Þjóðviljinn - 22.09.1987, Page 15
▼
______________FRETTIR_________________________
Barnaofbeldi
Vemda lögin bömin?
Fjölmenn ráðstefna í Noregi í vikunni um illa meðferð og vanrœkslu á
börnum. Yfir20 Islendingarsœkja ráðstefnuna
Útvarp Rót
Ekki
bara
Reagan
I þeim hluta greinar minnar
„Áfram Útvarp rót“, þar sem ég
var að lýsa vonum mínum um Út-
varp rót, sem andstöðu við það
sem tíðkast í íslenskum fjölmiðl-
um um þessar mundir, féllu niður
nokkur orð sem varð til þess að
snúa á haus meiningunni með
eftirfarandi málsgrein.
Málsgreinin á að vera svona:
Það (Útvarp rót) á að vera út-
varp, sem ekki leggur bara út af
orðum Reagans, heldur líka út af
orðum Daníels Ortega, Winnie
Mandela, Gorbasjoffs og Kadd-
afys o.s.frv. svo ég sé nú jafn óá-
byrgur í nafnaröðinni og áður.
Ragnar Stefánsson
Starfshópur, sem vinnur að
samnorrænu ráðstefnuhaldi
um illa meðferð og vanrækslu á
börnum, stendur í samvinnu við
barnageðverndarsamtökin og
með stuðningi frá norska fél-
agsmálaráðuneytinu, að þriðju
samnorrænu ráðstefnunni um illa
meðferð og vanrækslu á börnum
þ. 24.-27. sept. n.k. í Park Hotel,
Sandefjord í Noregi.
Þessar samnorrænu ráðstefnur
eru haldnar annað hvert ár og
hafa áður verið í Danmörku og
Svíþjóð. Þátttakendurnir eru
430, aðallega fagfólk, sem unnið
hefur að fyrirbyggingu, meðferð
og rannsóknum á þessu sviði, svo
sem heilsugæsluhjúkrunarfræð-
ingar, uppeldisfræðingar, félags-
ráðgjafar, læknar, sálfræðingar,
kennarar, fóstrur, þroskaþjálfar,
lögfræðingar, löreglan, blaða-
menn og ekki síst stjórnmála-
menn.
Til iilrar meðferðar og van-
rækslu á börnum telst andlegt,
lfkamlegt og kynferðislegt of-
beldi svo og grófur skortur á um-
sjá og umhyggju.
Meðal málaflokka sem teknir
verða fyrir eru eftirfarandi:
1) - Vernda lögin börnin?
2) - Stuðlar samfélagið að illri
meðferð á börnum?
3) - Hvernig á að skipuleggja
forvarnarstarf?
4) - Hvernig á að standa að a)
greiningu, b) meðferð, c) sam-
eiginlegu framlagi og samstarfi
hinna ýmsu heilbrigðisstétta.
Alls halda um 60 aðilar erindi
um fræðilega reynslu sína og
rannsóknir. Undirbúningsnefnd-
in hefur náið samstarf við Al-
þjóðasamtökin um fyrirbyggingu
ofbeldis og vanrækslu á börnum,
sem heldur alþjóðlegar ráðstefn-
ur um efnið og gefur út tímaritið
„The International Journal of
Child Abuse and Neglect".
Rúmlega 20 íslendingar sækja
ráðstefnuna. Fulltrúi Islands í
undirbúningsnefnd ráðstefnunn-
ar er Hulda Guðmundsdótir,
yfirfélagsráðgjafi á geðdeild
Borgarspítalans.
Sorgog
sorgar-
viðbrögð
Kvöldvaka í
Templarahöllinni
Samstarfshópur áhugafólks
um sorg og sorgarviðbrögð held-
ur kvöldvöku í Templarahöllinni í
kvöld, þriðjudaginn 22. septemb-
er kl. 20.00.
Þeir sr. Sigfinnur Þorleifsson
sjúkrahússprestur og Páll Eiríks-
son læknir flytja stutta fyrirlestra
og svara fyrirspurnum.
Almennar umræður á eftir
m.a. um formlega stofnun sam-
takanna, og kaffiveitingar.
Aðgangur er ókeýpis og allt
áhugafólk velkomið.
N.k. mánudag flytur Ingvi Þorsteinsson erindi um eyðingu gróðurs og endur-
heimt landgæða.
Háskólinn
Um umhverfismál
r
Iverkfræðideild Háskóla Islands
hófst f gær erindaflutningur um
umhverfísmál fyrir nemendur í
deildinni, en aðgangur er öllum
frjáls, eins þeim, sem ekki eru
nemendur í Háskólanum.
Erindin verða flutt á mánu-
dögum kl. 17.15 í stofu 158 í húsi
verkfræðideildar, Hjarðarhaga
6. Þau eru ráðgerð svo sent hér
segir:
28. september: Ingvi Por-
steinsson MS, Rannsóknastofn-
un landbúnaðarins: Eyðing gróð-
urs og endurheimt landgæða.
5. október: Þorleifur Einars-
son, prófessor í jarðfræði: Jarð-
rask við mannvirkjagerð.
12. október: Agnar Ingólfsson,
prófessor í vistfræði: Ýmis undir-
stöðuatriði í vistfræði.
19. otkóber: Arnþór Garðars-
son, prófessor í líffræði: Rann-
sóknir á röskun lífríkis.
26. október: Ólafur K. Páls-
son, fiskifræðingur, Hafrann-
sóknastofnun: Auðlindir sjávar
og nýting þeirra.
2. nóvember: Jakob Björns-
son, verkfræðingur, orkumála-
stjóri: Orkumál og umhverfi.
9. nóvember: Eyþór Einarsson
grasafræðingur, formaður Nátt-
úruverndarráðs: Náttúruvernd í
framkvæmd.
16. nóvember: Vilhjálmur
Lúðvíksson verkfræðingur, fram-
kvæmdastjóri Rannsóknaráðs
ríkisins: Verkfræðilegar áætlanir
og valkostir.
23. nóvember: Einar B. Páls-
son verkfræðingur: Matsatriði,
m.a. náttúrufegurð.
Umsjón með námskeiðinu hef-
ur Einar B. Pálsson prófessor.
Sleipar skákkonur Polgar og Chibuiúanidze
Keppni í landsliðsflokki á Skák-
þingi 1987 hófst í Alþýðuhúsinu á
Akureyri sl. fimmtudag. Kepp-
endur eru 14 talsins en þegar
dregið var um töfluröð hjá Skák-
sambandi íslands röðuðust þeir
þannig: 1. Dan Hansson 2.
Þröstur Þórhallsson 3. Ólafur
Kristjánsson 4. Gylfi Þórhallsson
5. Helgi Ólafsson 6. Hannes
HlífarStefánsson 7. Þröstur
Árnason 8. Jón Garðar Viðars-
son 9. Sævar Bjarnason 10.
Margeir Pétursson 11. Gunnar
Freyr Rúnarsson 12. Áskell Örn
Kárason 13. Davíð Ólafsson 14.
Karl Þorsteins. Mótinu lýkur 2.
október n.k. Það er a.m.k. 30 ár
síðan Akureyringar gengust fyrir
keppni í landsliðsflokki á Skák-
þingi íslands en það voru Grund-
firðingar sem riðu á vaðið með þá
nýbreytni að halda mótiðutan
Reykjavíkur og er það góð til-
breyting. Akureyringareigafjóra
fulltrúa á mótinu þá Askel Örn
Kárason, Gylfa Þórhallsson, Ólaf
Kristjánsson og Jón Garðar
Viðarsson.
Ljubojevic varaði
sig ekki á honum
Einvígið um heimsmeistaratit-
ilinn milli Garrí Kasparovs
heimsmeistara og áskoranda
hans Anatoly Karpovs hefst með
setningu í Sevilla þann 10. októ-
ber n.k. en fyrsta skák einvígisins
verður svo tefld þann 12. októ-
ber. Áætlað er að einvígið standi í
um tvo mánuði og þeir tefla 24
skákir. Þetta verður fjórða ein-
vígi þeirra félaga og hefur Kasp-
arov tvívegis unnið með naum-
indum en fyrsta einvígið var
óútkljáð er Campomanes, forseti
FIDE sleit því eftir 48 skáka
viðureign sem staðið hafði í
meira en fimm mánuði. Ég
reikna með að skýra nánar frá
viðureigninni síðar en allt bendir
til geysitvísýnnar keppni.
Lokaæfing Karpovs fyrir ein-
vígið fór fram í Bilbao fyrr í
sumar en þar stóðu Spánverjar
fyrir skákmóti tíu keppenda,
fjögurra heimamanna og sex er-
lendra stórmeistara. Karpov hef-
ur ævinlega staðið sig vel á Spáni
og hann vann mótið taplaust í 9
skákum, með 7 vinninga. Það er
mín spá að einvígislandið spilli
ekki fyrir möguleikum Karpovs í
Sevilla. Á Spáni hefur hann teflt
á sex mótum á ferlinum og eitt
einvígi samtals 80 skákir og ekki
tapað einni einustu skák, unnið
40 og gert 40 jafntefli sem er 75%
vinningshlutfall. Karpov átti í
harðri baráttu við þá Úlf Anders-
son Svíþjoð og Lubomir Ljuboje-
vic Júgóslavíu um efsta sætið. Úlf
hlaut 6V5 vinning, en Ljubojevic
5Vi vinning og varð í 3.-4. sæti
ásamt heimsmeistara kvenna,
Maju Chiburdanidze. í 4-.5. sæti
urðu svo Andrei Sokolov og
Zsusa Polgar hin ungverska. Það
voru einmitt konurnar sem gerðu
Ljubojevic gramt í geði. Hann
hlaut 5'/2 vinning gegn
karlpeningnum en tapaði báðum
skákunum fyrir Maju og Szusu.
Þessar tvær standa öðrum skák-
konum framar. Maja varð
heimsmeistari kvenna árið 1978
þá aðeins 17 ára gömul en Szusa
Polgar hyggur hinsvegar ekki á
þátttöku í heimsmeistarakeppni
kynsystra sinna. Þetta er litið dá-
lítið alvarlegum augum innan
FIDE, því fyrir ári voru skákstig
kvenna, Elo-stigin svokölluðu,
hækkuð um 100 stig hjá öllum
skákkonum - nema hjá Szusu
Polgar. Maja er með 2530 stig en
Polgar með 2415. Hér koma þess-
ar skákir. Polgar nær miklum
þrýstingi gegn stöðu Ljubojevic,
fer sér að engu óðslega og inn-
byrðir vinninginn af fagmannlegu
öryggi með hnitmiðuðum sókn-
araðgerðum.
Bilbao 1987:
Szusa Polgar
- Lubomir Ljubojevic
Drottningarpeðsleikur
1. d4-Rf6
2. Rf3-d6
3. g3-Bg4
4. Bg2-Rbd7
5. c4-e5
6. Rc3-c6
7. 0-0-Be7
8. h3-Bxf3
9. exD-exd4
10. Dxd4-Db6
11. Dd2-0-0
12. b3-Rc5
13. Hel-Hfe8
14. Bb2-a5
15. Ba3-Bf8
16. Rc4-Rfxe4
17. fxe4-Had8
18. Bb2-Dc7
19. Hadl-Hd7
20. Bc3-b6
21. Kh2-Dc8
22. He3-Hde7
23. Hdcl-Dc7
24. f4-f6
25. Df2-He6
26. Df3-Kh8
27. Khl-Kg8
28. h4-Kh8
29. Bh3-H6e7
30. h5-HI7
31. Bf5-Hd8
32. Kdl-Be7
33. He2-Hff8
34. Hh2-Hfe8
35. Hhd2-Rd7
36. Bb2-Rf8
37. h6-g6
38. Bh3-Kg8
39. g4-Re6
40. g5-Rc5
41. gxf6-Bf8
42. f7+!-Kxf7 45. Df6-Dh7
43. f5-Kg8 46. Hg2-
44. fxg6-hxg6 og svartur gafst upp.
Sigur Maju var ekki síður ör-
uggur. Hún beitir afbrigði sem
kom m.a. fyrir í sjónvarpeinvígi
Shorts og Kasparovs er sýnt var á
Stöð 2 en það þykir leiða til jafn-
teflislegrar stöðu. Engu að síður
geisaði hatrömm barátta þar sem
illa staðsettur biskupLjubojevic á
a5 neyddi hann til örþrifaráða
sem kostuðu lið:
Maja Chiburdanidze — Lubomir
Ljubojevic
Sikileyjarvörn
1. e4-c5 3. Bb5+-Bd7
2. RD-d6 4. Bxd7-Dxd8
5. 0-0-Rc6
6. c3-Rf6
7. d4-cxd4
8. cxd4-d5
9. e5-Re4
10. Rel-f6
11. D-Rg5
12. Be3-e6
13. Rc3-Be7
14. Dd2-0-0
15. exf6-gxf6
16. Rd3-Rf7
17. Rf4-Rd6
18. Bf2-Hae8
19. Hael-Bd8
20. He2-Rf5
21. Ra4-Ba5
22. Ddl-Dd8
23. g3-Rh4
24. Db3-b6
25. a3-Kh8
26. Hcl-Hg8
27. Kf 1 -Rf5
28. Dd3-Rfxd4
29. Bxd4-e5
30. Be3-exf4
31. Bxf4-Re5
32. Bxe5-fxe5
33. b4-b5
34. Dxb5-Bd8
35. Hdl-d4
36. Rc5-Hgf8
37. Kgl-Dd5
38. Db7-Dxb7
39. Rxb7-Bb6
40. Rd6-He6
41. Rc4-Bc7
42. Hxd4!
- Svartur gafst upp.
Lausnir á
skákþrautum
í síðasta þætti birtust tvær
þrautir af óvenjulegri gerð.
Lausn þeirra fer hér á eftir.
Þraut nr. 1
Lausn: 1. Rf4+! Kxf2. 2. Rxh3+
Kxg3 (eða 2. .. Ke2. 3. c8(D) og
svartur á enga vörn við 4. Daó
mát) 3. Rf5+ Kxh3 4. Bg 4 mát.
Varðandi þessa þraut þá má
nefna að 1. c8(R) gengur ekki
vegna 1. .. Hxhl 2. Rxe7 gl (R)!
og hvítur nær ekki máti á til-
skildum tíma.
Þraut nr. 2
Lausn: 1. b8(R)! t.d. 1. .. d5 2.
Rc6 dxc4 3. Re4+ Kxe2 4. Rd4
mát. Eða 1. .. Hxgl 2. Rxd7 t.d.
2. .. fl(R) 3. Rc5 og mát í næsta
leik.