Þjóðviljinn - 12.11.1987, Blaðsíða 2
'V
SPURNINGIN—.
HVERJU SINNI
Húsnæðislánin eru hagstæð lán, eins og vera ber.
En af þeim þarf að greiða, jafnt sem af öðrum lánum og dráttarvextir eru háir
ef ekki er greitt á réttum tíma.
Pegar innheimtukostnaður bætist við að auki, fer greiðslubyrðin
óneitanlega að þyngjast.
Viö minnum á þetta núna vegna þess aö
haustgjalddagi var 1. nóvember sl. og greiðsluseölar
hafa verið sendir gjaldendum.
Greiðslur er að sjálfsögðu hægt að inna af hendi í
hvaða banka, bankaútibúiog sparisjóði sem er.
Á lán með lánskjaravísitölu leggjast
dráttarvextir þann 16. nóvember.
Á fán með byggingarvlsitöiu leggjast
dráttarvextir þann 1. desember.
Við viljum auk þess benda á að þú getur greitt lánið
upp.hafir þú tök á því. Þá greiðir þú eftirstöðvar þess,
ásamt verðbótum, frá upphafi lánstlmans til
greiðsludags.
Á síðustu 12 mánuðum hafa 12 þúsund lán verið
greidd upþ, áður en lánstíma lauk.
Einnig getur þú lækkað höfuðstól lánsins, viljir þú
greiða inn á hann. Það getur komið sér vel þegar til
lengri t(ma er litið.
HAFÐU HUSNÆÐISLANIÐ ÞITT EFSTÁ BLADI.
ÞAÐ BORGAR SIG.
Húsnæðisstofnun ríkisins
o
>
Koma þér á óvart tengsl
fyrrverandi forsætisráö-
herra, Stefáns Jóhanns
Stefánssonar, viö leyni-
þjónustu Bandaríkjanna
CIA?
Jóhannes Bergsteinsson:
Nei mér koma þau ekki á óvart.
Mér finnst aö allir stjórnmála-
menn gætu legið undir grun. Al-
þýðubandalagið gæti þess
vegna verið í tengslum við leyni-
þjónustu Sovétríkjanna.
Ég get ekki neitað því að þetta
kom mér spánskt fyrir sjónir.
Guðrún Halldórsdóttir:
Þetta kom mér algjörlega í opna
skjöldu. Mig hefði aldrei grunað
þetta.
George Crispen
(Bandaríkjamaður):
Ég þekki þessa sögu reyndar
ekki, en mér þykir það ekkert
óeðlilegt að maðurinn hafi leitað
til CIA hafi hann óttast uppreisn
kommúnista. Það er jú hans
starf.
Helga Einarsdóttir:
Þetta kom mér verulega á óvart.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 12. nóvember 1987