Þjóðviljinn - 12.11.1987, Page 14
' BONDWELL BW-8 '
ERLENDAR FRETTIR
Rœmugerð
Kjöltutölva,
sönn ferðavél
sem vegur
aðeins 4.5 kg.
PC / XT -
samhæfð
512K
vinnsluminni
• LCD skjár, baklýsing, 80 stafir í lfnu x 25 línur
640x200 punkta upplausn (IBM CGA samhæft)
• Innbyggð síklukka/dagatal
• RS 232 raðtengi
• Centronics, samhliða prentaratengi
• RGB og composite video skjátengi
• Innbyggðar hleðslurafhlöður sem endast í 6 klst
við samfellda notkun
• Innbyggt 3 1/2" 720k disklingadrif
• Hægt að fá utanáliggjandi 5 1/4 og/eða
3 1/2 aukadrif
• Verð kr. 68.850
FJÖLKAUP HF. TÖLVUVERSLUN
Laugavegi 163, (Skúlagötumegin)
Sími 622988
Attenborough
gegn apartheid
Nýjasta mynd leikstjórans afhjúpar
bölvun aðskilnaðarstefnunnar
í Suður-Afríku
Hinn heimsþekkti leikstjóri,
Richard Attenborough sem
gerði meðal annars þá margverð-
launuðu mynd Gandhi, segist
ekki vera að sækjast eftir lofi
gagnrýnenda með nýjustu mynd
sinni, Frelsisákallinu, heldur vilji
hann upplýsa fólk um bölvun að-
skilnaðarstefnunnar í Suður-
Afrfku
Viðbrögð filmrýna hafa að
nokkru gengið eftir, og finnst
þeim mörgum hverjum að hér sé
klunnalega að verki staðið.
í Frelsisákallinu er rakin vin-
átta hvíta ritstjórans Donald Wo-
ods og svarta baráttumannsins
Steve Biko, og þykir apartheid
ekki hafa fengið annað eins gúm-
orin á hvíta tjaldinu í annan tíma.
Myndin var frumsýnd í Banda-
ríkjunum í byrjun þessa mánað-
ar, en hún var gerð í Zimbabwe
og Kenya. Næstu mánuði verður
leikstjórinn á faraldsfæti um
heimsbyggðina til að vinna að
framgangi myndar sinnar í kvik-
myndahúsum.
Steve Biko var einn af leið-
togum blökkumanna í Suður-
Afríku á sinni tíð. Hann var
pyndaður til dauða í fangelsum
suður-afrískra apartheidböðla.
Woods lenti í ónáð heima fyrir
MacGenius
<<*»«** Makí'
Ot íjOM.
Steve Biko: saga hans er uppistaðan
í nýjustu kvikmynd leikstjórans Ric-
hards Attenboroughs.
sakir vináttu sinnar við Byko.
Lögreglan hafði nánar gætur á
heimili hans, en þrátt fyrir ár-
vekni laganna varða tókst honum
að flýja land.
Vinátta þesara manna er rauði
þráðurinn í myndinni, segir Att-
enborough; ég vildi ekki velta
mér upp úr örvæntingunni. I
rauninni er ég gömluð
karlkynsútgáfa af Mary Poppins.
Ég trúi hikstalaust á sigur
mannsandans.
HS
^"■■ÖRFRÉTTIR'
Kötturinn Lúsífer
lagði heldur en ekki land undir fót
á dögunum. Hann varð viðskila
við eigendur sína í Svíþjóð og
lagði á sig mánaðarreisu til að
koma endurfundunum í kring, og
keyfaði í þessu skyni 300 kíló-
metra. Eigendurnir voru að von-
um upprifnir er þeir heimtu Lúsíf-
er úr helju; hann var sárfættur og
mjór eins og þvengur, en annað
amaði ekki að honum, söqðu
þeir.
Opnunartími bjórkráa
í Englandi og Wales breytist á
næstunni, en hingað til hafa slík
hús verið lokuð frá klukkan þrjú til
hálfsex á eftirmiðdögum. Margur
þorstlátur ferðalangurinn í bjórleit
hefur farið flatt á þessari reglu og
landsstjórnin álítur hana fárán-
lega. Þingið hefur nú samþykkt
að opnunartíminn verði samfelld-
ur frá kl. ellefu að morgni til jafn-
lengdará kvöldi. Regla þessi hef-
ur verið við lýði síðan í fyrra stríði,
en þá var hún sett til að stemma
stigu við drykkjuskap starfsfólks í
hergagnaiðnaðinum.
Spaghettimafíós
gripinn: Alfons Persico, uppúr-
standandi mafíós í Colombofjöl-
skyldunni í New York vargripinn í
eldhúsinu heima hjá sér fyrir
skemmstu þar sem hann var að
malla sér spaghetti. Lögreglan
hefur verið á höttunum eftir
kauða árum saman og var að
vonum lukkuleg með feng sinn.
Persico var dæmdur fyrir morð
árið 1951 og sat inni í átján ár.
Árið I980 heiðraði hann svo
dómstól með fjarveru sinni, enda
mátti hann vænta 60 ára dóms
fyrir fjárdrátt í það skiptið. Síðan
hefur hann farið huldu höfði.
Hann hefur gert víðreist í útlegð-
inni, en sjónarvottar telja sig hafa
séð hann í Japan, Kaliforníu,
Suður-Ameríku, Honolulu, Miami
og víðar. Jafnan slapp hann þó
frá löngum armi laganna, þar til
eldamennskan varð honum að
falli.
Rauðstjörnuvöllurinn
í Belgrad í Júgóslavíu hefur feng-
ið heldur óvenjulega andlitslyft-
ingu. Grasið hefur fölnað með
haustkomunni eins og lög gera
ráð fyrir, en það þótti heima-
mönnum ekki nógu gott þar sem
mikilvægur fótboltalandsleikur
við Englendinga stendur fyrir dyr-
um, og því var gripið til þess ráðs
að mála völlinn grænan. Til þess
arna var notað nýuppfundið efni,
og fullyrðir vallarstjórnin að leik-
menn muni ekki skitna þótt þeir
veltist í grasinu í hita leiksins.