Þjóðviljinn - 12.11.1987, Blaðsíða 6
FLÓAMARKAÐURINN
Dísarpáfagaukur
2V2 árs karlfugl
til sölu, kr. 10 þús. Búr fylgir. S.
72182.
Dóttir okkar er
að verða 7 ára
og er I Vesturbæjarskóla við Öldu-
götu kl. 8-12. Er ekki einhver
barngóð kona í hverfinu sem myndi
vilja aðstoða okkur u.þ.b. 2svar í
viku þ.e. sækja hana í skólann og
leyfa henni að vera eitthvað fram-
eftir? Vinsamlegast hringið í síma
44326. Auður og Eiríkur.
Til sölu
stigin saumavél í skáp, fæst fyrir
lítið. Uþþl. s. 31685.
Til sölu borð-
stofuborð úr furu
80x140 og 5 pinnastólar. Einnig
fæst gefins barnabaðborð og
reiðhjól. S. 671186 f.h. og e.kl. 17.
Til sölu
lítið notuð borðsög
á kr. 15 þús. og nánast ný handvél-
sög á kr. 10 þús. Uþpl. s. 611487 í
hádeginu, á kvöldin og um helgar.
Orgel óskast
má vera gamalt. Sími 35742.
Til sölu
2ja borða Winner rafmagnsorgel
með fótbassa og skemmtara til sölu
ódýrt. Einnig nýlegur körfuhengi-
stóll. Uppl. s. 72196.
Ársgömul Morris
uppþvottavél
til sölu á kr. 12 þús. Uþþl. s. 78694.
Fuglabúr óskast
Við erum 3 saman búin að safna
fyrir fuglum, en okkur vantar ódýrt
búr. Ef þið eigið ónotað búr, hringið
í s. 20826.
Ég er nemi
í Tækniskóla íslands, sonur minn er
4ra ára á dagheimili í vesturbæn-
um. Okkur feðga vantar sárlega
íbúð í mið- eða vesturbæ Reykja-
víkur. Við erum í síma 18716 á
kvöldin.
Tvíbreitt
fururúm frá IKEA
1,60x2 m til sölu á kr. 5 þús. (Án
dýna) Uppl.s. 10339 eða 78449.
Til sölu
Lada 1600 árg. ’82
dökkbrúnn, ekinn 51 þús. km, með
útvarpi og segulbandi, góður bíll.
Staðgreiðsluverð kr. 80 þús. Uþpl.
s. 621699 á daginn og 13144 á
kvöldin.
Viltu læra spænsku
eða katalónsku?
Spænskur nemi við Háskóla ís-
lands vill kenna fólki spænsku og/
eða katalónsku. Vinsamlegast haf-
ið samband við Jorde á herbergi nr.
2 á Nýja Garði, sími 625308.
Bókahillur til sölu
á kr. 3 þús. Á sama stað óskast
sófasett 3+1 +1. Uppl. s. 11890 e.
kl. 19.
Til sölu jólasveinahúfur
og jólasveinabúningar
Uppl. s. 32497 e. kl. 20 á kvöldin.
Einstaklingsíbúð óskast
sem fyrst í Reykjavík. Uppl. i síma
32738.
Vandaðir og vel útlítandi hlutlr,
- mjög ódýrir
Ross Bigmouth 100W bassamagn-
ari, 100 ára gamall rokkur, eðal-
smíði, basthilla, bastblómaborð,
baðskápur með speglahurðum, 2
baðspeglar, nokkur baðhengi með
flúri, borvél með fylgihlutum,
strauborð, fatahengi og 2 ferða-
töskur. Uppl. gefur Steinn í síma
45755
Bamabílstóll
lítið notaðurtil sölu. Uppl. s. 21784.
Masterhöll til sölu
á kr. 500.- Uppl. s. 21784.
Ofn - gamall og góður
hitaofn til sölu. Ágætur í kjallara.
Uppl. s. 21784.
Mjög vel með
farið rúm
og hillusamstæða með skrifborði í
sama stíl til sölu. 5 ára gamalt frá
Línunni. Verð 10 þús. Sími 39563 e.
kl. 18.
Píanóstóll og sófi
Óska eftir stillanlegum píanóstól og
litlum 2ja sæta sófa. Uppl. gefur
Bella í símum 78944 vs. 17703. hs.
Mig vantar
IBM kúluritvél
Uppl. í s. 79126.
Vel með farin
leikföng óskast
gefins, helstúrtré. Einnig bækurog
smáir LEGÓ kubbar. Verður sótt. A
sama stað vantar ísskáp. Hringið í
síma 27050 e.kl. 17.
2 snjódekk
og 2 sumardekk
á felgum 15" fást fyrir lítið eða ekk-
ert. Uppl. s. 45530 á kvöldin.
Vantar hrein-
gerningakonu
til að gera hreint fyrir jólin. Uppl. s.
30184.
Svefnbekkur
Notaður, vel með farinn svefnbekk-
urtil sölu. Uppl. í s. 51643 e.kl. 15.
Herbergi óskast
til leigu í einn mánuð. Helst í mið-
bænum. Uppl. s. 68124.
Til sölu
mjög lítið notuð Lase XT PC 640 K.
Forrit geta fylgt. S. 35963 e. kl. 20.
Stór stofuskápur
með gleri (gamall) til sölu ódýrt.
Uppl. s. 16502.
Rafha eldavél
fæst gefins
Á sama stað er óskað eftir gardín-
um af öllum stærðum og gerðum, ef
það á að henda þeim gömlu. Sími
e.kl. 19 689024, 83116 og 97-
21292.
Ert þú að breyta?
Þarftu kannske að losna við sitt-
hvað sem okkur vantar í búið? T.d.
ísskáþ, eldavél, eldhússtóla, gar-
dínur, Ijós og gamla kommóðu.
Vonumst til að heyra frá þér í síma
84793.
Klósett - rafmagnshellur
Vantar hvítt klósett með stúti í vegg.
Sömuleiðis 2ja hellna rafmagns-
plötu. Uppl. í síma 77393.
Tll sölu ATLAS frystikista
210 I. Verð kr. 6.000. Uppl. í síma
22894 e.kl. 17.
Tek að mér að sauma
ýmislegt, helst jakka, frakka og
kápur. Er handavinnukennari.
Hringið í síma 45677 e.kl. 17.
Góður bíll til sölu
Til sölu er Fiat 127 árg. '85. Hag-
stætt verð. Sími 681310 kl. 9-17 og
13462 eftir kl. 19.
Fylkingin vili innbú
Óskum eftir innbúi og öllum mögu-
legum hlutum t.d. eldhúsvask, kaffi-
könnum, stólum, borðum, o. s. frv.
Helst gefins eða mjög ódýrt.
Uþplýsingar í síma 54171, 51866
(Hulda) og 651462 (Sveinþór).
Æskulýðsfylking AB
Hafnarfirði
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiöenda skal vakin á því aö
gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina september
og október er 15. nóvember n.k.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
LANDSFUNDUR ALÞÝÐUBANDALAGSINS1987 LANDSFUNDUR ALÞÝÐUBAND|aLAGSINS 1987LANDSFUNDUR ALÞÝÐUBANDALAGSINS1987LANDSFUNDUR ALÞÝÐUBANDALAGSINS1987 LANDSFUNDUR
Ályktun um utanríkismál
Herlaust og friðlýst Island
Framtíðarsýn Alþýðubanda-
lagsins til utanríkis- og friðar-
mála mótast af þeirri grundvall-
arafstöðu að friður öryggi og
sjálfstæði íslensku þjóðarinnar
verði best tryggt með því að
Bandaríkjaher hverfi á brott,
engar erlendar herstöðvar verði
leifðar og ísland segi sig úr
NATO. Samtímis verði tekin upp
sjálfstæð og virk hlutleysisstefna í
utanríkismálum sem grundvallist
á þjóðlegri reisn og friðarviðleitni
nær sem fjær.
í framtíðinni verði íslendingar,
sem lengst af fyrrum, herlaus og
vopnlaus þjóð sem tryggi öryggi
sitt með gagnkvæmum skuld-
bindingum við aðrar þjóðir,
samtök þjóða og alþjóðastofnan-
ir um að virða hlutleysi og vopna-
leysi landsins. Um leið skuld-
bindi íslenska þjóðin sig til að
fara ekki með vopnum gegn
neinni þjóð, vopnast ekki sjálf né
leyfa neinum öðrum að nota land
sitt eða lögsögu sína í sama skyni.
Þessu fylgi einnig alger friðlýsing
íslands og íslenskrar lögsögu fyrir
kjarnorku- og eiturefnavopnum
með sérstakri friðlýsingarlöggjöf
og ákvæðum í stjórnarskrá.
Friðlýst ísland
Hið friðlýsta íslenska svæði
verði svo annað hvort þegar í
upphafi eða síðari stigum hluti af
stærri kjarnorkuvopnalausum
eða friðlýstum svæðum. Sömu-
leiðis tryggi fslendingar sjálfir og
í samvinnu við aðra eftirlit og að-
stöðu á alþjóðlegum vettvangi til
að fylgja því eftir að friðlýsing og
hlutleysi landsins sé virt.
Landsfundur Alþýðubanalags-
ins telur að allar aðstæður í
heiminum nú, bæði innanlands
og utan, mæli sérstaklega með
þvf að íslendingar taki utanríkis-
mál sín og afstöðu til afvopnunar-
og friðarmála til gagngerrar
endurskoðunar, þar með talið
dvöl erlends hers í landinu og að-
ild að hernaðarbandalagi. Þíðu
gætir í samskiptum stórvelda, og
horfur eru á því að þau taki fljót-
lega fyrsta skerfið til afnáms
kjarnorkuvígbúnaðar. Þetta er
fagnaðarefni fyrir íslenska þjóð
sem afdráttarlaust hefur látið í
ljós andstöðu sína við kjarnorku-
vopn, m.a. með stuðningi sínum
við kröfuna um kjarnorkuvopna-
laust svæði á Norðurlöndum. Sú
afstaða felur í raun í sér
fullkomna andstöðu við NATO
og kjarnorkuvígbúnaðarstefnu
þess.
Nú er því lag fyrir íslendinga á
að taka frumkvæði er leitt gæti ti!
minnkandi spennu og betri og
friðvænlegri sambúðar þjóðanna
í okkar heimshluta. Eftirfarandi
aðgerðir gætu orðið áfangar
stjórnvalda á þeirri leið og jafn-
framt fært íslensku þjóðina nær
þeim markmiðum sem Alþýðu-
bandalagið berst fyrir, herlaust
og friðlýst land:
* Unnið verði að uppsögn her-
stöðvasamningsins.
* Endurskoðun á öllum sam-
skiptum við herinn og endur-
skipulagning þeirra mála í
stjórnkerfinu. Afnumið verði
airæðisvald utanríkisráðherra
í meðferð þessarra mála og
lýðræðisleg umfjöllun og á-
kvarðanataka tryggð meðal
annars með beinni þátttöku Al-
þingis.
* Dregið verði úr umsvifum
hersins og fækkað í herliðinu
jafnt og þétt. Allur tækjabún-
aður sem nota mætti til árásar-
aðgerða verði fluttur burt.
Herskip eða önnur farartæki
komi ekki inn í landhelgi Is-
lands nema tryggt sé og yfirlýst
að þau beri ekki kjarnorku-
vopn innanborðs.
* Herinn verði algerlega einang-
raður efnahagslega og menn-
ingarlega. Stefnt skal að því að
verktakar og aðrir sem þjón-
usta herinn dragi úr starfsemi
sinni í áföngum þannig að slík
samskipti við hann verði engin
innan tiltekins tímabils og sú
einangrun haldist meðan her-
inn dvelst í landinu.
* Samfara einangrun hersins
verði hrint í framkvæmd
öflugri áætlun um uppbygg-
ingu atvinnulífs á Suðurnesjum
og annars staðar þar sem menn
hafa haft atvinnu af þjónustu
við herinn. Tryggt verði að allt
það starfsfólk sem áður vann
við störf er tengdust hernum fái
þjóðnýt störf við hæfi.
* Hafinn verði undirbúningur að
úrsögn íslands úr Atlantshafs-
bandalaginu.
* Friðlýsing landsins og virk
þátttaka í undirbúningi og
stofnun kjarnorkuvopnalauss
svæðis á Norðurlöndum eða
stærri svæðum.
* Boðið verði til alþjóðlegrar
ráðstefnu á íslandi til að skipu-
leggja og undirbúa samninga-
viðræður um afvopnun í
Norðurhöfum. Sérstaklega
þarf að berjast gegn áformum
um stórfellda aukningu kjarn-
orkuvopna í höfunum og þeirri
hættu að þeim fjölgi enn í fram-
haldi af samningum stórveld-
ana um fækkun eldflauga með
kjarnorkusprengjur á landi.
* Mótun sjálfstæðrar óháðrar
utanríkisstefnu sem grundvall-
ist á virkri friðarviðleitni og
þjóðlegri reisn. Einnig á
auknum framlögum til þróun-
arsamvinnu og samstöðu með
róunarríkjum og stuðningi við
frelsishreyfingar og sjálfstæðis-
baráttu aíþýðu hvarvetna gegn
arðráni og kúgun.
Landsfundur Alþýðubanda-
lagsins undirstrikar að baráttan
fyrir afvopnun og friði er eitt
mikilvægasta verkefni flokksins
og markmiðið um herlaust og
hlutlaust land er órjúfanlegur
hluti af stefnu Alþýðubandalags-
ins í þjóðfrelsis- og friðarmálum.
Sem fyrr vill landsfundur Al-
þýðubandalagsins árétta stefnu
flokksins í utanríksimálum að því
er varðar eftirfarandi:
Eflt verði alþjóðlegt sam-
stöðustarf gegn bandarískri íhlut-
unarstefnu, m.a. með auknum
stuðningi við Nigaraqua.
Alþýðubandalagið beiti sér
gegn þeirri stefnu ofbeldis sem
israelsstjórn stendur fyrir á hend-
ur palestínsku þjóðinni.
Alþýðubandalagið beiti sér
fyrir því að ísland taki fullan þátt
í efnahagslegum þvingunarað-
gerðum gegn stjórn hvíta minni-
hlutans í S-Afríku og styður
þannig baráttu meirihlutans á
þessu svæði gegn kynþáttahatri
og aðskilnaðarstefnu, fyrir jöfn-
uði og framförum.
Alþýðubandalagið fagnar
þeirri þróun sem nú má merkja í
Sovétríkjunum í átt að auknu lýð-
ræði og til umbóta í mannrétt-
indamálum. Jafnframt ítrekar
ekkt baráttufólk úr vinstri hreyfinaunni og verkalýðsbaráttunni sem starði ötullega á Landsfundinum. Frá v. Guð-
mundur Hallvarðsson, Birna Þórðardóttir, Páll Halldórsson og gegnt þeim situr Ragnar Stefánsson
Mynd - E. Ól.
Konur létu mikið til sín taka á Landsfundinum en þær voru nær helmingur Landsfundarfulltrúa. Hér ræða þær málin í
léttum tón. Frá v. Guðrún Ágústsdóttir, Stefanía Harðardóttir, Sigrún Valgeirsdóttir og Jóhanna Leopoldsdóttir.
Mynd - E. Ól.
Alyktun um jafnréttismál
Meiri tíma meö bömunum
Frambjóðendur í formannskjörinu Ólafur Ragnar og Sigriður koma af fundi
kjörstjórnar þar sem þeim var fyrstum tilkynnt um úrslit í formannskjörinu.
Mynd - E. Ól.
flokkurinn mótmæli sín við
stríðsrekstri Sovétríkjanna í
Afganistan og krefst þess að allri
erlendri íhlutun verði hætt og Af-
ganir fái að ráða málum sínum
sjálfir. Einnig ítrekar Alþýðu-
bandalagið fyrri andstöðu sína
við hernám sovéska hersins í
Tékkóslóvakíu.
í umræðum undanfarið hefur
komið fram að áhrifamiklir aðilar
í íslensku atvinnu- og stjórnmála-
lífi vilja láta undan þrýstingi
Evrópubandalagsins og að ísland
gerist aðili að því. Vegna þessa
ítrekar landsfundur Alþýðu-
bandalagsins andstöðu sína við
slíka aðild. Það er hlutverk Al-
þýðubandalagsins að benda á þá
hættu sem slík aðild hefði í för
með sér fyrir efnahagslegt,
menningarlegt og stjórnmálalegt
sjálfstæði þjóðarinnar. Evrópu-
bandalagið þróast nú markvisst í
það að verða ekki einungis einn
markaður, heldur eitt ríkisvald
og e.t.v. með einn her - Banda-
ríki Vestur Evrópu. Gagnvart
þessu þarf Alþýðubandalagið að
taka skýra afstöðu og móta við-
brögð við þeim þrýstingi sem bú-
ast má við af þeim volduga
granna.
Landsfundurinn varar við
þeim hættum fyrir sjálfstæði
þjóðarinnar sem eru samfara
auknum ítökum erlendra fjár-
magnsaðila í efnahags- og at-
vinnulífi þjóðarinnar. Fundurinn
mótmælir sérstaklega frumvarpi
ríkisstjórnarinnar um að afnema
lagaákvæði sem hindra meiri-
hlutaeign erlendra aðila í íslensk-
um fyrirtækjum.
Sósíalískur flokkur verður að
hafa sjálfstæða menningarstefnu
og fylgja henni eftir.
Flokkurinn þarf í fyrsta lagi að
knýja á um að sköpuð verði sem
best almenn skilyrði til menning-
arlífs þar sem saman fara tjáning-
arfrelsi, virðing fyrir rétti lista-
manna og nauðsynlegt örlæti
samfélagsins vjð listir og menn-
ingaruppeldi. I menningarstefnu
sinni þarf Alþýðubandalagið
einkum að taka mið af eftirtöld-
um atriðum:
Hvergi á byggðu bóli er áhugi
almennings á bókmenntum og
listviðburðum sem og vilji til
þátttöku í skapandi menningar-
starfi jafn mikill og á íslandi. Þess
vegna er það skylda ríkisins að
sinna þeim áhuga með stuðningi
sínum. Öflugt menningarlíf er ein
helsta forsenda þess, að íslend-
ingar geti lifað af sem sjálfstæð
þjóð. Varðveisla menningar-
verðmæta og þekking á þeim eflir
sjálfsvitund þjóðarinnar, því að
fortíð skal hyggja er framtíð skal
byggja. Vakandi áhugi á íslensk-
Alþýðubandalagið ætlar að
vinna gegn því misrétti sem ríkir
milli kynjanna og áréttar að bar-
áttan fyrir kvcnfrelsi og jafnrétti
er nauðsynlegur hluti baráttunn-
ar fyrir sósíalísku þjóðfélagi.
Astæður misréttisins eru annars
vegar aldagömul viðhorf karla-
vcldisins og hins vegar samfélags-
gerðin, þar sem markaðslögmál-
in ráða og cndurspcglast í sam-
skiptum fólks. Það er stefna Al-
þýðubandalagsins að karlar og
konur vinni saman að því að
koma á jafnrétti kynjanna.
Alþýðubandalagið telur
nauðsynlegt skref til að ná
jafnrétti, að beitt verði sérstök-
um tímabundnuni aðgerðum í
þágu kvenna til þess að ná þess-
um markmiðum m.a. með eftir-
farandi aðgerðum:
- laun í hefðbundnum kvenna-
störfum hækki meira en í öðr-
um starfsgreinum
- ráðist verði gegn launamisrétti í
formi yfirborgana og annarra
fríðinda - konur njóti uns fullu
jafnrétti er náð þegar þær sækja
um hefðbundin karlastörf,
enda sé um hæfa umsækjendur
að ræða, - markvissu átaki til
um menningararfi eflir allt félags-
líf og þar með lýðræði í landinu.
Við verðum að berjast gegn
menningarlegri stéttaskiptingu
og þeirri hávaðamengun frá fjöl-
þjóðlegum afþreyingariðnaði,
sem slævir dómgreind fólks meir
en nokkuð annað nú á dögum.
Þátttaka í menningarlífi ýtir
undir frjóa forvitni um menn og
samfélag og gagnrýni á þær að-
stæður, sem ríkjandi eru hverju
sinni. En þess er naumast að
vænta að menn séu virkir þátttak-
endur og sköpuðir í menningar-
lífi.
Fráleitt er að krefjast þess að
menning skili peningaarði.
Kostnaður við rækt hennar hlýtur
því að langmestu leyti að greiðast
af almannafé. Einstaklingar og/
eða fyrirtæki þeirra geta vissu-
lega lagt menningarstarfsemi lið
með margvíslegum hætti. Slíkt
ber að örva m.a. með skattaíviln-
unum.
Alþýðubandalagið telur því
brýna nauðsyn, að ríkið stórefli
menningarstarfsemi. Nokkur
fyrstu skref í þá átt eru:
að auðvelda konum hverskonar
eftirmenntun.
Til að breyta ríkjandi viðhorf-
um til atvinnu, menntunar og fé-
lagslegrar þátttöku er nauðsyn-
legt að karlmenn axi þá ábyrgð
sem fylgir því að annast heimili
og ala upp börn. Alþýðubanda-
lagið telur að nauðsynleg fors-
enda ftyrir jafnrétti og virku sam-
starfi sé að foreldrum ungbarna
verði gert kleift að verja meiri
tíma með börnum sínum. Því vill
Alþýðubandalagið
- að foreldrum ungbarna sé gert
kleift að vinna 30 stunda vinnu-
viku en haldi fullum launum,
- að fæðingarorlof verði lengt í
eitt ár og foreldrar geti skipt því
með sér, þó þannig að feður fái
að lágmarki einn mánuð,
- lögbinda að fæðingarorlof
verði metið til starfsreynslu.
Alþýðubandalagið leggur
áherslu á hlutverk skólans í
mótun viðhorfa til jafnréttis og
vill að jafnréttisfræðsla verði að
námsgrein í öllum bekkjum
grunnskólans. Markmið slíkrar
fræðslu á að vera að einstaklingar
af báðum kynjum
1) Að ríkisstjórn fari að settum
lögum í menningarmálum.
2) Að hafin verði sókn í menn-
ingarmálum með því að
heildarframlög til lista- og
menningarmála verði tvöföld-
uð.
3) Að öll lög um menningar-
stofnanir verði endurskoðuð á
fjögurra ára fresti. Yfirmenn
hjá menningarstofnunum
verði ráðnir einungis til fjög-
urra ára í senn og skylt sé að
auglýsa stöður að loknu
hverju ráðningartímabili.
Skilgreint verði nákvæmlega
valdsvið, starfssvið og ábyrgð
þeirra aðila, sem fara með
stjórn slíkra stofnana, svo og
kröfur um menntun og/eða
reynslu.
4) Að Ríkisútvarpið fái lögboðn-
ar tekjur sínar óskertar og á-
kveði sjálft afnotagjöld sín,
svo það sé síður háð geðþótta
auglýsenda og geti haldið uppi
vandaðri innlendri og erlendri
dagskrá.
5) f samræmi við kröfur og áhuga
almennings verði kennsla í
- velji sér starfssvið án tillits til
hefðbundinnar hlutverkaskipt-
ingar,
- fái notað hæfileika sinna í
þjóðfélagi þar sem bæði kynin
sitja við sama borð.
8 .landsfundur Alþýðubanda-
lagsins fagnar frumvarpi Hjör-
leifs Guttormssonar og Guðrún-
ar Helgadóttur um breytingar á
jafnréttislögum frá 1985 sem
miðar að því að tryggja sem jafn-
asta tölu fulltrúa beggja kynja í
stjórnum, nefndum og ráðum á
vegum ríkis, sveitarfélaga og fé-
lagasamtaka. Landsfundurinn
lýsir stuðningi sínum við hug-
myndir sem fram hafa komið um
sérstaka jafnréttisráðgjafa við
ráðuneytin og hvetur jafnframt
þingmenn flokksins til að standa
vörð um sjálfsákvörðunarrétt
kvenna til fóstureyðinga.
Að lokum áréttar landsfundur
Alþýðubandalagsins að jafnrétt-
isbaráttan er ekki eitt afmarkað
svið heldur tekur til allra þátta
þjóðlífsins. Því er nauðsynlegt að
vega og meta öll nýmæli og laga-
breytingar á jafnréttisvoginni.
bókmenntum og listum á
öllum skólastigum stórefld og
fundnar nýjar leiðir til að auka
bein og virk tengsl skóla og
lista.
6) Að komið verði á fót nýjum,
öflugum sjóði, eins konar
lánasjóði menningarinnar, þar
sem einstaklingar, samtök og
menningarfyrirtæki geti sótt í
langtímalán og styrki til stórra
verkefna á sviði menningar-
innar.
Landsfundurinn ályktar að
kjósa nefnd á vegum flokksins,
sem hefur það verkefni að móta
tillögur í einstökum menning-
armálum fyrir þingflokk, bæjar-
fulltrúa og þá sem sæti eiga í
nefndum og ráðum á vegum
flokksins.
Landsfundurinn fordæmir
hinn heimskulega niðurskurð í
fjárlögum á framlögum til tón-
listarskóla, félagsheimila, minj-
asafna og sjálfrar Þjóðarbók-
hlöðunnar.
Alyktun um menningarstefnu
Heildarframlög verði tvöfölduð
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 12. nóvember 1987
Fimmtudagur 12. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7