Þjóðviljinn - 12.11.1987, Blaðsíða 20
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVIUIN
Flmmtudaour 12. nóvember 1987 253. tölublað 52. órgangur
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Þorskkvótaskiptingin
Meiríhluti á þingi
vill breytingar
Meirihluti alþingismanna hef-
ur skrifað undir áskorun til
þingnefndar sem vinnur að end-
urskoðun á kvótafrumvarpinu að
afnumin verði þau ákvæði frum-
varpsins sem skipta landinu í 2
veiðisvæði við útlutun þorskafla-
hámarks togara.
Flóttamenn
20 Víetnamar
til íslands
Utanríkisráðherra hefur heim-
ilað 20 Víetnömum að flytja hing-
að til lands en flutningur þeirra
frá heimalandi sínu er í samræmi
við áætlun Flóttamannastofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna.
Allir Víetnamarnir eiga vina-
fólk og ættingja hérlendis í hópi
þeirra rúmlega 50 Víetnama sem
sest hafa að hérlendis á liðnum
árum. Ferð Víetnamana hingað
er kostuð af ættingjum þeirra hér
og Flóttamannastofnunininni, en
Rauði krossinn mun hafa umsjón
með móttöku þeirra.
Það voru þingmenn Reykja-
neskjördæmis sem stóðu fyrir
þessari undirskriftasöfnun þing-
manna og skrifuðu allir þing-
menn í Reykjavík, Reykjanesi,
Suðurlandi og Vesturlandi utan
ráðherra, undir þessa áskorun,
eða alls 32 þingmenn.
í áskorun þingmannanna segir
að skiptingin í norður og suður
veiðisvæði, valdi óviðunandi mis-
rétti milli landshluta og hafi af-
gerandi áhrif á sölu skipa af
suðursvæðinu sem nær frá Eystra
horni vestur og suður að Látra-
bjargi, á þann hátt að veita aðil-
um á norðursvæðinu yfirburða-
stöðu til að bjóða í skip umfram
aðila fyrir sunnan, þar sem afla-
kvóti aukist um 50-60% eða 350-
550 tonn við sölu togara ef þeir
eru keyptir til norðursvæðisins.
„Með síaukinni sölu milli
svæða, ekki síst vegna ofan-
greindrar mismununar eykst
heildarþorskkvóti togaraflotans.
Það hlýtur fyrr eða síðar að leiða
til leiðréttingar til lækkunar á
heildarkvóta og þá á kostnað tog-
ara á suðursvæðinu," segir í Iok
áskorunar þingmannanna 32.
-lg-
FH-ingar halda toppsætinu í 1. deild. Þeir sigruðu Víkinga í gær í stórkost-
legum leik, 24-27. Á myndinni á FH-ingurinn Þorgils Óttar Mathiesen í
baráttu við Karl Þráinsson og Hilmar Sigurgíslason. Mynd: E.ÓI.
Sjá nánar bls. 19
Skipulagsstjórn
Kvosin staðfest
Á fundi skipulagsstjórnar í gær
var Kvosarskipulagið staðfest
með fjórum atkvæðum gegn einu.
Þá var Ráðhússkipulagið staðfest
sérstaklega, með þrem at-
kvæðum gegn tveimur, og vísaði
skipulagsstjórn því ekki til Nátt-
úruverndarráðs eins og margir
höfðu vonað.
Á fundinum lagði Guðrún
Jónsdóttir arkitekt fram bókun
þar sem fram kemur að hún telji
að tillögurnar séu ekki fullbúnar
til staðfestingar.
Skipulagstillögurnar verða
sendar til félagsmálaráðherra til
endanlegrar staðfestingar. -K.ÓI.
VMSÍ/VSÍ
Niðurstöður
um helgina
Það er búist við að fundurinn í
dag verði langur, afar langur,
sagði Guðmundur J. Guðmunds-
son formaður Verkamannasam-
bandsins í gær um starf vinnu-
nefndar Verkamannasambands-
ins og VSI um bónusinn, en línur
væru ekki mikið skýrari eftir
fund nefndarinnar í gær.
Guðmundur sagði að starf ann-
arra vinnunefnda væri ekki kom-
ið langt áleiðis, en búast mætti
við niðurstöðum bónusnefndar-
innar rétt fyrir helgi eða um helg-
ina -K.ÓI.
VIÐSKIPTAFÉLAGAR
Góðir viðskiptafélagar eru vand-
fundnir, félagar sem vinna jafn-
mikið og þú, félagar með sömu
markmiðogþú, félagar einsog
WordPerfect, PlanPerfect og
WordPerfect Library.
Samkvæmt könnun er WordPerfect
(stundum kallað ,,OrðsniIld“) mest
selda ritvinnsluforritið fyrir PC-
tölvur á íslandi sem og flestum öðr-
um löndum. Og ekki að ástæðu-
lausu.
Með WordPerfect Library og
PlanPerfect hefur WordPerfect
fengið snilldarfélaga.
PlanPerfect er töflureiknir í fremstu
röð og notar að miklu leyti sömu
skipanir og WordPerfect.
í næsta mánuði verður PlanPerfect
einnig fáanlegt á íslensku.
Með Library er hægt að víxla á milli
WordPerfect og PlanPerfect og
sameina texta og skýrslumyndir í
einniskrá.
í Library eru líka reiknivél, daga-
taþminnisbóko.fl.
Rafreiknir hf., sími 91 -641011.
Fáðu þér viðskiptafélaga sem vinna með þér og fyrir þig.
Þeir fást í nœstu tölvuverslun.