Þjóðviljinn - 22.09.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Þriðjudagur 22. september 1987 209. tölublað 52. örgangur
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Jón Guðmundsson forstjóri Sjólastöðvarinnar í Hafnarfirði var hýr á brá í gær
þegar hann fagnaði nýjum Sjóla við komuna til heimahafnar. Sjóli HF-1 er eitt
fullkomnasta fiskiskip íslenska fiskveiðiflotans og kemur í stað nafna síns sem
eyðilagðist í eldsvoða fyrir rúmu ári úti fyrir Vestfjörðum. Sjóli er verksmiðjuskip
882 brl. og 5.65 metra langur. Hann var smiðaður í Noregi og er skrokkur
skipsins sérstaklega styrktur til siglinga í ís. Á milliþilfari er 370 fm. vinnslusalur
með fullkomnustu vinnuvélum. íbúðir eru fyrir 28 manns í skipinu. Skipstjóri á
Sjóla er Þráinn Kristinsson. Mynd - E.ÓI.
Bíldudalur/Patreksfjörður
Sláturstríð fyrir vestan
Guðbjartur Ingi Bjarhason hjá Sláturfélagi Arnfirðinga: Húsið á Patreksfirði fullt
afmöðkuðum óþverra en samt komið með sláturleyfi. Ari ívarsson sláturhússtjóri
á Patreksfirði: Búið að hreinsa allarfrystigeymslur
í fylgiskönnun sem birt var í
DV í gær koma framsóknarmenn
og Kvennalisti best út miðað við
kosningarnar í vor. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur meira fylgi en í
kosningunum en er langt frá fyrri
stærð. A-flokkarnir og Borgara-
flokkur tapa.
Nálægt 40 prósent spurðra gefa
ekki upp afstöðu sína, en fylgi
hinna skiptist í þessum hlutföll-
um (fylgismunur frá kosningum í
sviga):
Alþýðuflokkur 12,3 (-2,9),
Framsóknarflokkur 21,0 (+2,1),
Sjálfstæðisflokkur 30,3 (+3,1),
Alþýðubandalag 10,4 (-2,9),
Kvennalisti 12,3 (+2,2), Borg-
araflokkur 7,1 (-3,8), Þjóðar-
flokkur 2,2 (+0,9), Flokkur
mannsins 3,0 (+1,4), BJ 0,8
(+0,6), Stefán Valgeirsson 0,3 (-
0,9), Græningjar0,3,-og mælast
nú í fyrsta sinn. Fylgisbreytingar
minnstu samtakanna eru lítt
marktækar sem sjá má af því að
fylgi Græningja byggir á svari
eins manns.
Aðeins ein könnun önnur hef-
ur verið gerð á flokkafylgi í
sumar, í HP í ágúst. Þar fékk
Sjálfstæðisflokkur um 40 pró-
sent, og virðist DV-könnunin
ekki staðfesta slíka aukningu. Að
öðru leyti er hneigðin nú svipuð
og í HP-könnuninni, sveiflurnar
þó ívið rólegri miðað við kosning-
arnaríapríl. -m
un verður í Arnarfirði í haust. Ef
sláturleyfið fæst ekki verða Pat-
reksflrðingar einir um hituna á
þessu svæði.
„Dýralæknir skrifaði upp á á-
kveðna hluti sem við eigum að
framkvæma, og við erum nú að
gera það sem við getum. Ég býst
við að lagfæringum verði lokið
um miðja þessa viku,“ sagði
Guðbjartur, „en reyndar eru
kröfurnar sem gerðar eru til okk-
ar meiri en eðlilegt getur talist, að
minnsta kosti ef miðað er við slát-
urhúsið á Patreksfirði. Það hús
var reist sem sláturhús, en var
síðan selt til rækjuvinnslu. Húsið
var umhirðulaust í vetur og varð
frostskemmdum að bráð. Auk
þess var rafmagnið tekið af hús-
inu og þar var þá talsvert af mat-
vælum í frysti, sem núna eru orð-
in að maðkahrúgu. Þó að þetta
hús sé fullt af möðkuðum óþverra
er það samt komið með slátur-
leyfi og því ljóst að það er ekki
sama Jón og séra Jón,“ sagði
Guðbjartur.
Ef slátrað verður á báðum
stöðum í haust munu um það bii
3000 fjár koma til slátrunar í Arn-
arfirði, en 2000 til 2400 á Patreks-
firði að sögn Guðbjarts.
„Slátrun byrjar hér á mánu-
daginn að öllu óbreyttu,“ sagði
Ari ívarsson, sláturhússtjóri á
Patreksfirði. Að sögn hans er
búið að hreinsa allar frysti-
geymslur, og sá yfirdýralæknir
þær áður en byrjað var á því
verki.
HS
Krakkafundur
Bensínlaus
á öræfum
Menntaskólakrakkarnir átta
sem leitað var að fundust um
miðjan dag í gær við Köldukvísl
rétt norðan við Þórisvatn klukk-
an 16.10. Þau höfðu orðið bensín-
laus.
Að sögn Tryggva Friðriks-
sonar, hjá Landssambandi
Hjálparsveita skáta í Reykjavík,
fóru þrír bílar að norðan og tveir
að sunnan til leitar að krökku-
num og þyrla Landhelgisgæsl-
unnar var kölluð út.
Krakkarnir höfðu verið að
ferðast á eigin vegum um helgina
og höfðu fyrst viðkomu á Hvera-
völlum síðastliðinn föstudag. Á
hádegi á sunnudag höfðu þau
verið á Akureyri, áður en þau
lögðu í hann. -grh
Við erum ekki búnir að fá
undanþágu, en ég trúi ekki
öðru en að hún fáist þegar búið er
að lagfæra það sem okkur er
uppálagt, sagði Guðbjartur Ingi
Bjarnason, sláturhússtjóri hjá
Sláturfélagi Arnfirðinga, en ekki
er Ijóst enn hvort af sauðfjárslátr-
DV-könnun
Framsókn
vinnur á
A-flokkar tapa,
Kvennó ísókn
Bankakerfið
Stórhækkun á þjónustugjöldum
Dýrast að skipta við Iðnaðarbankann en ódýrast við Landsbanka. Þjónustugjöld
bankanna hafa hœkkað langt umfram almennar verðhœkkanir
Skákþing íslands
Margeir efstur
í gær var tefld flmmta umferð á
skákþingi Islands.
Úrslit urðu þau að Ólafur
Kristjánsson vann Karl Þor-
steins, Helgi Ólafsson vann Dan
Hansson, Þröstur Þórhallsson
vann Gylfa Þórhallsson, Hannes
Hlífar vann Gunnar Frey og Da-
víð Ólafsson vann Jón G. Viðars-
son. Viðureign Margeirs Péturs-
sonar og Sævars Bjarnasonar
lyktaði með jafntefli sem og skák
Þrastar Árnasonar og Áskels
Kárasonar.
Margeir er efstur með 4 vinn-
inga en í 2.-5. sæti eru Helgi,
Þröstur, Davíð og Ólafur með
þrjá og hálfan vinning. -ks.
Hækkun á föstum gjaldaliðum
banka og sparisjóða hefur yf-
irleitt orðið talsvert meiri en al-
mennar verðhækkanir á síðustu
12 mánuðum. Algengt er að al-
menn þjónustugjöld hafl hækkað
um allt að 50% á þessum tíma og
föst gjöld vegna vanskila hafa
hækkað þrefalt meira, eða um
160-170%.
Þetta kemur fram í könnun
sem Verðlagsstofnun hefur gert á
þjónustugjöldum banka og spari-
sjóða í landinu. Þar kemur einnig
fram, að í flestum tilfellum eru
gjöldin hæst hjá Iðnaðarbankan-
um en lægst hjá Landsbankan-
um.
Sem dæmi má nefna að
tilkynninga- og greiðslugjald
kostar 90 kr. í Iðnaðarbankanum
en 39 kr. í Landsbankanum.
Tékkhefti með 25 blöðum kostar
175 kr. í Iðnaðarbankanum en
120 kr. í Landsbankanum.
Hlutfallsleg þóknun vegna út-
lána sem Seðlabankinn ákvað
áður samhliða útlánsvöxtum hef-
ur í mörgum tilfellum hækkað um
allt að 50-60% á einu ári. Þannig
hefur þóknun fyrir keypta víxla
hækkað í mörgum tilfellum úr
0,4% í 0,65% og þóknun fyrir
skuldabréf til lengri tíma hækícað
úr 0,8% í 1-1,2%. Þessi gjöld
hafa hins vegar ekki hækkað í
Landsbankanum.
-Ig.