Þjóðviljinn - 12.11.1987, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 12.11.1987, Qupperneq 8
Blöð og blaðamennska í nútíð ogframtíð Opinn fundur á vegum Blaðamannafélagsins í Listasafni Alþýðu, Grensásvegi 16, fimmtu- daginn 12. nóvember kl. 20.30. Ritstjórarnir og blaðamennirnir Arni Berg- mann, Björn Jóhannsson, Elías Snœland Jóns- son, Indriði G. Þorsteinsson ogSteinar J. Lúð- víksson verða með stutta framsögu. Umræður á eftir. Blaðamenn og allt áhugafólk um blöð og blaðamennsku velkomið. Munið afmælissýningu Blaðamannafélagsins - síðasta sýningarhelgi. Stjórn BÍ ^RARIK Klk. ^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftir- farandi: RARIK-87008: Raflínuvír 180 km. Opnunardagur: Fimmtudagur 10. desember 1987, kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyriropn- unartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, frá og með fimmtudegi 12. nóvember 1987 og kosta kr. 200.- hvert eintak. Reykjavík 11. nóvember 1987 Rafmagnsveitur ríkisins Innritun nemenda, sem ætla að hefja nám í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti á vorönn 1988, stendur nú yfir. Athygli er vakin á því að enn er unnt að bæta við nemendum einkum á heilbrigðissviði (sjúkraiið- ar), matvælasviði (matartæknar og matarfræð- ingar) og tæknisviði (nám til sveinsprófs á málmiðna-, rafiðna- og tréiðnabrautum. Sími skólans er 75600 Skólameistari Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir Ingólfur Pálmason fyrrv. lektor við Kennaraháskóla íslands verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 13. nóvember kl. 15. Blóm vinsamlega afþökkuð. Hulda Gunnarsdóttir Pálmi Ingólfsson Gunnar Ingólfsson Guðrún Ingólfsdóttir Eiríkur Rögnvaldsson LANDSFUNDUR ALPYÐUBANDALAGSINS 1987 LANDSFUNDUR Austfirðingar fjölmenntu á landsfundinn. Hér spjalla þeir saman, Finnbogi Jónsson framkvstj. Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og Lúðvík Jósepsson fyrrv. formaður Alþýðubandalagsins. Mynd - Sig. Alyktun um byggðamál Á landsbyggðinni er unnið að undirstöðuframleiðslu sem er grundvöllur að þeirri velmegun, sem þjóðin getur búið við. Til að tryggja þessa undirstöðu þurfa íbúar landsins að búa við sem jöfnust kjör og aðstöðu. Byggðin í landinu þarf að vera órofín keðja þar sem enginn hlekkur má missa sín. Ný tækni og viðhorf í atvinnu- málum hafa skapað ný sóknar- færi á landsbyggðinni. Samfé- lagsþróunin hefur á hinn bóginn stefnt í gagnstæða átt. Þessi staða gerir byggðamálin brýnni en nokkru sinni fyrr. Það á því að vera forgangsverkefni Alþýðu- bandalagsins á næsta ári að sam- ræma og endurnýja stefnu sína í byggðamálum. Landsfundurinn leggur til að framkvæmdastjórn skipi hið fyrsta 10 manna nefnd til að móta stefnu flokksins í öllum þáttum byggðamála. Nefndin starfi í ná- inni samvinnu við framkvæmda- stjórn, þingflokk og byggðamenn Alþýðubandalagsins. Liður í starfi nefndarinnar verði að halda ráðstefnur eða fundi í öllum kjör- dæmum fyrir lok apríl 1988. Einnig efni nefndin til landsráð- stefnu fyrir maílok og skili áliti á haustfundi miðstjórnar næsta ár. Ályktun um jafnan rétttil náms 8. landsfundur AB, 5.-8. nóv- ember 1987, bendir á að eitt meg- inmarkmið grunnskólalaganna er að allir nemendur hafí jafnan rétt til náms og þroska óháð kyni, stétt, búsetu og andlegu og líkam- legu atgervi. Alþýðubandalagið tekur undir þessi markmið og krefst þess að öllum nemendum séu búnar sem bestar aðstæður til menntunar. OECD skýrslan sýnir að stórátak þarf til að koma menntamálum þjóðarinnar í viðunandi horf. Til þess að auðvelda að svo megi verða bendir landsfundurinn á eftirfarandi: 1. Gera þarf Lánasjóði íslenskra námsmanna kleift að gegna hlutverki sínu, en markmið Lánasjóðsins er að tryggja að námsmenn geti stundað nám óháð efnahag félagslegra að- stæðna eða búsetu. 2. Þegar í stað verði komið á ein- setnum skóla þar sem nem- endum sé séð fyrir máltíð. 3. Auka þarf fjármagn til skóla- mála og gera um leið meiri kröfur um fjölbreytilega menntun. Sérstaklega skal bent á verk- og listgreinar. 4. Fræðsluskrifstofur verði efldar og þar með reynt að tryggja jafnan rétt milli landshluta. Aiþýðubandalagið fagnar ný- útkominni skólastefnu Kennara- sambands íslands og telur að með framkvæmd hennar takist að jafna rétt barna til náms og styrkja skólastarf í nútíð og fram- tíð. Ályktun um land- búnaöarmál Alþýðubandalagið lýsir yfír fullri samstöðu með þeim fjöl- mörgu bændum sem nú er verið að hrekja frá búum sínum í fram- haldi af lagasetningu Framsóknar og Sjálfstæðisflokks fyrir tveimur árum. Fundurinn felur miðstjórn að efna til landbúnaðarráðstefnu nú í vetur þar sem mörkuð sé róttæk stefna gegn þeirri óvægnu sam- dráttarstefnu sem nú er fylgt og bæði er handahófskennd og háskaleg fyrir framtíð byggða víðsvegar um land. Alyktun um stjómun fiskveiða 8. landsfundur Alþýðubanda- lagsins haldinn í Reykjavík dag- ana 5.-8. nóvember 1987 lýsir yfir stuðningi við þau meginmarkmið um fískveiðistjórnun sem fram koma í áliti efnahags- og atvinnu- málanefndar Alþýðubandalags- ins frá 25. febrúar 1987. Fundur- inn samþykkir að boðað skuli til sérstakrar ráðstefnu og/eða mið- stjórnarfundar fyrir lok nóvemb- ermánaðar n.k. um nánari út- færslu á fískveiðistefnunni, eink- um með tilliti til væntanlegs frumvarps á Alþingi um stjórnun fiskveiða fyrir næsta ár. Fundurinn ítrekar það grund- vallarsjónarmið að fiskimiðin og fiskistofnarnir séu sameign allra landsmanna og það séu öðru fremur sjómenn og fiskvinnslu- fólk sem skapi úr þeim verðmæti. Því skuli sameiginlegir hagsmun- ir þeirra hafðir í fyrirrúmi við stjórnun fiskveiða. Ályktun um skýrslu Efnahags- og atvinnu- málanefndar Efnahags- og atvinnumála- nefnd, sem kosin var á 7. lands- fundi Alþýðubandalagsins hefur nú skilað áliti sínu. 8. landsfundur Alþýðubanda- lagsins telur álit nefndarinnar grunn að frekari stefnumótun flokksins í þessum málaflokki. Landsfundurinn felur fram- kvæmdastjórn að gefa út álitið eftir að nauðsynlegar breytingar vegna úreldingar hafa verið gerð- ar, þannig að það verði aðgengi- legt öllum félögum og stuðnings- mönnum flokksins. 8. landsfundur Alþýðubanda- lagsins felur miðstjórn að af- greiða á grundvelli álitsins og um- ræðu í flokknum um það, stefnu flokksins í efnahags- og atvinnu- málum. Stuðningur við baréttu verslunarfolks í Reykjavík 8. landsfundur Alþýðubanda- lagsins lýsir yfir stuðningi við bar- áttu verslunarfólks í Reykjavík gegn óhóflega löngum vinnudegi. Fjáimagntilnýira veika sveitarfélaga Landsfundur AB átelur harð- lega þá fyrirætlun fjármálaráð- herra.sem fram kemur í fjárlaga- frumvarpi fyrir árið 1988, að færa verkefni yfir til sveitarfélaga án þess að þau fái tilsvarandi aukna tekjustofna á móti. Landsfundurinn krefst þess að þess sé gætt að sveitarfélögin beri ekki skarðan hlut frá borði eins og þau munu gera á næsta ári ef fjárlagafrumvarpið nær óbreytt fram að ganga. Samþykktum auknafræðsluum sjávanítvegogfisk- vinnslu í Ijósi þeirrar staðreyndar að sjávarútvegur og fiskvinnsla eru höfuðstoðir íslensks mannlífs, leggur landsfundur AB til að fræðsla um þessi mál verði stór- aukin í skólum landsins. Ályktun um starfshóp er geri drög að stefnumótun í fjöl- skyldu-, uppeldis-og menntamálum Landsfundur Alþýðubanda- lagsins 5.-8. nóvember 1987 felur nýkjörinni miðstjórn að setja á fót starfshóp sem móti drög að stefnu flokksins í fjölskyldu-, uppeldis- og menntamálum og skili niðurstöðum til miðstjórnar fyrir 1. júní 1988. Forystumenn í verkalýðshreyfingu og stjórnarformaður Menningar- og fræðslusambands alþýðu hlýða á umræður á fundinum. Frá v. Guðmundur Þ. Jónsson form. Iðju, Helgi Guðmundsson MFA og Grétar Þorsteinsson form. Trésmiðafélags Reykjavíkur. Mynd - Sig. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. nóvember 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.