaldos Forlanis frá völdum. Gelli tengist einnig gjaldþroti Ambrosianobankans, stærsta einkabanka Ítalíu, árið 1982. Hann var náinn vinur og aðstoð- armaður bankastjórans, Róberts Calvis, en hann var stundum nefndur „bankastjóri Guðs“ vegna mikilla samskipta sinna við fjármálaspekúlanta Páfagarðs. Calvi fannst hengdur undir Blackfriarsbrúnni í Lundúnum í júní sama ár. Ennfreinur er Gelli talinn hafa verið einn fjögurra manna sem lögðu á ráðin um eitt óhugnan- legasta hryðjuverk er framið hef- ur verið í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Það var árið 1980 að sprengja sprakk á brautarstöðinni í Bolognu. 85 manns létu lífið og sannaðist skömmu síðar að fasistar hefðu komið vítisvélinni fyrir. Til- gangur Gellis var sá að skapa upplausnarástand á Ítalíu og greiða götu fyrir valdaráni her- foringja úr P-2. Skömmu áður en uppvíst varð um starfsemi P-2 frímúrararegl- unnar hvarf Gelli en í september árið 1982 skaut hann upp kollin- um í Genf. Þar gerði hann tilraun til að draga tugi miljóna banda- ríkjadala út af bankareikningum suðuramerískra dótturbanka Ambrosiano. Yfirvöld komust á snoðir um ferðir hans og tóku hann höndum. Hann sat í fangelsi fram í ág- ústmánuð árið 1983 en þá slapp hann úr haldi fyrir tilverknað mútuþægs fangavarðar. Síðan hefur hann farið huldu höfði þangað til í gær að hann gaf sig fram við dómsyfirvöld í Genf „af heilsufarsástæðum" en hann kvað vera hjartveikur. Búist er við að ítalska stjórnin fari fram á framsal hans en um þá kröfu þarf að rétta í Genf og mun sá prósess án efa taka drjúgan tíma. -ks. ALÞÝÐUBANDALAGK) Miðstjórn Alþýðubandalagsins heldur fund að Hverfisgötu 105, Reykjavík, 26.-27. septembernk. Fundur- inn hefst klukkan 10 á laugardagsmorgni. Dagskrá: 1. Skýrsla Varmalandsnefndar 2. Tillögur Varmalandsnefndar um aðalmálefnaáherslur landsfundar. 3. Skýrsla efnahags- og atvinnumálanefndar Alþýðubandalagsins. Formaður miðstjórnar ABR Greiðið félagsgjöidin Alþýðubandalagið í Reykjavík hvetur félagsmenn til að greiða heimsenda gíróseðla sem allra fyrst. Stjórnin Rabbfundur um fræðslustarf í kvöld, þriðjudagskvöldið 22. september kl. 20.30, verður rabbfundur um fræðslustarf Alþýðubandalagsins í Reykjavík. Fundurinn verður haldinn að Hverfisgötu 5. Rætt verður um skipulag og efni fræðslustarfsins. Félagar eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í mótun fræðslustarfsins frá upphafi. Fræðslunefnd ABR ÆSKULÝÐSFYLKINGIN Dagskrá landsþings ÆFAB 2.-4. okt. 1987 að Hverfisgötu 105, Reykjavík. Föstudagur 2. okt. 20.00 Setning. 20.20 Skýrslur fluttar, umræður: a) framkvæmdaráðs, b) gjaldkera, c) deilda, d) Utanríkismálanefndar, e) Verkalýðsmálanefndar, f) Birtis. 23.00 Lagabreytingar og hópvinna kynnt. 23.30 Hlé. Laugardagur 3. okt. 9.00 Lagabreytingar, fyrri umræða. 10.00 Hópavinna: a) unnið að þingmál- um, b) Almenn stjórnmálaályktun, c) lagabreytingar. 12.00 Matur. 13.00 Hópavinnu framhaldið. 20.00 Matur. 21.30 Kvöldbæn. Sunnudagur 4. okt. 9.00 Lagabreytingar, seinni umræða. 10.00 Hópavinna, niðurstöður. 13.00 Matur. 14.00 Kosningar. 15.30 Þingslit. Þingið er opið öllum ÆF-félögum. Félagar sem greiða þurfa háan ferða- kostnaö utan af landi fá V2 fargjaldið greitt. Skráið ykkur sem allra fyrst. Nánari upplýsingar færð þú á skrifstofunni í síma 17500. Framkvæmdaráð ÆFAB ÆFR Félagsfundur Félagsfundur ÆFR verður haldinn fimmtudaginn 24. september kl 20 30 að Hverfisgötu 105. Dagskrá: 1) Kosning fulltrúa á Landsfund. 2) Starfið framundan. 3) önnur mál. ÆFAB Skrifstofutími Skrifstofa ÆFAB er opin á miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum frá kl. 14-19 að Hverfisgötu 105. Sími 17500. Þrlðjudagur 22. september 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.