Þjóðviljinn - 25.10.1987, Blaðsíða 13
GAUKSI
23.,24.og 25.
október 1987.
Þrír merkisdagar
í sögu íslenskra
sjóslysavarna.
■ ■ ■
Slysavarnafélag íslands var stofnað í ársbyrjun 1928
og hefur starfsemi þess markast af tveim meginþátt-
um. Annars vegar af útbreiðslu- og fræðslustarfi um
slysavarnir en hins vegar hefur félagið skipulagt al-
hliða leitar- og björgunarstörf. Landinu er nú skipt í
10 umdæmi sem
telja 94 slysavama-
sveitir.
Slysavarnafélag
íslands hefur
ávallt kappkostað
að sinna öryggis-
málum sjómanna.
Um árabil veitti
félagið nemendum
sjómannaskólanna
fræðslu um öryggis-
mál en árið 1985 urðu þáttaskil er Slysavarnaskóli
sjómanna var stofnaður og er miðstöð hans um borð
í Sæbjörgu, sem áður var varðskipið Þór. í slys-
avarnaskólanum eru meðal annars kennd björgunar-
tækni, eldvarnir, skyndihjálp og „björgun með þyrlu“.
Tilkynningaskylda íslenskra skipa tók til starfa í
maí árið 1968 og var Slysavarnafélaginu frá upphafi
falin skipulagning hennar og framkvæmd.
Slysavarnafélagið starfrækir nú 46 skipbrotsmanna-
skýli við strendur landsins.
Vitaskuld þarf
mikinn og traustan
búnað til þess
að slysavarna-
sveitir geti sinnt
sínum margvís-
legu verkefnum.
Þörfin fyrir nýjan
og betri björgun-
arbúnað er víða
brýn, því réttur
búnaður getur skipt sköpum á örlagastund. Slys og
óhöpp gera ekki boð á undan sér en máttur okkar
felst í því að treysta varnarvegginn. Slysavarnafélag
íslands treystir því á stuðning þinn þessa merkisdaga.
mwwÍBrapEK**"11 *
.
Hradbátar af þessari gerð eru aflmiklir og gefa mikla möguleika við erfiðar aðstœður.
Fjölmargar sveitir Slysavarnafélagsins hafa brýna þörf fyrir slíka báta.
ÞESSI AUGLÝSING ER STYRKT AF SÖLUMIDSTÖÐ HRAÐFRYSTIHÚSANNA - SJÓVÁ - SJÁVARAFURÐADEILD SAMBANDSINS -
NESSKIP - BRUNABÓT - KASSAGERD REYKJAVÍKUR - VERZLUNARBANKANUM OG ALÞÝDUBANKANUM