Þjóðviljinn - 12.11.1987, Side 3
FRÉTTIR
Lágmarksverð
Kallar á yfirborganir
Hólmgeir Jónsson hjá Sjómannasambandinu: Strax og nýttlágmarksverð áfiski verður
ákveðiðmá búastvið yfirborgunum. Þœrkoma ekki fram í skiptahlut sjómanna
Það er fyllilcga ástæða til að
óttast að um bullandi yfir-
borganir verði að ræða meðal
fiskkaupenda þegar Verðlagsráð
sjávarútvegsins hefur komið sér
saman um nýtt lágmarksverð á
helstu botnfisktegundunum, eins
og ótal dæmi sönnuðu fyrr í ár,
rétt áður en fiskverð var gefið
frjálst. Það sem verra er að sjó-
menn njóta ekki þessara yfirborg-
ana, þar sem þær eru að öllu
jöfnu undir borðið og koma ekki
fram í uppgjöri hverju sinni,
heldur renna óskiptar til útgerð-
arinnar, segir Hólmgeir Jónsson
framkvæmdastjóri Sjómanna-
sambands íslands í samtali við
Þjóðviljann.
Á fundi sínum í fyrradag ákvað
Verðlagsráð sjávarútvegsins að
falla frá frjálsu fiskverði, sem
hefur verið við lýði frá 15. júní
síðastliðnum. Á fundinum lagði
fulltrúi sjómanna fram þá verð-
hugmynd um lágmarksverð á
fiski að það hækki um 15-20% frá
því sem það var þegar Verð-
lagsráð ákvað síðast lágmarks-
verð, en það var 1. janúar síð-
astliðinn.
Að sögn Hólmgeirs eru þessar
hugmyndir sjómanna um hækk-
un á lágmarksverði einungis
meðal þess fiskverðs sem nú er
greitt út um alla strönd og blá-
köld staðreynd um fiskverðið í
dag.
I dag verður fundur í Verð-
lagsráði sjávarútvegsins og verð-
ur þar væntanlega skeggrætt um
verðhugmyndir sjómanna frá síð-
asta fundi ráðsins. grh
Sjómannasambandið
Foimenn þinga
„Helstu mál þessa formanna-
fundar Sjómannasambandsins
sem hefst á Akureyri á morgun og
stendur í tvo daga eru að sjálf-
sögðu fyrirhugað lágmarksverð á
fiski, fiskveiðistjórnun næsta árs,
öryggismál sjómanna og stað-
greiðslukerfi skatta sem kemur til
framkvæmda í byrjun næsta
árs,“ segir Hólmgeir Jónsson
framkvæmdatjóri Sjómannasam-
bands íslands í samtali við Þjóð-
viljann.
Formannafundinn sækja for-
menn sjómannafélaga víðs vegar
af landinu og má búast við þátt-
töku um 30-40 formanna eða full-
trúa þeirra. grh
Alþingi
Léieg
vinnubrögð
Gunnarsstjórnin
Rætt um
stjómarslit
1982
Svavar og Ólafur
Ragnar vildu slíta
samstarfinu. Meiri-
hluti þingflokksins
var á móti
- Ég man vel eftir þessum um-
ræðum í þingflokknum í október
1982 um hugsanleg slit á stjórn-
arsamstarfinu, sagði Geir Gunn-
arsson alþm. vegna skoðana-
skipta þcirra Hjörleifs Guttorms-
sonar og Ólafs Ragnars Gríms-
sonar á Stöð 2 um hugsanlega út-
göngu Alþýðubandalagsins úr
ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen.
Svavar Gestsson og Ólafur
Ragnar voru þeirrar skoðunar á
þingflokksfundi í október 1982
að Alþýðubandalagið ætti að
leggja fram kröfu um að Fram-
sóknarmenn og Gunnarsmenn
væru með í því að rjúfa þing og
efna til kosninga, þar sem stjórn-
in væri búin að missa meirihluta
sinn. Samstarfsflokkarnir neit-
uðu og vildu þeir Svavar og
Ólafur að flokkurinn brygðist við
slíkri neitun með því að fara úr
stjórninni, en um það náðist ekki
samstaða íþingflokknum. Helstu
mótbárur þingmanna voru
reynsla Alþýðuflokksins af brott-
för úr vinstri stjórninni 1979.
Kvartað undan slce-
legum vinnubrögðum
og lélegri mœtingu á
Alþingi ígœr. Hjör-
leifur Guttormsson
kvaddi sér hljóðs um
þingsköp
Mikil haustblíða hefur verið sunnanlands undanfarna daga og engu líkara en vorið sé komið aftur. Það er því
miður óskhyggja því nú spáir hann á norðan og kuldaboli fer trúlega að gera vart við sig þegar líður að helgi. Mynd
- Sig.
Olíulekinn
Ráðstafanir til vamar
Fyrirspurn Geirs Gunnarssonar vegna olíulekans frá hernum
eð hvaða hætti hefir verið
fylgst með því að ekkert fari
úrskeiðis og hvað brast í því eftir-
liti þegar 75 þúsund lítrar af olíu
hafa runnið í jörðina að undan-
förnu? spyr Geir'Álunnarsson,
Steingrím Hermannsson, utan-
ríkisráðherra, m.a. um í fyrir-
spurn sem hann hefur lagt fram á
Alþingi vegna olíulekans úr
birgðastöð Bandaríkjahers, sem
ógnar nú vatnsbólum Njarðvík-
inga og Keflvíkinga.
Geir vill einnig fá að vita
hversu mikið magn af olíu eða
bensíni er geymt á tönkum á
svæðum sem liggja svo nærri
vatnsbólum byggðarlaganna, að
hætta getur stafað af ef leki verð-
ur úr tönkum eða leiðslum. Þá
spyr hann einnig hver hlutur ís-
lenskra heilbrigðisyfirvalda eða
annarra íslenskra aðila í eftirliti
með geymslu eða mælingum á
mengun vegna olíuleka á þessu
svæði sé og hvaða ráðstafanir
hafa verið gerðar til þess að auka
eftirlit með geymslu olíubirgða á
þessu svæði.
Að lokum spyr Geir hvenær
megi gera ráð fyrir að hugsan-
legar orsakir mengunar, og öll
mengunarhætta af völdum
geymslu á olíu eða bensíni í þágu
bandaríska hersins á Keflavíkur-
flugvelli verði upprætt á þessu
svæði.
-Sáf
Af 104 ríkisstjórnarfrumvörp-
um, sem boðuð hafa verið
hafa aðeins átta verið lögð fram.
Mörg af þcssum frumvörpum er
ætlun að afgreiða fyrir jólafrí
þingmanna, þar á nteðal stór
frumvörp einsog frumvarp um
fiskveiðistefnuna og fjöldi frum-
varpa sem varða staðgreiðslu
skatta.
Þetta kom fram í umræðu um
þingsköp á Alþingi í gær, en
Hjörleifur Guttormsson kvaddi
sér hljóðs og kvartaði um vinnu-
brögð á Alþingi og hversu slæm
mæting væri.
í gær var messufall í efri deild
vegna skorts á þingmálum en
þegar Hjörleifur hóf mál sitt í
neðri deild var enginn ráðherra
mættur í salinn. Þau Guðmundur
Bjarnason og Jóhanna Sigurðar-
dóttir tíndust svo í salinn
skömmu eftir að fundur hófst. Þá
var lagt fram eitt stjórnarfrum-
varp á meðan umræðan um þing-
sköp stóð yfir, við fögnuð þing-
manna.
Fjórir ráðherrar eru staddir er-
lendis um þessar mundir, Jón
Baldvin Hannibalsson, Jón Sig-
urðsson, Birgir ísleifur Gunnars-
son og Halldór Ásgrímsson og
Matthías Á. Mathiesen er enn í
veikindaleyfi. Þorsteinn Pálsson
og Steingrímur Hermannsson
höfðu boðað forföll í gær og Frið-
rik Sóphusson situr í efri deild.
-Sáf
Bandarísku skýrslurnar
Andstætt sannleikanum
Eysteinn Jónsson: Meinloka hjá Bandaríkjamönnum að ráðherra-
nefndin ‘49 hafi óttast uppreisn á Islandi
Blaðamennska
Bloð i nutið
og framtiö
Blaðamannafélagið boðar í
kvöld til opins fundar í Listasafni
alþýðu, þar sem nú stendur yfir
afmælissýning félagsins, um blöð
og blaðamennsku í nútíð og fram-
tíð.
Á fundinum munu blaðamenn-
irnir og ritstjórarnir Árni Berg-
mann Þjóðviljanum, Björn Jó-
hannsson Morgunblaðinu, Elías
Snæland Jónsson DV, Indriði G.
Þorsteinsson Tímanum og
Steinar J. Lúðvíksson hafa stutta
framsögu en síðar verða al-
mennar umræður.
Fundurinn hefst kl. 20.30 oger^
opinn öllu áhugafólki um blöð og ’
blaðamennsku.
Eysteinn Jónsson segir það
„algerlega andstætt sann-
leikanum" að ráðherrarnir þrír
sem fóru vestur um haf í mars
1949 hafi látið í Ijós ótta við upp-
reisn „kommúnista".
Skýrsla Þjóðaröryggisráðsins
til Bandaríkjaforseta er sögð
byggjast að hluta á viðræðum
bandarískra stjórnarfulltrúa við
ráðherrana þrjá úr „Stefaníu“
sem heimsóttu þá á sama tíma og
inngangan í Nató var samþykkt. I
skýrslunni segir að í viðræðunum
við íslensku ráðherranna hafi
komið fram mikill ótti við valda-
töku „kommúnista“ vegna
geysiöflugrar andstöðu við Nató-
aðildina, en hinsvegar hafi verið
taldar litlar líkur á sovéskri hern-
aðarógn.
Einsog áður hefur komið fram
varð á þessum tíma til í Pentagon
áætlun um innrás í ísland og sam-
þykkt af forseta. Innrásin átti að
fara af stað ef „kommúnistar“
næðu völdum eða valdataka
þeirra væri yfirvofandi.
f ráðherranefndinni 1949 voru
Bjarni Benediktsson utanríkis-
ráðherra úr Sjálfstæðisflokki,
Emil Jónsson samgönguráðherra
úr Alþýðuflokki og Eysteinn
Jónsson menntamálaráðherra úr
Framsóknarflokki.
Þeir Bjarni og Emil eru báðir
látnir, en Eysteinn sagði við
Þjóðviljann í gær að þeim hefði
aldrei dottið í hug að hér yrði
gerð uppreisn, enda hafi verið
tekið fram við inngönguna í Nató
að hér yrði aldrei her á friðartím-
um.
Eysteinn sagðist hafa svarað
þessu áður, í bókinni um 30.
mars, og kæmi þetta fram í nótum
Hans Andersens frá ráðherra-
nefndarfundunum. Sá ótti um
uppreisn eða valdatöku íslenskra
sósíalista sem lesa mætti um í
bandarískum skýrsium og
skjölum væri „einhver meinloka“
hjá þeim vestra. -m
Flmmtudagur 12. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3